Morgunblaðið - 28.10.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.10.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAtíUR 28. -OKTÓBER 1986 Minning: SigríðurL. Ámunda- dóttir bókavörður Fædd 18. maí 1912 Dáin 14. október 1986 Bliknar flest, sem bjartast skín, blöð og krónur falla. Þetta’eru örlög þín og mín, þau eru jöfn við alla. Svo kvað Halla Lovísa Lofts- dóttir skáldkona eitt sinn við unga rós í glugga sínum. Vísa þessi kem- ur ósjálfrátt upp í hugann nú, þegar Sigríður dóttir hennar er kvödd að liðinni ævi. Þær mæðgur höfðu lengi haldið heimili saman og veitt hvor annarri styrk og gleði, meðan báðar lifðu, en nú hafa báðar fellt blöð og krónur og þolað þau örlög, sem allra bíða og enginn fær flúið. En eftir situr ilmur rósarinnar í minningunni og söknuður í hug- skoti ættingja og vina ásamt þakklæti fyrir trygga og langa vin- áttu. Sigríður Lilja Ámundadóttir fæddist á Sandlæk í Gnúpverja- hreppi 18. maí 1912, elsta bam foreldra sinna, Höllu Lovísu Lofts- dóttur frá Stóra-Kollabæ í Fljótshlíð og Ámunda Guðmundssonar frá Sandlæk. Halla Lovísa (1886— 1975) var göfug og stórgáfuð kona, söngelsk og bókelsk og skáld gott, og Ámundi (1886—1918) glæsi- menni mikið, hár og vasklegur, bjartur yfirlitum og drengur hinn besti, eftir því sem þeir lýsa honum, sem þekktu hann. Þau eignuðust sjö böm, þar af fimm, sem upp komust. Þau em: 1. Sigríður Lilja, sem hér er minnst; 2. Guðrún, f. 1913, gift Karli Jóh. Guðmundssyni leikara í Reykjavík; 3. Guðmundur, tvíburabróðir hennar, bóndi í Ásum í Gnúpverjahreppi, kvæntur Stef- aníu Ágústsdóttur frá Ásum; 4. Loftur, f. 1914, jámsmíðameistari í Kópavogi, kvæntur Ágústu Bjömsdóttur; 5. Hjálmar, f. 1916, d. 1943, var hjartasjúklingur alla ævi. Halla Lovísa bar sjöunda bamið undir belti, dreng, sem fæddist and- vana vorið 1919, þegar mikið reiðarslag dundi á Sandlækjar- heimilinu. Spænska veikin æddi yfír sveitina haustið 1918 og skildi eftir opin sár, og úr henni andaðist Ámundi bóndi 1. desember. Ekkjan stóð uppi með bamahópinn sinn og þrjú gamalmenni í heimili, en lét ekki bugast. Henni vildi það líka til happs, að Loftur bróðir hennar var nætursakir á Sandlæk til að kveðja systur sína og aldraðan föð- ur, þegar umskiptin urðu. Hann var á förum í annað hérað, en fór ekki lengra, heldur settist að og hét syst- ur sinni því að annast hana og heimilið, svo að því yrði ekki sundr- að. Við þetta heit stóð hann, efndi það svo að um munaði. Þau systkin unnu að því í sameiningu að koma bömunum á legg, og þeim tókst það með miklum sóma. Árið 1931 brá Halla Lovísa búi og fluttist til Reykjavíkur með Hjálmar son sinn, og hin bömin fóm svo flest á eftir henni nokkmm ámm síðar til vinnu eða náms. Þær mæðgur, Halla Lovísa og Sigríður, áttu lengst heima á Barónsstíg 27, en eftir lát móður sinnar fluttist Sigríður á Eiríksgötu 35 og átti þar síðan heima til æviloka. Sigríður vann lengi verslunar- störf, m.a. í ullarverksmiðjunni Framtíðinni, en síðar gerðist hún bókavörður í Borgarbókasafni Reykjavíkur. Þar var hún í réttu umhverfi, því að hún unni mjög góðum bókum og bókmenntum. Það var arfur frá bemskuheimili henn- ar, þar sem bækur vora mjög um hönd hafðar, lesnari og ræddar. Smekkur hennar á góðar bók- menntir, ekki síst ljóð, var mjög ræktaður og fágaður, og hún fylgd- ist af áhuga með hverri nýrri bók, sem þeir höfundar sendu frá sér, sem hún taldi athygli verða. Menningaráhugi hennar var ekki eingöngu bundinn við bækur. Hún sótti um langt árabil að staðaldri leiksýningar og tónleika, sem buð- ust í Reykjavík og nokkur fengur var að. Þetta gerði hún ekki af sýndarmennsku eða tildri, sem hefði verið harla ólíkt eðli hennar, heldur af innri þörf fyrir að njóta góðrar listar og hrærast í menningarlegu umhverfi. Þessi þörf var sönn og heil og í blóð borin rétt eins og næmleikinn og skarpskyggnin.