Morgunblaðið - 13.11.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.11.1986, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986 GAGNRÝNIÁ ALÞINGI í HAFSKIPSSKÝRSLUNNI Steingrímur Hermannsson: Mikiðtilí gagnrýninni i f S5 Steingrímur Hermannsson Jón Baldvin Hermannsson Jón Baldvin Hanniblasson: Gagnrýnin kemur mér ekki á óvart „ÉG held að það sé mikið til i þeirri gagnrýni sem kemur fram í skýrslunni. Vitanlega á Alþingi ekki að kjósa menn í bankaráð, ef um getur orðið að ræða alvar- lega hagsmunaárekstra," sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, aðspurður um álit á gagnrýni á Alþingi, sem kemur fram í skýrslunni um við- skipti Útvegsbanka og Hafskips. Steingrímur sagði að almenna- reglan ætti að vera sú, að banka- ráðsmenn væru ekki í viðskiptum. Hann kvaðst hins vegar ekki sam- mála þeirri niðurstöðu nefndarinn- ar, að bankastjórar væru fyrst og fremst fulltrúar þeirra pólitísku flokka, sem stuðlað hefðu að ráðn- ingu þeirra. Kvaðst hann hins vegar VEÐUR ekki sjá neitt rangt við það að hið pólitíska vald veldi bankaráðsmenn í ríkisbankana. „Ég hef alls ekki kynnst því að bankastjórar ríkisbankanna, væru pólitískir hagsmunagæslumenn sinna flokka," sagði Steingrímur, „ég hef ekki kynnst öðru en banka- stjóramir væru samviskusamir í sínum störfum." Svavar Gestsson: Svavar Gestsson Krístín Halldórsdóttir „GAGNRÝNI sú sem fram kemur í þessarí skýrslu á störf Alþingis og ábyrgð, kemur mér ekki á óvart,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðu- flokksins, um gangrýnina á Alþingi í skýrslunni um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips. Vísaði Jón Baldvin til upphafs umræðunnar um Hafskipsmálið á Alþingi, þar sem fyrstu spurn- ingar hefðu beinst að þessum Málið ekki rétt sett upp „AUÐVITAÐ ber Alþingi ábyrgð á Útvegsbankanum, á sama hátt og öðrum ríkisstofnunum, eins og t.d. Landsbankanum og Búnaðar- bankanum. Við höfum hér þing- ræðisstjórn, sem hefur framkvæmdavaldið af hálfu Al- þingis og ber þar af Ieiðandi fyrír / DAG kl. 12.00: Heimitd: Veðurstofa (slands (Byggt á veðurspá kt 16.15 í gaer) I/EÐURHORFUR I DAG: YFIRLIT á hádegi í gær: Um 500 km suðvestur af Vestmannaeyjum er 975 millibara lægð á hreyfingu vestur, og önnur lægð, 982 milli- bara djúp, skammt vestur af írlandi hreyfist noröur og síðan norðvestur. SPÁ: Austan- og norðaustanátt ríkjandi á landinu, víðast stinnings- kaldi eða allhvasst (6-7 vindstig). Rigning eða slydda við austur- og suðausturströndina, en él á annesjum fyrir norðan. Annars stað- ar skýjað en úrkomulaust að mestu. Hiti um eða rótt yfir frostmarki sunnanlands en vægt frost fyrir norðan. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR: Austan- og suðaustanátt ríkjandi á landinu, með skúrum um austanvert landið og á annesjum norðanlands. Þurrt á suður- og vesturlandi. LAUGARDAGUR: Suðaustanátt ríkjandi og rigning eða slydda um mest allt land. Hiti verður um og yfir frostmarki báða dagana. TAKN: Heiðskírt a Léttskýjað A Hálfskýjað A Sk^3ð Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / r r r r r r Rigning r r r * / * r * r * Slydda r * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 H'itastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld (X) Mistur —Skafrenningur Þrumuveður "\i P r 7 -V VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri -S léttskýjað Reykjavík 3 skýjað Bergen 4 skýjað Helsinki 8 rigning Jan Mayen -7 léttskýjað Kaupmannah. 