Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 283. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986


Innlán hafa auk-

iztum30%eðall,5

milljarða á árinu

Sparnaður umfram hækkun verðlags

eykur möguleika á innlendu lánsf é

HAGFRÆÐINGAR Seðlabanka

Islands telja að í lok síðasta árs

hafi sparnaður landsmanna num-

ið um 99,2 milljörðum króna. Þar

af var talið að innlán í banka-

kerfinu væru 38 milljarðar, en

nú er sú upphæð talin 49,5 millj-

arðar króna með áætluðum

vöxtum. Þar af eru um 2,9 millj-

arðar inni á gjaldeyrisreikning-

um. Ennfremur er talið að i

lífeyrissjóðunum hafi um áramót

verið um 26,2 milljarðar króna

og þar af verði um 6,3 milljarðar

í ráðstöfunarfé á næsta ári. Að

þessu athuguðu er talið, að nægi-

legt Iánsf é verði tíl reiðu innan-

lands á næsta ári til að hægt

verði að draga verulega úr er-

lendum lántðkum.

Vilhjálmur Egilsson, hagfræð-

ingur VSÍ, sagði í samtali við

Morgunblaðið, að áætlanir um

mögulegan samdrátt í erlendum

lántökum væru byggðar á aukningu

sparnaðs innan lands umfrarn

hækkun verðlags. Hann gat þess,

að á næsta ári myndu lífeyrissjóð-

irnir hafa til ráðstöfunar um 6,2 til

6,3 milljarðar króna. Þar af væri

reiknað með því, að þeir keyptu

skuldabréf af byggingasjóðunum

fyrir um 5594 þess eða um 3,4 millj-

arða. Þá væru eftir um 2,8 milljarð-

ar króna, sem þeir þy rft.u að ávaxta

á einhvern hátt. Með nýja hús-

næðislánakerfinu myndi eftirsókn

sjóðsfélaga eftir lánum minnka,

jafnframt því að margir sjóðimir

færðust undan veitingu neyzlulána.

Því yrði þarna væntanlega mögu-

leiki á Iánsfé.

Vilhjálmur sagði, að f lánsfjár-

áætlun væri gert ráð fyrir því, að

fjárfestingalánasjóðir tækju 2,23

milljarða króna að láni erlendis á

næsta ári. Auk þess, sem lánsfé

ætti að vera fáanlegt hjá lífeyris-

sjóðunum, mætti benda á það, að

aukning innlána í bönkum og inn-

lánastofnunum frá áramótum væri

um 30% eða 11,5 milljarðar króna.

Til samanburðar mætti benda á

það, að byggingavísitalan hefði á

sama tíma hækkað um 13%, láns-

kjaravísitalan um 11% og fram-

færsluvísitalan um 9%. Því væri

raunauking innlána um 7 milljarðar

króna. Þar að auki mætti benda á

það, að staða bankanna gagnvart

útlöndum hefði batnað um rúmlega

2,5 milljarða króna frá áramótum.

„Fjármagnsmarkaðurinn hér á

landi er að breytast," sagði Vil-

hjálmur. „Það er að verða fáanlegt

lánsfé hér í verulegum mæli vegna

aukins sparnaðar og þvi ástæðu-

laust að láta sér ekki detta annað

í hug en að leita til útlanda, þegar

þðrf er á lansfé," sagði Vilhjálmur

Egilsson.

Hæstiréttur:

Morgunblaðið/Olafur K. Magnússon

Óveðursský

VONZKUVEÐUR hefur verið  um allt land

síðustu daga. Myndin er tekin yfir Skerjafjörð-

inn í vikunni og þó blikur séu á lofti rofar

aðeins til og grillir í geisla sólar.

Hjartavernd og Skógræktin eiga

ekki rétt á bótum fyrir Asgarð

DÓMUR féU nýlega i Hæstarétti

í máli Hjartaverndar og Skóg-

ræktar ríkisins sem félögin

höfðuðu til að láta á það reyna

hvort þau ættu rétt á andvirði

jarðarinnar Ásgarðs í Grimsnesi.

Forsaga málsins er sú að þegar

ekkja Sigurliða Kristjánssonar,

Helga Jónsdóttir, lést sumarið

1978, var í erfðaskrá þeirra hjóna

tekið fram að þrír aðilar^ skyldu

eignast hlutdeild í jörðinni Asgarði.

