Morgunblaðið - 14.09.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.09.1986, Blaðsíða 1
 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1986 BLAÐ SIGURÐUR NORDAL í dag, 14. september 1986, eru liðin hundrað ár frá fæðingu prófessors Sigurðar Nordals. Sigurður var þekktasti og áhrifamesti ritskýrandi íslenskra bókmennta á sinni tíð og lagði grundvöllinn að kennslu og rannsóknum í íslenskum fræðum við Háskóla íslands. Hann var afkastamikill rithöfundur og eftir hann liggur fjöldi rita um bókmenntir, sögu og menningu þjóðarinnar og auk þess hugleiðingar um ýmis efni. Fyrsta bókin sem hann gaf út eftir að hann kom heim f rá námi var reyndar skáldverk, Fornar ástir, árið 1919, sem braut að ýmsu leyti blað í íslenskum bókmenntum þess tíma. Morgunblaðið minnist í dag með ýmsum hætti þessa stórvirka rithöfundar og lærdómsmanns. Tveir vina hans skrifa greinar um hann, Andrés Björnsson aldarminningu og Þorsteinn Gylfason grein, þar sem hann leggur út af ávarpi Nordals um Háskóla Islands árið 1922. Fjórir vina hans segja frá kynnum sínum af Sigurði og sýna þær hliðar á honum sem okkur eru huldar sem einungis þekkjum hann af ritverkum hans. Og að lokum talar hann sjálfur til okkar í nokkrum brotum úr ritverkum sem ekki hafa komið fyrir almennings sjónir áður, en Almenna bókafélagið byrjar heildarútgáfu á verkum hans núíhaust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.