Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986 □ Electric Light Orc- hestra — Balance of Power Þá er nýja ELO platan komin og fyrsta upplagið kláraðist á auga- bragði. í dag tökum við upp nýjan skammt af þessari ágætu plötu sem inniheldur m.a. lagið Calling Amer- ica sem nú er á hraðri leið upp bandaríska listann. Topp10 □ 1. Rocky 4 — Survlvor. James Brown o.fl. □ 2. Simple Mlnds — Once Upon ATIme □ 3. ELO — Balance Of Power □ 4. Gunnar Þórðarson — Borgarbragur □ 5. A-ha — Huntlng High And Low O 6. Dire Straits — Brothers In Arms O 7. Feargal Sharkey — Feargal Sharkey O 8. LSO — The Power Of Classic Rock O 9. Clarence Clemmons — Hero O 10. Sade — Promise Nýjar og vinsælar plötur OOzzy Osbourne — Ultimate Sin OCherelle — High Priority O PIL — Album O Mlke And The Mechanlcs — MlkeAnd The Mechanics O Blackfoot — Vertical Smile OGrover Washington — Ný plata O Jonl Mitchell — Dog Eat Dog O Victory — Vlctory O Barbara Strelsand — The Broadway Album O Jennifer Rush — JR O Madonna — Like A Virgin O Bruce Springsteen — Born In The USA OSImply Red — Picture Ðook O Doors — Ðest of (21p) O The Dream Academy — TDA O Eddie Murphy — How Could It Be O Sheila E. — Romance 1600 O Billy Joel — Greatest Hits Vol I & 2 O Echo & The Bunnymen — Songs To Learn And Sing Ennfremur mlnnum við á hlð góða úrval af eldri gæðaplötum sem sífellt njóta vinsælda. Nýjar 12 tommur O James Brown — Living In America O ELO — Calling America O Feargal Sharkey — You Little Thief O Reglna — Baby Love O PIL — Rlse O Billy Ocean — When The Golng Gets Tough OStephen A.J. Duffy — I Love You OSheila E. — A Love Bizarre O Rochelle — My Magic Man O Madonua — Borderllne O Matt Bianco — Just Can’t Stand It Anymore D A-ha — The Sun Always Shines On TV O Morris Day — The Oak Tree OZapp — It Doesn’t Really Matter O Mike And The Mechanlcs — Silent Running O Full Force — Alice. I Want You Just For Me O Billy Idol — Rebel Yell O Survivor — Ðurnlng Heat OCherelle — Saturday Love OShakin’Stevens — Turning Awáy O Fra Lippo Lippl — Shouldn’t Have To Be Llke That CD diskar O Madonna — Llke A Virgln O A-ha — Hunting High And Low O Eagles — The Best Of OZZ Top — Elimlnator OSimply Red — Plcture Book O Echo And The Bunnymenn — Songs To Learn AndSing O Doors — Best Of O Cars — Greatest Hits O Donald Fagen — The Nightfly OPrlnce—: Around The World In A Day OPrince — Purple Raln Við eigum allar gerðir M 3 TS afhinum vinsælu Hafnarfirti. TDK gæðakassettum. Hljómplötudeild Uyjfj KARNABÆR * Póstkröfusími (91) 11620. Reykjavík að vetri Náttúruskoðunar- og söguferð um Víkurland Reykjavík 1946 — Loftmynd 30. ágúst/Landmælingar íslands. í fyrstu ferð sinni á afmælisári Reykjavíkur fer NVSV náttúru- skoðunar- og söguferð um gamla Víkurland laugardaginn 22. febrú- ar. Ferðin verður farin kl. 13.30 úr Grófinni frá bílastæðinu milli Vest- urgötu 2 og Vesturgötu 4. Áætlað er að ferðinni ljúki milli 17.00 og 18.00. Fargjald verður 200 kr. en frítt fyrir böm í fylgd með fullorðn- um. Állir em velkomnir. Þetta er kjörin ferð fyrir íbúa þessa svæðis og aðra sem kynrast vilja náttúm þess, sögu- og mannvistarminjum. Leiðsögumenn verða: Jón Eiríks- son, jarðfræðingur, Guðmundur A. Guðmundsson, líffræðingur, Guð- laugur R. Guðmundsson, sagn- fræðingur, og Páll Líndal, lögfræð- ingur. Leiðin Eftir að hafa fræðst örlítið um Grófína og „Hovedgaden" verður ekinn Hliðarhúsastígur og áfram út í Örfírisey að Hásteinum. Þaðan ekið eftir Gröndunum að landa- merkjum Lambastaða og Víkur. Síðan liggur leiðin meðfram strönd- inni framhjá gömlu vömnum að Skildinganesbæjunum og nágrenni þeirra skoðað. Þar verður snúið við og farið um Skildinganeshóla norð- ur með Vatnsmýrinni síðan eftir Skothúsvegi upp í Þingholtin og þaðan yfír á Vatnsmýrarveg með- fram Hlíðarfæti og suður í Naut- hólsvík.Þar verða fjömlíf og setlög skoðuð. Einnig gefst tími til að skoða sig um í Oskjuhlíðinni, þar em t.d. rústir af seli, hluti gömlu þjóðleiðarinnar o.fl. Ef veður leyfír munum við taka nestið okkar upp á þeim stað sem Beneventum heftir sennilega verið. Að því loknu verður haldið að landamerkjum hins gamla Laugamesslands og þeim fylgt norður að Rauðarárlandi. Farið verður um Rauðarárholt og Skóla- vörðuholt og niður í Skuggahverfí framhjá Battaríinu, síðan um Kvos- ina og ferðinni líkur svo í Grófínni. Um ferðina Með þessari ferð viljum við vekja athygli á að innan gamla Víkur- landsins em mörg merkileg nátt- úmfyrirbrigði og enn leynast þar mannvistarminjar. Saga