-sem hún beitti við það, sem hún sá og heyrði. Listin varð henni sönn lífsnautn, eins og hennar verður best notið í borgarmenningu. Heim- ili hennar vitnaði um hið sama. Aðeins hið besta var nógu gott til að prýða það, úrvalsmyndir bestu málara á veggjum, öndvegisbók- menntir í hillum, — ekki til sýndar eða skrauts, heldur til lestrar og daglegs brúks. En þrátt fyrir allt var það ef til vill hin frjálsa íslenska náttúra, sem heillaði hana mest, laðaði hana til sín á fögmm sumardögum ár eftir ár, meðan heilsan leyfði. Ferðinar um landið, hémð og óbyggðir, vom orðnar margar og langar. Alltaf fann hún eitthvað nýtt til að dást að, hvert sem haldið var með tjald og mal í góðum félagsskap. Þó var það sveitin hennar, „gullhreppam- ir“ góðu, sem dró hana oft til sín, þegar sumraði, og þá var ekki talið eftir sér að grípa í hrífu á þurrdegi ellegar verða að liði á einhvem annan hátt. Ekkert jafnaðist í huga hennar á við átthagana, æskustöðv- amar. Hvergi var sólskinið bjartara, regnið mýkra og grasið grænna en þar. Ég var svo heppinn að kynnast ungur hinu reykvíska Sandlækjar- heimili, Höllu Lovísu og bömum hennar, þó að við Guðmundur hefð- um mest saman að sælda. Ég varð þar heimagangur og heimilisvinur, og sú vinátta hefir aldréi rofnað. Leitun er líka að öðmm eins tryggðatröllum og þvílíku dreng- skaparfólki. Við hjónin áttum síðar jafnan víst athvarf hjá þeim mæðg- um í Reykjavíkurferðum. Þar vom viðtökur alltaf einlægar og hlýleg- ar, og þangað var alltaf eitthvað gott að sækja. Það var líka fagurt að sjá, hvílíka umhyggju þær mæðgur sýndu hvor annarri og hverrar ástúðar Halla Lovísa naut háöldmð hjá börnum sínum og tengdabörnum. Þar reyndi þó vissu- lega mest á Sigríði í daglegri umönnun. Sigríður Lilja var hávaxin kona, grannvaxin og beinvaxin og bar sig vel. Varla er ofsagt, að yfir henni hafi verið drottningarleg reisn. Svipurinn var hreinn, bjartur og glaðlegur, augnaráðið greindarlegt og festulegt. Jafnan var stutt í hlýtt bros og glaðan hlátur, því að lund- in var létt og þjál. Þó átti Sigríður ríka skapfestu og myndaði sér eigin skoðanir um menn og málefni af skarpleik og sanngimi. Lengi hafði hún þjáðst af sámm höfuðkvalaköstum, sem hún bar með aðdáunarverðri þolinmæði, en háðu henni mjög. Síðar bættist við þrálát bakveiki, svo að hún tók oft ekki á heilli sér. Þrátt fyrir allar þessar þrautir átti hún lengst af bros til að miðla öðmm. En svo kom enn alvarlegra sjúkdómsáfall, og síðustu vikumar vom aðeins biðtími eftir lausninni, sem nú er fengin. í dag verður hún sungin úr garði, og henni fylgir þakklæti og góður hugur fram á veginn ókunna. Við Ellen kveðjum Sigríði Lilju Ámundadóttur vinkonu okkar með lokaerindinu úr sálmi eftir Höllu Lovísu Loftsdóttur, móður hennar: Þú hlustar í blænum á bliknandi rós og bænarmáls andvarpið hinsta. Við hnígandi sól, þegar húmar við ós, í hönd þína fel ég mitt slokknandi ljós, þú manst eftir baminu minnsta. Sverrir Pálsson Enn er höggvið skarð í hópinn. Sigríður Lilja Amundadóttir bóka- vörður lést í Landspítalanum 14. október si. eftir erfið veikindi. ^45 Hún fæddist 18. maí 1912 á Sandlæk í Gnúpverjahreppi. For- eldrar hennar vom hjónin Ámundi Guðmundsson bóndi þar og kona hans, Halla Lovísa Loftsdóttir. Að- eins 6 ára að aldri missir Sigríður föður sinn og stóð þá ekkjan unga uppi með bömin sín fjögur. Það leiddi af sjálfu sér að Sigríð- ur lærði snemma að taka tii hendinni og gekk að öllu því er til féll, bæði utan húss og innan. Upp úr 1930 flyst hún til Reykjavíkur, en þangað var móðir hennar farin á undan henni. Var einstök hlýja milli þeirra mæðgna og annaðist Sigríður móður sína af stakri kost- gæfni uns Halla lést í