Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 54
54 .......... ..............’ MÖRGtíNBLAÐID, LAUGARDAGUR15. MARZ1986 Stjörnukvöld í HöNinni: Fyrsta troðslukeppnin og pressuleikur í körfu Morgunblaðið/Bjami • ívar Webster, besti varnarmaðurinn. Hér er hann í sókn og vel gætt af Hreiðari Hreiðarssyni í UMFN. Pálmar og Linda best íkörfunni ÞAÐ verður mikið um að vera í Laugardaishöilinni á þriðjudags- kvöldið. Þá verður haldið svokall- að Stjörnukvöld og þar munu — úmsar stjörnur láta ijós sitt skína. Það eru Körfuknattleikssam- bandið og samtök íþróttafrétta- manna sem gangast fyrir þessu kvöldi. Pressuleikur verður í körfuknattleik og f leikhléi mun fyrsta troðslukeppnin hér á landí fara fram. Þai munt margir leik- menn úrvalsdeildar reyna með - Birgir Mikaelsson með 92% vítahittni! sér hver er bestur í að troða knettinum í körfuna. Einnig verð- ur keppt í innanhússknattspyrnu og karate-menn munu sýna listir sínar auk þess sem handknatt- leiksmenn munu koma fram. íþróttafréttamenn hafa þegar valið pressuliðið og er það skípað eftirtöldum leikmönnum: ívar Webster, Henning Henningsson j og Ólafur Rafnssori úr Haukum. j Jóhannes Kristbjörnsson, ísak ; Tómasson, Helgi Rafnsson og Kristinn Einarsson ru Njarðvík. Leifur Gústafsson kemur úr Val, Garðar Jóhannsson úr KR, Guðjón Skúlason úr ÍBK og þeir Karl Guðlaugsson og Björn Steffensen úr (R. Skemmtun þessi er tilvalin fyrir alla íþróttaáhugamenn því brugðið verður á leik í mörgum íþróttum auk þess sem skemmtilegur körfu- knattleiksleikur verður á boðstól- um Morgunblaðið/Bjami • Unda Jónsdóttir fékk öll kvennaverðlaunln. Hér brunar hún fram- hjá varnarmanni ÍS f bikarúralltaleiknum. AÐ LOKNUM úrslitaleikjum bik- arkeppni KKÍ á fimmtudagskvöld- ið hélt sambandið lokahóf eins og venja er og voru þar heiðraðir þeir einstaklingar sem báru af f körfuknattleiknum f vetur. Pálmar Sigurðsson var kjörinn besti leik- maður úrvalsdeildarinnar og f kvennaflokki var Linda Jónsdóttir kjörin besti leikmaðurinn og hún hirti reyndar öll kvennaverðlaun- in að þessu sinni eins og þær KR-stúlkur gerðu í vetur, þær unnu öll mótin þrjú sem þær tóku þátt f. Glæsilegur árangur hjá þeim f vetur. Pálmar bestur Pálmar Sigurðsson úr Haukum var kjörinn besti leikmaður úrvals- deildarinnar eins og áður sagði en í öðru sæti varð Valur Ingimundar- son úr Njarðvík. Þrír leikmenn urðu síðan jafnir í þriðja sæti en það voru þeir Birgir Mikaelsson úr KR, Guöni Guðnason einnig úr KR og RagnarTorfason úr ÍR. I keppninni um stigahæsta mann mótsins hafði Valur Ingi- mundarson úr Njarðvík hins vegar vinninginn yfir Pálmar Sigurðsson úr Haukunum. Valur skoraði alls 513 stig en Pálmar skoraði 496 stig og varð í öðru sæti. Birgir Mikaelsson úr KR varð í þriðja sæti en hann skoraði alls 397 stig í úrvalsdeildinni í vetur. Þeir Pálmar og Valur komu einn- ig báðir við sögu í keppninni um flestar þriggja stiga körfur í vetur. Pálmar skoraði flestar þannig körf- ur, alls 55, og færði félagi sínu þar með 165 stig. Karl Guðlaugsson