Morgunblaðið - 12.09.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.09.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986 4- Morgunblaðið/Einar Falur Svipmynd frá lóðinni við bifreiðaverkstæði lögreglunnar við Síðumúlann, sem nágrannamir eru heldur óhressir með frágang á og segja valda miklum óþægindum hjá nærliggjandi fyrirtækjum, m.a. vegna moldryks, er taki að þyrlast upp með haustinu. „Ofurseldir moldryki við Síðumúlann“ „SLÆMUR frágangur á lóðum lögreglunnar hér við Síðumúlann skapar óviðunandi ástand hjá öðrum fyrirtækjum við götuna," sagði Vilhelm Ingólfsson, hár- skeri á rakara- og hárgreiðslu- stofunni Aristokratinum Síðumúla 23, í samtali við Morg- unblaðið í vikunni. En hér um bil beint á móti Aristo- kratinum er að fínna bifreiðaverk- stæði lögreglunnar og stóra auða lóð, ómalbikaða, sem Vilhelm segir vera mörgum er starfa við Síðumúl- ann mikinn þymi í augum vegna ryks, sem þar þyrlast upp og berst um nágrennið. „Þama er ekkert nema möl og mold og nokkrir njóiar og um leið og fer að hausta verður vonlaust að hafa í gangi loftræstingu í nær- liggjandi húsum," sagði Vilhelm. „Húsin númer 19 til 33 við Síðumúl- ann em alveg ofurseld moldrykinu, þar er ekki hægt að opna glugga og hér á stofunni þurrkum við af minnst þrisvar á dag. Eilífur giuggaþvottur hefur lítið upp á sig því moldrykið sest jafnóðum aftur í þykkum lögum.“ Vilhelm sagði að oft væri búið að fara fram á úrbætur í þessu SKIPTARÁÐANDI í Reykjavík hefur synjað Naustinu um áfram- haldandi greiðslustöðvun. Þrír mánuðir em iiðnir síðan Naustið fékk heimild til geiðslu- máli, en sér þætti að það minnsta sem hægt væri að gera væri að rykbinda lóðina. Hann sagðist undr- andi á afskiptaleysi þess opinbera af þessu svæði, sérstaklega þar sem það stingi mjög í stúf við góðan frágang hjá öðrum opinberum fyrir- tækjum í nágrenninu, t.d. lóðum Pósts og síma og Rafveitunnar við Armúlann. stöðvunar til að koma lagi á rekstur sinn. Nú fóm forráðamenn staðar- ins fram á tveggja mánaða fram- lengingu greiðslustöðvunar, en var synjað sem áður sagði. Synjað um áframhald- andi greiðslustöðvun Iceland Seafood Corporation: Metsala í ágústmánuði 17% söluaukning fyrstu átta mánuði ársins METSALA varð hjá Iceland Sea- food Corporation, dótturfyrir- tæki Sambandsins í Bandaríkjun- um, í ágústmánuði síðastliðnum. Heildarsala í mánuðinum varð 15,2 milljónir dollara, eða tæp- lega 618 milljónir íslenskra króna. I verðmætum er þetta um 16% meira en í sama mánuði í fyrra. Að sögn Eysteins Helgasonar, forstjóra Iceland Seafood Corpo- ration, er heildarsala fyrirtækisins eftir fyrstu átta mánuði ársins 102,8 milljónir bandaríkjadala, eða tæplega 4,2 milljarðar íslenskra króna. Er það 17% aukning miðað við sama tímabil árið 1985.1 magni er hér um að ræða 73,2 milljónir punda, sem er um 7% aukning frá því í fyrra. Eysteinn Helgason sagði að aukningin hefði orðið svipuð í öllum helstu vörutegundum. „Þetta er vissulega skemmtilegur endir á glæsilegum ferli fyrirennara míns, Guðjóns B. Ólafssonar, en þetta var hans síðasti mánuður hjá fyrirtæk- inu,“ sagði Eysteinn ennfremur. Sjálf stæðisflokkurinn: Prófkjör í Reykjavík 18.október FUNDUR fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík sam- þykkti í gærkvöldi að efna til prófkjörs 18. október nk. um skipan framboðslista Sjálfstæðis- flokksins fyrir næstu alþingis- kosningar. Samkvæmt tillögunni sem sam- þykkt var á fundinum verður prófkjörið bundið við flokksbundna sjálfstæðismenn 16 ára og eldri. Ætlast er til að þátttakendur raði frambjóðendum á listann og mega þeir velja fæst átta og flest tólf. Sami háttur var hafður á í prófkjör- inu fyrir borgarstjórnarkosningam- ar, sem fram fóru fyrir rúmu ári. Ekki útlit fyrir Þorsteinn Pálsson: Hugað að bandarísku skattabyltingunni í fjármálaráðuneytinu RÁÐSTAFANIR hafa verið gerð- ar tíl þess í fjármálaráðuneytinu að athuga möguleika á þvi að breyta íslenskum skattalögum til samræmis við þau sjónarmið, sem ráða þeim miklu umskiptum á bandarískum skattalögum, sem nú standa fyrir dyrum. Þorsteinn Pálsson, Qármálaráð- herra, greindi frá þessu í ræðu á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík í gærkvöldi. í