Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 Jón Baldvin villfá f orsætis- ráðuneytið „EF ALÞÝÐUFLOKKURINN fær fjóra ráðherra í ríkissfjórn að loknum næstu kosningum myndi ég vilja fá forsætisráðu- neytið, fjármálaráðuneytið, félagsmálaráðuneytið, landbún- aðarráðuneytið og sjávarútvegs- ráðuneytið“, sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins, á fundi hjá Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavik, sl. fimmtudag. Jón Baldvin sagðist sjálfur sækj- ast eftir forsætisráðherrastólnum ef Alþýðuflokkurinn ynni sigur í næstu Alþingiskosningum. Hann taldi einnig æskilegt að Jón Sig- urðsson, forstjóri Þjóðahagsstofn- unar, tæki að sér bæði sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðuneytið en um önnur ráðherraefni Alþýðu- flokksins vildi hann ekki tjá sig fyrr en ljóst væri hvemig þinglið flokksins yrði skipað að loknum kosningum. Baðhús í smíðum við Bláa lónið Byrjað að dæla úr hvalbátunum Morgunblaðið/ÓI. K. M. BYRJAÐ var að dæla sjó úr hvalbátunum í Reykjavíkurhöfn í gærmorgun. Á stærri myndinni sést dælan komin í gang og sjórinn flæðir upp úr Hval 7, sem marar enn í hálfu kafi. Á innfelldu myndinni sjást starfsmenn Köfunarstöðvarinnar hf. tengja dælurnar á þilfari Hvals 7, fyrir það sem þeir kölluðu „generalprufuna“ á þessu óvenjulega björgunarstarfi. Að undanfömu hefur verið unnið við að þétta bátana, og vonast er til þess að þeir lyfti sér hægt og sígandi úr sjó þegar vatnið flæðir út. Sjálfstæðisflokkur í Reykjanesi og Reykjavík: Ottast ekki niður- stöður kosninganna „Skoðanakönnunin tímabær viðvörun,“ segir Friðrik Sophusson ÞEIR Matthías Á. Mathiesen, utanríkisráðherra og Friðrik Sophus- son, varaformaður Sjálfstæðisflokksins telja ekki að niðurstöður skoðanakönnunar um fylgi flokkanna, sem sýna verulegt fylgistap flokksins í Reykjaneskjördæmi og Reykjavík, ógni fylgi flokksins í kjördæmunum. Morgunblaðið snéri sér til þessara manna í gær og leitaði þeirra skýringa á því hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn tap- ar svo miklu fylgi í þessum kjördæmum, sem þessi skoðanakönnun sýnir. Albert Guðmundsson, iðnaðarráðherra, sem varð í fyrsta sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík, neitaði að ræða þetta mál við Morgunblaðið. Gríndavík. VIÐ Bláa lónið í Svartsengi við Grindavík er að rísa baðhús, sem gerbreyta mun allri aðstöðu til böðunar í lóninu. Það er Hita- veita Suðuraesja sem á heiðurinn af þessu framtaki, en þegar hús- ið er risið verður reksturinn í höndum einkaaðila. Rekstur hússins verður leigður út og rennur tilboðsfresturinn út um næstum mánaðamót. Mikil ásókn er í lónið til böðunar einkum á sumrin en engin aðstaða er fyrir fólk til fataskipta eða þvotta eftir böðun í lóninu. SPÓEX samtökin hafa verið með húsnæði fyrir sína félagsmenn við lónið, en það hefur oft orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Með tilkomu baðhússins, sem verður 130 fermetrar á stærð, rætist úr þessu vandamáli. Auk þess eru hafnar framkvæmdir við að girða svæðið af með mannheldri girðingu og mun leigutakinn væntanlega annast vörslu á svæðinu. Lokið er við að leggja veg niður að bggingunni og útbúa bflastæði svo öll aðstaða mun verða til fyrirmyndar fyrir þá sem stunda Bláa lónið. Það er Ásverk í Sandgerði sem annast bygginguna en kostnaðar- áætlun er upp á þrjár milljónir króna og er þá girðing og vegagerð meðtalin. Áætlað er að taka húsið í notkun í byrjun næsta mánaðar. Kr. Ben. Matthías Á. Mathiesen, utanrík- isráðherra sem hlaut efsta sætið í skoðanakönnun forystu- og trúnað- armanna Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi sagði að þegar skoðanakönnunin á fylgi flokkanna hefði farið fram, hefðu framboðs- mál Sjálfstæðisflokksins í Reykja- neskjördæmi verið ofarlega á baugi. „Eins og ævinlega, sýnist sitt hvetj- um í þeim efnum og menn ekki alltaf sammála. Það hefur sjálfsagt verið meira afgerandi varðandi nið- urstöður þessarar skoðanakönnun- ar,“ sagði Matthías, „heldur en sú