Morgunblaðið - 24.09.1986, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 24.09.1986, Blaðsíða 46
I 46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986 félk f fréttum CAFDL NIELSSCN THERITZ Carol Nielsson syngur á Ritz hótelinu út sept- embermánuði. Carol Nielsson syngnr á Ritz í London Það er orðið kunnara en frá þurfí að segja að Carol Nielsson gerir það gott í Lundúnum. Carol eða Janis Carol eins og hún hét hérlendis, hefur undanfarin ár sungið í London aðalhlutverkin í nær öllum helstu söngleikjum Andew Lloyd Webbers, sem malað hafa gull um heimsbyggðina síðan farið var að setja þá upp snemma á áttunda áratugnum. Carol hljóp skyndilega í skarðið fyrir aðalsöngkonuna í einum þessara söngleikja, en nú er svo komið að hún hefur sungið aðalhlutverkin í „Cats“, „Evitu" og „Song and Dance", svo eitthvað sé upp talið. Nú í septembermánuði bætti söngknoan síðan þeirri Qöður í hatt sinn að koma fram á veitingastað Ritz-hótelsins í London með kvöldskemmtun, sem byggir eingöngu á söng hennar og framkomu. Þar sem þeir á Ritz þykja afar vandir að virðingu sinni þegar val á skemmtikröftum er annars vegar mun ekki amalegt fyrir söngvara að vera beðnir að skemmta gestum í gylltum sölum glæsihótelsins. í fríi með „Soffíu frænku“ Enska krónprinsafjölskyldan skrapp nýverið í haustfrí til spænsku eyj- arinnar Mallorca. En haustfrí er hvíld sem konungborið fólk tekur sér eftir hið hefðbundna sumarfrí til þess að undirbúa sig fyrirjólafríið. Að vonum undi Vilhjálmur litli prins hag sínum hið besta á sólarströndu og ekki skemmdi fyrir að miklir kærleikar tókust með honum og Soffíu Spánardrottningu, sem einnig var stödd á eynni ásamt Qölskyldu sinni. Var litli prinsinn farinn að kalla drottninguna „frænku" áður en fríið var úti, en hér sjást þau einmitt á leiðinni út á flugvöll að afloknu velheppnuðu haustleyfí. í baksýn glittir í Díönu prinsessu af Wales, vel úthvílda. KELLY MCGILLIS Sparkað í gær — stjarna í dag Kelly McGillis er nafn sem gestir kvikmyndahúsa eiga eflaust eftir að hafa á takteinum næstu árin, a.m.k. ef svo heldur fram sem horfír. Hér á landi muna menn vænt- anlega eftir samleik hennar og Harrison Fords í myndinni „Vitn- ið“, sem Ástralíumaðurinn Peter Weir gerði og hvarvetna hefur notið mikilla vinsælda. Nú má líta þessa fríðu leikkonu augum í kvik- myndinni „Top Gun“, sem eitt kvikmyndahúsanna sýnir þessa dagana og þykiri stjama Kelly McGillis fara hækkandi með hverri mynd, þar sem hjá henni fari saman glæsilegt útlit og góð- ir leikhæfileikar. VVS' VáuV'03 . r\ó' »*SZ**1 tácr að; G'vft'sr «VVT', V'vPa’ ELDIST ELTON JOHN ILLA? Elton John geislaði ekki beinlínis af lífsgleði um daginn er hann tók sér ferð yfir Atlantshafíð, nánar tiltekið frá London til New York, ásamt konu sinni, Renötu. Þótti söngvarinn hinn rytjuleg- asti að sjá, þreytulegur, úfínn og órakaður, en kona hans mun hressi- legri. Svo var af söngvaranum sívinsæla dregið, að hann mæltist til þess að fá til afnota einhvers konar rafknúinn hægindastól, sem hann var síðan ferjaður í milli límósínu og flugvélar. Elton neitaði þó alfarið fyrir- spumum um það hvort hann gengi ekki heill til skógar, sagðist bara vera þreyttur. Hins vegar kemur ímyndin af honum í rafknúna stólnum ekki al- veg heim og saman við innihald nýjasta smellsins hans, „I’m Still Standing" eða eins og útleggja mætti nafn lagsins á góðri íslensku: „Ég hef ennþá fótaferð". ,ttVvU« brvvhv rVvw1 d'vtvvw vvvap egna lt6frvv«v MsSM w - ' ■■- i Sjálf telur þessi 29 ára gamla leikkona það hafa verið sitt mesta lán að vera rekin úr hlutverki í myndinni „Piparsveinapartí" fyrir ijórum árum, „sökum skorts á kyntöfmm". „Þetta með kyntöfranna má mín vegna alveg liggja á milli hluta, það erujskki þeir sem ég nota mér til framdráttar,“ segir Kelly McGillis. „En í dag er ég óskaplega fegin því að mér skyldi vera sparkað úr aðalhlutverkinu í þessarri mynd Þar vom leik- hæfíleikar manns nefnilega ekki látnir sitja í fyrirrúmi, og hefði ég leikið það hlutverk sem mér var ætlað að leika þar, sæti ég - að öllum likindum föst í svokölluð- um „djörfum" gamanmyndum og hefði aldrei fengið þau tækifæri til að spreyta sig í góðum mynd- um, sem ég hef nú fengið."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.