Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 283. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						58

MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986

JOLADRYKHR

Sá siður er orðinn algengur

hér á landi að bjóða upp á jóla-

glögg í desember. Þessi siður

mun vera kominn frá Svíum, en

er mjög algengur á hinum Norð-

urlöndunum, og að sjálfsögðu

er hann kominn til Norðurlanda

fjær, svo sem íslands. Hvort

þessi siður er heppilegur eða

ekki, skal ósagt látið, en eitt er

víst að hann er mjög vinsæll.

Fyrirtæki bjóða upp á jólaglögg,

skólar halda hátíð með jóla-

glöggi, klúbbar hafa jólaglögg

o.s.frv. Þetta er vfirleitt mjög

ljúfur drykkur og því mikið

drukkið af honum, og þótt hann

sé yfirleitt ekki, mjög áfengur,

er þó áfengismagn yfirleitt það

mikið, að menn verða að gæta

sín, en því miður e'ru sumir órag-

ir við að keyra bílinn heim á

eftir. Raunar skil ég ekki hvers

vegna þessi drykkur þarf endi-

lega að vera áfengur. Hægt er

að bjóða upp á heitan óáfengan

drykk í staðinn, enda eru þeir

alltaf nokkrir sem ættu að láta

sér hann nægja, auk þess sem

börnin vilja gjarnan vera með.

Þessi heiti, kryddaði drykkur,

jafnt áfengur sem óáfengur er

hressandi á köldum vetrardegi,

og gaman að bjóða hann með

smákökum, hnetum og rúsínum

í skál eða þá eplaskffum eins

og Danir gera. En ekki eiga all-

ir eplaskífupönnu, og er gott að

hafa góðar þykkar lummur með

þessum drykk, en þær ættu all-

ir að geta bakað.

Ekki er nauðsynlegt að nota

dýrustu tegundir af víni í jóla-

glögg. Það er kryddað og þvf

þarf bragðið ekki að vera eins

fínt og ef vínið er drukkið hreint.

f Þýskalandi er búið til dýrt

og fínt vín úr vínberjum, sem

eru uppskorin frosin, en þannig

eru þau pressuð í flýti og aðeins

verða eftir frosnir vatnskristall-

ar, og himnan utan af berjunum.

Aftur á móti verða eftir sæt

efni, sýrur og safar í fljótandi

formi, og það er einmitt það sem

er svo eftirsóknarvert. Vínberin

eru látin hanga á trjánum og

bíða frosts, og ef vínbændur eru

svo heppnir að frostið kemur á

jóianótt, er það dýrasta vínið

sem þá fæst. Þetta vín er kallað

isvín, og það vín sem pressað

er á jólanótt nefnist einfaldlega

Jólanóttarísvín eða Kristsvín í

Þýskalandi. Nóg um það. Það

að lyfta glasi og bjóða gleðileg

jól er ekki alveg nýr siður. Hann

var stundum meðal víkinga, sem

við miðsvetrarhátíð drukku

Jólaskál" og óskuðu hver öðrum

árs og friðar.

Jólaglögg

1 magnum (IV2 lítri) rauðvín

1  flaska (3 pelar) portvín

2  dl kláravín

2 kanilstengur

5 heilar kardimommur

7 negulnaglar

100 g molasykur

100 g rúsínur

50 g möndlur

rifinn börkur af 1 appelsínu

1.  Setjið kláravinið í krukku

með loki. Setjið kanilstöng,

kornin innan úr kardimommun-

um og negulnagla út í og látið

standa þannig yfir nótt.

2.  Setjið Va hluta portvínsins

í aðra krukku með loki. Setjið

rúsínurnar út í og látið standa

yfir nótt.

3.   Hellið rauðvíninu í pott

ásamt molasykri. Hitið vel, en

Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR

Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON

látið ekki sjóða. Hrærið í þar til

sykurinn er bráðnaður.

4.   Hellið brennivíninu út í

gegnum sigti, en takið kryddið

úr og setjið í grisju, bindið fyrir

og setjið út í pottinn. Látið þetta

vera við ísnarpan hita í 20

mínútur.

5.    Setjið portvfnið ásamt

rúsínunum út í, einnig það

portvín sem þið skilduð eftir.

Látið vera áfram við fsharpan

hita í 10 mínútur. Takið krydd-

pokann út og fleygið.

6.    Ilellið sjóðandi vatni á

möndlurnar. Látið standa f 10

mínútur. Afhýðið þær sfðan og

skerið langsum í stórar ræmur.

7. Hellið glögginu í púnsskál,

stráið rifnum appelsínuberki yfir

ásamt möndlum og berið fram.

