Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 283. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986

5

Vetrardagskrá Kammersveitar Reykjavíkur;

Jólatónleikar í Hall-

grímskirkju 21. des.

KAMMERSVEIT Reykjavíkur er

nú að hefja 13. starfsár sitt.

Fyrstu tónleikarnír verða jóla-

tónleikar i Hallgrímskirkju

sunnudaginn 21. desember.

A jolatónleikunum verða leikin

mörg þekkt verk frá barokk-tíman-

um og er tónlistin valin með það

fyrir augum, að áheyrendur komist

í sannkallað jólaskap í hinni nývígðu

kirkju. Á dagskrá tónleikanna, sem

hefjast kl. 17, verður konsert fyrir

2 trompeta, strengi og continuo

eftir V. Manfredini, konsert fyrir 2

fiðlur, strengi og continuo, BWV

1043 eftir J. S. Bach, Adagio í g-

moll fyrir orgel og strengi eftir T.

Albinoni, konsert fyrir fiðlu, óbó,

strengi og continuo, BWV 1060

eftir J. S. Bach og Concerto grosso

nr. 8, „Jólakonsert" eftir A. Co-

relli. Einleikarar verða Ásgeir H.

Steingrímsson,     trompet,     Lárus

Sveinsson, trompet, Rut Ingólfs-

dóttir, fiðla, Unnur María Ingólfs-

dóttir, fiðla og Kristján Þ.

Stephensen, óbó.

Eftir áramótin verða þrennir tón-

leikar á dagskrá Kammersveitar-

innar. Að venju verður leitast við

að gefa flytjendum tækifæri á að

takast á við fjölbreytta tónlist.

Meðal verkefnanna eru tvö, sem

íslenskum áheyrendum hefur ekki

gefist kostur á að heyra áður á

tónleikum hér á landi, Serenaða op.

24 og Blásarakvintett op. 25 eftir

Arnold Schönberg og aðstoðar Paul

Zukofsky við undirbúning og flutn-

ing verkanna.

Haldið verður upp á 100 ára af-

mæli brasilíska tónskáldsins Heit-

ors Villa-Lobos með tónleikum þann

25. janúar í Bústaðakirkju. Þrjú

verka hans verða á dagskránni,

Blásarakvintett í „Choros"-stíl,

Bachianas Brasileiras nr. 1 fyrir 8

Virðist klúðurslegt

- segir formaður læknaráðs Borgarspítaians um

hugmyndir um stjórnarfyrirkomulag

„VIÐ fyrstu sýn virðist þetta

vera óttalegt klúðursfyrirkomu-

lag," sagði Ólafur Þ. Jónsson

formaður læknaráðs Borgarspít-

alans um hugmyndir heilbrigðis-

ráðherra að stjórn Borgarspítal-

ans verði skipuð þingkjörnum

fulltrúum, þeim sömu og skipa

stjórn ríkisspítalanna, en að auki

fulltrúum starfsmanna.

Ólafur sagði að erfitt væri að

meta svona lauslegar hugmyndir

sem kæmu fram í fjölmiðlum, en

þetta væru sín fyrstu viðbrögð.

Fyrirkomulag stjórnunar Borg-

arspítalans hefur vafist fyrir

mönnum við frágang samkomulags

um yfirtöku ríkisins á honum. Unn-

ið hefur verið að lausn málsins, en

ekki var búið að ganga frá samning-

um um hádegið á laugardag.

KAMMERSVEIT    REYKJAVÍK

m>.

selló og Bachianas Brasileiras nr. 5

fyrir sópran jog átta selló. Þar kem-

ur Elfn Ósk Oskarsdóttir, söngkona,

í fyrsta sinn fram á tónleikum Kam-

mersveitarinnar, en píanóleikari

verður Anná Guðný Guðmunds-

dóttir. Auk verka H. Villa-Lobos

verður á tónleikum þessum flutt

verk F. Poulenc, sextett fyrir píanó

og blásarakvintett.

