Morgunblaðið - 12.03.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.03.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ1986 Afganistan; Skæruliðar bíða ósigur Islamabad, Pakistan, 11. mars. AP. SKÆRULIÐAR urðu fyrir mild- um áföllum í baráttu sinni við sovéska herinn í Afganistan, er sovéska hernum tókst að brjótast í gegnum víglínu þeirra í Norð- ur-Afganistan. Felldu þeir marga skæruliða og náðu mikl- um vopnabirgðum á sitt vald. Sovétmenn gerðu árásina 2. mars síðastliðinn, að því er heimildar- menn herma, sem ekki vilja láta nafns síns getið. Notaðist sovéski herinn við skriðdreka og hermenn, sem sérþjálfaðir eru í því að vinna að baki víglínu óvinarins. Ekki var getið um það hve margir skæruliðar féllu, né hversu vopnabúr það var stórt, sem sovéski herinn náði á vald sitt. Þá herma diplómatískar heimildir að hermenn ættbálks í Suður- Afganistan, sem þjálfaðir voru af Sovétmönnum, hafi snúist gegn kennurum sínum, er þeir áttu að berjast við hlið þeirra gegn skæru- liðum. Hafði þeim verið falið það hlutverk að umkringja skæruliða ásamt sovéska hemum. Gengu þeir í lið með skæruliðum og varð sov- éski herinn að hörfa og mátti þola talsvert mannfall. Sameinuðu þjóðirnar: Sovétmenn mótmæla 3 þingmenn handteknir I Ljósmynd/AP Grímuklæddur mótmælandi steytir hnefann í útvarpinu „Fijálst Ulster“ sem útvarpaði meðan á sólarhrings allsheijarverkfalli mótmælenda stóð fyrir 10 dögum síðan, en með því vildu mót- mælendur sýna fram á samstöðu sína gegn samkomulagi ríkis- stjórna írlands og Bretlands um málefni Norður-írlands. Norður-írland; Moskvu, 11. mars. AP. SOVÉSKA utanríkisráðuneytið lagði í dag fram mótmæli í bandaríska sendiráðinu í Moskvu gegn fyrirskipun Bandarikja- manna um að fækka starfsfólki við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York. Sagði að hér væri um ólöglega kröfu að ræða, sem skaðað gæti leiðtoga- fundi stórveldanna hér eftir. Mótmælin voru munnleg, en birt stafrétt sovésku fréttastofunni Tass, og var þar ásökunum um að starfsmenn Sovétmanna við SÞ stunduðu einnig njósnir neitað. Bandaríkjastjóm fyrirskipaði Sovétmönnum á föstudag að fækka starfsliði sínu við Sameinuðu þjóð- imar um 105 manns, úr 275 niður í 170, fyrirl.apríl 1988. Bclfast, Norður-f rlaiidi, 11. mars. AP. ÞRÍR stjómmálamenn mót- mælendatrúar vom handteknir eftir stympingar við lögreglu fyrir utan Stormont-kastalann, þar sem fulltrúar rikisstjóraa Bretlands og írlands funda í samræmi við samkomulagið sem ríkissfjómimar gerðu með sér um málefni Norður-írlands. Stjómmálamennimir reyndu að ijúfa gat á gaddavírsgirðingu, sem komið hafði verið upp í kring- um kastalann, og setja upp vegg- spjöld, þar sem samningur ríkis- stjómanna var fordæmdur. Stjómmálamennimir eiga allir sæti á norður-írska þinginu og tilheyra Lýðræðislega sameining- arflokknum, flokki prelátans Ians Paisley. Þeir heita Gregory Cam- pell, Jim Wells og Jack McKee. „Waldheim ekki brúnstakk- ur heldur hesturinn hans“ segir Sinowatz, kanslari Austurríkis Vín, 11 .mars. AP. PÓLITÍSKIR andstæðingar