Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						Rósastríð hið nýja

MJÖG hörð samkeppni ríkir nú innan blóma-

heildsölunnar. A þeini vettvangi starfa nú tvö

fyrirtæki — Blómamiðstöðin, sem starfað hefur

í 25 ár, og Blómaheildsalan sem er nýlegt

fyrirtæki. Breytingar standa fyrir dyrum hjá

báðum fyrirtækjum til að mæta harðnandi

samkeppni, eins og segir frá blaðinu í dag.

B5

Axishittíímark

HÚSGAGNAFYRIRTÆKIÐ Axis sló í gegn á

norrænu húsgagnasýningunni í Bella Center á

dögunum með nýja linu af barnaherbergishús-

gögnum, sem Pétur Lútersson hefur hannað.

Fjöldi aðila hefur óskað ef tir að fá einkaumboð

fyrir framleiðslu Axis, bæði í Evrópu og í

Bandaríkjumini. Eyjólfur Axelsson, fram-

kvæmdastjóri Axis, segir frá árangri fyrirtæk-

isins á sýningunni í viðtali i dag og hvaða

vandræðum fyrirtækið stendur frammi fyrir

af þessum sökuin.                              "D 1 O

IltargMiiMfritffe

vn)SHPn/iaviNNUur

PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS

FIMMTUDAGUR 22. MAI1986

BLAÐ

B

Fóðuriðnaður

Fóðurblandan hf.

flutt í Sundahöfn

Nær allur fóðuriðnaðurinn

kominn á sama stað

FÓÐURBLANDAN hf. hefur

flutt alla starfsemi sína í nýtt

húsnæði að Korngarði 12 í

Sundahöfn. Hin nýja verksmiðja

Fóðurblöndunar er fullkomnasta

fóðurblöndunarstöð landsins, að

sögn Hjörleifs Jónssonar for-

stjóra,   og   býður   hún   upp   á

Vegamál

Borgarverk

ogHagvirki

bjóða best

íklæðningar

NÝLEGA voru opnuð tilboð í

þremur útboðum Vegagerðar

ríkisins. Óvenju fá tilboð bárust

' verkin og voru lægstu tilboð í

öllum tilvikum fyrir ofan kostn-

aðaráætlun Vegagerðarinnar.

Stærri verkin eru klæðingar á

yegi en samkeppni verktaka virð-

ist ekki vera eins mikil um þau

eins og almenna vegagerð, enda

sérhæfð tæki notuð við þau.

Borgarverk hf. í Borgarnesi átti

lægsta tilboð f klæðingar á vegi í

Skagafírði og á Miðfjarðarveg. Til-

boð Borgarverks var 12.476 þúsund

krónur, sem er tæplega 8% yfír

kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp

á 11.567 þúsund krónur. Tvö ðnnur

tilboð bárust í verkið og voru þau

bæði hærri, auk eins frávikstilboðs

til viðbótar.

Hagvirki hf. átti lægsta tilboð í

gerð efra burðarlags og klæðingar

á Þingvallaveg (Móakotsá - Stóra-

landstjörn) og Vesturlandsveg í

Hvalfirði, en alls eru þetta rúmir

11 kílómetrar. Tilboð Hagvirkis var

9.455 þúsund krónur, sem er tæp-

lega 2% yfir áætlun sem hljóðaði

UPP á 9.294 þúsund krónur. Þrjú

önnur tilboð bárust í verkið, öll

hærri en tilboð Hagvirkis.

Fossverk sf. á Selfossi átti lægsta

tilboð í lagningu 2 km af Miðfjarð-

arvegi. Tilboðið var 1.177 þúsund

kr-, eða tæplega 3% yfir kostnað-

aráætlun sem var 1.144 þúsund kr.

Tvö hærri tilboð bárust.

möguleika til framleiðslu á nýj-

um fóðurvörum.

Hjörleifur sagði að verksmiðjan

væri tölvustýrð. Það skapaði meðal

annars mikla möguleika á fiöl-

breytni tegunda, bæði í hinum

hefðbundnu búgreinum og aukabú-

greinunum svokölluðu, þannig að

nánast gæti hver einstakur bóndi

látið framleiða fyrir sig sína eigin

fóðurblöndu. Afkastageta verk-

smiðjunnar er 12—15 tonn á

klukkustund. Munurinn er mikill

því afkastageta gömlu verksmiðj-

unnar sem var í leiguhúsnæði á

Grandavegi, var 3,5—4 tonn á

klukkustund. „Við eigum núna að

geta annað eftirspurninni og auk

þess farið að stunda sölumennsku

sem við höfum ekki áður þurft,"

sagði Hjörleifur.

