Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 48
ftjf WS4 ómissandi E EUROCARD- FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Óljós staða í samnmgaviðræðimum á miðnætti: Von á nýju tilboði ríkisins til BSRB STAÐAN í samningaviðræðum ASÍ og vinnuveitenda og BSRB og ríkisins var afar óljós skömmu eftir miðnætti, þegar blaðið hafði síðast spurnir af gangi viðræðnanna. Þá var útiit fyrir að samninga- nefnd ríkisins myndi á næstu klukkustundum leggja fram ákveðið tilboð í viðræðum sínum við BSRB. Þreifingar voru í gangi i allan gærdag og i gærkvöld var 50 manna samninganefnd BSRB kölluð i Karphús ríkissáttasemjara. Húsinu var Iokað og samningamenn neituðu að koma í sima. Samband var á milli samningamanna í Karphúsinu og þeirra, sem funduðu í húsi VSÍ i Garðastræti. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið aflaði sér í gærkvöld, var útlit fyrir að tilboð ríkisins til BSRB yrði byggt á sömu hugmyndum og helst hafa verið í gangi undanfama sólarhringa og vikur; mikil niður- færsla verðbólgu með ýmsum ráð- stöfunum og höfuðmarkmiðið að kaupmáttur síðasta árs haldist. Sömu hugmyndir voru í gangi í samningum ASÍ og samtaka at- vinnurekenda. Ágreiningur í samn- inganefnd ASÍ um hlutdeild lífeyris- sjóðanna í fjármögnun húsnæðis- kerfisins, varð til þess um hálfsjö- Ieytið í gærmorgun að fundi var frestað þar til síðdegis í gær. Undimefnd, sem fjallað hefur um lífeyrismálin í samningum ASÍ og VSI/VMS, komst að samkomulagi á fundi sem hófst eftir hádegið í gær og var verið að ræða það „Sá strax að Larsen hafði leikið af sér“ ELLLEFU ára gamall drengur, Páll Árnason, sigraði danska stórmeistarann Bent Larsen í fjöltefli hjá Taflfélagi Reykjavíkur í fyrrakvöld. „Ég bjóst að sjálfsögðu ekki við þessu. Larsen lék af sér í endatafli í jafnteflislegri stöðu, hann reiknaði vitlaust. Ég var búinn að reikna þetta út og sá strax að Larsen hafði leikið af sér,“ sagði Páll í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. „Ég varð auðvitað hissa að sjá sigur," sagði Páll. Larsen leika svona af sér — Þrír aðrir unnu danska stór- hugsaði mig um stund en lék svo meistarann; Erlingur Hallsson, og hafði sigur — kom upp drottn- ingu, en þetta var bara fjöltefli,“ sagði Páll ennfremur. Páll er sonur Áma Björns Jónassonar, verkfræðings, sem á sæti í móts- nefnd Reykjavíkurskákmótsins og hefur því ekki _ langt að sækja skákáhugann. „Ég tefli dálítið við pabba og hef einstaka sinnum Hjalti Bjamason og Páll Þór Bergsson. Fjórir gerðu jafntefli við Larsen, þeirra á meðal vom tveir ungir og upprennandi skák- menn — Héðinn Steingrímsson, 11 ára, sem fyrir skömmu varð Norðurlandameistari 12 ára og yngri og Helgi Áss Grétarsson, 9 áragamall. MorgunDiaoio/KAA Páll Árnason var mættur á Hótel Loftleiðum i gærkvöldi til þess að fylgjast með skákinni — fjær er Larsen að tafli við Júgóslavann Nikolic. samkomulag og fleiri tengd atriði þegar fundi var framhaldið eftir matarhlé í gærkvöld. Þótt forystumenn samninga- nefnda ASÍ og VSÍ töluðu afar varlega í gærkvöld, var á þeim að heyra að útlit væri fyrir að fljótlega gæti dregið að samkomulagi um veigamikil atriði í samningaviðræð- unum. Bæði í Karphúsinu og í húsi Vinnuveitendasambandsins var gert ráð fyrir fundum fram eftir nóttu. sjá ennfremur á bls. 4. Grunaðir um milljónasvik TVEIR menn hafa verið úrskurð- aðir í þriggja vikna gæsluvarð- hald að kröfu Rannsóknarlög- reglu ríkisins vegna rannsóknar á meintu umfangsmiklu fjár- svikamáli. Þá hefur RLR sett fram kröfu um gæsluvarðhald yfir þriðja manninum, en grunur leikur á að hann hafi aðstoðað mennina tvo. Grunur leikur á að mennimir hafi komist yfír milljónir króna með biekkingum. Meintir höfuðpaurar voru handteknir á þriðjudag, en sá þriðji í gærdag. Jón Snorrason, fulltrúi rannsóknarlögreglustjóra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að rannsókn málsins væri á frumstigi og vildi ekki tjá sig nánar um það, en sagði að mennimir væru grunaðir um að hafa haft verulegt fé af fólki. Morgunblaoio/OÍ.K. Mag. Þorri léttur á brún Þorri karl ætlar ekki að gera það endasleppt. Reykvíkingar