Kurts Waldheim, fyrrum fram- kvæmdasfjóra Sameinuðu þjóð- anna, hafa nú hafið sókn í for- setakosningunum í Austurríki og opinberlega vakið máls á afskipt- um hans af nasistum. „Ég hef fengið nóg,“ sagði Fred Sinowatz, kanslari, og neitaði reið- ur ásökunum stjómarandstöðunnar um að Sósíalistaflokkurinn stæði að baki uppljóstrunum um að Wald- heim hefði verið skráður félagi í SA, brúnstökkum Adolfs Hitler. Sósíalistar styðja Kurt Steyrer í framboði á móti Waldheim í forseta- kosningunum 4. maí. Þar til á blaðamannafundi með Sinowatz og öðmm leiðtogum flokksins hafa sósíalistar haldið því fram að þeir vildu ekki nota þetta mál í kosn- ingaslagnum. Sinowatz og tveir varaformenn flokksins höfnuðu fullyrðingum hægri manna um að sósíalistar hefðu komið á kreik ásökunum um að Waldheim hefði verið félagi í SA. Gagnrýni á Waldheim hófst í síð- ustu viku með ásökunum frá Al- þjóðaþingi gyðinga og grein í dag- blaðinu New York Times þar sem sagði að Waldheim hefði ekki tekið fram í sjálfsævisögu sinni að hann hefði verið í þýskri herdeild, er ofsótt hefði gyðinga í Júgóslavíu og á Grikklandi. ' Waldheim neitar þessum ásökun- um og heldur fram að skjöi, sem beri aðild hans að SA vitni, hafi einfaldlega verið skyssa skriffínns sprottin af þeim sökum að hann stundaði reiðmennsku hjá félags- skap, sem síðar var innlimaður í SA. Sinowatz gerði á blaðamanna- fundinum lítið úr útgáfu Waldheims af gangi mála: „Við tökum til at- hugunar þá staðreynd að það var ekki Waldheim, sem var félagi í SA, heldur hesturinn hans.“ Sinowatz kvaðst aftur á móti ekki bera kaldan hug til þeirra, „sem villtust í völundarhúsi atburða þessa tíma“ og gengu í félagsskap nasista. Blaðið Wochenpresse birti í dag skoðanakönnun og segir þar að 52 prósent aðspurðra trúi Waldheim, 23 prósent trúi honum ekki og 25 prósent viti ekki' í hvom fótinn þau eigi að stíga. Sinowatz kvaðst á blaðamanna- fundinum trúa Waldheim. ■ ■■ ERLENT Halastjarnan með fastan kjarna Moskvu, 11. marz. AP. RYK úr halastjömu Halleys buldi á sovézka könnunarfar- inu Vega-2 á sunnudag er það flaug þvert á braut stjöraunn- ar, en engu að síður tókst far- inu að senda frá sér mikilvægar upplýsingar um stjörauna. Á annað hundrað útlendra vís- indamanna, sem vom í stjóra- stöð sovézku geimvísindastofn- unarinnar, sögðu árangurinn af ferð Vega-2 stórkostlegan. Örlitlir loftsteinar og ryk buldu á sólrafhlöðum Vega-2 er það geystist á 80 km hraða á sekúndu gegnum braut stjömunnar. Við það missti Vega-2 um 40% raf- afls. Þrjú tæki biluðu einnig vegna ryksins. Allt samband rofnaði við könnunarfarið í 10 mínútur er það fór inn yfír braut halastjömunnar. Þessi mynd af halastjömunni Halley var tekin 5. mars gegnum stjörausjónauka hjá Siding Springs stjörauathugunarstöðinni í Ástraliu. Myndin var tekin í ljósaskiptunum til að hali stjöraunnar sæist betur, en hann er nú yfir 18 milljónir kOómetra að lengd. Vega-2 sendi frá sér skýrar myndir af halastjömunni, sem var í 8.500 kílómetra fjarlægð er farið fór gegnum halann. Vísindamenn- imir segja þær staðfesta að stjaman hafi fastan kjama, en óljóst sé hversu stóran þar sem hann er hulinn rykhjúpi. Kjaminn virðist þó vera um 6 kílómetrar að þvermáli og sporöskjulaga. Forstöðumenn evrópsku geim- vísindastofnunarinnar, ESA, hafa miklar áhyggjur af könnunarfarí ESA, Giotto, sem fljúga mun þvert yfír braut halastjömunnar á fímmtudag, í aðeins 500 kíló- metra fjarlægð frá stjömunni. Óttast menn í ljósi upplýsinga frá Vega-2 að ryk og smásteinar eyðileggi Giotto er farið fer inn í hala stjömunnar. Aurskriður í Perú: 12 menn biðu bana Líraa, 11. marz. AP. AURSKRIÐUR grófu fjögur þorp í Mið-Perú að mestu, 12 manns biðu bana og 20 er saknað. Þorpin eru í frumskógaijaðri í Andesfjöllum og hefur reynst erfitt að koma björgunarmönn- um á vettvang. Gifurlegar rign- ingar hafa verið á þessu svæði undanfaraa daga. Af opinberri hálfu var frá því skýrt að fleiri hundruð manns hefðu misst heimili sín og lífsviðurværi í aurskriðunum. Akurlendi hefði eyðilagst í aurskriðunum og búpen- ingur einnig. Talið er að a.m.k. eitthundrað hús hafi horfið í skriðuföllunum. Um 500 bændur misstu heimili sín, akra eða búpening akra undir aur- inn. Skriðurnar eyðilögðu marga kartöflu-, bauna- og komakra. Skriðumar féllu á borgina Santa Maria del Valle og þorp í næsta nágrenni i gærmorgun. Svæðið er umlukið frmskógi og hefur enn ekki tekizt að koma björgunarsveit- ,um á vettvang. Af þeim sökum er talið að enn fleiri kunni að hafa beðið bana, en óljósar fregnir hafa borizt af svæðinu. Prestur fagnaði morðinu á Palme Stokkhólmi, 11. mars. AP. ULF Granasen, prestur sænsku þjóðkirkjunnar, sagði á sóknarfundi að hann væri ánægður með að Olof Palme, forsætisráðherra, hefði verið myrtur. Hann lýsti yfir því í dag að hann hefði látið af prestskap og ætli að setjast í helgan stein. „Þetta er Ulf Granasen. Ég er ekki lengur prestur í Váster- landa," ansaði símsvari á heimili hans. „Ég hefði getað gert það sjálfur og ég vona að hann brenni í helvíti," sagði Granasen á sóknarfundinum. Að þessum orðum sögðum gekk presturinn út og hækkaði í heila stöng sænskan fána, sem flaggað hafði verið í hálfa stöng vegna morðsins á Palme. Næsti yfírmaður Granasens, Gösta Mellberg, sagði að Gran- asen hefði ekki verið vært leng- ur í þorpinu Vásterlanda í vest- urhluta Svíþjóðar og honum hefðu borist morðhótanir. Áður hafa borist kvartanir um athæfi Granasens. Þá laust hann tvo meðhjálpara kinnhesti og var annar þeirra örkumla kona. Gengi gjaldmiðla Lundúnum, 11. mars. AP. Bandarikjadalur féll á gjaldeyr- ismörkuðum gegn flestum helstu gjaldmiðlum heims í dag, eftir að hafa hækkað talsvert í gær. Breska pundið kostaði þannig 1.4600 dali, samanborið við 1.4425 ígær. Gengi annarra gjaldmiðla gagn- vart dal var sem hér segir, innan sviga gengið frá því í gær. Dalurinn kostaði 2,2640 vestur-þýsk mörk, (2,2785); 1,9210 svissneska franka, (1,9332); 6,9650 franska franka, (7,0075); 2,5520 hollensk gyllini, (2,5740); 1.539,50 ítalskar lírur, (1.548,50) og 1,39775 kanadíska dali, (1,3995).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.