máli ráðherrans kom fram, að bandarísku skattabreytingamar, sem nefndar hafa verið skattbylt- ing, felast einkum í því að fækka undanþágum og ýmsum ieiðum ein- staklinga og fyrirtækja til að greiða lægri skatta, en lækka hins vegar skatthlutföllin verulega. Fjármálaráðherra sagði, að það væri iíklegt að aðrar vestrænar þjóðir yrðu að huga að samskonar breytingum og Bandarikjamenn væm að framkvæma. íslendingar hlytu einnig að gera það. Hér væri s vínakj ötsútsölu EKKI er útlit fyrir að svínabændur fari að dæmi sauðfjárbænda og kjúklingabænda og setji kjötið á útsölu. Halldór H. Kristinsson í Hraukbæ í Eyjafirði, formaður Svinaræktarfélags íslands, segir að birgðastaðan í svínakjötinu sé í lagi og góður sölutími í uppsiglingu. hins vegar um flókið og viðamikið mál að ræða. Halldór sagði að vissulega væri nokkur taugaspenna á kjötmark- aðnum vegna útsölu á öðru kjöti og hvalkjötsæðisins, en bjóst við að svínabændur stæðu þetta af sér. Hann sagði að það hefði einnig áhrif að verð á svínakjöti væri lágt, það hefði ekki náð að jafna sig eft- ir verðlækkunina sem varð í fyrra- haust. Sem dæmi um þetta nefndi Halldór að verð til framleiðenda af svínakjöti í besta flokki væri nú 181v króna hvert kfló, en hefði verið komið í 203 krónur í ágúst í fyrra. Enn vantaði því verulega upp á að verðið væri sambærilegt. Samband ungra jafnaðarmanna vill varnarliðið á brott í áföngrim: Ekki vísbending um að Alþýðu- flokkurinn breyti um stefnu Jón Baldvin Hannibalsson segir flokkinn hafna hlutleysi og styðja sameiginlegt öryggiskerfi lýðræðisríkjanna JÓN BALDVIN Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, segir að ályktun Sambands ungra jafnaðarmanna um síðustu helgi, þar sem hvatt er til þess að vamarliðið hverfi af landi brott í áföngum, sé ekki vísbending um að flokkurinn kunni að breyta um stefnu í vam- ar- og öryggismálum. Þór Whitehead skipaður prófess- or i sagnfræði DR. ÞÓR Whitehead hefur verið skipaður prófessor i sagnfræði við heimspekideild Háskóla ís- lands af Sverri Hermannssyni, menntamálaráðherra, frá og með 15. september. Þór fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1943. Hann varð stúdent úr Versl- unarskóla Islands 1967, með BA-próf í ensku og sagnfræði frá Háskóla íslands 1970, MA-próf í sagnfræði frá Georgiu-háskóla í Bandaríkjunum 1972 og D. Phil.- próf í sagnfræði frá Oxford-háskóla í Bretlandi 1978. Þór hefur undanfarin ár verið settur prófessor við háskólann. Þór Whitehead „Nei, alveg afdráttarlaust ekki,“ sagði Jón Baldvin, þegar blaðamað- ur Morgunblaðsins spurði hann um þetta atriði. „Það fer ekkert á milli mála,“ bætti hann við, „að það er massívur meirihluti innan Alþýðu- fiokksins fyrir þeirri grundvallaraf- stöðu að við höfnum hlutleysi, treystum því ekki að það verði virt °g byggjum okkar afstöðu í ut- anríkismálum á grunnhugmyndinni um sameiginlegt öryggiskerfi lýð- ræðisríkjanna og höfnum einhliða aðgerðum." Jón Baldvin kvaðst ánægður með stjómmálaályktun ungra jafnaðar- manna og ályktanir þings þeirra í heild, sem bæru vott um góðan skilning á helstu pólitísku vanda- málum sem við væri að glíma. Ályktun þingsins um utanríkismál kvað hann sýna vaxandi skilning á þeim vandamálum, sem við væri að fást í samskiptum íslendinga við aðrar þjóðir. Ungir jafnaðarmenn gerðu sér t.d. grein fyrir því, að afvopnun hlyti að fara fram í áföng- um og vera gagnkvæm. Hitt væri ljóst, að árum eða áratugum saman hefðu þing ungra jafnaðarmanna ályktað gegn her í landi, en í þetta sinn hefði slík ályktun aðeins verið samþykkt með mjög naumum meirihluta. Formaður Alþýðuflokksins sagði að upphaflega hefði verið lögð fram á þinginu tillaga um uppsögn vam- arsamningsins við Bandaríkin, þ.e. endurskoðun hans, sem hann væri hlynntur, þar sem samningurinn væri að mörgu leyti orðinn úreltur. í þessari tillögu hefði einnig verið hvatt til umræðna um sameiginlegt eftirlit vestrænna ríkja á Norður- Atlantshafi, en hún hefði ekki náð fram að ganga. Sú ályktun um ut- anríkis- og öryggismál sem samþykkt hefði verið væri ekki í samræmi við stefnu Alþýðuflokks- ins, en væri hins vegar miklu nær henni en nokkru sinni fyrr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.