Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ,

VH)SHPn.«ŒVINNUIÍF fimmto

DAGUR22.MAI1986

B    3

Fjarskipti

Easylink-gjöldin

lækka um 30%

með tilkomu

nýja tölvunetsins

EFTIR opnun sambands til Bret-

lands fyrir notendur hins al-

menna gagnanets Pósts og síma

hefur gjald fyrir scndingu og

móttöku telexskeyta Easylink-

notenda hér á landi lækkað um

30%, samkvæmt upplýsingum

Guðmundar Ólafssonar, verk-

fræðings og annars aðaleigenda

Sfmtaks, umboðsaðila Easylink

hérálandi.

Með tilkomu gagnanetsins þurfa

Easylink-notendur á íslandi ekki

lengur að hringja til Englands til

að senda eða taka við telexskeytum

með cinkatölvum sínum, en að sögn

Guðmundar hefur mörgum þótt

símakostnaðurinn vegna daglegra

hringinga vera helsti ókosturinn við

tölvutelex Easylink. Nú nægir að

hringja í síma 003 eða 004, sem

er símanúmer íslenska gagnanets-

ins, og eru greidd sömu símagjöld

hvar sem er á landinu. Fyrir slíka

símtengingu segir Guðmundur að

sé greitt venjulegt gjald fyrir innan-

bæjarsfmtal auk gjalds sem er ein

króna á mínútu. Til samanburðar

kostaði 39 krónur á mínútu að

hringja til Bretlands.

Guðmundur segir þannig gjaldið

fyrir sendingu og móttöku telex-

skeyta með Easylink lækka um ca.

30%. Sé gert ráð fyrir því að fyrir-

tæki sendi 50 telexskeyti á mánuði

og taki á móti jafnmörgum skeyt-

um, þá kostar nú að meðaltali 115

krónur að senda og taka á mótj

einu skeyti. Er þá miðað við lands-

meðaltal f skiptingu skeyta milli

landa. í þessu gjaldi er allur kostn-

aður innifalinn, bæði fastagjöld til

Easylink, gjöld til Pósts og síma

fyrir notkun sfma- og gagnanetsins

og telexgjöld Easylink. Til saman-

burðar segir Guðmundur að það

kosti 172 kr. á hvert skeyti, ef

fyrirtækið væri með eigið telex og

leigði gamalt telexskeyti af Pósti

og sima. Þá er gert ráð fyrir að

föst leigugjöld skiptist á 50 skeyti

á mánuði, en talan lækkaði eðlilega

ef skeytin væru fleiri í hverjum

mánuði.

Guðmundur segir að ef gerður

sé samanburður við símatelex verði

munurinn enn meiri. Telex af

meðallengd kosti frá 310 krónum

og allt upp í 750 krónur eftir því

til hvaða lands telexið fer. Er þá

miðað við samanlagðan kostnað við

að senda eitt telex og fá svar til

baka á sama hátt og gert er við

verðútreikning í sambandi við Easy-

link.

Þá segir Guðmundur að með til-

komu gagnanetsins hafi nú í fyrsta

sinn skapast raunhæfur möguleiki

fyrir íslenska Easylink-notendur til

að sækja margvíslegar upplýsingar

í ótal tölvubanka, er nú standi þegar

til boða á hinum margvfslegustu

sviðum, þar eð Easylink-notendur

hafi nú þegar allt sem þarf til slfkra

samskipta, þ.e. tölvu, mótald og

samskiptaforrit.

Fyrirtækið Símtak var stofnað í

mars sl. til að annast sérstaklega

alla þjónustu við Easylink-notendur

á íslandi vegna mikillar fjölgunar

þeirra. Stofnendur og aðaleigendur

Símtaks eru Guðmundur Olafsson

og Halldór Kristjánsson. I síðasta

fréttabréfi er í fyrsta sinn birt

notendaskrá Easylink á Islandi og

eru þeir orðnir alls 120. Athygli

vekur að ýmis stórfyrirtæki eru þar

á meðal, svo sem Eimskip, Fálkinn

hf., Hampiðjan, Hekla hf., Kristján

Ó. Skagfjörð, Ríkisútvarpið-sjón-

varp og Sláturfélag Suðurlands.

i Samanburður a Easylink og teleHi j

X

O)


C

•o

u

u

SimateleH

Easylink

10

i    i—i     i     t—i—i—i—i—i    i—i—i—i—i—i

15 20 25 30 35 40 45 50 55 60 65 70 75 80 85 90

Fjoldi telexa á inánuöi

Simtak hl

Z_____"          __                 __                            ................. i

Hugbúnaður

Rafreiknir með íslenska

útgáfu af Word Perfect

Hugbúnaðarfyrirtækið Raf-

reiknir hefur hafið sölu á ís-

lenskrí útgáfu af rítvinnslufor-

ritinu Word Perfect, sem þykir

eitt öflugasta ritvinnsluforritið

sem til er á markaðinum og það

sem náð hefur hvað mestri út-

breiðslu í Bandaríkjunum, að

þvi er fram kemur f frétt frá

Rafreikni. Forritið er fuUþýtt á

íslensku, bæði skjámyndir, allar

skipanir tíl tölvunnar svo og

handbækur.