svæðisins er elsta samfellda byggðarsaga landsins og afar áhugaverð. Unnið hefur verið merkilegt starf við söfn- un ömefna og staðsetningu þeirra. Mörg skemmtileg og fjölbreytt úti- vistarsvæði em í Víkurlandi. Þar má jafnvel fínna sumarbústað í dag, hægt er að baða sig í volgum læk, þar má ganga góðan spöl í náttúmlegu umhverfí og fleira mætti telja. Vatn er á svæðinu með mjög miklu fuglalífí, votlendi, skóg- lendi og holtagróður svo eitthvað sé nefnt. Fjörur em aftur á móti í slæmu ástandi vegna mengunar og mannvirkjagerðar. Nýlega hefur verið lagt fram deiliskipulag fyrir Kvosina. Það er afar áríðandi að fólk kynni sér nýjar skipulagstillög- ur og láti álit sitt á þeim í ljosi. Þátttakendum mun áreiðanlega flestum koma á óvart, hve merkileg jarðfræði, fjölbreytt lífríki og for- vitnilega sögu þetta svæði hefur að geyma. Margt af því má ennþá með litl- um tilkostnaði vemda, lagfæra eða gera aðgengilegt fyrir okkur og komandi kynslóðir. Auðvitað hefur margt verið skemmt, oftast fyrir vanþekkingu og hugsunarleysi, en nú höfum við enga afsökun lengur. Hægt er að leita til ýmissa stofnana, félaga og einstaklinga til að fá upplýsingar áður en byrjað er á framkvæmdum. Hugsunarleysi megum við ekki líða. Þegar við höfum komið upp veglegu Náttúrufræðisafni, þjóðar- safni, munu þekking almennings og virðing aukast fyrir þessum málum. Reykjavík á enn fleiri nátt- úruperlur en flestar höfuðborgir heims. Rétt er að benda á að erlend- is er hafíð markvisst starf hjá stór- borgaryfírvöldum (samb. V-Berlín, London o.fl.) að því að skrá það sem er eftir af náttúrulegu lífríki borg- anna, þær lífverur sem þroskast hafa í röskuðu umhverfi og þær sem aðlagast hafa byggingum og öðrum mannvirkjum. Síðan ætla þeir að nýta þessa vitneskju við skipulag og hönnun byggðasvæða. Það væri verðugt verkefni fyrir forráðamenn Reykjavíkurborgar að fara eins að. Jafnframt ætti áhuga- fólk að stofna með sér samtök til að fylgjast með afmörkuðum svæð- um í borginni frá náttúruverndar- og umhverfísvemdarsjónarmiði. Við gerð framkvæmdaáætlana yrðu þau einnig höfð með í ráðum. Þannig yrði Reykjavík öðrum borg- um til fyrirmyndar. Um lífríki svæðisins Þó að dýraríkið liggi að miklu leyti í dvala má sjá margt kvikt ef Vá fyrir dyrum eftirÞórð Gíslason Vegna þess alvarlega ástands sem skapst hefur í sveitinni með tilkomu reglugerðar um stjómun mjólkurframleiðslunnar og sem bændum var fyrst kynnt með bréfí dags. 24. jan. sl. vil ég alveg sér- staklega benda á eftirtalið m.a.: 1. Forkastanlegt verður að teljast að reglugerð sú, sem um ræðir, í svo þýðingarmiklu máli, skuli nú fyrst vera kynnt framleiðend- um, en skuli þó gilda frá 1. sept. 1985. Þetta verður að teljast vítavert og ekki síður það að samtök bænda heima í hémðum virðast hafa verið sniðgengin um allan undirbúning málsins og framkvæmd til þessa dags.' 2. Hinn flókni og illskiljanlegi full- virðisréttur framleiðenda á mjólk er fundinn út samkv. reglugerðinni á þann hátt að þar vegur þunglega mjólkurfram- leiðsla bóndans sl. verðlagsár (1984—’85). Þetta kemur sér- staklega niður á yngri bændum, sem byrjað hafa búskap hin síð- ari ár, verið að búa sig undir mjólkurframleiðslu með upp- byggingu og bústofnskaupum með æmum kostnaði, en hafa ennþá litla en þó hægt vaxandi mjólkurframleiðslu. Þessir menn fá samkvæmt hinni nýju skipan sáralítinn rétt, sem í flestum tilvikum þýðir rothögg á þeirra fjárhag og fyrirætlanir. 3. Offramleiðsla á mjólk er stað- reynd og við henni verður að spoma á sem skynsamlegastan og sársaukaminnstan hátt. En við teljum að það sé röng og mjög hættuleg stefna að höggva þannig á afkomumöguleika unga fólksins svo sem hér er gert, vaxtarbrodda stéttarinnar og mannlífs í sveitum. Stefnan sé röng, bæði siðferðilega og þjóðhagslega séð. .. við teljum að það sé röng og mjög’ hættu- leg stefna að höggva þannig á afkomumögu- leika unga fólksins svo sem hér er gert...“ 4. í okkar sveit eru nokkrir ungir bændur sem lenda í þeirri að- stöðu sem hér er lýst og óefað skipta þeir hundruðum yfír allt landið að telja. Standa nú, á miðju verðlagsári, i þeim spomm að vera næstum búnir með sinn litla rétt til mjólkurframleiðslu. Þessir menn hafa jafnvel verið hvattir af opinberum ráðgjöfum til að framleiða mjólk, notið stuðnings lánastofnana land- búnaðarins, sitja góðar jarðir með nægjanlegt búmark — og hvað eiga þeir að gera? Á þetta verður tæplega horft án þess að við sé bmgðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.