Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1986 27 -1 „Guð minn góður, Tolya er frjáls“ — sagði móðir Shcharanskys er henni bárust gleðitíðindin „Tolya er frjáls, Guð minn góður, Tolya er fijáls!“ sagði Ida P. Milgrom, móðir andófsmannsins Anatolis B. Shcharansky, og grét af gleði, er henni bárust þau tíðindi í sl. viku, að sonur hennar hefði verið látinn laus. Ida P. Milgrom, sem er 77 ára að aldri, hefur nú í níu ár sam- fleytt barist fyrir frelsi sonar síns og m.a. gengið á milli stjómar- skrifstofa af öllum stigum sovéska kerfísins. Hún hefur staðið úti í kuldanum fyrir utan Chistopol- fangelsið í Tatar-lýðveldinu og krafíst þess að fá að ræða við fangelsisstjórann. Hún hefur ferð- ast þúsundir mflna til þess að ná fundi sonar síns og þjáðst mánuð- um saman, er hún frétti ekkert af honum. Hún hafnaði tilboðum um að flytjast af landi brott; kvaðst ekki fara, meðan Anatoli væri enn í fangelsi. Eldri sonur hennar, Leonid, hefur staðið við hlið henn- ar, leitast við að komast að hinu sanna um líðan Anatolis, krafíst samfunda við hann, kvartað yfír meðferðinni á honum og marg- ítrekað reynt að fá hann leystan úr haldi. Þá hafa þau mæðginin unnið að því í sameiningu, að heimurinn fengi að fylgjast með líðan fangans. Sá orðrómur hefur gengið oftar en einu sinni á þessum níu árum, að til stæði að Iáta Anatoli Shcharansky lausan, en móðir hans hefur æviniega varast að gera sér of miklar vonir. A þriðju- daginn í síðustu viku reyndi hún einnig að halda ró sinni, meðan hún beið frétta af syni sínum. Mæðginin Ida og Leonid voru heima hjá Qölskylduvini í Moskvu. Vestrænn blaðamaður hringdi og talaði við Leonid. Hann kallaði til móður sinnar, sem sat inni í stofu. Hún var búin að halda aftur af sér í níu ár, en nú gat hún ekki meir og brast í ekkagrát. Og hún hefur átt erfítt, þegar hún hefur talað við fréttamenn eða tekið við fagnaðaróskum vina og velunnara í síma. „Er þetta ekki ótrúlegt?" sagði hún. „Er þetta ekki ótrúlegt? Tolya er frjáls. Hann getur andað, hann er frjáls. Getur þetta verið satt?" Hún hefur reynt að koma orð- um að því, hvemig henni er innan- bijósts: „Ég trúði því alltaf, að hann yrði látinn laus, en ég óttað- ist, að ég fengi ekki að lifa það,“ sagði hún. „Þetta var hræðileg martröð. Ég barðist af öllu afli. Ég trúði þessu ekki, fyrr en ég heyrði, að hann væri komin út á brúna. Ég var hrædd við að trúa því, ég var hrædd við, að eitthvað gerðist, sem kæmi í veg fyrir þetta." Að sögn Leonids sendi hún Reagan og Gorbachev þakkar- skeyti seinna um kvöldið: „Kærar þakkir fyrir góðviljann og fyrir- höfnina.við að fá son minn, Ana- toli Shcharansky, leystan úr haldi." Þau mæðginin kváðust ekkert vita um, hveijar horfur væru á því, að þau fengju brottfararleyfí. Vestur-þýskt tfmarit hefur sagt frá því, að hún fái að flytjast til sonar síns í Israel, en hún segist hvergi fara, nema Leonid fái að koma með ásamt konu og tveimur sonum. Leonid sagði, að þau mundu leggja inn beiðni þar að lútandi á miðvikudag í síðustu viku. „Nú er ég róleg," sagði Ida P. Milgrom, „Anatoli er á leið heim, hann er með eiginkonu sinni, og nú vona ég aðeins, að hann nái fullri heilsu." (Bygrgt á New York Times) Ida P. Milgrom, móðir Shcharanskys, ræðir við fréttamenn i Moskvu ísíðustu viku. Flotaæfingar á Miðjarðarhafi Þessi mynd er tekin, er Bandarikjamenn stóðu fyrir umfangsmiklum flotaæfingum á Miðjarðarhafi. Flugvélar þeirra mættu nokkrum sinnum líbýskum herþotum á æfingaflugi sinu, en ekkert bar til tið- inda. Hér lendir F-14 Tomcat-herþota á flugbraut flugmóðurskipsins Saratoga. BODY FORMING Ný snyrtilína fyrir líkamann frá TBiodroqa Body Forming byggir upp, styrkir, mýkir og veitir afslöppun. Body Forming snyrtilínan samanstendur af: Dekraðu við sjálfa þig og veittu þér Body | Vinsamlegast sendið mór í póstkröfu Biodroga Body Forming sett á til- Formlng-tilboðssettið frá Biodroga strax boðsverði kr. 760.00...........stk. ídag. <St Nafn: fella Heimili: Bankastræti 3, . Pós,nr; staður: sími 13635. 1 Póstsendum. i Tilboðið gildir til 15. marz 1986 1) Nuddkrem fyrir appelsínuhúð og þurra bletti. Skrúbbkrem til að mýkja stíflaöa fitukirtla, fílapensla og hreinsa upp dauð- ar húðfrumur. Styrkingarkúr fyrir bringu, brjóst og háls. 4) Sápa fljótandi í sturtu eða í afslapp- andi karbað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.