Þriðju tónleikar Kammersveitar-

innar verða 12. mars í Áskirkju.

Þá verður flutt serenaðan eftir

Schönberg fyrir klarinett, bassa-

klarinett, mandólín, gítar, fiðlu,

lágfiðlu, celló og bassasöngvara og

Blásarakvintett op. 26. Einsöngvari

verður John Speight en stjórnandi

Paul Zukofsky.

Síðustu tónleikar vetrarins verða

síðan í Bústaðakirkju 29. mars. Þar

verða flutt verkin Sechs Bagatellen

op. 9, fyrir strengjakvartett eftir

A. Webern, Píanókvintett op. 57

eftir Shostakovich og Strengja-

kvartett í F-dúr eftir M. Ravel.

Píanóleikari verður Guðríður S. Sig-

urðardóttir.

Nafnnúmer og kennitöl-

ur notuð jöfnum höndum

HAGSTOFAN hefur stefnt að þvi

110 leggja núverandi nafn-

númerakerfi niður um næstu

áramót, en taka í stað þess upp

nýtt auðkenni fyrir einstaklinga,

fyrirtæki, félög og stofnanir, svo-

kallaða kennitölu. Að sögn

Hallgríms Snorrasonar, Hagstofu-

stjóra, er ljóst að ekki verður hægt

að kasta gamla kerf inu á gamlárs-

kvöld. Vegna þess að ýmsar stofn-

anir hins opinbera og stór hluti

einkafyrirtækja hafa ekki búið sig

undir brcytinguna verður næsta

ár umþóttunartimi. Nafnnúmer og

kennitölur verða þvf notaðar jöfn-

um höndum. Skattframtöl næsta

árs munu þó bera kennitölur og

hætt verður að úthluta tólf ára

börnum nafnnúmerí.

Nyja kennitalan hefur um langt

árabil verið notuð í heilbrigðiskerfinu.

Hún er samsett úr tíu tölustöfum og

tákna sex fyrstu tölurnar fæðingar-

daginn, mánuð og ár. Tvær næstu

tölur eru hið eiginlega fæðingarnúmer

sem skilur á milli þeirra sem eiga

sama fæðingardag. Síðan kemur

„vartala" sem notuð er til að hindra

villur í kennitölunni. Loks er síðasti

tölustafurinn sem táknar þá öld sem

viðkomandi er fæddur á. Fyrirtækjum

er úthlutað kennitölum á sama hátt

en þær munu þó aldrei byrja á lægri

tölu en 41.

Enginn þeirra aðila sem blaðamað-

ur hafði samband við á mánudag var

búinn að breyta sínu tölvukerfi til

samræmis við nýja kennitölukerfið.

Kjartan Konráðsson, hjá tölvudeild

Verzlunarbanka íslands, sagði að gert

hefði verið ráð fyrir kennitölunni í

hugbúnaði bankans um nokkra hríð.

Launþegar og hlúthafar bankans

verða skráðir með kennitölunni um

áramótin og fylgja aðrar tölvúskrár í

kjölfarið á næsta ári. Kjartan bjóst

við því að kennitalan yrði alsráðandi

um mitt næsta ár. Sólveig Guðjóns-

dóttir, yfirmaður bókhaldsdeildar

Sveins Egilssonar, sagði að hún fagn-

aði kennitölukerfinu. Tölva fyrirtæk-

isins væri enn miðuð við nafnnúmerin

og vissi hún ekki hvenær breytingin

gæti orðið.