sterka málefnalega staða sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur." Matthías sagði að í kosningunum yrði kosið um áframhaldandi for- ystu Sjálfstæðisflokksins, eða nýja vinstri stjórn. Matthías var spurður hvort vísbendingin um talsvert fylgistap Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi gæfi að hans mati tilefni til þess að lista flokksins í kjördæm- inu, yrði breytt, en hann er enn ekki frágenginn: „Kjördæmisráðið er sá aðili sem endanlega tekur ákvörðun um listann," sagði Matt- hías, „og á meðan sá fundur hefur ekki verið haldinn, er ekki rétt að dæma um frambjóðendur." Sagðist hann vilja nota tækifærið og þakka það mikla traust sem sjálfstæðis- menn í Reykjaneskjördæmi hefðu sýnt honum í skoðanakönnun flokksins. Matthías var spurður hvort hann teldi að klúður kjömefndar í Reykjanesi, eftir skoðanakönnunina í kjördæminu, hefði haft áhrif í þá veru að fylgi flokksins minnkaði: „Ég tel ekki rétt að saka kjömefnd- ina um klúður," sagði Matthías, „hún framkvæmdi það sem fyrir hana var lagt. Annað mál er svo hvort það var nægjanlega vel grundað. Endanlegur listi verður svo ákveðinn af kjördæmisráðinu og ég á ekki von á neinu öðm en fullri einingu um listann, eins og kjördæmisráðið ákveður hann og að hann muni verða mjög sigur- stranglegur." Morgunblaðið snéri sér til Frið- riks Sophussonar varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem varð í öðm sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík, eftir að Albert Guð- mundsson neitaði að ræða niður- stöðumar við Morgunblaðið og spurði hann hveijar hann teldi skýr- ingamar á fylgistapi flokksins í Reykjavík: „Ætli skýringin sé ekki sú að kjósendur á Reykjavíkur- og Reykjanessvæðinu em hreyfanlegri á milli flokka. Alþýðuflokkurinn hefur í orði kveðnu lýst mikilli and- stöðu við Framsóknarflokk og Alþýðubandalag og þannig geflð til kynna að þeir vilji nýja viðreisn. Fólk verður hins vegar að átta sig á því að Alþýðuflokkurinn er vinstra megin við miðju og þannig em opn- aðar dyr fyrir nýja vinstri stjóm, sem er ávísun á nýja verðbólguhöl- skeflu, verði niðurstöður kosning- anna í samræmi við þessa skoðanakönnun," sagði Friðrik. Friðrik sagði að kosningabarátt- an væri vart hafin, en Sjálfstæðis- flokkurinn myndi starfa vel í vetur. Það þyrfti að skerpa flokksstefnuna og skýra út að sterkur Sjálfstæðis- flokkur væri forsenda áframhald- andi framfara án verðbólgu. „Við lítum á þessa skoðanakönnun sem tímabæra aðvöran," sagði Friðrik, „og munum herða baráttuna í vet- ur, en kvíðum ekki úrslitum kosn- inganna." Friðrik var spurður hvort þessi niðurstaða gæfl tilefni til þess að breyta framboðslistanum í Reykjavík, sem ekki er frágenginn af kjördæmisráði: „Ég get ekki les- ið það út úr þessari skoðanakönnun. Listinn var valinn í prófkjöri, sam- kvæmt reglum sem flokkurinn setti sér, og þar kom vilji flokksmanna í ljós.“ Helgi leikur í norskri kvikmynd HELGI Skúlason, leikari, mun leika eitt aðalhlutverkið í norskri kvikmynd, sem sækir efni sitt til gamallar samískrar sagnar um strandhögg í friðsælli samabyggð á 12. öld. Tökur hefjast í febrú- ar næstkomandi. Myndin hefur hlotið heitið Vej- viseren eða Leiðsögumaðurinn á íslensku. Efnisþráðurinn er á þá leið að barbarar taka ungan sama- pilt fanginn og neyða hann til þess að vísa sér veginn til byggða. Segir myndin frá viðskiptum pilts- ins og yfírstjómar innrásarhers- ins. Honum er stjómað af þremur mönnum og leikur Helgi einn þeirra. „Mér líkar það ágætlega," sagði Helgi er hann var spurður um það hvemig honum líkaði að leika barbara, en hann lék víkingaforingja í mynd Hrafns Gunnlaugssonar Hrafninn flýgur, sem kunnugt er. „Það er eiginlega miklu betra heldur en önnur hlut- verk og maður kallar ekki allt ömmu sína eftir að hafa leikið Ríkharð III , því eftir það em önnur varmenni meiri og minni gæðablóð," sagði Helgi Skúlason ennfremur. Helgi Skúlason í hlutverki sinu í Hrafninn flýgur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.