Morgunblaðið - 08.11.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.11.1986, Blaðsíða 4
MORGUNBLABHV LAUCAÆtDAGUR & iNÓVEMBER 1986?1 4n Góð sala á gámafiski GOTT verð fékkst fyrir gáma- fisk í Englandi nú í vikunni, en samtals seldust 427.3 tonn fyrir 75,42 krónur að meðalverði kíló- ið, sem er mjög gott verð. Þar af voru 159 tonn þorskur og fen- gust fyrir hann 80,52 krónur að meðalverði. Tvö skip seldu í Englandi á fímmtudag. Erlingur SF seldi 42,8 tonn í Hull fyrir samtals tæpar 2,8 milljónir króna eða 65,02 krónur að meðalverði. Otto Wathne NS seldi 129,3 tonn í Grimsby fyrir rúmar 8,5 milljónir króna að meðal- verði 66,18 krónur. Þá seldi Hólmatindur í Bremenhaven á fímmtudag og föstudag 167,7 tonn fyrir tæpar 9 milljónir króna. Aflinn var að mestu leyti karfí og fengust fyrir hann 53,56 krónur að meðal- verði, sem er mjög gott verð. INNLENT VEÐUR Morgunblaðið/Ól. K. M. Sr. Jakob Roland les hinstu kveðju yfir Dr. Hinrik Frehen Reykjavíkurbiskup. Á bak við Sr. Jakob stendur Sr. Augustin Georg, skólastjóri Landakotsskóla, sem er yfirmaður kaþólsku kirkjunnar þar til nýr biskup tekur við embætti. Við hlið Sr. Jakobs stendur Crees Klebel, og Caroline Frehen, systur hins látna. Biskup kaþólskra jarðsunginn Keflavík: Gæzluvarðhald framlengt Gæsluvarðhald yfir manninum sem handtekinn var af fikniefna- lögreglunni í Keflavík með 100 grömm af amfetamíni við elli- heimili á Suðurnesjum 28. október sl. hefur nú verið fram- lengt um viku. Einn maður hefur verið hand- tekinn og yfírheyrður í tengslum við málið og hafður í haldi í sólar- hring. Óskar Þórmundsson fulltrúi fíkniefnalögreglunnar sagðist búast við að fleiri yrðu handteknir og yfirheyrðir á næstunni, en vildi ekki upplýsa frekar gang málsins. - BB DR. Hinrik Frehen, biskup ka- þólsku kirkjunnar á íslandi, var jarðsunginn í gær í grafreit Landakotskirkju. Viðstaddir at- höfnina voru m.a. sextán prestar, Hr. Henri Lemaitre fulltrúi páfa- ÍDAGkl. 12.00: Heímild: Veóurstofs islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR I DAG: YFIRLIT á hádegi í gær: Skammt vestur af Reykjanesi er 963 milli- bara djúp lægð sem mun hreyfast austur. Við Langanes er önnur lægð, vaxandi 968 millibara djúp, sem hreyfast mun norðaustur. SPÁ: Norðaustanátt ríkjandi um allt land, víða 5 til 7 vindstig. Snjókoma eða éljagangur á norðanverðu landinu, fraá Vestfjörðum til Austfjarða, en þurrt og v(ða léttskýjað fyrir sunnan. Hiti á bilinu -3 til 2 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: SUNNUDAGUR og MÁNUDAGUR: Hvöss norðaustanátt með ólja- gangi um allt noröanvert landið, en þurrt syðra. Vægt frost víðast hvar. TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar •(^ Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. {jL Léttskýjað / / / / / / / Rigning Hálfskýjað / / / * / # Sl^iað / * / * Slydda / * / ^ Alskýjað * * * * * * * Snjókoma * * * -j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius XJ Skurir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður ■f í m w * V' -V VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri -2 léttskýjað Reykjavík 2 slydduél Bergen 7 rigning Helsinki 1 skýjað Jan Mayen 1 alskýjað Kaupmannah. 8 skýjað Narssarssuaq -14 iéttskýjað Nuuk -B skýjað Osló 3 skýjað Stokkhólmur 3 léttskýjað Þórshöfn vantar Algarve 20 skýjað Amsterdam 8 þokumóða Aþena 16 akýjað Barcelona vantar Berlín 9 skýjað Chicago 9 þokumóða Gtasgow 13 rígning Feneyjar 12 þokumóða Frankfurt 3 þokumóða Hamborg 8 skýjað LasPalmas 24 rykmistur London 14 súld LosAngeles 12 léttskýjað Lúxemborg 5 þokumóða Madríd vantar Malaga vantar Mallorca vantar Miaml vantar Montreal 2 þokumóða Nice 18 léttskýjað NewYork 8 alskýjað Parfs 11 skýjað Róm 17 iéttskýjað Vín 9 háffskýjað Washington 8 þokumóða stóls á Norðurlöndum, Hubertus Brandenburg biskup kaþólsku kirkjunar í Svíþjóð, Hr. Van Eck yfirmaður Montefort reglunnar sem Frehen tilheyrði, biskup íslensku þjóðkirkjunnar, sr. Pét- ur Sigurgeirsson og