„í sjálfu sér verður notkun beggja

talnanna ekki mikið vandamál. b Al-

menningur mun hinsvegar verða fyrir

þeim óþægindum á næsta ári að þurfa

að muna tvær tölur og nota þær jöfn-

um höndum," sagði Hallgrimur. Hann

sagði að það sem aðallega hefði stað-

ið breytingunni fyrir þrifum væri að

stórar ríkisstofnanir svo sem Launa-

deild fjármálaráðuneytisins væru ekki

tilbúnar að breyta tölvuskrám sínum

til samræmis við nýja kerfið. Nafn-

númer yrðu einnig notuð við skil á

launaskatti og söluskatti, þannig að

kerfin yrðu notuð jöfnum hðndum í

fyrirtækjum jafnvel þótt mörg þeirra

hefðu breytt bókhaldskerfum sínum í

tæka tíð.

Um leið og kennitalan er tekin upp

verður þjóðskránni breytt þannig að

skráður verður allt að 31 bókstafur í

nöfhum. Áður þurfti að skammstafa

þriðjung íslenskra nafha vegna duttl-

unga tölvunnar. Þá verður öllum

íslensku stöfunum beitt við þessa

skráningu og heimilisföng verða skráð

í þágufalli. Fólki sem býr erlendis

verður gefínn kostur á að skrá um-

boðsmann svo tryggt sé að opinber

gögn komist til skila þótt viðkomandi

hafi hvergi búsetu. Hagstofan hefur

látið gera samræmdar reglur fyrir

stafrófsröðun í samstarfi við Póst 'og

Síma. Hallgrímur sagði að líklega

yrðu margir aðilar sem notað hafa

tölvur við stafrófsröðun að gera breyt-

ingar á hugbúnaði til samræmis við

þessar reglur.

4

jfc I \ftJNŒ>RÆÐUM MEÐ JOLAGJOF?

^¦**

Það er g jöf sem vekur umhugsun!

Við bjóðum þér tvær tegundir af stjörnukortum.

Með báðum fylgir skriflegur texti:

Framtíðarkort:

Hvað gerist næstu tólf mánudi?

Framtíöarkortiö segir frá hverjum mánuöi,

bendir á jákvæöa möguleika og varasama

þætti. Hjálpar þér aö vinna meö líf þitt á

uppbyggilegan hátt og finna rétta tímann til

athafna.

Persónukort:

Lýsir persónuleika þínum, m.a.:

grunntóni, tilfinningum, hugsun, ást og vin-

áttu, starfsorku og framkomu. Bendir á

hæfileika þína, ónýtta möguleika og vara-

samaþætti.

lt»         A'

Við.segjum að stjörnuspeki sé stórkostleg og

eitt það gagnlegasta tæki sem manninum stendur

til boða, leiði til sjálfsþekkingar, mannþekkingar

og almennt til aukins skilnings manna á meðal.

Stjörnuspeki er góð fyrir einstaklinga og t.d. hjón,

foreldra, ungt fólk og fyrir þá sem standa á tímamót-

um.

VIÐ BJÓÐUM EINNIG:

Bækur:

Allar nýjustu íslensku bækumar um sjálfsrækt m.a.

sálfræði, heilsurækt, mataræði o.fl. Auk þessfjöldi

nýrra erlendra bóka um stjörnuspeki og jákvæðan

lífsstíl.

Kassettur:

Tónlist   til   afslöppunar   og   spennulosunar   m.a.

Kitaro, Deuter.

Einnig stórgóð íslensk                                     ^T"

slökunarspóla með                                         >^ - *-

leiðbeiningabók.

Bjóðum einnig sérstakan

einkatíma

þar sem kort þitt

er túlkað af

Gunnlaugi Guö-

mundssyni

stjörnuspekingi.

Athugaöu málið og dæmdu fyrir sjálfan þig!

LÍTTU VIÐ Á LAUGAVEGI66,

EDA HRINGDU í SÍM A

10377 OG PANTAÐU KORT!

Ef bæði kortin eru gerð samtímis er         Æm*\W    /U    afsláttur.  Einnig 20% f jölskylduafsláttur

Opið næstkomandi laugardag til kl. 22.00. Þorláksmessu til kl. 23.00

20%

JRNUSREKL

jQSTÖOi

Laugavegi 66,

sími 10377

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
44-45
44-45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88