Ritvinnslu- og máltölvunarfyrir-

tækið Ritmál hf. var fengið til að

þýða forritið úr ensku og höfðu

þýðendurnir nána samvinnu um

þýðinguna bæði við starfsmenn

Rafreiknis og Satellite Software,

framleiðanda Word Perfect. í frétt

Rafreiknis kemur fram að mikil

áhersla hefur verið lögð á að þýða

þetta forrit á sem flest tungumál

og fæst það t.d. nú á öllum Norður-

landamálunum. í frétt Rafreiknis

segir, að það hljóti að vera sérstakt

fagnaðarefni að erlent fyrirtæki

hvetji til slíks, enda í samræmi við

ríkjandi stefnu hér, þar sem íslend-

ingar hafi jafnan lagt metnað sinn

í að nota móðurmálið á öllum svið-

um tækni og vísinda. Flestir eigi

auðveldára með að tileinka sér

kerfi, sem hafi verið þýdd á gott

daglegt mál, heldur en þau sem eru

á erlendum málum.

I frétt Raf reiknis eru raktir ýmsir

kostir þess að nota ritvinnslukerfið.

Bent er á að þeir sem vélriti mikið

þekki vandamálið sem upp komi við

leiðréttingar og breytingar. Iðulega

þurfi að vélrita sömu síðuna hvað

eftir annað, þótt aðeins sé breytt

örfáum orðum. Með því að nota

ritvinnslu á tölvu hverfi slík vanda-

mál því að þar sé hægt að kalla

textann fram á skjá, leiðrétta og

prenta eins oft og þarf. Þeir sem

eigi svokallaðar einkatölvur eða PC,

geti notað Word Perfect í stað rit-

vélar og eigi textinn að fara í prent-

smiðju, þurfi ekki að setja hann

aftur, heldur sé nóg að flytja hann

af tölvudiskinum í setningavélina.

Ennfremur er í frétt Rafreiknis

bent á, að í jafn fullkomnu rit-

vinnslukerfi og Word Perfeet er,

megi gera ýmislegt sem annars

þekkist aðeins í dýrum og fullkomn-

um tölvum. Með þessu forriti sé

unnt eins og í flestum öðrum slíkum

kerfum að skipta um stafastærðir,

setja spássíur, lfnubil, dálka, papp-

irslengd og annað er hæfi góðri

ritvinnslu. Til viðbótar megi síðan

nefna að með forritinu sé unnt að

setja í dálka líkt og í dagblöðum,

reikna, tölusetja kafla sjálfkrafa og

raða í íslenska stafrófsröð. Ef til

vill sé þó möguleikinn á vélrænni

villuleit í textanum mikilvægasti

kosturinn við ritvinnsluna, en hjá

Ritmáli hf. sé nú unnið að gerð

tölvutæks íslensks orðasafns er

muni fylgja forritinu. Það leiti að

stafavillum í textanum og leggi til

ritmyndir í stað þess sem rangritað

er auk þess að koma í stað stafsetn-

ingarorðabókar.

Fyrirtækið Rafreiknir hf. hefur

starfað síðan 1983 og er e.t.v.

þekktast hér á íslenska hugbúnað-

armarkaðinum fyrir launaforritið

Laun sem nú er notað í yfir 100

fyrirtækjum hér á landi, að því er

fram kemur í fréttinni.

Aðstandendlirnir— Þessir fjórmenningar stóðu að íslenskun

ritvinnsluforritsins Word Perfect — t.v. Pétur Friðriksson og Lúðvík

Friðriksson frá Rafreikni og Vilhjálmur Sigurjónsson og Eiríkur

Rögnvaldsson frá Ritmáli hf.

Island — Ameríka

Beinar siglingar milli Njarðvíkur og Norfolk

með M.v. RAINBOW HOPE". Flytjum stykkja-,

palla- og gámavöru, frystivöru og frystigáma.

umboftsmenn okkar eru

Cunnar Cuöjonsson sf

Hafnaratræti 5

P0 Box290

121 Rewavik

simi 29200 Telex 2014

Mendian Ship Agencv. inc

201 E DtvHallAve, SuiteSO!

Norfoik va 25510

USA

Simi 18041-625-5612

reiex 710-891-1256

Lestunardagar

Áætlun:

Njarðvík — Norfolk

29. maí

18. júní

19. maí

8.júní

28. júní

(jffe Rainbow

Navigationjnc.

E. TH. MATHIESEN H.F

BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIROI, SIMI 651000.

					
Fela smįmyndir
B 1
B 1
B 2
B 2
B 3
B 3
B 4
B 4
B 5
B 5
B 6
B 6
B 7
B 7
B 8
B 8
B 9
B 9
B 10
B 10
B 11
B 11
B 12
B 12