Athugið: Hægt er að sleppa

kláravíninu, en setja þá kryddið

í grisjunni beint út í heitt rauð-

vínið og hita með því. Þetta

glögg er þræláfengt og er ekki

ætlast til að það sé þambað.

Raunar á aldrei að drekka mikið

af glöggi.

Jólagl ögg fyrir börn

1. dós „Lindavia" rifssafi (Jo-

hannisbeere)

1 dós „Lindavia" eplasafi (Apfel-

saft)

2  msk. hunang

10 mýrarber (Cranberries) fást

fersk eða frosin

1 kanilstöng

5 negulnaglar

V2 dl rúsfnur

1 flaska 7-up (millistærð)

1 appelsínaíörþunnumsneiðum

1.  Setjið rifssafa, eplasafa og

hunang í pott.

2. Brjótið kanilstöngina, setjið

hana ásamt negulnöglum f

grisju og stingið ofan í safann.

3.   Setjið mýrarberin saman

við. Látið sjóða við hægan hita

í 10—15 mínútur. Setjið rúsínur

út í þegar tíminn er hálfnaður.

Látið sjóða upp.

4. Takið kryddpokann upp úr

og fleygið, en hellið hinu í skál.

5.  Setjið 7-up út í.

6.   Skerið appelsínuna í ör-

þunnar sneiðar, hendið enda-

sneiðunum. Setjið sneiðarnar

ofan á skálina og berið fram.

Athugið: Hægt er að nota

annan eplasafa og einnig má

nota krækiberjasafa í stað rifs-

safans. Yfirleitt er ekki sett gos

út í glögg, en börnum finnst það

betra, auk þess kælir það drykk-

inn, en börn vilja ekki drekka

mjög heita drykki.

Næstu 2 drykkir eru úr nýút-

kominni bók minni „220

gómsætir ávaxta- og berjarétt-

ir".

Ananasdrykkur

(óáfengur)

10 glös

1 hálfdós kurlaður ananas

1  msk.  kókosrjómi (cream of

coconut) fæst víða í krukkum

1  biti sultaður engifer eða 4

bitar sykraður. Sultaður engifer

(stem ginger) fæst í matvöru-

verslunum en sykraður í hnetu-

búðum.

1 sftróna út í drykkinn

4 flöskur engiferöl (ginger ale)

1 sftróna f sneiðum til að setja

á barm glasanna

nokkrir ísmolar.

1.  Notið blandara, en ef þið

eigið hann ekki, er hægt að

nota hrærivél.

2.  Opnið dósina, hellið inni-

haldi hennar f blandara.

3.  Afhýðið sítrónuna, þannig

að hvíta himnan fari af. Skerið

síðan aldinkjötið upp úr laufun-

um með hnífi. Setjið saman við

ananasinn.

4.  Saxið engiferinn smátt og

setjið saman við ávextina. Setjið

kókosrjóma út í og hrærið vel

saman.

5.  Setjið ísmolana í stykki og

sláið á með kjðthamri þannig

að ísinn myljist smátt. Setjið

síðan ísinn f blandarann.

6.   Setjið engiferöl út í og

hrærið saman.

7.  Hellið strax í glös, skerið

sftrónuna í sneiðar, skerið síðan

rauf í sneiðarnar og smeygið

upp á glasbarminn.

8.  Setjið teskeið í hvert glas

og berið fram.

Appelsinu/kaffi-

drykkur (áfengur)

10 bollar

1 stór appelsfna

15 g smjör (1 smástykki)

V* dl strásykur (45 g)

1 peli appelsínulíkjör

1 peli brandy

1 lítri sterkt heitt kaffi

1 peli riómi

1.  Afhýðið appelsfnuna mjög

þunnt f hring, þannig að mjóir

vafningar myndist úr berkinum.

Kreistið síðan appelsínuna.

2.  Bræðið smjör ásamt sykri,

gætið þess að það brenni ekki.

3.  Hellið appelsfnusafa, líkjör

og brandý út í pottinn og hitið

að suðu.

4.  Hitið sterkt kaffi, hellið út

í pottinn. Hellið sfðan drykknum

í púnsbolla eða venjulega kaffi-

bolla.

5.  Þeytið rjómann og skiptið

ofan á bollana.

6.  Setjið vafning úr berkinum

ofan á drykkinn, og látið lafa

út yfir barminn.

7.  Berið strax fram.

BORNIN VEUA

pkiymobil

TOmSTUHDrlHUSIÐ HP

Leugouegi ISI-Reykiauil: s-21901

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
44-45
44-45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88