Með flutningi Fóðurblöndunnar

er stór hluti íslenska fóðuriðnaðar-

ins kominn á sama stað. Allar ís-

lensku fóðurblöndunarverksmiðj-

urnar, Fóðurblandan hf., Mjólkurfé-

lag Reykjavíkur og SÍS, eru við

Korngarð. Þar er einnig Kornhlaðan

hf. sem fóðurverksmiðjurnar eiga í

sameiningu og aðstaða Guðbjörns

Guðjónssonar hf. sem er einn

stærsti fóðurinnflytjandinn.

Gjaldþrot:

Morgunblaðið/Éinar Falur

ALLT A SAM A STAÐ — Hin n£ja fóðurverksmiðja Fóðurblöndunnar hf. við Korngarð.

Bláskógar biðja

um greiðslustöðvun

Húsgagnaverslunin Bláskógar

hf. í Reykjavfk hefur farið fram

á að fá þriggja mánaða greiðslu-

stöðvun.

Beiðni félagsins var tekin fyrir

hjá skiptaráðanda í gær en ekki

afgreidd og var forráðamönnum

Bláskóga gefínn vikufrestur til að

skila fyllri upplýsingum. Ragnar

Hall, skiptaráðandi, sagði, að gerð

væri krafa til betri upplýsinga um

fyrirtækið og áform stjórnenda þess

á þeim tíma, sem greiðslustöðvun

stendur.

Ragnar Hall sagði, að frá ára-

mótum hefðu borist 22 beiðnir um

greiðslustöðvun. Á sama tíma á síð-

asta ári voru beiðnirnar fímm. Hins

vegar eru engin fyrirtæki nú í

greiðslustöðvun, en nokkrir ein-

staklingar.

Kröfur íþrotabú Blóma

og ávaxta tæpar 30 m.kr.

KRÖFUSKRÁ í þrotabú Blóma

og ávaxta hf. í Reykjavik var

lögð fram í gær og nema almenn •

ar kröfur í búið 28,3 iiiilljónuiii

króna auk 125 þusunda danskra

króna (rúmlega 600 þúsund ís-

lenskar krónur) og lýstar for-

gangskröfur, þ.e. launakröfur og

kröfur frá lffeyrissjóðum, nema

rumum 902 þusundum króna.

Magnús Norðdahl, lögmaður,

búsijóri þrotabúsins, sagði í gær,

að líklegi væri að aðeins tíundi

Líklegt að aðeins tíundi hluti krafna innheimtist

hluti ahnennra krafna innheimt-

ist, en allar forgangskröfur.

Blóm og ávextir hf. var lýst

gjaldþrota 24. febrúar síðastliðinn

og er vitað um eignir að verðmæti

3 milljónir króna. Það er því ljóst

að lítill hluti þeírra krafna sem

gerðar eru í þrotabúið innheimtist,

eins og áður segir. Stærstu kröfu-

hafar eru Búnaðarbankinn með 9,9

milljónir króna, Verzlunarbankinn

með um 1,3 milljónir, Tollstjórinn

með 4,4 milljónir króna og blóma-

bændur með um 4 milljónir króna.

Blóm og ávextir hf. rak tvær

verslanir; t Hafnarstræti 3 og Al-

aska við Miklatorg. Skömmu áður

en félagið var lýst gjaldþrota var

verslunin við Hafnarstræti seld.

Magnús Norðdahl sagði að margir

kröfuhafar hefðu lýst því yfír að

þeir væru ósáttir við þessa sölu og

að mati þeirra hefði verslunin verið

seld langt undir raunvirði. Hann

sagði að væntanlega færu einhverjir

kröfuhafar fram á málshöfðun á

hendur þess er keypti búðina, en

það er skiptafundar að ákveða hvort

það verður gert. Skiptaráðandi f

Reykjavík metur hins vegar hvort

ástæða er til frekari rannsóknar

vegna bókhalds félagsins eða með-

ferðar búsins skömmu fyrir gjald-

þrot og tilkynnir það ríkissaksókn-

ara, sem tekur ákvörðun um ránn-

sókn.

					
Fela smįmyndir
B 1
B 1
B 2
B 2
B 3
B 3
B 4
B 4
B 5
B 5
B 6
B 6
B 7
B 7
B 8
B 8
B 9
B 9
B 10
B 10
B 11
B 11
B 12
B 12