Morgunblaðið - 15.02.1986, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
38. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Chad:
Franskar hersveit-
ir í viðbragðsstöðu
Paris, 14. fcbrúar. AP.
FRANSKAR hersveitir i Mið-Afríku eru í viðbragðsstöðu vegna
bardaga milli stjórnarhersins í Chad og skæruliða, sem Líbýumenn
styðja, en bardagar brutust út á nýjan leik á mánudaginn var
eftir rúmlega árshlé. Paul Quiles, vamarmálaráðherra Frakk-
lands, fór skyndiferð tii Chad i gærkvöldi til viðræðna við ríkis-
stjórnina þar og fregnir herma að óskað hafi verið eftir afskiptum
Frakka af styijöldinni, en þeir aðstoðuðu Chad-búa einnig fyrir
ári siðan.
Nýr kennari valinn til geimferða
Barbara Morgan kennari hefur ákveðið að taka boði NASA,
bandarisku geimferðastofnunarinnar, um að fara út í geiminn
með geimfeiju og sýnir myndin hana ásamt manni sinum koma
af HlaðamnnnafunHi þar sem þetta var tilkynnt. Morgan kemur
í stað Chris McAuliffe, kennara, sem fórst með geimferjunni
Challenger fyrir skömmu.
Fimmtán hundruð franskir her-
menn eru í Mið-Afríku lýðveldinu
og 600 að auki í Gabon. Þá hefur
öllum Jagúar-þotum Frakka í Afr-
íku verið smalað saman í Bangui,
en þær eru 15 að tölu. Skæruliðar
hafa sótt yfir „rauðu línuna" svo-
nefndu, sem skiptir landinu í tvennt.
Frakkar drógu þessa línu þegar
vopnahlé var gert og sögðu þá að
yrði sótt yfir þessa línu myndi það
kalla á afskipti þeirra.
Filippseyjar:
Marcos sigurveg-
ari kosninganna
— þegar þingið hafði talið atkvæði úr 97% kiördæma
Manlla, 14. febrúar. AP.
MARCOS, forseti Filippseyja,
hefur ótvíræða forystu í for-
setakosningunum á Filipps-
eyjum, þegar þingið á aðeins
eftir að telja atkvæði úr 3%
kjördæma í landinu. Hefur
hann hlotið tæplega 10,2
miiyónir atkvæða og 53,8%,
en Corazon Aquino, mót-
frambjóðandi hans, hefur
fengið rúmlega 8,7 milljónir
atkvæða eða 46,2% atkvæða.
Þingið frestaði því til morg-
uns að Ijúka talningu, en þá
voru ótaldar 1,6 milljónir
atkvæða, svo eini möguleiki
Aquino á sigri er að öll at-
kvæði sem ótalin eru hafi
verið greidd henni. Flokkur
Marcosar hefur 2/s hluta sæta
áþinginu.
Stuðningsmönnum Marcosar og
Aquino lenti saman fyrir framan
þinghúsið þar sem talning fer fram
og særðust sjö manns, enginn þó
alvarlega. Aquino hefur ásakað
Marcos fyrir kosningasvik og sagst
vera sigurvegari kosninganna.
Namfrel, baráttusamtök óháðra
borgara fyrir heiðarlegum kosning-
um, segja að samkvæmt sínum
tölum hafi Aquino forystu í kosn-
ingunum. Þegar talið hafði verið í
64% kjördæma hafði Aquino hlotið
52% atkvæða, en Marcos 48%.
Yfirkjörstjóm á Filippseyjum segist
hafa talið atkvæði 67,2% kjördæma
og hafí Marcos 52% atkvæða á móti
48% Aquino.
Ráðstefna kaþólskra biskupa á
Filippseyjum fordæmdi forseta-
kosningamar vegna óheiðarleika og
skoraði á þjóðina að taka upp frið-
samlega baráttu fyrir réttlæti. 85%
Ferdinand Marcos, forseti
Filippseyja, á blaðamannafundi á
fimmtudag, en þá voru atkvæða-
tölur þingsins farnar að berast
og sýndu að hann var i forystu.
Flokkur Marcosar hefur 2/s hluta
sæta i þinginu á Filippseyjum.
þessarar 54 miiljóna þjóðar teljast
til kaþólsku kirkjunnar. í yfirlýs-
ingu biskupanna er ekki kveðið upp
úr með það hvor aðila hafi staðið
fyrir kosningasvikum, en þeir hafa
aldrei áður á valdatfma Marcosar
verið jafn harðorðir.
Öldungadeiidarþingmaður demó-
krata í Bandaríkjunum segir að
Bandaríkjamenn eigi að láta af
hlutleysi hvað forsetakosningamar
snertir vegna kosningasvika Marc-
osar og forsvarsmaður repúblikana
í öldungadeildinni, Bob Dole, segir
að hann muni ieggja það til við
vamarmálaráðuneytið, hvort ekki
beri að leggja niður herstöðvar
Bandaríkjanna á eyjunum vegna
hins ótrygga ástands sem þar ríkir.