hárri elli. Var fráfall hennar Sigríði mikill missir. Sigríður vann lengst af hjá ullar- verksmiðjunni Framtíðinni, en í ársbyijun 1963 hóf hún störf við Borgarbókasafn Reykjavíkur. Vann hún þar óslitið þar til hún lét af störfum vorið 1983, þá illa farin að heilsu. Sigríður var hreinskiptin og drenglynd með reisn í fasi. Mikill vinur vina sinna. Hún var einstak- lega bókfróð, sama hvort um var að ræa bundið mál eða óbundið. Til dæmis um það má nefna, að lengi eftir að Sigríður hætti störfum var það viðkvæðið í safninu ef allt um þraut að fínna kvæði eða sögu: „Reynum að hringja í Sigríði." Það var sjaldan að minni hennar brást í þeim efnum. Ósérhlífin og sam- viskusöm var hún í öllu er hún tók sér fyrir hendur, og naut safnið þess. Hún var ekki aðeins bókelsk. Hún elskaði listina í sem víðastri merk- ingu þess orðs. Hvort sem um var að ræða málaralist, leiklist eða tón- list. Allt þetta veitti henni hamingju og auðgaði líf hennar. Við sem eftir lifum af hennar gömlu. starfsfélögum, sendum ' enni innilegar þakkir fyrir samfylgdina. Blessuð sé minning hennar. Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, í gegnum bárur, brim og voðasker. Nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fögru dyr og engia þá, sem bam ég þekkti fyr. (Þýð. Matth. Jochumsson) Starfsfélagar i Borgarbókasafni Reinhardt Reinhardts son — Minningarorð Fæddur 14. ágúst 1909 Dáinn 16. október 1986 Með nokkmm fátæklegum orð- um langar okkur að kveðja elsku afa (langafa) okkar. Stundin var komin og hann kallaður frá okkur, það er sárt að horfa á eftir svo yndislegum manni sem allir dáðu og virtu sem til þekktu. En við huggum okkur við að nú er hann í góðum höndum og líður vel, laus við allar þjáningar og sársauka sem hafa hijáð hann síðastliðin tvö ár. Alltaf þótti okkur gott að koma til afa og ömmu í Æsufelli því alltaf var tekið vel á móti okkur og gam- an var að hlusta á afa því hann var lífsreyndur og fróður maður og sagði okkur frá mörgu skemmti- legu, við eigum eftir að sakna þess að geta ekki setið og rabbað við afa um heima og geima. Okkur langar að þakka afa fyrir allar þær yndislegu samvemstundir sem við höfum átt með honum í gegnum árin. Blessuð sé minning hans. Elsku amma, við vottum þér inni- iega samúð okkar og biðjum guð að varðveita þig og styrkja í sorg þinni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (Vald. Briem) Guðný, Gisli og dætur. Tvennt er það sem oft fer saman og hygg ég að það sannist vel á okkur Islendingum. En það er ein- þykkni og rík hvöt til sjálfstæðis. Ef þetta er rétt, þá er það í senn kostur okkar og galii. Annars vegar leiðir þetta til þess að við viljum standa sem mest á eigin fótum og emm reiðubúnir að fóma allmiklu til þess. Hins vegar leiðir þetta oft til sundurljmdis. Þetta kann að skapa sterka einstaklinga, en það getur einnig haft í for með sér hættuleg sjúkdómseinkenni þjóðar okkar, því við emm deilugjamir eins og forfeður okkar. Þó vij ég nefna hér éfni, sem jafnvel íslendingar geta ekki deilt um, en það er að eitt sinn skal hver deyja. Þegar þess er gætt að þessi örlög bíða okkar allra, þá er það furðu- legt hve sjaldan er á þetta minnst. Það er varla gert nema við jarðar- farir eða í lofgreinum um látna. Hafa menn þá engan áhuga á þess- um vissu forlögum sínum? Vafa- laust. En það þykir víst ekki smekklegt að minnast of oft á það. Hvers vegna? Ætli hin ömurlega mynd sem vísindin hafa dregið upp af dauðanum eigi ekki einhvem þátt í því? Hvemig er þá þessi mynd? Hvað er læknum og hjúkr- unarkonum kennt um dauðann? Þetta: Þegar hjartað hættir að halda blóðrásinni gangandi, þá fær heilinn ekki lengur neina næringu og skemmist mjög hratt. Það tekur ekki lengn tima en stundarfjórðung eða svo. Þegar hér er komið, segja