Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR19. FEBRÚAR1986 Líbanon: Israelar fylkja liði í leit að tveim- ur hermönnum Biranit, ísrael, 18. febrúar. AP. ÍSRAELSKIR hermenn og skrið- drekar streymdu inn i Libanon i dag og hefur leitin að tveimur ísraelskum hermönnum, sem sít- ar námu á brott, verið efld. Til átaka hefur komið milli ísraels- manna og líbanskra skæruliða. ísraelskur sjómaður, sem var á eftirlitsferð skammt undan strönd Líbanons, var skotinn til bana. Hermannanna hefur nú verið leitað tvo daga og eru þetta mestu aðgerðir ísraela í Líbanon frá því að þeir kvöddu herlið sitt að mestu brott í júní á síðasta ári. Yfírstjóm ísraelska hersins segir að tveir sítanna, sem rændu her- mönnunum í umsátri á mánudag hafí verið handteknir. Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels, segir að leitinni verði haldið áfram þar til í ljós komi hvað orðið hefur af hermönnunum. Daniel Amar, nítján ára riðils- stjóri í ísraelska hemum, var skot- inn til bana er hann var á eftirlits- ferð um tuttugu kílómetra frá landamærum ísraels. Skotin komu frá borginni Tyre í Líbanon. Uppreisnar- menn segja frá landvinningum París, 17. febrúar. AP. FRAKKAR fluttu hersveitir til Chad í dag og juku við flugflota sinn í landinu. Uppreisnarmenn halda því fram að þeir hafi á sínu valdi landssvæði, sem Frakkar höfðu heitið síjómvöldum að veija. Þessi landssvæði em sunn- an við „rauðu línuna“ svonefndu. Vestrænir fréttamenn segja hins vegar að þetta sé ekki rétt. Um það bil 500 franskir hermenn voru sendir til Chad í dag, til þess að sjá um og fljúga 12 frönskum Jagúar orustuþotum, sem staðsett- ar era í N’djamena, höfuðborg Chad. Þá er 1.500 manna fót- göngulið tiibúið í nágrannaríkinu Mið-Afríku lýðveldinu, ef á þarf að halda, en það var flutt þangað eftir að samkomulag tókst um „rauðu línuna seint á árinu 1984. Skæraliðar í Chad njóta aðstoðar Líbýumanna. Þar vora og era 4.500 líbýskir hermenn að sögn franskra og bandarískra heimilda, þrátt fyrir samkomulagið um að erlent herlið skyldi hverfa frá landinu. Líbýu- menn hafa ásakað Bandaríkjamenn um að standa á bak við „íhlutun" Frakka í Chad. Timur Goksel, talsmaður friðar- sveita Sarrieinuðu þjóðanna í Líban- on, segir að ísraelskir hermenn hafí leitað hermannanna í hvetju húsi í sjö þorpum og yfirheyrt íbúa þeirra. 27 menn hafí verið hand- teknir í leitinni. Bæði ísraelski herinn og friðar- gæslusveitimar segja að ekkert sé hæft í fréttum líbanskra fjölmiðla þess efnis að miklir bardagar eigi sér nú stað milli ísraelsmanna og líbanskra skæraliða. Komið hafí til minniháttar skæra. Útvarpið í Beirút sagði að ísrael- ar hefðu hafíð nýja innrás og Líban- ar myndu mótmæla í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Bifreið 1 gegnum húsvegginn AP/Símamynd Wendy Wickham, háskólastúdent í Edmonton í Kanada, átti fótum fjör að launa, er bifreið, sem rann til á hálli götu, lenti á húsveggnum hjá henni og langleiðina inn tíl hennar. Er Krists-myndin á lík- klæðinu frá Torino ætt- uð úr pensli listmálara? Elizabethtown, Pennsylvaniu, 18. febrúar. RANNSOKNIR sýna, að mynd- in á hinu leyndardómsfulla lík- klæði frá Torino stafar ekki frá líkama Jesú Krists eða anda, heldur er hún ættuð úr pensli listmálara, að sögn bandarísks vísindamanns. „Eg held, að málaðar hafí verið tvær umferðir á klæðið, hin fyrri með jámríkum jarðlit og hin síðari með rauðu litarefni, þar sem lista- maðurinn vildi herða frekar á litn- um,“ sagði Walter C. McCrone, forstöðumaður Mccrone-rann- sóknarstofnunarinnar í Chicago. McCrone sagði þetta í ræðu, AP. sem hann hélt á tveggja daga ráðstefnu um Torino-klæðið í Elizabethtown-háskólanum í Pennsylvaniu. Hann sagðist byggja þessa ályktun sína á ýtar- legri rannsókn á trefjum úr iita- flötum klæðisins. Klæðið, sem varðveitt er í klaustri í Torino, ber mynd af krossfestum manni. Sumir kristn- ir menn trúa því, að hér sé um að ræða líkklæði Krists og svipur- inn hafí þrykkst í dúkinn - í bak og fyrir - vegna orkuútgeislunar við upprisuna. McCrone sýndi á litskyggnum, að svipaður dúkur varð brúnleitur, þar sem