Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
í
... að endurnæra
rómantíkina.
TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
* 1979 Los Angetes Times Syndicate
— Og aðra daga er ekki bein
að hafa úr sjó.
Með
morgimkaffinu
Hvað um prestkonur mamma.
Eru þær í pilsbuxum?
HÖGNIHREKKVÍSI
Við flugumferðarstjóra
Flugnmf erðarstj órar verði
allir sendir í læknisskoðun
Fréttir í Ríkisútvarpinu 30. jan-
úar sl. um veikindi flugumferðar-
stjóra hafa heldur betur sett óhug
í fólk sem hafði ætlað að fljúga í
náinni framtíð.
Það hefur sem sagt
komið í ljós að flugumferðarstjórar
eru óvenju heilsutæpir menn. Flug-
menn verða að standast mjög
stranga læknisskoðun ef þeir eiga
að halda sínu starfí. Hvemig væri
nú að flugmálayfírvöld tækju á sig
rögg og sendu alla flugumferðar-
stjóra í allsheijar læknisskoðun
bæði til sálar og líkama? Ég undrast
ef flugfélögin heimta ekki alvöru
læknisskoðum manna sem em jafn
nauðsynlegir og öryggishlekkir
flugsins.
Eg er einn af þeim sem þora
ekki að fljúga við núverandi
ófremdarástand.
Sig. H. Sigurðsson
Tónleikar með
Stefan A.J. Duffy?
Kæri Velvakandi.
Við emm tvær að norðan og
okkur dauðlangar að vita hvort
Stephen A.J. Duffy kemur til lands-
ins í febrúar og heldur tónleika eins
og talað hefur verið um. Það er
nauðsynlegt að um það fréttist sem
fyrst því það em fleiri unglingar í
landinu en þeir á höfuðborgarsvæð-
inu sem vilja fara á tónleikana. Ef
þeir verða, hvenær verða þeir þá
og er eitthvert aldurstakmark.
Tvær sem bráðvantar svar,
K.H. E.S.
Víkverji sknfar
Atli Heimir Sveinsson, tónskáld,
mun hafa lokið við samningu
balletts um ljóðaflokk Steins Stein-
arr, Tímann og vatnið. Ballett þessi
er saminn með það í huga, að ís-
lenzki dansflokkurinn allur komi við
sögu í sýningu verksins. Tónskáldið
var á starfslaunum hjá Þjóðleik-
húsinu fyrir nokkmm misserum og
er ballettinn afrakstur þess. Svo
skemmtilega vill til, að Steinn
Steinarr sjálfur hugsaði þennan
Ijóðaflokk sem ballett. í samtali við
Matthías Johannessen, sem birt er
í fímmta bindi samtala Matthíasar,
sem út hafa komið hjá Bókaklúbbi
Almenna bókafélagsins segir Steinn
Steinarr m.a.: „Það er engin form-
bylting í þessum kvæðum. Tíminn
og vatnið er, eins og þú veizt sjálf-
ur, varíeraðar terzínur. Það er ákaf-
lega gamalt form og þrælklassískt.
Terzínumar í Tímanum og vatninu
em ekki alltaf reglulegar, það er
öll formbyltingin. Ljóðaflokkurinn í
heild er upphaflega hugsaður sem
ballett byggður á goð- og helgi-
sögnum. Jú, það var nú meiningin,
hvað sem þú segir.“
Islenzki dansflokkurinn hefur
náð að festa rætur á þeim rúma
áratug, sem liðinn er frá stofnun
hans. Fmmkvæði Sveins Einarsson-
ar, fyrrum Þjóðleikhússtjóra að
stofnun þessa ballettflokks sýnir
bæði framsýni og djörfung. Listalíf
okkar er Qölbreyttara og blómlegra
fyrir bragðið. Sízt af öllu eigum við
Islendingar að vanrækja þessa
fogru listgrein. Landi okkar, Helgi
Tómasson, náði þeim árangri, að
verða talinn einn af fímm beztu
karldönsumm heims, að dómi ball-
ettgagnrýnanda New York Times,
Önnu Kisselgoff. Hann stjómar nú
ballettflokki San Fransico borgar.