hafa getað baðað sig til skiptis í laugunum og sólskininu, einsog þessi frísklegu ungmenni í Sundlaug Vesturbæjar, þrátt fyrir að þorri sé þekktur að öðru en blíðuhótum. Eyjólfur Þorbjörns- son veðurfræðingur á Veðurstofunni tjáði Morgunblaðinu að um helgina yrði hæg breytileg átt um allt land með þriggja til átta stiga frosti í byggð og víðast Iéttskýjað. Það er því aUt útlit fyrir að góa kerling heilsi jafn blíðlega og þorri kveður. Mögulegt verði að kaupa skip erlendis TIL UMFJÖLLUNAR eru nú í ríkisstjórninnni reglur um erlendar Iántökur vegna endumýjunar og endurbóta á fiskiskipaflotanum, en miðað er við að þessar reglur verði settar i tengslum við nýjar lánareglur Fiskveiðasjóðs íslands um heimildir til erlendrar lántöku vegna nýsmíði, innflutnings og endurbóta á fiskiskipum. í þeim tillög- um sem fyrir liggja að nýjum reglum er gert ráð fyrir því að ekki verði heimilaðar erlendar lántökur til nýsmíði fiskiskipa innanlands eða erlendis né til kaupa á fiskiskipum erlendis frá umfram lán- veitingar fiskveiðasjóðs. meirihluti stjdmar Fiskveiðasjóðs að veita ekki lánsloforð á árinu 1986 vegna nýsmíði eða innflutn- ings á frystiskipum. Skilyrði þessara markmiða sjóðs- ins er að ekki verði veittar heimildir til erlendrar lántöku né láns úr öðrum opinberum sjóðum. Þá er einnig gert ráð fyrir því að ekki verði heimiluð erlend lán vegna endurbóta á fiskiskipum nema að því marki sem felst í lánum Fiskveiðasjóðs og sem viðbót við Aftur til Suður-Jemen NOKKRIR af íslendingunum níu sem flúðu frá Suður-Jemen þeg- ar stjórnarbyltingin stóð sem hæst á dögunum eru komnir. þangað aftur. Tveir þeirra, Sig- fús Thorarensen og Sigfús Þormar fóru aftur til AI Mukalla, næst stærstu borgar landsins, fyrir um það bil hálfum mánuði. Með þeim var Gestur Stefánsson, sem er yfirmaður hjá dönsku fyrirtækjasamsteypunni DAND- AF, sem íslendingarnir vinna hjá. Gestur kom aftur til Kaup- mannahafnar, þar sem hann er búsettur, seint i gærkvöldi og ræddi Morgunblaðið þá við hann simleiðis. Gestur sagði að allt væri með kyrrum kjörum í Mukalla og hefði verið nokkra hríð. Hann sagði að nú væri starfsemi fyrirtækisins óð- um að komast í eðlilegt horf í Mukalla og Seyiunn, en DANDAF vinnur að verkefnum í báðum borg- unum. Morgunblaðið hafði heimildir fyrir því að Gestur og Sigfús Thor- arensen hefðu hitt hinn nýja forseta Iandsins, Heidar Abu-Bakr Al- Attas, nokkrum sinnum á síðustu árum. Nýi forsetinn er verkfræðing- ur að mennt. Gestur kvað það rétt vera, en vildi lítið úr því gera. „Það telst varla til tíðinda þótt maður hafí rekist á þennan mann, þetta er verkfræðingur og eðlilega hefur hann fylgst með því sem við erum að gera í Mukalla og Syiunn," sagði Gestur. þau og að samanlögð lán Fiskveiða- sjóðs og erlend viðbótarlán verði aldrei hærri en 80% af heildarkostn- aði. Engin erlend lán skal heimila vegna verka eða verkþátta sem Fiskveiðasjóður hefur hafnað að veita lán til. Meirihluti stjórnar Fiskveiðasjóðs hefur samþykkt tillögu um nýjar reglur þess efnis að skilyrði fyrir lánveitingu til nýsmíði og innflutn- ings fískiskipa, sé að skip sem umsækjandi á af sömu eða svipaðri stærð og afkastagetu verði eða hafí verið strikað endanlega út af skipaskrá. Þá er gert ráð fyrir því að útstrikun báts undir 10 brúttó- lestum heimili ekki nýsmíði eða innflutning báts yfír 10 brl. Þá er gert ráð fyrir því að 39 m langur togari veiti ekki rétt til nýs skips yfír 39 m að lengd. Sama gildir um skip yfír 39 m löng. Loðnuskip má vera 25% stærra. Þá samþykkti Mjólk til skólabarna niðurgreidd? VERÐUR mjólk til skólabarna í grunnskólum landsins niður- greidd meir en nú er gert? Framleiðsluráð landbúnaðar- ins hefur sent rikisstjórninni erindi þess efnis. Matthias Bjarnason, viðskiptaráðherra, kynnti erindi framleiðsluráðs á rikistjórnarfundi í gær. „Ég hef ekki tekið afstöðu til beiðninnar, en vissulega er margt sem mælir með þvf að mjólk til skólabama verði niður- greidd í auknum mæli, en þó innan þess ramma sem niður- greiðslur ná nú yfír,“ sagði Matthías Bjamason .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.