textar læknavísindanna, er per- sónuleiki sjúklingsins ekki lengur fyrir hendi. Hann hefur verið eyði- lagður fyrir fullt og allt. Einstakl- ingurinn hættir að vera til. Öldum saman hafa læknaskólar kennt læknum og hjúkranarkonum þessa óhugnanlegu og fagnaðar- snauðu kenningu. Og hvaða fólk er þetta? Það er fólkið sem ætlast er til að hjálpi okkur á banabeði — hjálpi okkur að sætta okkur við dauðann. Þess er tæplega að vænta að þeir sem þessu trúa telji þetta sérstaklega örvandi umtalsefni. En nú vaknar sú spuming: Hefur þessi kenning verið svo vel staðfest að þar komist enginn efi að? Er þetta heilagur sannleikur, sem við getum treyst, hvemig sem á stend- ur? Eða varðar okkur kannski ekkert um þetta? Heimskunnur maður komst svo að orði um það: „Ekkert val í lífinu kemst undan áhrifum þess hveijum augum per- sónuleikinn iítur á örlög sín og dauða. Þegar allt kemur til alls er það skilningur okkar á dauðanum, sem ákveður svörin við öllum þeim spumingum, sem lífið leggur fyrir okkur. Af þessu leiðir nauðsyn þess að búa sig undir hann.“ Og hver sagði þetta? Það var Dag Hammarskjöld, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna. Reinhardt Reinhardtsson fæddist þann 14. ágúst 1909 á Norðfirði. Hann fór ungur í fóstur til Steins Jónssonar, kennara og bónda í Haga í Mjóafirði, sem reyndist hon- um hinn ástríkasti faðir. Hjá fóstra sínum mun hann hafa orðið fyrir góðum áhrifum og þá ekki síst að snemma vaknaði hjá honum áhugi á ljóðlist og fögram listum yfirleitt. Eins og algengt var, þegar Rein- hardt var ungur, vandist hann snemma hvers konar bústörfum og síðar sjómennsku og fiskvinnu, eða svo vitnað sé í hans eigin orð: „Vinur, ég hef verk i hönd mér víða tekið; mokað flór og rollur rekið, róið kænu og færi skekið.“ Þegar tók að togna úr stráknum þama austur á fyörðum höfðu þeir það sér til gamans meðal annars og kveðast á. Þannig varð kveð- skapurinn í senn þáttur í gamni þeirra og uppeldi. Þetta varð því góður jarðvegur fyrir ljóðelska menn og mun Reinhardt hafa notið þess. En það vom fleiri taugar til lista í þessum unga manni. Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur leiddi áhugi hans á tóniistinni hann svo langt, að hann komst jafnvel í kennslu hjá sjálfum Þórami Guðmundssyni, sem þá var einna lærðastur íslenskra tónlistarmanna. En ekki stóð það samt nógu lengi, því brauðstritið í þá daga heimtaði langan vinnudag og mikla sparsemi. Til þess að bæta sér þetta að nokkm leyti gerðist Reinhardt einn af stofnendum söngfélagsins Hörpu (1939) og var hann formaður kórs- ins í 14 ár. En þessi kór flutti til dæmis Árstíðimar eftir Haydn árið 1941 með aðstoð Hljómsveitar Reykjavíkur undir stjóm Róberts Abrahams. Árið 1980 gaf Reinhardt út ljóða- bók, sem hann nefndi Ljóð án lags, sem ber með sér að Reinhardt hafði ríka tilfinningu fyrir fegurð náttúr- unnar og bar í bijósti fölskvalausa ást til æskustöðva sinna fyrir aust- an. En ekki hindraði það hann í því að sýna, að hann kunni einnig að meta fegurð Reykjavíkur og um- hverfis hennar, þar sem hann starfaði meginhluta ævi sinnar. Reinhardt var því alla tíð mjög félagslyndur maður og heill vinur þeirra sem bágar stóðu í lífsbarátt- unni. Þátttaka hans í hvers konar félagslífi höfuðstaðarins var því á ýmsum ólíkum sviðum. Allir sem með Reinhardt hafa starf- að em á einu máli um það, að hann hafi verið maður drenglyndur og óeigingjam. Þessir _ mannkostir prýða líka ljóð hans. í náttúmnni er hann aðdáandi fegurðar og já- kvæð afstaða hans til mannlífsins endurómar þar hvarvetna. Yfir þeim hvílir því birta og heiðríkja hugar, sem opinn er fyrir fegurð og góðleik. Hans hefur því beðið góð heimkoma til hinna nýju heim- kynna. Ævar R. Kvaran
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.