Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986 -44 ,t Hortéu eKki 5vona d m\g. þeíia. &r r próon’ Áster... ... að vilja allt fyrír hana gera TM R»a. U.S. Pat Off.-all rights reserved •1982 Los Angeíes Times Syndicate Reyndu að verja þig, ef þú þorir? Hverjum ég er að skrifa? Nú hveijum öðrum en skattstjóranum og láta vita að þeir verða að áætla á mig í ár. Höfnum áfengis- útsölu í Garðabæ Frá HefnarfirAi „Sjálfsögð þjónusta“ eða ábót á áfengisbölið mikla? Mdur rn að opoa nýjar. M kvcdur avo vid ai HAFNFIRDINGAK og Gard- áfrncUuiuMur I b bariacmr tup ad kjArboráiau Almmningur UipUal I þo á laucardagiaa 22. frhrúar fylkmgar I þraau máli. þrir u aa^tkoaiaadi of (rviAa al mrd. þrir wn rru á m kwdi aa þad hvori opaa rigi og >vo himr arm karra aig ko m hijrnntir. I Gardabar rr talad m ad áfrnciaútaala ( hinn nýja midlnrjarkjama myndi auka vmilrjra umfrrd um midiunnn OK atuðla þannig ad uppbyKg- ingu twjanna og hnaU úr hon- dUa hvort áfrngi vrrdi á bodatdl- bladandtaii. rn voni rigi ad aidur vinavh ad taJa um hma .ijilf um I bwjunum Morgunbladid ófnmnir ad mfa máirfmd. Hár aögdu þjónuatu' arm frtat I ad r*ddi vid allmarya adila I Hafn- birtaat þrjd vidtél vtd mmn arm hafa audvridan adgany ad arflrdi og Cardabar. fWatir tdidu aáu aár tert ad gá aig opin- áfrtupaúta&lu. 1 tlafnarfirdi trlja óþarfa ad tji aig um málid I brrlrga, m þraa má grta, ad .moð mrnn" rkki ad iflti mum akodanir og vidhorf þrirra arm atudla ad brrjarbrag,þarr^ Á næstunni munu Garðbæingar og Hafnfirðingar ganga til at- kvæðagreiðslu um opnun áfengisút- sölu í byggðarlögum sínum. Opin- ber umræða um þetta mál hefur ekki verið mikil síðan viðkomandi bæjarstjómir tilkynntu um at- kvæðagreiðsluna. Umræðu er þó full þörf. Opnun nýrrar áfengisút- sölu er stórmál sem varðar alla íbú- ana. Áfengisneyzla hlýtur að aukast eftir því sem auðveldara verður að ná í áfengið. Sérstaklega getur það átt við um þá sem okkur er annast um, bömin og unglingana. Ætlunin með þessum skrifum er að hvetja kjósendur til að hugsa sig um og taka ábyrga afstöðu áður en þeir ganga í kjörklefann. Kjósendur em hvattir til að velta því fyrir sér hvort þeir vilji í raun auka áfengis- neyzlu sína og stuðla að því að aðrir geri hið sama, jafnt ungir sem gamlir. Prófessor Tómas Helgason, for- stöðumaður geðdeildar Landspítal- ans, er einn af þeim mönnum hér á landi sem fylgst hafa náið með áfengismálum Islendinga. Ástæða er til að veita athygli niðurstöðum þeim, sem hann skýrði frá á fundi um vímuefnamálin þ. 18. febrúar sl.: Áfengisneyzla fer stöðugt vax- andi, sérstaklega neyzla áfengs bjórs og léttra vína. Meðalaldur við byijun áfengisneyzlu fer lækkandi, og nú er svo komið að helmingur, eða 50%, 14 ára bama hafa neytt áfengis og helmingur 16 ára ungl- inga neytir áfengis reglulega, þ.e.a.s. einu sinni í mánuði eða oftar. I fyrsta hefti Heilbrigðismála árið 1985, riti Krabbameinsfélags ís- lands, er skýrt frá könnun, sem Guðrún Ragnarsdóttir Briem er að vinna á vegum landlæknisembætt- isins, um vímuefnanotkun fram- haldsskólanema á íslandi. Þar kemur meðal annars fram að meira en annar hver nemandi á aldrinum 15 til 19 ára neytir áfengis mánað- arlega eða oftar. Er þetta það sem við viljum stefna að með opnun áfengisútsölu í Garðabæ og Hafnar- firði? Prófessor Tómas hefur einnig gert samanburð á áfengisneyzlu í byggðarlögum á höfuðborgarsvæð- inu, þ.e.a.s. Reykjavík er borin saman við Seltjamames, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð og Mosfells- sveit. í ljós kom meðal annars, að stórdrykkjumenn vom fleiri í Reykjavík, en í nágrannabyggðar- lögunum voru fleiri íbúar með ein- kenni um misnotkun, sérstaklega konur, og einnig vom fleiri, bæði konur og karlar, sem neyttu áfengis oft í viku eða daglega. Er þetta það sem við viljum stefna að með opnun áfengisútsölu í Garðabæ og Hafnar- firði? Undirritaður er einn af þeim, sem em eindregið á móti opnun áfengis- útsölu í Garðabæ (og reyndar Hafn- arfirði líka!) og vill því skora á íbú- ana að velta fyrir sér eftirfarandi spumirtgum: 1. Er opnun áfengisútsölu í byggð- arlaginu nauðsynleg? 