9 léttskýjað Narssarssuaq 3 skýjað Nuuk -4 alskýjað Osló 7 lóttSkýjdð Stokkhólmur 6 rigning Þórshöfn 4 alskýjað Algarve 18 léttskýjað Amsterdam 11 léttskýjað Aþena vantar Barcelona 19 skýjað Berlín 13 léttskýjað Glasgow 11 skýjað Feneyjar 7 þoka Frankfurt 12 skýjað Hamborg 10 léttslcýjaó Las Palmas 21 skýjað London 12 skýjað Lúxemborg 11 léttskýjað Madríd 16 skýjað Malaga 16 súld Mallorca 21 skýjað Miami vantar Montreal -1 alskýjað Nlce 19 hélfskýjað NewYork 4 skýjað París 12 skýjað Róm 18 þokumóða Vín a 9 þokumóða Washington vantar Winnipeg -22 snjókoma hönd Alþingis ábyrgð á þessari ríkisstofnun eins og öðrum ríkis- stofnunum. Þess vegna er í raun og veru ekki hægt að setja málið upp, eins og þarna er gert, gagn- vart Alþingi," sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubanda- lagsins, er blaðamaður Morgun- blaðsins spurði hann hvað hann vildi segja um þann áfellisdóm á Alþingi og störf þess, sem kemur fram í nefndarskýrslunni um við- skipti Útvegsbankans og Haf- skips. Svavar var spurður hvað hann vildi segja um þá gagnrýni á banka- ráð Útvegsbankans, sem kemur fram í skýrslunni: „Spumingin er hér um hvaða bankastjóra er hér að ræða. Það var skipt um banka- stjóra að verulegu leyti í millitíðinni og spumingin er bara sú, hvort það hafí átt að þengja nýráðna banka- stjóra í Útvegsbankanum fyrir mistök sem fyrri bankastjórar báru ábyrgð á. Þetta var auðvitað matsat- riði, sem bankaráðið hlýtur að hafa staðið frammi fyrir.“ Svavar sagðist telja að einn aðili, umfram alla aðra hefði haft mögu- leika á að grípa inn í, en það væri Seðlabankinn, sem hefði fylgst með rekstrinum frá degi til dags og vitað hvað var að gerast. Svavar var spurður hvort hann með þessu svari sínu væri að fírra Alþingi ábyrgð með öllu í þessu máli: „Alþingi ber ábyrgð á löggjöf- inni, fjárveitingum og rekstri ríkis- stofnana, vegna þess að það ber ábyrgð á ráðherrunum. Mér dettur ekki í hug að sýkna Alþingi af þessu máli, en menn verða að gá að því að Alþingi hefur ákveðið að fela til- tekinni stofnun í þjóðfélaginu eftirlit með málum af þessu tagi, sem er bankaeftirlit Seðlabankans og það gat hvenær sem er komið til þings- ins eða komið til ríkisstjómarinnar og sagt að þetta gengi ekki lengur," sagði Svavar. þáttum: Ábyrgð bankaráðs, bankastjórnar, bankaeftirlits, Seðlabanka og ráðherra. „Að sjálfsögðu höfum við gert okkur ljósa hættuna á margvísleg- um hagsmunaárekstrum í þessum efnum, og við höfum fyrir okkar leyti, einir þingflokka, reynt að bregðast við því eftir föngum, þótt í óbreyttu kerfí sé,“ sagði Jón Bald- vin, „með því að hafa ekki, í á annan áratug, kosið þingmenn í bankaráð. Við höfum leitast við að velja menn þar á faglegum grundvelli. Ég við- urkenni hins vegar fúslega að því fer fjarri því að þar sé nóg að gert.