28 r"TT-wr\i7-TTiir mrst. T{jtxtt'-í<t/-itií MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1986 + Ekkertlátá óeirðum og verk- f öllum á Indlandi Nýju Delhi, Reuter, AP. ALDA óeirða og verkfalla gekk yfir norðvesturhluta Indlands í gær í kjölfar fjöldamorðanna á sunnudag, er síkar myrtu 24 hindúa í Punjab. Reyndi Iögregl- an eftir mætti að koma í veg fyrir, að hindúar hefndu sín með ógnarverkum á síkum, en allt kom fyrir ekki. Þrír síkar voru skotnir til bana og var einn þeirra aðalvitnið í miklu hryðju- verkamáh, sem nú er fyrir dómi. Ástandið versnaði enn síðdegis í gær, eftir að það upplýstist, að öfgamenn úr röðum síka höfðu myrt 10 manns til viðbótar í Punjab á mánudag. Lá víða við upplausnar- ástandi. I Punjab og nærliggjandi ríkjum féllu ferðir almenningsvagna nær algerlega niður og í mörgum borgum voru verzlanir og skólar lokaðir. Iðnaðarborgin Jollundur og hin heilaga borg síka, Amritsar, voru sem lamaðar af völdum verkfalla annan daginn í röð. Lögreglan í Punjab handtók tvo kunna harðlínu- menn úr röðum síka, sem kunnir eru af andstöðu við ráðherrann Surijit Singh Barnala ráðherra, sem er einn hófsamasti forystumaður síka í Punjab. Lögreglan í Punjab hefur nú ákveðið að taka upp enn harðari aðgerðir gegn hryðjuverkum en áður. Verða sérstakar lögreglu- sveitir stofnaðar í því skyni og heimild veitt til að gera upptækar eignir öfgamanna, sem hlotið hafa dóm fyrir glæpi. í Nýju Delhí var allt lögreglulið borgarinnar, en í því eru 32000 manns, kallað út, til þess að hindra átök milli síka og hindúa. Beittu þeir bæði kylfum og táragas- sprengjum til að dreifa æstum múg, sem safnazt hafði saman víða í borginni. Voru það einkum hindú- ar, sem hugðu á hefndir gagnvart síkum, en þeir síðarnefndu héldu sig sem mest innandyra. Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands, sagði í gær, að nú væri nauðsyn á „hörðum og skjótum aðgerðum" og kvaðst hafa látið Kanada: Rannsókn í hvalskipamálinu stendur enn yfir New York, frá fréttaritara Morgunblaðs- ins, Ji'mi ÁsRi'iri Sigurðssyni. RANNSOKN kanadisku ríkislög- reglunnar á hugsanlegri aðild Kanadamanna að skemmdar- verkunum í Hvalfirði og Reykjavík stendur enn yfir. Brian Wiseman lögregluforingi í Vancouver, á Kyrrahafsströnd Kanada, tjáði fréttaritara Morgun- blaðsins í gær, að hann væri í þann mund að fara á fund með rannsókn- armönnum málsins. Wiseman bjóst við, að rannsóknin myndi tæki enn nokkurn tíma. gera sérstaka áætlun til að binda endi á hryðjuverk öfgamanna úr röðum síka. Of saveður í Skandinavíu Stokkhólmi, Reuter. MIKIÐ illviðri gekk yfir Skand- inavíu í gær og urðu þúsundir heimila í Svíþjóð rafmagnslaus auk þess sem járnbrautasam- göngur riðluðust. Ekki reyndist unnt að sigla ferjum á milli Mál- meyjar og Kaupmannahafnar. Hollenskt flutningaskip sem statt var á Norðursjó sendi út neyðar- kall og var áhöfninni bjargað,um borð í nærstödd skip. Sænskt skip sem statt var á Eystrasalti þurfti einnig á aðstoð að halda og var það dregið til hafnar í Danmörku. í gær snjóaði í fyrsta skipti á þessum vetri í Stokkhólmi og Hels- inki og kváðust sænskir veðurfræð- ingar eiga von á kólnandi veðri. Ástralía: Að aflokinni megrun AP/Símamynd Holdafar meðlima bresku konungsfjölskyldunnar er í senn áhuga- og áhyggjuefni manna víða um heim. Myndir þessar bera það með sér að megrunarkúr Söru, hertogaynjunnar af York hefur borið verulegan árangur. Myndin til vinstri var tekin i júní en hin í síðustu viku. Bresku stjórninni gert að afhenda leyniskjöl o_-j_____ Y____t___« II D___.