úr ÍR og Valur Ingimundarson úr Njarðvík voru jafnir í öðru sæti í keppninni um þriggja stiga körf- urnar en þeir gerðu alls 31 slíka körfu, eða 93 stig hvor. Frábær vítahittni Það borgar sig greinilega ekki að brjóta á honum Birgi Mikaels- syni úr KR þegar hann er í skot- stöðu því drengurinn sá er með bestu nýtinguna í vítaskotum í úr- valsdeildinni. Hann tók alls 72 víta- skot í vetur og skoraði úr 66 þeirra en það þýðir að nýtingin var 92% sem verður að teljast frábær árangur. Tómas Holton úr Val var með næstbestu vítanýtinguna í vetur. Hann tók 52 vítaskot og hitti úr 43 en það gerir 83% nýtingu. í þriöja sæti varð Pálmar Sigurðs- son úr Haukum. Hann tók 80 víta- skot og hitti úr 62 þeirra og er því með 78% nýtingu. Feðgar í efstu sætum Jóhannes Kristbjörnsson úr Njarðvík var kjörinn besti nýliði Morgunblaðið/Bj ami | • Kristbjöm Albertsson er besti kröfuknattleiksdómari landsins. murgunoiaoio/ cjami • Pálmar skælbrosandl. Bikarinn f höfn og hann kjörinn besti leik- maðurinn af félögum sfnum f deildinni. úrvalsdeildarinnar og er hann vel að þeim titli kominn. Faðir hans, Kristbjörn Albertsson, var kjörinn besti dómari deildarinnar og eru víst fæstir í vafa um réttmæti þeirrar kosningar. í næstu tveimur sætum um kosningu nýliða deildarinnar voru tveir Keflvíkingar, Guðjón Skúla- son og Ólafur Gottskálksson, þannig að það er auðséð aö Suður- nesjamenn eiga nóg af efnilegum körfuknattleiksmönnum og þurfa ekki að kvíða framtíðinni í þeim efnum. Jón Otti Ólafsson úr KR varð í öðru sæti í kosningunni um bestu dómarana og Ómar Scheving úr Kr í því þriðja. Ómar var einnig kjörinn efnilegasti dómarinn og í öðru sæti þar varð Jóhann Dagur Björnsson úr Fram og Kristinn Albertsson úr Val varð þriðji. ívar bestur í vörn Besti varnarmaður úrvalsdeild- arinnar var kjörinn ívar Webster úr Haukum. Þessi hávaxni leikmaöur hefur sýnt það og sannað í leikjum vetrarins að hann er trúlega einn albesti varnarmaður sem leikið hefur hér á landi. Á góðum degi tekur hann ógrynni frákasta og er hreint frábær í vörninni auk þess sem hann er einnig mjög drjúgur viðaö taka sóknarfráköst. ísak Tómasson úr Njarðvík varð í öðru sæti í kjörinu um varnar- mann deildarinnar og Torfi Magn- ússon úr Val í því þriðja. Linda tók allt Linda Jónsdóttir úr KR tók öll verðlaunin sem veitf voru fyrir kvennakörfuna í vetur. Hún var kjörinn besta stúlkan, skoraði flest stig og hafði bestu vítanýtinguna. I öðru sætinu í kjörinu um bestu stúlkuna varð Þórunn Magnús- dóttir úr Njarðvík og Guðiaug Sveinsdóttir úr Keflavík varð í þriðja sæti. Guðlaug hækkaði sig um eitt sæti í röðinni um stigahæstu stúlk- urnar en hún gerði alls 145 stig í vetur. Linda varð efst með 205 stig og Ása Óskarsdóttir úr Hauk- um varð í þriðja sæti með 118 stig. Linda var einnig best í vítaskot- unum í vetur. Hún var með 70% nýtingu en Ragnheiður Steinback úr (S kom fast á hæla hennar með 68% nýtingu og Cora Barker rétt á eftir henni með 67% nýtingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.