32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 EWv Áskriftarsíminn er 83033 Eitur- skógurinn eftir Hammond Innes KOMIN er út hjá Iðunni tuttug- asta bók spennuhöfundarins, Hammond Innes í íslenskri þýð- ingu. Nefnist hún Eiturskógur- inn. I fréttatilkynningu frá útgefanda segir: Hér segir frá auðkýfíngnum Tom Halliday, sem hverfur spor- laust skömmu eftir að hann hefur látið breyta erfðaskrá sinni. Hann er óútreiknanlegur eins og aðrir eiturlyfjaneytendur, hefur hann kosið að hverfa sjálfur eða er hvarf hans af mannavöldum? Eiginkona hans og synir krefjast þess að hann finnist eða sé lýstur látinn svo að hægt sé að skipta arfinum. En við rannsókn málsins kemur ýmislegt óvænt og dularfullt í ljós og ýmsar spurningar vakna." Álfheiður Kjartansdóttir þýddi bókina. TAKN UM TRAUST TEKKAVIDSKIPTI Þegar þú greiðir meö tékka, fyrir vöru eöa veitta þjónustu, og sýnir Bankakortiö þitt, jafngildir þaö ábyrgðarskírteini frá viðskiptabankanum eöa spari- sjóðnum þínum, sem ábyrgist innstæðu tékkans að ákveðinni hámarksupphæð og tryggir þannig viðtakandanum innlausn hans. Viðskiptineiga sér þannig staö að um leið og þú afhendir tékkann, sýnirðu Bankakortið og viðtakandinn skráir númer kortsins á hann. Þannig er Bankakortið þitt tákn um trausta viðskiptahætti. Hafðu Bankakortið því ávallt handbært. Bankakortið - nauðsynlegt í nútímaviðskiptum Samvinnubankinn, Útvegsbankinn, Alþýðubankinn, Búnaðarbankinn, Landsbankinn, Verzlunarbankinn og Sparisjóðirnir. / IRABBANKh^ -H