2. Mun opnun áfengisútsölu minnka áfengisnotkun? 3. Mun opnun áfengisútsölu Velvakandi hvetur lesendur til aö skrifa þættinum um hvaöeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 11.30, mánudaga til fóstudaga, ef þeir koma því ekki við aö skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki aö vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisfong veröa að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. minnka hættuna á því að við sjálf, bömin okkar og aðrir vinir okkar, verði ofneyzlunni að bráð? Það er trúa mín að svarið við öllum þessum spumingum sé NEI. Sameinumst um að greiða atkvæði í samræmi við það. Jóhann Heiðar Jóhannsson læknir, formaður heil- brigðisnefndar í Garðabæ og Bessastaðahreppi. Góður lestur Herdísar J.J. skrifar: Það er gaman að hlusta á lestur Passíusálmanna. Herdír Þorvalds- dóttir les mjög vel. Hún er túlkandi listamaður sem orkar sterkt á hlust- anda. Margir tala um þetta og ástæðulaust að láta það liggja í láginni. Gleraugu fundust Síðastliðinn sunnudag fundust gleraugu í Tryggvagötunni. Þau em stór með gylltum og svörtum umgjörðum, líklega karlmannsgler- augu. Upplýsingar eru veittar í síma 23778. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar Dæmalaust rætinn greinarstúf- ur, þar sem veist er að íslensk- um foreldmm erlendra kjörbama, birtist fyrir skemmstu í einu dag- blaðanna. Tilefnið var viðtal í Nýju lífí við nokkra landa okkar sem hafa unnið sér það til óhelgi að ættleiða böm frá Suður-Ameríku. Órökstudd aðdróttun höfundar á heldur svona böslulegri íslensku hljóðar svo: „Gæludýr hafa ekki nægt til félagsskapar. Til þess hafa verið keypt böm;“ og bregður hann sér þá í líki hins guðrækna þegar hann eggjar menn lögeggjan með svofelldri áskomn: „Kristin kirkja ætti að rísa úr dvala sínum og beita sér gegn þessari niðurlægingu og fyrirlitningu sem vestrænt efnafólk sýnir bræðmm sínum.“ Pistillinn er að sjálfsögðu nafn- laus: svona skrifborðsriddarar em sjaldnast menn til þess að viðra skoðanir sínar í ljósinu. Brigslyrði þeirra koma utanúr myrkrinu. Á hinn bóginn er höfundurinn ekki af slorlegum stofni og er ekkert að fara leynt með það. „íslendingur" hvorki meira né minna, eða svo er dulnefnið. XXX jóðarrembingur af þessum toga — því að þar liggur auð- vitað hundurinn grafinn — er til allrar guðslukku sjaldséður í blöð- unum okkar. Raunar er líka til annað nafn yfir þetta, nefnilega kynþáttafordómar. Samt dormar þessi óhugnanlega fylgja í ólíkustu sálum. Hæglátustu manneskjur með göfugmannlegt upplit sjá ekk- ert athugavert við það að „lituðu" fólki sé úthýst á þeirri sjálfbirgings- legu forsendu að okkur beri að halda „stofninum" hreinum; mælir enda heldur með því á sinn kyrrláta hátt. — En þetta fólk er komið á vergang. Það er allslaust, hrakið og örvænt- ingarfullt. — Það er ekki okkur að kenna. — Og þessi blessaði stofn sem þú ert að tala um: Áttu kannski við „aríana", þessa fölleitu og kinn- fiskasognu með hörlita hárið eða hvað? — Æi, láttu ekki svona. Þú veist fullvel hvað ég á við. Hæglátt fólk, óáreitið, notalegt í viðmóti. Og hjartahlýtt með fyrirvara. XXX Má búast við óspektum við hjónavígslur hérlendis? Er það kannski allteins algengt að menn séu pöddufullir, mölvi húsgögnin, kássist uppá prestinn? Næsta óvæntar upplýsingar í lok textans sem fylgdi flennistórri brúðkaups- mynd sem birtist í einu dagblaðanna um daginn er tilefni þessara spum- inga. Hér er hann: „Páll Ólafsson handboltakappi notaði helgina til að ganga í það heilaga. Það voru margir félagar Páls viðstaddir at- höfnina, sem fór vel fram.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.