26 MÖRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 NESlfe POBTHF HEILDVERSLUN ¦ AUSTURSTRÖND 1 SELTJARNARNESI SÍMAR62 11 90 ¦ 61 10 20 AVON í APÓTEKUM OG ÖLLUM BETRI SNYRTIVÖRUVERSLUNUM LANDSINS LEÐURSOFASETT OG STAKIR LEPURSOFAR Fjölbreytt úrval Gott verð \ó\a- setv dWP 0S0® MSTÖFN- Smtöjuvegi 6, Kópavogi símar 4S670 44544. IWatgttttJWaftift Metsölublað á hverjum degi! II Vopnasala Bandaríkjastjórnartil íran; Mánuður ólgu sívaxandi spennu RÚMUR mánuður er nú liðinn frá því uppvíst varð um vopnasendingar Bandaríkjastjórnar til íran. Flest er enn á huldu um viðskipti þessi en Ijóst þykir að málið er hið erfiðasta sem Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, hefur þurft að glíma við íforsetatíð sinni. Fréttir af vopnasölunni hafa borist víða að og fjölmörg ríki hafa verið bendluð við hana. I Bandaríkjunum hafa þingnefndir yfirheyrt ýmsa nánustu samstarfsmenn forsetans og ákveðið hef ur verið að skipa óháðan rannsóknardómara til að kanna máliðtil hlítar. Því er Ijóst að vopnasalan verður enn um sinn eitt helsta umfjöllunarefni fjölmiðla víða um heim. Bandaríska stórblaðið The New York Times birti nýlega grein þar sem þróun málsins er rakin dag frá degi og birtist hún hér í íslenskri þýðingu. Atburðarás síðustu daga er unnin úr fréttaskeytum AP og Reuters. 3. nóv. Líbanska tímaritið Al Shiraa skýrir frá þyí að Bandaríkjastjórn hafi sent írönum skotfæri og varahluti í skriðdreka og orustu- þotur í kjölfar leynilegrar ferðar Roberts C. McFarlane, fyrrum öryggisráðgjafa forsetans, til ír- an í septembermánuði. Tals- menn Bandaríkjastjórnar segja að vopn hafi ekki verið send til íran í skiptum fyrir bandaríska gísla í Líbanon. 4. nóv. Hojatolislam Hashemi Rafs- anjani, forseti íranska þingsins, segir að McFarlane og fjórir aðrir Bandaríkjamenn hafi kom- ið til íran í leynilegum erinda- gjörðum. 5. nóv. Talsmenn Reagans forseta staðfesta að Bandaríkjastjórn vinni ásamt stjórnum fleiri ríkja að því að fá gísla leysta úr haldi í Líbanon og vilja ekki taka fyrir að íran sé eitt þeirra ríkja. Ríkisútvarpið í ísrael skýrir frá því að ísraelar kunni að hafa flutt varahluti í bandarískan vopna- búnað til íran til þess að flýta fyrir lausn gíslamálsins. 6. nóv. Ónafngreindir starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) segja Bandaríkjastjórn hafa stundað leynilegar vopna- sendingar til íran undanfarna 18 mánuði í því skyni að fá gíslana leysta úr haldi. ísraelar eru sagðir hafa aðstoðað við flutn- ingana. Reagan forseti neitar að tjá sig um málið. 7. nóv. Bandarískir embættismenn segja Reagan forseta hafa sam- þykkt leynilega áætlun McFarla- Vopnasölunni mótmælt * Washington. nes um bætt samskipti við stjórnvöld í íran. Tilgangur henn; ar er sagður sá að binda endi á stuðning írana við hryðjuverka- menn og flýta fyrir lausn gísla- málsins. Embættismennirni'' segja að vopnasendingarnar hafi ekki verið liður í áætluninni en ísraelar hafi boðist til að annast flutninga á varahlutum og vopnum til íran. Ekki liggu'' fyrir hvort Reagan lagði blessun sína yfir vopnasendingarnar. 8. nóv. Þingmenn tilkynna að leyni- þjónustu- og utanríkismála- nefnd Bandaríkjaþings mun' rannsaka hvort stjórnin hafi far- \