“ Jón Baldvin vísaði til skýrslunnar og sagði að þar kæmi fram að þing- flokkur Alþýðuflokksins hefði verið eini flokkurinn, sem á fulltrúa á annað borð í bankaráðum, sem brugðist hefði við á þann veg, að endurkjósa ekki þann fulltrúa sem setið hafði í bankaráði Útvegs- bankans, fyrir hönd flokksins. „Við kusum annan og þá reyndan banka- mann, í stað þess sem setið hafði í ráðinu," sagði Jón Baldvin. „Það er bent á það í þessari skýrslu að tengsl bankaráða og Alþingis eru hæpin," sagði Jón Baldvin, „því lög kveða á um banka- leynd, þannig að þingflokkar geta þar af leiðandi ekki nýtt sér aðild fulltrúa sinna til upplýsingagjafar. Ef svipta á bankaráð umboði, kost- ar þar sérstaka löggjöf. Við höfum flutt slíka tillögu, en hún hlaut eng- an stuðning hjá öðrum flokkum. Menn tala um gagnrýni á ábyrgð Alþingis. Gagnrýnin hlýtur hverju sinni að beinast að þeim sem fara með meirihlutavald á Alþingi." Jón Baldvin sagði að nú þyrfti að endurskoða ríkjandi ríkisbanka- kerfi, með það í huga að gera það fjárhagslega ábyrgt. Hann sagði að ríkið ætti ekki að reka viðskipta- starfsemi eins og banka. Hans niðurstöður væru því þær, að það kerfí, þar sem bankaráð og pólitískt skipaðir bankastjórar bæru að lok- um enga ábyrgð gerða sinna væri kolvitlaust og ónothæft stjómkerfi í íjármálaumsýslu. „Þessu ber að breyta," sagði Jón Baldvin, „trúlega er ekki hægt að gera það nema í áföngum og mín niðurstaða er sú að ríkið eigi að hafa einn öflugan ríkisbanka, en að öðru leyti að losa sig út úr bankarekstri." 'O INNLENT Kristín Halldórsdóttir: Ekkert gagnrýnisatriði kemur mér á óvart KRISTÍN Halldórsdóttir þing- maður Kvennalista segir að skýrslan um viðskipti Utvegs- banka og Hafskips sé ekki skrifuð á neinni tæpitungu, og það líki sér vel. „Ég get ekki sagt, að neitt gagnrýnisatríð komi mér á óvart,“ sagði Krístín í samtali við Morgunblaðið. Kristín tók fram að hún hefði ekki haft tóm til þess að kynna sér nákvæmtega skýrsluna, „en mér sýnist sem hún sé aðeins staðfesting á því, sem haldið var fram í umræð- um um þetta mál,“ sagði Kristín, „og ég er mjög sammála helstu gagnrýnisatriðum skýrslunnar um vanrækslu bankastjóra, hirðuleysi bankaráðsmanna og ósamkvæmi Alþingis, sem gagnrýndi af hörku, og heimtaði rannsókn málsins ofan í kjölinn, en endurkaus svo fjóra af fímm bankaráðsmönnum Útvegs- bankans, svo að segja í sömu andrá.“ Kristín sagðist taka undir það sem segði í skýrslunni, að almennt ættu ráðamenn að forðast að komast í þá aðstöðu að vera á sama tíma í fyrirsvari fyrir tvo aðila, sem lent gætu í hagsmunaárekstri. Hér var Kristín að vísa til kaflans í skýrsl- unni sem fjallar um þátt Alberts Guðmundssonar. „Hins vegar er það einnig rétt, sem kemur fram í skýrsl- unni,“ sagði Kristín, „að Alþingi sem þá sat, á að hafa vitað um stöðu Alberts hjá Hafskip, og þá ekki síst viðskiptaráðherra, sem skipaði hann formann bankaráðs Útvegsbank-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.