blóð hafði þomað á honum. „Blóðblettimir" á klæðinu vora hins vegar rauðir. McCrone sagði, að við rann- sóknina hefði hann fundið jámox- íð og rautt litarefni á rauðu trefj- unum og augljós merki eftir hlaupkennt málningarbindiefni. Árið 1978 tók McCrone ásamt hópi vísindamanna þátt í rann- sókn á klæðinu, og fara niðurstöð- ur hans í bága við álit hinna í hópnum. Þeir telja, að engin sönn- un hafí fengist fyrir því, að myndin hafí verið máluð á klæðið. Sovésk stjórnvöld: Biðja Grikki að leita flóttamanna , AP/Sfmamynd Þnr hrapa til bana ÞRÍR menn biðu bana er þeir reyndu að bjarga sér úr eldsvoða í skrifstofubyggingu í miðborg Rio de Janeiro í Brasilíu með því að stökkva út um glugga á tíundu hæð. Tuttugu og einn maður kafnaði í eldinum. Byggingin uppfyllti ekki ákvæði um eldvamir að sögn yfirvalda. Á myndinni má sjá hvar maður hrapar til bana eftir að hann henti sér út. Aþenu, 18. febrúar. AP. SOVÉTMENN hafa farið fram á það við grísk sfjórnvöld, að þau hafi uppi á þremur sovéskum borgurum, sem flýðu í Aþenu í fyrri viku. Skýrði talsmaður stjórnarinnar svo frá i dag. Antonis Koutis, talsmaður grísku stjómarinnar, sagði á fréttamanna- fundi í dag, að sovéska sendiráðið í Aþenu hefði formlega beðið um, að Ieitað yrði þriggja Sovétmanna, sem hurfu í síðustu viku. Er þar um að ræða fimmtugan siglinga- málasérfræðing og sjö ára gamlan son hans og konu, kennara við sovéska sendiráðsskólann í borg- inni. Victor Gudarev, sem hafði með siglingamál að gera í sovésku versl- unarsendinefndinni í Aþenu, hvarf sl. föstudag eftir að hafa sótt son sinn, Maxim, í skólann og um sama leyti hvarf Galina Gumarova, þrítug kennslukona, sem m.a. gætti Max- ims. Eftir heimildum innan grísku lögreglunnar er haft, að Gudarev hafí unnið fyrir GRU, leyniþjónustu sovéska hersins, og að ekki sé ólík- legt, að öll þijú séu nú komin til Bandaríkjanna. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma, að háttsettur sovéskur emb- ættismaður lætur sig hverfa í Aþenu. í maí í fyrra flýði Sergei Bokhane, ráðgjafi sovéska sendi- ráðsins, til Bandaríkjanna og var Þjóðaratkvæðagreiðsl- an í Danmörku: Gæti haft áhrif á aðild Dana að NATO Kaupmannahöfn, 18. febrúar. AP. DANSKI varnarmálaráðherr- ann, Hans Engell, sagði I útvarp- sviðtali í dag, að ef Danir felldu breytingar á stofnsáttmála Evr- ópubandalagsins í þjóðarat- kvæðagreiðslu síðar í þessum mánuði, myndi það vekja upp spurningar um aðild Dana að Atlantshafsbandalaginu. Engell sagði að ríki sem væra aðilar að alþjóðasamtökum ásamt Dönum, hlytu að taka mið af úrslit- um atkvæðagreiðslunnar, hvað snerti afstöðu Dana almennt til alþjóðasamvinnu. Ef breytingum á stofnsáttmála EB yrði hafnað hlytu bandamenn Dana að líta á það sem vott um almennan vilja til hlutleysis hjá Dönum. seinna upplýst, að hann hefði verið næstæðsti maður GRU í Aþenu. AP/Símamynd James E. Burke, formaður Johnson og Johnson, tilkynnir á blaðamannafundi í gær að framleiðslu tylenols verði hætt. Bandaríkin: Framleiðslu Tylenols hætt New Brunswick, New Jersey, 18. febrúar. AP. JAMES E. Burke, formaður fyrirtækisins Johnson og Johnson, lýsti þvi yfir í dag að framleiðslu lyfja í hylkja- formi, sem afgreidd eru án lyfseðils, verði hætt. Hann lagði samt áherslu á það að sá sem var valdur að þvi að kona lést af þvi að taka inn kvallastillandi lyf hafi ekki knésett fyrirtækið. Níu dagar era liðnir frá því að kona lést af því að neyta tylenol-hylkja, sem eitrað vora með blásýra og þijú og hálft ár síðan sjö manns létust af sömu sökum í Chicago. „Við náðum okkur eftir harm- leikinn í Chicago og er það dóm- greind hins bandaríska neyt- anda að þakka. Við munum einnig jafna okkur eftir þetta áfall," sagði Burke á blaða- mannafundi. Tvö glös hafa fundist með eitraðum hylkjum og era rann- sóknarmenn enn að reyna að komast að því hvort eitrið hafí verið sett saman við í verksmiðj- unni eða í verslunum í Bronx- ville í New York. Glösin vora ekki framleidd á sama stað, en þau vora geymd í sama vörahúsi í Pennsylvaníufylki um tveggja vikna skeið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.