MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 43 Framfærslu- vísitala hækk- arum0,91% VÍSITALA framfærslukostnaðar hækkaði um 0,91% í nóvember- mánuði, samkvæmt útreikningi kauplagsnefndar á verðlagi í byrjun desember samanborið við verðlag í byrjun nóvember á þessu ári. Vísitalan reyndist vera 180,85 stig. Af þessari 0,91% hækkun stafa um 0,5% af hækkun á verði mat- vöru, 0,1% af hækkun á verði fatnaðar, 0,1% af hækkun hús- næðis og um 0,2% af hækkun á verði ýmissa vöru- og þjónustuliða. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 13,5%. Hækkun vísi- tölunnar um 0,91% á einum mánuði svarartil 11,5% árshækkunar. Und- anfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 3,4% og jafngildir sú hækkun 14,4% verðbólgu á heilu ári. Guðfræði- stofnun af - hent minn- ingargjöf ÞANN 4. desember sl. færði Gísli Sigurbjörnsson, f orstjóri EUi- og hjúkrunarheimilisins Grundar, Guðfræðistofnun Háskóla ís- lands að gjöf eitt hundrað þúsund krónur frá Stofnenda- sjóði Grundar. Gjöfin er gefin til minningar um frú Sigríði Eiríksdóttur, hjúkrunar- konu, f. 16.6. 1894, d. 23.3. 1986, og Sigurð Sigurðsson, landlækni, f. 2.5. 1903, d. 5.4. 1986. í gjafabréfi segir: Er þessara forystumanna íslenskra líknar- og heilbrigðismála minnst með virð- ingu og þakklæti. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund á þeim margt að þakka sem og íslenska þjóðin." Starfssjóður Guðfræðistofnunar var stofnaður árið 1982 með rausn- arlegri gjöf frá stjórn Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, en á því ári átti Grund 60 ára starfsaf- mæli. Síðan hafa Guðfræðistofnun borist fleiri veglegar minningar- og heiðursgjafir frá sama aðila og eru gefanda færðar hugheilar þakkir og nöfn þeirra blessuð, sem minnst er og heiðruð eru. Háskóli íslands annast varðveislu starfssjóðs Guðfræðistofnunar. Gjörð hefur verið vönduð gjafabók, þar sem minningar- og heiðurs- gjafir eru skráðar. (Fréttatilkynning.) Höfóar til .fólksíöllum starfsgreinum! HERRAFOT SEM TEKIÐ ER EFTIR ***# Þyí ekki að m pess besía Bankastræti 7, sími 29122.