Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
16 luku námskeiði
í útgáfu farseðla
Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-Landsýn gekkst í fyrra fyrir
tveim námskeiðum í fargjaldaútreikningi og farseðlaútgáfu. Sóttu
yfir 300 manns um inngöngu á þau en aðeins 30 komust að og
luku þeim.
Er stór hluti af því fólki þegar
kominn í störf hjá Samvinnuferð-
um-Landsýn svo og öðrum ferða-
skrifstofum og flugfélögunum.
Hefur verið mikill skortur á fólki
sem kann til verka í fargjaida-
frumskóginum, en engin nám-
skeið eða skóli haldinn í slíku fyrr
en þama.
í síðasta mánuði gekkst skrif-
stofan fyrir þriðja námskeiðinu.
Var það haldið vegna margítrek-
aðra óska. Sem fyrr sóttu margir Þátttakendur á þriðja námskeiði Samvinnuferða-Landsýnar i farseðlaútgáfu og fargjaldaútreikningi.
um inngöngu, eða vel á annað Aftari röð frá vinstri: Hólmfriður Gísladóttir, Ásthildur Hjaltadóttir, Kolbrún Bessadóttir, Sigriður
hundrað manns. Aðeins 16 kom- Einarsdóttir, Jónas Jónasson leiðbeinandi, Auður Björnsdóttir námskeiðsstjóri, Klara Sigurbjörnsdóttir,
ust að og luku þau námskeiðinu Jensína Ingimarsdóttir, Oddný Hrönn Björgvinsdóttir, Dias Catacutan, Ásgerður Ágústsdóttir, Jónina
í endaðan nóvember. S. Pálmadóttir. Fremri röð frá vinstri: Þórunn Gunnarsdóttir, Hildur Kristjánsdóttir, Dýrfinna Baldvins-
(Fréttatiikynniiig.) dóttir, Siguijón Einarsson, Ásta Sigurðardóttir og Sigríður Káradóttir.
DULUX CARRÉ
Orkusparandi DULUX® CARRÉ 9 og
11W vegg- og loftlampinn er tilvalinn í
stigaganginn, andyrió eóa þar sem
þörf er á fyrirferóarlitlum lampa.
DULUX® CARRÉ fylgir orkusparandi
Ijósgjafi DULUX® S.
Vilhjálmur
Knudsen hefur
lokið gerð
íslands-
myndbands
- um Island, náttúru
þess og- eldvirkni
VILHJÁLMUR Knudsen, kvik-
myndagerðarmaður, hefur lokið
við gerð nýrrar íslenskrar kvik-
myndar á myndband um ísland.
Hún nefnist íslandsmyndband.
Myndin er 60 mínútna löng. í
myndinni er fjaliað um ísland,
náttúru þess og eldvirkni.
Sýnt er frá Kröflugosinu í júlí
1980. Síðan er farið yfir eldvirka
beltið og sýnt frá Surtseyjargosinu,
Heimaeyjargosinu og Heklugosun-
um 1947-48 og 1980. Þá er farið
að Kötlu og myndaðar aðstæður við
Vík í Mýrdal, Lakagíga, þar sem
gígaröðin fer undir jökulinn, og
sýndar eru myndir frá Grímsvötn-
um og gosinu þar 1983, frá ketilsig-
inu 1984, frá Kverkijöllum, frá
Öskju, sýnt frá Öskjugosinu 1961,
frá Mývatni og aðstæður fyrir
síðasta gos í september 1984, og
Kröflugosinu sama ár. Þessi fyrri
hluti myndarinnar er um 30
mínútna langur.
í síðari hluta myndarinnar er
farið í ferðalag um hálendið. Farið
er að Skaftafelli, Homströndum,
Gullfossi, Geysi, Hveragerði, Þing-
völlum auk þess sem höfuðborgin
er sótt heim. Jafnframt er sýnt frá
ýmsum hverasvæðum og nýting
jarðvarma kynntur.
Ýmis atriði kvikmyndarinnar hef-
ur Ósvaldur Knudsen, faðir Vil-
hjálms, tekið. Myndbandavinnsla
fór fram hjá Universal Videolab í
London, Devlin Video í New York,
Texta hf., íslenska sjónvarpinu og
Sýn kvikmyndagerð í Reykjavík.
Myndin er fáanleg í enskri útgáfu
á evrópska sjónvarpskerfinu PAL
og á það bandaríska NTSC og einn-
ig á VHS, Betá og V2000 kassett-
um.
Vilhjálmur vinnur nú að þýskri
og franskri útgáfu myndarinnar.
Franska útgáfan verður fáanleg
bæði á PAL og SECAM, íranska
sjónvarpskerfinu. Hann hefur á
undanfömum ámm gengið frá
flestum kvikmynda föður síns, Ós-
valds, á myndbönd og bætt við
tungumálaútgáfum. Ein myndanna
er nú fáanleg á tólf tungumálum.
Fæst í öllum helstu raftækjaverslunum og
kaupfélögum. Heildsölubirgðir:
JÓHANN ÚLAFSSON & C0. HF.
43 Sundaborg 13 - 104 Reykjavík - Sími 688 588
OSRAM l-Hróöleikur og JL skemmtun fyrirháasemlága!
Ijóslifandi orkusparnaöur