Ungir dansarar hafa fylgt í fótspor
hans til útlanda og má nefna bæði
Auði Bjamadóttur og Einar Svein
Þórðarson, sem nú starfar í Stokk-
hólmi. Ásdís Magnúsdóttir hefur
gert garðinn frægan hér heima.
Átli Heimir Sveinsson er eitt
frumlegasta tónskáld okkar íslend-
inga um þessar mundir. Fyrir
nokkmm ámm hlaut hann tónlistar-
verðlaun Norðurlandaráðs. Enn er
í minnum höfð sýning Þjóðleik-
hússins á ópem hans, Silkitromm-
unni, sem komið hefur til tals, að
sett verði upp í sjónvarpinu. Von-
andi sér Þjóðleikhúsið sér fært að
setja upp bailett Atla Heimis
Sveinssonar um Tímann og vatnið,
þótt sjálfsagt sé ekki við því að
búast að kostnaður við uppsetning-
una skiii sé allur til baka.
XXX
Næturlíf Reykjavíkur er að fá á
sig alþjóðlegan blæ. Þótt þessi
fullyrðing hefði tæplega staðizt,
þegar unglingahópar lögðu undir
sig Hallærisplanið hvert kvöld síðari
hluta vikunnar fyrir nokkmm ámm
sannfærast menn um sannleiksgildi
þessara orða, með því að fara kvöld-
stund í veitingahúsið Broadway og
fylgjast með því, sem þar fer fram.
í rauninni er erfítt að gera sér grein
fyrir þeim breytingum, sem orðið
hafa á þjóðlífsháttum hér á einum
og hálfíim áratug nema með því
að kynna sér hið fjölbreytta nætur-
líf borgarinnar.
Engin spuming er um það, að
Ólafur Laufdal, veitingamaður,
hefur lyft skemmtanalífínu í borg-
inni á annað plan með þeim um-
fangsmiklu skemmtisýningum, sem
hann stendur fyrir í Broadway á
hveiju ári. Um þessar mundir eru
fluttþar sönglög eftir Gunnar Þórð-
arson. Sérstaka athygli vekur, að
sviðsframkoma söngvara og hljóð-
færaleikara er á allt öðru stigi, en
áður var. Hér má sjá að fagmenn
eru á ferðinni, en alltof lengi var
mikill viðvaningsbragur á íslenzk-
um skemmtikröftum, þegar þeir
komu fram. íslendingur, sem lengi
hefur dvalið erlendis og margt séð
hafði á orði við Víkveija, að þessi
sýning stæðist samanburð við það
bezta, sem hann hefði séð erlendis.
XXX
Nú er daufara yfír íslenzkri
kvikmyndagerð en verið hefur
síðustu árin, þegar nokkrar íslenzk-
ar kvikmyndir hafa verið frumsýnd-
ar á hveiju ári. Ástæðan er auðvitað
sú, að flestir þeirra, sem unnið hafa
að kvikmyndagerð hafa orðið fyrir
þungum fjárhagslegum áföllum
vegna of lítillar aðsóknar. Nú um
þessar mundir stendur þó yfír sýn-
ing á nýrri ístenzkri kvikmynd,
Löggulífí. Hvað sem annars má um
hana segja vekur æðislegur kapp-
akstur um götur Reykjavíkur, þar
sem bæði er komið við í Tjöminni
og gámakrana Eimskips inn í
Sundahöfn, umtalsverða athygli.
Ætli þetta sé ekki fyrsti kappakstur
sinnar tegundar í íslenzkri kvik-
mynd? Alla vega stóð miðaldra
áhorfanda ógn af því, hvað margir
glæsilegir bílar voru eyðilagðir eða
mikið skemmdir í þessum akstri -
kannski hafa þeir ekki verið svo
merkilegir fyrir! En kappaksturinn
í Löggulífí sýnir líka, að við hljótum
að eiga býsna mikla íþróttamenn í
bifreiðaakstri.