mBHíliSiU .t-í Sl'.J&MVitWiH ,«tÖ>-/«ri<iuHoM 8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 9 HUGVEKJA Jóhannes skírari eftir ÓSKAR JÓNSSON Texti. Matt. 11,2-11. Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði: Ert þú sá, sem koma skal, eða eigum vér rað vænta annars?" Jesús svaraði þeim: Farið og kunngerið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið: Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauð- ir rísa upp, og fátækum er flutt fagnaðaerindi. Og sæll er sá sem hneykslast ekki á mér." Þegar þeir voru farnir, tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: Hvað fóruð þér að sjá? Pruðbúinn mann? Nei, prúðbúna menn er að finna í sölum konungs. Til hvers fóruð þér? Að sjá spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spá- mann. Hann er sá, sem um er ritað: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér. Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í Himnaríki er honum meiri." Jóhannes skírari var alltaf hreinn og beinn, bar sannleikan- um vitni og fór ekki í manngrein- arálit, heldur sagði öllum til syndanna, einnig konunginum Heródesi, sem varð til þess að honum var varpað í fangelsi og síðan hálshöggvinn. Hann hafði sagt við Heródes: Þú mátt ekki eiga konu bróður þíns." Davíð Stefánsson segir í kvæðinu um Jóhannes skírara, meðal annars: Rödd hans er sterk eins og stormsins og þrumunnar gnýr. Hann er stoltur sem fjallið, er glóandi eldinum spýr. Hinn vesæli lýður, hin villta og sundraða hjðrð hún verður að hlusta. - Það bergmála himnar og jörð ... Ég kom til að berjast og kveikja hið andlega strtð. Ég kom til að hrópa og vekja hinn sofandi lýð. Ég kom til að sjá um, að illgresið felli ekkifræ, og flugumar geti ekki sogið hin eitruðu hræ... í skínandi elfiimi skfri og lauga ég þá, er skrifta og iðrast og frelsara mannkynsins þrá. Ég veit, að hann kemur ... Ég kom til að ryðja honum slóð. Ég kom til að vekja þig, skriftlærða Gyðingaþjóð. Jesús segir í textanum að Jóhannes sé meira en spámaður, já, jafnvel mestur allra þeirra sem af konu eru fæddir. Hann var logandi og skínandi lampi. Þér vilduð um stund gleðjast við ljós hans," sagði Jesús við lýð- inn. Jóh. 5,35. Jóhannes þurfti ekki að fara inn í bæi og borgir til að pré- dika. Fólkið kom til hans hvaðanæva úr landinu og hlust- aði á boðskap hans og fjöldinn allur iðraðist synda sinna og lét hann skíra sig í ánni Jórdan. Jóhannes sagðist vera sendur í heiminn til að ryðja braut fyrir Messías. Þegar Jesús nálgaðist staðinn þar sem Jóhannes var að skíra, bendir hann á Jesúm I Jóhannes þurfti ekki aÖfara inn i bi og borgir til aÖ prédika. FólkiÖ kom til hans hvaÖanva úr landinu og hlust- aÖi á boðskap hans." og segir: Sjá, Guðs lamb, sem ber synd heimsins ... Hann er sá sem skírir með heilögum anda." Jóh. 1,29. I fangelsinu var Jóhannes einn og yfirgefinn og margar spurningar vöknuðu hjá honum. Engir komu í heimsókn, nema lærisveinar hans af og til. Þó svo að Jóhannes væri mik- ilmenni, fóru efasemdir og órói að gera vart við sig. Hefur mér skjátlast? Er Jesús Messías sem koma átti samkvæmt ritningun- um? Efasemdir sækja líka á okkur þegar erfiðleikar