Þetta voru Hjartavernd, Skógrækt

ríkisins og Reykjavíkurborg. Tekið

var fram að Hjartavernd skyldi fá

hluta jarðarinnar til að reisa þar

hvfldar- og hressingarstað, Skóg-

rækt rfkisins skyldi nota hluta

jarðarinnar    tii    skógræktar    og

Reykjavíkurborg til að reisa þar

drengjaheimili. Grímsneshreppur

neytti hins vegar eignirnámsheim-

ildar sinnar, án þess að á það hefði

reynt hvort Hjartaverrid, Skógrækt-

in og Reykjavfkurborg myndu

uppfylla skilyrði erfðaskrárinnar.

Tveir fyrrnefndu aðilarnir ákváðu

að höfða mál gegn erfingjum Sigur-

liða og Helgu til að fá úr því skorið

hvort þeir ættu rétt á andvirði jarð-

arinnar. Skiptaréttur Reykjavíkur

féllst ekki á það og var málinu þá

áfrýjað til Hæstaréttar. Reykjavík-

urborg afsalaði sér öllum rétti í

málinu áður en til málaferla kom.

Hjartavernd krafðist þess að fá

tæpar 6,8 milljónir króna úr dáhar-

Hitaveita Suðurnesja:

Hugmynd um virkjun

í Eldvörpum hafnað

búi Helgu Jónsdóttur, sem er hluti

eignarnámsbóta fyrir jörðina, en

alls námu bætur tæpum 15 milljón-

um króna. Til vara krafðist Hjarta-

vernd þess að dæmt yrði að félaginu

bæri féð með þeim skilyrðum að

því yrði varið til kaupa á landi ásamt

bústað til afhota sem hvíldar- og

hressingarstaður félagsins. Þá var

krafist vaxta og/eða verðbóta sem

bæst hefðu við eignarnámsbæturn-

ar frá því þær voru greiddar

dánarbúinu.

Skógrækt rfkisins gerði þær

kröfur að félagið fengi rúmar 8

milljónir króna af eignarnámsbót-

um fyrir jörðina. Til vara krafðist

Skógræktin þess að dæmt yrði að

félagið fengi þessa fjárhæð með því

skilyrði að hún yrði notuð til kaupa

á landi til skógræktar. Onnur vara-

krafa Skógræktarinnar var sú að

félagið fengi fjárhæðina með því

skilyrði að henni yrði varið til skóg-

ræktar í landi Ásgarðs. Skógræktin

gerði einnig kröfu um vexti og/eða

verðbætur.

Skógræktin og Hjartavernd rök-

studdu kröfur sfnar m.a. með því

að félögin hefðu orðið eigendur

Ásgarðs þegar við andlát Helgu

Jónsdóttur og hafi því í raun verið

eignarnámsþolar, þegar Grímsnes-

hreppur neytti eignarnámsheimild-

ar sinnar og þeim borið eignar-

námsbæturnar, án þess að nokkuð

fleira kæmi til. í dómi Hæstáréttar

kemur fram að þessu hafi að vísu

ekki verið haldið gagngert fram við

eignarnámsmatið eða í málinu í

héraði, en hvað sem því liði verði

ekki talið, að þegar við andlát Helgu

Jónsdóttur hafi stofnast fortakslaus

eignaréttur áfrýjendum til handa á

landi því úr Ásgarði, sem þeim var

ánafnað í erfðaskrá Sigurliða og

Helgu. Tilkall félaganna til jarðar-

innar hafi verið háð þeim skilyrðum

sem sett voru í erfðaskránni, þ.e.

að Hjartavernd starfrækti hvfldar-

og hressingarheimili á jörðinni og

Skógrækt rfkisins stundaði skóg-

rækt á landi jarðarinnar. Þeim

skilyrðum hafi áfrýjendur ekki get-

að fullnægt, þegar hreppsnefnd

Grímsneshrepps neytti forkaups-

réttar síns að jörðinni lögum

samkvæmt, og eignaréttur áfrýj-

enda hafi þar af leiðandi aldrei verið

virkur. Var hinn áfrýjaði úrskurður

skiptaréttar því staðfestur.

Dóminn kváðu upp hæstaréttar-

dómararnir Magnús Þ. Torfason,

Guðmundur Jónsson, Guðrún Er-

lendsdóttir, Halldór Þorbjörnsson

og Þór Vilhjáhnsson.

„Strompgufan" virkjuð í Svartsengi?

ORKUSTOFNUN hefur hafnað

hugmynd ráðamanna Hitaveitu

Suðurnesja um virkjun borhol-

unnar í Eldvðrpum sem talin er

sú afkastamesta i heiminum. Að

sögn Júliusar Jónssonar, skrif-

stofu- og f jármálastjóra liitaveit-

unnar, skýrist á næstunni hvort

Landsvirkjun sé hlynnt þvf að

„slrompgufa" orkuversins, sem

blæs óheft upp úr reykháfum í

Svartsengi, verði virkjuð. Virkj-

anlegt afl gufunnar er taiið

rúmlega 6 megawött, en orku-

verið framleiðir 8 MW f dag.

Hitaveitan hefur um nokkurt

skeið kannað hvort hagkvæmt sé

að virkja borholuna í Eldvörpum til

raforkuframleiðshi. Niðurstöður

benda til þess að virkjunin yrði

aðeins hagkvæm ef not fyndust

fyrir kælivatn frá orkuverinu. Raf-

orkuframleiðslan ein gæti ekki

staðið undir sér þar sem eftirspurn

eftir rafmagni í landinu er fuUnægt

að mati Orkustofnunar. „Hugmynd

okkar var því að leiða vatnið úr

borholunni í átt til strandar, þar sem

nota mætti kælivatn virkjunarinnar

til laxeldis og iðnaðar. Hér lendum

við í einskonar vftahring því Orku-

stofnun er ekki tilbúin til þess að

gefa grænt ljós á virkjunina nema

að kaupendur finnist að gufu og

vatni. Og kaupendur að varmanum

eru ekki tilbúnir til að skuldbinda

sig nema að fuUvíst sé að virkjunin

verði byggð," sagði Júlíus.

Hann sagði að kostnaður við

virkjun Eldvarpa myndi verða ná-

lægt milljarði króna, og uppsett afl

í fyrsta áfanga raforkuvers gæti

orðið 15 MW. „En ef atvinnurek-

endur hafa ekki áhuga á því að

kaupa þessa orku, er það auðvitað

ekki kappsmál að virkja þessa orku-

lind bara til þess að virkja," sagði

Júlfus.

Virkjun strompgufunnar hefur

lengi verið í bígerð. Hér er um að

ræða umframvarma frá hitaveit-

unni sem nú blæs út um reykháfa.

Fyrir réttu ári sendi hitaveitan

Landsvirkjun beiðni um að mega

virkja afl gufunnar til raforkufram-

leiðslu og sagðist Július binda vonir

við að stofnunin gæfi bráðlega sam-

þykki sitt.

„Almenn skjmsemi segir að rétt

sé að nota afl sem annars rýkur út

í veður og vind," sagði Júlíus. „Af

gufunni hljótast einnig mikil óþæg-

indi því efni í henni tæra tæki og

mannvirki í Svartsengi. Starfsmenn

tala stundum um „súra regnið".

Hafa þeir til dæmis fyrir löngu

gefist upp á því að koma til vinnu

á einkabflum." Hann sagði að með

þessari viðbót á raforkuframleiðsíu

orkuversins yrði hægt að auka

rekstraröryggi þess. Oft hefði legið

við stórtjóni þegar byggðarlög á

Suðurnesjum hefðu skyndilega orð-

ið rafmagnslaus vegna þess að

orkuverið hefði kiknað undan álagi.

Lausn UA skiljanleg

- segir Friðrik Pálsson forstjóri SH um tilboð

Útgerðarfélags Akureyringatil sjómanna

„MÉR  finnst  þessi  lausn   ÚA-     launamunur milli þeirra sjómanna,

manna mjög skiljanleg," sagði

Friðrik Pálsson, forstjóri Sölu-

miðstððvar hraðfrystihúsanna,

þegar leitað var álits hans á t.íl-

boði Útgerðarfélags Akur-

eyringa til sjómanna sinna um

að greiða þeim hærra verði fyrir

10% af aflanum vegna inismunar

á fiskverði hér og á ferskfisk-

mörkuðum erlendis.

Friðrik sagði einnig: „Samningar

um hlutaskipti eru með þeim hætti,

að sjómenn hafa oftast af þvf tals-

vert hærri tekjur, þegar fiskur er

seldur erlendis heldur en hér innan-

lands samkvæmt skráðu lágmarks-

verði Verðlagsráðs sjávarútvegsins.

Af þessu  hefur  orðið talsverður

sem aðallega leggja fisk á land til

fiskvinnslunnar hérlendis og hinna,

sem fiska fyrir erlendan markað.

Það er því mjög skiljanlegt, að sjó-

menn æski nokkurrar jöfnunar á

þessu.

Eins og fram hefur komið í Morg-

unblaðinu, töldu sjómenn ÚA

launakjör sín mun lakari en manna

á skipum, sem seldu fisk í gámum

til útlanda. Útgerðarfélag Akur-

eyringa semur því við sjómenn sína

um launahækkun og heldur með

þeim hættí góðu sambandi við

starfsfólk sitt, bæði á sjó og landi,

því með því móti halda þeir aflanum

til vinnslu innanlands og fullri vinnu

f fiskiðjuveri sínu."

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
44-45
44-45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88