Sjá ennfremur: „Biskupar
mæla með mótmælaaðgerð-
um“ á bls. 23.
Persaflóastríðið:
>
Iranir vara
Bandaríkin við
Níkóflfu, Kýpur, 14. febrúar. AP.
FORSETI írans, Ali Khamenei,
tók Bandaríkj amönnum í dag
vara fyrir þvi að hafa afskipti
af stríðinu við Persaflóann.
Bardagar héldu áfram í dag
fimmta daginn í röð og ber
fregnum striðsaðila af gangi
striðsins ekki saman fremur en
fyrri daginn.
írakar segjast hafa fellt eða sært
25 þúsund franska hermenn og
hrundið árás þeirra yfir Shatt—Al-
—Arab-árósana. Khamenei sagði
að íranir myndu halda áfram að
berjast þangað til fallist yrði á frið-
arskilmála þeirra. Bandaríkjamenn
hafa látið í ljósi áhyggjur um að
bardagar kunni að breiðast út til
nágrannaríkja við Persaflóa og sagt
að þróist stríðið með þeim hætti,
hljóti þeir að líta á það sem alvar-
lega ógnun við hagsmuni Banda-
ríkjanna.
Forsetakosning-
arnar í Portúgal:
Anatoly Shcharansky um andófið í Sovétríkjunum:
„Barátta okkar er raun-
verulega árangursrík“
Jerúsalem, 14. febrúar. AP.
ANATOLY Shcharansky, sovéski andófsmaðurinn sem sat í
fangelsi í niu ár, sagði á blaðamannafundi í dag að í fangavist-
inni hef ði hann mátt þola bæði líkamlegar og andlegar pynting-
ar, en þær væru þess virði, ef lausn hans úr fangelsi yrði til
þess að stappa stálinu í aðra andófsmenn í Sovétrikjunum.
fyrir að hafa staðið fyrir slökun
„Þeir voru neyddir til þess að
láta mig lausan eftir öll þessi ár,“
sagði hann. „Það sannar að bar-
átta okkar er raunverulega árang-
ursrík, þrátt fyrir þá svartsýni
sem maður finnur stundum til,“
sagði hann ennfremur.
Shcharansky hældi Ronald
Reagan, forseta Bandaríkjanna,
í samskiptum stórveldanna og
sagði að það gæti leitt til þess
að fleiri gyðingum yrði leyft að
flytjast frá Sovétríkjunum. Mjög
fáum gyðingum hefur verið leyft
að flytjast til ísrael frá Sovétríkj-
unum á síðustu árum, 1.140 á
sfðasta ári og um eitt þúsund árið
þar á undan.
Fréttamenn sögðu að Shchar-
ansky hefði verið rólegur og fullur
sjáifstrausts á fundinum. Að-
spurður um hvort ísraelsmenn
hefðu reynt að fá blökkumanna-
leiðtogann Nelson Mandeia látinn
lausan úr fangelsi í Suður-Afríku,
sagði hann að frelsa ætti alla
samviskufanga, hveijar svo sem
skoðanir þeirra væru. Hann bætti
við að sér fyndist að ekki ætti að
leggja að jöfnu lausn hans og
Mandela, þar sem Mandela styddi
ofbeldi.
Shcharansky sagði að við yfir-
heyrslur áður en hann var leiddur
fyrir rétt, ásakaður um njósnir,
hefði verið reynt að þvinga hann
til játningar, meðal annars með
því að lofa honum brottfararleyfi
til ísrael. Hefði honum verið hótað
dauða ef hann samþykkti ekki.
Ennfremur sagði hann að samtals
hefði hann verið í einangrun í 400
daga og neitað fastri fæðu tvíveg-
is, í um 100 daga í hvort skipti.
Mjótt á
mununum
Lissabon, 14. febrúar. AP.
TALIÐ er n\jög tvísýnt um úrslit
forsetakosninganna í Portúgal,
sem verða á sunnudaginn kemur.
Mario Soares, frambjóðandi sós-
íalista og fyrrum forsætisráð-
herra, sem hlaut 25,4% atkvæða
i fyrri umferð kosninganna,
samanborið við 46,3% atkvæða
keppinautar sins, Diogo Freitas
Do Amaral, frambjóðanda hægri
manna, hefur unnið mjög á að
undanförnu.
Bannað er samkvæmt kosninga-
lögum í Portúgal að birta skoðana-
kannanir um fylgi frambjóðenda
meðan opinber kosningabarátta
stendur yfir, en hún hófst nú 5.
febrúar síðastliðinn. Talið er að
kjörsókn muni ráða miklu um úrslit
kosninganna og muni Soares hafa
hag af lítilli kjörsókn. í fyrri umferð
forsetakosninganna létu 24,6%
þeirra, sem atkvæðisrétt hafa, sig
vanta á kjörstað.