eiginkona hans. Hingað til lands komu til að fylgja Hr. Frehen til grafar tvær systur hans, Caroline Frehen og Crees Klebel, og fjöldi vina hans frá Frakklandi, Austurriki og Hol- landi. Af Keflavíkurflugvelli komu kaþólskir prestar. Senda ber jóla- póst í tæka tíð PÓSTUR og Sími vekur athygli á því að þeir sem hyggjast senda jólaböggla með skipi til Banda- ríkjanna verða að póstleggja þá í síðasta lagi 12. nóvember nk. Skip fer til Bandaríkjanna 14. nóvember og þurfa bögglamir að ná með því. Ekki er víst að böggla- póstur sem fer til Bandaríkjanna eftir 5. desember berist til viðtak- enda fyrir hátíðamar. Jafnframt er öllum bent á að vera snemma á ferðinni með jóla- póstinn. Kaffibaunamál: Endurskoðandi SÍS vissi ekki um tvö- falt reikningskerfi ENDURSKOÐANDI SÍS, Geir Geirsson, bar í gær vitni fyrir Sakadómi Reykjavíkur í „kaffi- baunamálinu." Valur Arnþórsson gat ekki mætt eins og fyrirhugað var þar sem hann er erlendis. Geir var fyrst inntur eftir því hvenær hann hefði fyrst vitað um svokallaðar avisos-greiðslur, eða bónusgreiðslur, sem SÍS fékk greiddar frá seljendum kaffís í Brasilíu. Runnu greiðslumar til SÍS en ekki Kaffibrennslu Akureyrar, sem keypti kaffíð. Geir sagði það hafa verið fyrri hluta árs 1981 er hann fór yfír bókhaldsgögn við end- urskoðun reikninga SIS fyrir árið 1980. Hann sagðist hafa vitað að SÍS hefði tekjur af kaffíinnflutn- ingnum, en það hafí vakið athygli sína hvað tekjumar af þessum við- skiptum jukust árið 1980. Hann sagðist hafa snúið sér til Amórs Valgeirssonar, deildarstjóra fóður- vörudeildar, Sigurðar Gils Björg- vinssonar, aðstoðarframkvæmda- stjóra innflutningsdeildar og Hjalta Pálssonar, framkvæmdastjóra deildarinnar til að leita skýringa. Amór hefði vísað á hina tvo þar sem hann var þá nýtekinn við starfí sínu og Hjalti og Sigurður Gils hafí útskýrt fyrir sér hvemig avisos virkaði. Geir kvaðst á sama tfma hafa komist að raun um tilvist verð- fallsbóta í kaffíviðskiptunum. Tvöfalt kerfí vörureikninga í við- skiptum þessum hefur ekki síður en avisos verið tilefni margra spum- inga í Sakadómi. Erlendur Einars- son, fyrrum forstjóri SÍS og Hjalti Pálsson hafa borið að þeir hafí ekki vitað um þetta kerfí fyrr en farið var að rannsaka skattframtöl SÍS fyrir gjaldárin 1980 og 1981. Geir kvaðst ekki hafa vitað um þetta fyrr en í ársbyrjun 1984 þegar hann hafí heimsótt skrifstofu SIS í Lon- don. Hann kvaðst engin svör hafa fengið hjá forstöðumanni skrifstof- unnar, Sigurði Áma Sigurðssyni, um það hvemig kerfíð væri til kom- ið, hver bæri ábyrgð á því, eða hver tilgangurinn með því væri. Sér hefði dottið í hug að tilgangurinn væri sá að halda tekjunum af kaffí- innflutningnum hjá SÍS, en hefði heyrt þá tilgátu að kerfíð væri frá Brasilíumönnum komið. Um ástæður þess að Geir hafði ekki fyrr rekist á tvöföldu vöru- reikningana við endurskoðun hjá skrifstofu SÍS í London sagðist hann hafa frétt að fyrrum forstöðu- maður skrifstofunnar, Gísli Theód- órsson, hefði haldið þessum gögnum aðskildum frá þeim bók- haldsgögnum sem verið var að endurskoða. Sagði Geir þetta hafa verið um vorið 1981, þegar hann kannaði sérstaklega kaffíviðskiptin, en endurskoðun þessa hafi hann framkvæmt vegna forstöðumanns- skiptanna, þ.e. þegar Sigurður Ámi tók við af Gísla. Hann sagði að bókhaldsgögn og bókhaldsfærslur hafí sýnt það hvemig tekjumar voru til komnar og hvemig þeim var ráðstafað og það breytt litlu þótt nettóreikningur væri ekki til staðar. Sigurður Gils Björgvinsson var þessu næst kallaður aftur fyrir dóminn þar sem ekki tókst að ljúka yfirheyrslum yfir honum þann 18. september sl. Fátt nýtt kom fram í yfírheyrslum yfír honum enda stóðu þær stutt. Á mánudag er reiknað með að Valur Amþórsson, stjómarformað- ur SÍS og Kaffibrennslunnar beri aftur vitni og einnig þeir Geir Magnússon, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs SÍS, Snorri Egilsson, eftirmaður Sigurð- ar Gils og fleiri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.