___ Sydney, London, AP, Reuter. DOMSTÓLL í Sydney úrskurðaði í gær að breskum stjórnvöldum bæri að afhenda lögfræðingum Peters Wright, fyrrum njósnara bresku leyniþjónustunnar (MI5), trúnaðarskjöl en ríkisstjórn Margaret Thatcher reynir nú hvað hún getur til að hindra útg- áfu endurminninga hans f Ástralíu i nafni þjóðaröryggis. Á mánudag sagði Gough Whitlam, fyrrverandi forsætisráðherra Astralíu, fyrir réttinum í Sydney að Anthony Eden, fyrrum for- sætísráðherra Breta, hefði a.ni.k. tvisvar samþykkt að Nasser, for- setí Egyptalands, yrði ráðinn af dögum. Gough Whitlam er stýrði stjórn Verkamannaflokksins 1972-1975, sagðist hafa látið endurskipuleggja áströlsku leyniþjónustuna eftir að hann varð forsætisráðherra. Hún hefði starfað á svipaðan hátt og sú breska og hefði hahn ekki getað fellt sig við þá starfshætti. Whitlam hélt því fram að breska leyniþjón- ustan hikaði enn ekki við að brjóta lög , en hið sama gilti ekki um þá áströlsku. Dómstóllinn í Sydney kvað í gær upp úrskurð þess efnis að bresku ríkisstjórninni bæri að afhenda Wright og lögfræðingum hans skjöl m.a. um Sir Roger Hollis, fyrrum yfirmann bresku leyniþjónustunnar, en Wright hefur sagt hann hafa Peter Wright, fyrrum starfsmaður bresku leyniþjónustunnar, og kona hans á göngu í Sydney er hlé var gert á réttarhöldum vegna útgáfu endurminninga hans. verið útsendara Sovétmanna. Dóm- arinn sagði lögfræðinga Wrights þurfa á skjölunum að halda til að geta flutt málið en aðrir munu ekki fá aðgang að þeim. í réttarhöldun- um í Sydney hefur einnig komið fram að breska ríkisstjórnin gerði ekkert til að hindra útgáfu tveggja bóka um leyniþjónustuna, sem tveir blaðamenn rituðu eftir að hafa rætt við fyrrum háttsetta embættismenn innan hennar. Breska ríkisstjórnin hefur einnig reynt að koma í veg fyrir að endur- minningar Joan Miller, sem starfaði á vegum bresku leyniþjónustunnar, verði gefnar út á írlandi. í gær úrskurðaði dómari í Dublin að þessi krafa stjórnvalda á Bretlandi fengi ekki staðist. Útgefendur bókarinnar segja hana ekki hafa að geyma neinar upplýsingar sem skaðað gætu öryggishagsmúni Bretlands. 4 I Bretlandi hefur stjórnarand- staðan, sérstaklega Verkamanna- flokkurinn, reynt að gera ríkisstjórn íhaldsflokksins tortryggilega vegna tilrauna hennar til að stöðva útgáfu bókar Peters Wright um bresku leyniþjónustuna. Hafa ráðamenn innan flokksins rætt við lögfræðing Wrights og fengið frá honum upp- lýsingar. íhaldsmenn hafa gagnrýnt þetta og segja að stjórnmálamenn eigi ekki að starfa með aðilum er vinni gegn öryggishagsmunum Breta. Clive Soley, talsmaður Verkamannaflokksins i innanríkis- málum, hefur sagt, að hann gruni bresku leyniþjónustuna um að hafa hlerað samtöl Neils Kinnock, form- anns Verkamannaflokksins, og starfsmanna hans og lögfræðinga Wrights í Ástralíu. pavogi +¦