og vonbrigði koma á veg okkar. Hvers vegna mæta þessir erfiðleikar mér? Er Jesús í raun og veru frelsarinn sem gefur eilíft líf? Hvað með Iífið eftir dauðann? o.s.frv. Tómas sagði forðum, þegar hinir lærisveinarnir sögðust hafa séð Drottin upprisinn: Sjái ég ekki naglaförin í höndum hans og geti sett fingur minn í nagla- förin og lagt hönd mína í síðu hans, mun ég alls ekki trúa." Viku seinna var Tómas viðstadd- ur þegar Jesús kom. Þá varð Tómasi að orði: Drottinn minn og Guð minn." Jesús segir við hann: Þú trúir, af því að þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó." Saga Jóhannesar skírara kennir okkur hvað skal gera ef efasemdir gera vart við sig. Hann losaði sig við einangrunina og sendi tvo af lærisveinum sínum til Jesú: Ert þú sá, sem koma skal, eða eigum við að vænta annars"? Hverju svarar Jesús?" Kunngerið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið." Það var nægjanlegt til að sann- færa Jóhannes, því spádómarnir voru að rætast fyrir augum þeirra. Svo segir. Verið hug- hraustir, óttist eigi! Sjá, hér er Guð yðar!... Hann kemur sjálf- ur og frelsar yður." Þá munu augu hinna blindu upp ljúkast og opnast eyru hinna daufu. Þá mun hinn halti létta sér sem hjörtur og tunga hins mállausa fagna lofsyngjandi. Jes. 35,35. Gleðiboðskapur Messíasar: Andi Drottins er yfir mér, af því Drotinn hefir smurt mig. Hann hefur sent mig til að flytja nauð- stöddum gleðilegan boðskap og til að græða þá, sem hafa sund- urmarið hjarta. Jes. 61,12. Þegar vantrú og efasemdir mæta okkur þurfum við líka að koma til Jesú og fá svör við spurningunum sem sækja á. Þegar við lifum í daglegu bæna- samfélagi við Jesúm ná vantrúin og efasemdirnar engum tökum á okkur. Jesús segir: Biðjið og yður mun gefast." Matt. 7,7. Hann óhreinn var og líkþrá þungri þjáður, hann þurfti að forðast menn og kvaldist einn, ogjafnan ormi járnhörð örlög gerði hann, en Jesús kom, og hann varð þegar hreinn. Menn, blinda og þjáða af saurugleik og Satan, er Sonur Guðs að frelsa um allan heim. Þeir ððlast sýn, og syndafjötrar rofha, er sjálfur Jesús fær að dvelja í þeim. KÓK ErJesús kemur, flýr hin skæða freisting. í fagran sigur ósigri hann snýr. Hann gerir tár að björtu sólskinsbrosi. Ailt breytist, þegar Jesús hjá oss býr. Oswald J. Smith «L FJARFESTINCARFELAGID UERÐBREFAMARKAÐURIMM Genqiðídaq 14. DESEMBER 1986 Markaösfréttir Veðskuldabréf - verötryggð Lánst. 2afb. áári 1ár 2ár 3ár 4ár 5ár 6ár 7ár 8ár 9ár 10 ár Nafn- vextir HLV 4% 4% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu 12% 95 91 90 88 85 83 81 79 78 76 14% 93 90 87 84 82 79 77 75 73 71 16% 92 88 85 82 78 76 73 71 68 66 Veðskuldabréf - óverðtr. Lánst. 1afb. áári 1 ár 2ár 3ár 4ár 5ár Sölugengi m/v. mism. nafnvexti 20% 89 81 74 67 62 HLV 84 72 63 56 50 15% 85 76 68 61 56 KJARABRÉF Gengi pr. 12/12 1986 = 1,805 Nafnverð 5.000 Söluverð 9.025 90.250 TEKJUBRÉF Gefðu fjölskyldunni kjarabréf - langtíma jólagjöf með góðri ávöxtun Gengi pr. 12/12 1986 = 1,090 Nafnverð 100.000 Söluverð 109.000 545.000 fjármál þín - sérgrein okkar Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7,101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn