MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 67 Brids Hann stóð á einni löpp á sætinu og teygði hina aftur fyrir sig. Ég sagði þrjú orð í viðbót við áhættu- manninn: Þú ert rekinn." Ofbeldi er annað sem Newman þolir ekki. Sally Field minnist þess að á meðan á tökum Absence of Malice stóð átti hann í miklum erfið- leikum þegar hann átti að slá hana niður og rífa blússuna hennar. Hann reyndi alltaf að svindla á því." Newman tekur ekki til mála að leika í kvikmynd sem inniheldur það sem hann kallar hugsunarlaust ofbeldi og hafnaði meira að segja aðalhlutverkinu í hinni vinsælu æf- intýra-gamanmynd, Romancing the Stone (Æfintýrasteinninn). En hann er mikið fyrir hverskyns glens og gamanmál. Einu sinni lét hann saga skrifborð George Roy Hills í tvennt og á meðan á tökum myndarinnar Buffalo /Bill and the Indians (Buffalo Bill og indjánarnir) stóð lét hann dýfa hreindýraskinns- hönskum leikstjórans, Robert Altmans, í eggjahræru og brauð- rasp og setja á borð fyrir Altman í hádegismatnum. Af fáu hefur þó Newman meira gaman en því þegar fólk segir hon- um að það kunni ekki við leik hans eða pólitík en því þyki maturinn hans góður. Hann hefur grætt níu milljón dollara á m.a. salatsósu, sem hann á heiðurinn að og er framleidd undir heitinu Newman's Own, ásamt öðru góðgæti en meðeigandi hans í fyrirtækinu er rithöfundurinn A.E. Hotcher. Allur ágóði rennur til líknarstarfa. Hann lét ramma inn bréf sem hann fékk sent frá Mich- ael Sullivan í Rancho Cordova í Kaliforníu, sem hrósar honum fyrir Newman's Own spagettísósuna. Kærastan mín minntist á að þú værir kvikmyndastjarna," stóð í bréfinu, og ég hefði áhuga á að vita hvað þú hefur Ieikið. Ef þú leikur eins vel og þú kokkar ætti að vera þess virði að sjá myndirnar þínar." Svo stóð E.S.: Eru ein- hverjar af myndum þínum til á myndböndum?" Newman hefur unun af að Ur Gildrunni (The Sting). skemmta sér," segir Redford og minnist þess hvað hann er fljótur að rjúka úr einu í annað. Hann hefur ámóta þolinmæði og elding." í iðnaði sem er sífelldum breyt- ingum og duttlungum undirorpinn hefur Newman haldið stöðu sinni sem stórstjarna í þrjá áratugi. En það er aðeins núna sem honum finnst hann vera upp á sitt besta og vill að litið verði á sig sem leik- ara en ekki kvikmyndastjörnu. Honum fmnst óþægilegt að fást við frægðina. Vinur hans Hotcher minnist þess að á góðgerðarsam- komu í Westport þar sem Newman var að útdeila púnsi hafi einn styrktarmeðlimurinn beðið hann að hræra í glasinu sínu með puttanum. Með ánægju," sagði Ieikarinn, en ég var að taka hann úr blásýru- flösku rétt í þessu." Prægð Newmans á ýmislegt sameiginlegt með þeirri athygli sem Hollywood-stjörnur fjórða áratug- arins nutu. Kannski saga vinar hans, rithöfundarins Gore Vidal, lýsi því best. Hann fór í ferðalag til Gobieyðimerkurinnar í Mongólíu fyrir tveimur árum að safna efni í skrif sín. KGB-maður frá utanrík- isráðuneytinu, sem fylgdist með mér, spurði hvort hann mætti tala við mig í einrúmi því hann hafði svolítið mjög sérstakt að tala um," segir Vidal. Þegar við vorum orðn- ir einir, hvíslaði hann: Hversu hár er Paul Newman virkilega?" Þessi óskaplega frægð hefur áhrif á allt í kringum Newman, persónuleika hans, lífsstíl, vinskap og fjölskyldutengsl. Stundum finnst manni þetta ömuriegt," segir Susan, elsta dóttir hans, en hún er 33 ára og ein af fimm dætrum leik- arans. Hvenær sem er getur það komið fyrir, kannski þegar maður hefur ekki séð gamla manninn í ár, að maður ætlar að reyna að segja honum eitthvað sem skiptir máli en þá hefur fólk hópast um hann hróp- andi: Paul, Paul," skrifaðu hér. Og ef hann gefur ekki eiginhand- aráritun er hrópað: Mig langar aldrei til að sjá neina mynd með þér aftur." Hann er næstum alltaf kurteis meira að segja þegar mjög er þrengt að honum eins og kvöld eitt síðasta sumar í Fond du Lac í Wisconsin. Hann var að fá sér drykk fyrir svefninn á hótelbarnum með félög- um sínum úr kappakstrinum. Á skömmum tíma birtust hundruð manns á barnum og allt í kringum Með Helen Shaver og leiksrjóranum Scor- sese við tökur á Peningalitnum. hann. Flassljós sprungu og fólkið kallaði til Newmans að líta vel út fyrir myndavélina".' Þetta var sena sem minnti á mynd meistara Hitch- cocks, Fuglarnir. Kona í svörtum kvöldkjól braust í gegnum mann- þröngina og kraup við stól Newmans. Hæ, Paul," sagði hún og lagði glasið sitt við glasið hans. Segðu mér hvernig gekk í kapp- akstrinum í dag." Hann sagði henni það ljúfmannlegur að hlutirnir hefðu gengið vel fyrir sig en að hann þyrfti nú að fara upp í her- bergið sitt að sofa. Þegar hann stóð upp og fór, skellti konan sér í stól- inn hans, snéri sér að vinum hans og spurði: Er hann alltaf svona ókurteis?" Það, sem er verst við þessa ímynd kyntáknsins, er að það eru rithöfundar sem skapa þessar kyn- þokkafullu, glæsilegu og aðgangs- hörðu persónur sem má vera að hafi ekkert að gera með hvernig þú ert sjálfur. Þú ert ekki alltaf með Tennesse Williams með þér til að skrifa fyrir þig glæsilegar setn- ingar." Honum finnst að með árunum hafi línurnar á milli hlutverka hans og persónuleika tekið að óskýrast. Það kemur að því að auðveldara er að leika rullu sem fólk þekkir og er viðurkennd á tjaldinu en að leika sjálfan sig . . . Þú átt svo mikið í hlutverkunum sem þú leik- ur. Stundum verðurðu að stoppa og hugsa hvort þú ert að leika sjálf- an þig eða einhvern annan. Vildi hinn raunverulegi Dustin Hoffman gjöra svo vel og standa upp? Hvar er Jack Nicholson? Hvar er Marlon Brando? Ég hef ekki hugmynd um hverjir þessir náungar eru í raun- inni. Veist þú það?" En hvernig náungi er svo New- man. Kannski saga sem hann sagði blaðamanni The New York Times varpi nokkru ljósi á það. Nýlega var leikarinn á labbi eftir Fimmtu götu þegar hann sá hvítklædda konu, sem vakti talsverða athygli vegfarenda. Virkilega glæsileg. Menn snéru sig úr hálslið til að sjá betur." Augu þeirra mættust andar- tak og Newman gekk áfram út að Lexington-götu og nam staðar við glugga að forngripaverslun. Það snart einhver öxlina á honum. Það var hvítklædda konan. Hún skýrði honum frá því að hún væri gleði- kona en fyrir hann þyrfti það ekkert að kosta. Hún beið eftir svari. Og beið svolítið meira. Leikarinn, sem þekktur er fyrir hvað hann er kaldur og rósamur, blóðroðnaði af feimni. Maður hugsar um hvernig maður mundi leika eitthvað eins og þetta. Helst vildi maður segja eitthvað sniðugt og töfrandi við hana, eitthvað eins og Cary Grant eða Clint Eastwood myndu segja. Hvernig ætli Hombre mundi snúa sér í þessu, hugsar maður. Og hvað ætli hafi gerst þegar þessi kona kom upp að mér manninum sem lék Hud? Það varð algjört Laurel og Hardy- númer. Það eina sem ég gat gert var að tvístíga í ofboði og hlykkjast eins og ormur á öngli." (Unnið úr The New York Times.) ai. Arnór Ragnarsson Bridsdeild Húnvetn- ing-afélagsins Hjá deildinni stendur yfir tveggja kvölda einmenningur og er spilað á sömu spil í tveimur 16 manna riðl- um. A-riðill: Guðmundur Magnússon 253 Kristín Jónsdóttir 239 Guðni Skúlason 239 B-riðill: Lárus Pétursson , 264 Kári Siguijónsson 259 Jean Jensen 238 Meðalskor 210 Keppninni lýkur á miðvikudag- inn. Spilað er í Félagsheimili Húnvetningafélagsins kl. 19.30. Aðalsveitakeppnin hefst 7. jan- úar 1987. Bridsdeild Breiðfirð- ingafélag-sins Að loknum 14 umferðum af 19 í aðalsveitakeppni félagsins er staða efstu sveita þannig: Sveit Matthíasar Þorvaldssonar 279x Sveit Hans Nielsens 278 " Sveit Ingibjargar Halldórsdóttur 270 Sveit Birgis Sigurðssonar 268 Sveit Gísla Víglundssonar 249 Sveit Sigmars Jónssonar 235 Sveit Arnar Scheving 233 Sveit Jóhanns Jóhannssonar 231 Sveit Elísar Helgasonar 227 Sveit Magnúsar Halldórssonar 216 Athygli spilara er vakin á því að næsta fimmtudagskvöld verður spilaður eins kvölds jólatvímenning- ur. Spilamennska hefst kl. 19.30. Bridsfélag Hafnarfjarðar Sl. mánudag fengu félagar í BH að reyna sig við valkyrjurnar úr Bridsfélagi kvenna og var viður- eignin háða alls 10 borðum. Skemmst er frá að segja að barátt- an um impana varð bæði löng og ströng en úrslit urðu á eftirfarandi vegu: (Gestirnir taldir á undan.) Borð: 1. Gunnþórunn Erlingsdóttir Ólafur Gíslason 10-20 2. Alda Hansen Kristófer Magnússon 1020 3. Aldís Schram Kristján Hauksson 1317 4. Guðrún Halldórsdóttir Eria Sigurjónsdóttir 1218 5. Ester Jakobsdóttir Sigurður Lárusson 1317 6. Sigrún Pétursdóttir ÓlafurTorfason 921 7. Lovísa Eyþórsdóttir Einar Sigurðsson 1218 8. Ólafía Þórðardóttir Þórarinn Sófusson 723 9.^ Elín Jóhannsdóttir Árni Hálfdánarson 1317 10. Halla Ólafsdóttir - Karl Bjarnason 1515 Þó svo að BH ynni sigur á flest- um borðum, voru úrslit mjög tvísýn og réðust í flestum leikjunum ekki fyrr en á síðustu spilunum. Stjórn BH vill þakka kvenfólkinu heim- sóknina og er þegar hafin vinna við uppstillingu sveita fyrir næsta ár. Nk. mánudag eru 9. og 10. um- férðirnar í sveitakeppninni á spila- áætlun og sennilegast ráðast úrslitin í keppninni það kvöldið. BH jólastórmót Jólastórmót BH í tilefni af 40 ára afmæli félagsins og með stuðn- ingi Sparisjóðs Hafnarfjarðar verður haldið í Flensborg þann 27. desember nk. Spilaður verður tölvuvæddur Mitchell og hefst spilamennskan kl. 13.00 og lýkur kl. 17.30. Þrenn verðlaun verða veitt í hvora átt, alls að upphæð 62 þúsund krónur. Spilagjald er 1.000 krónur á par- ið og þátttöku á að tilkynna til Ingvars í s. 50189 og Kristjáns í s. 50275. Vissara er að vera tímanlega í því að tilkynna þátttöku, en tekið er við skráningum allt til upphafs keppninnar, þ.e.a.s. á meðan hús- rúm leyfir. Úrslit í Reykjavíkur- mótinu í tvímenningi Urslit í Reykjavíkurmótinu í tvímenningi 1986 verða spiluð í Hreyfils-húsinu v/Grensásveg um þessa helgi. Spilamennska hefst ki. 13 á laugardag og á ný kl. 10 árdeg- is á sunnudag. Alls keppa 20 pör ^ til úrslita og verða spiluð 95 spil, eftir barometer-fyrirkomulagi, allir v/alla. Eftirtalin 20 pör keppa til úrslita (töfluröð): 1. Gissur Ingólfsson Gísli Steingjímsson. 2. Anton R. Gunnarsson Friðjón Þórhallsson. 3. ísak örn Sigurðsson Ragnar Hermannsson. 4. Magnús Ólafsson Páll Valdimarsson. 5. Karl Logason Svavar Björnsson. 6. Aðalsteinn Jörgensen Ásgeir P; Ásbjömsson. 7. Þorlákur Jónsson Þórarinn Sigþórsson 8. Björn Eysteinsson Guðm. Sv. Hermannsson. 9. Jón Baldursson Sigurður Sverrisson. 10. Ragnar Magnússon Valgarð Blöndal. 11. Steingrímur Steingi'ímsson Örn Scheving. 12. Guðlaugur R. Jóhannsson Örn Arnþórsson. 13. Hrólfur Hjaltason Oddur Hjaltason. 14. Jón I. Björnsson Kristján Lilliendahl. 15. Hermann Lárusson Ólafur Lárusson. 16. Ingvar Hauksson Sverrir Kristinsson. 17. Jakob R. Möller Stefán Guðjohnsen. 18. Hörður Arnþórsson Jón Hjaltason. 19. Guðmundur Páll Arnarson Símon Símonarson. 20. Jónas P. Erlingsson Kristján Blöndal. Varapör eru: Ásmundur Pálsson Jón Asbjörnsson og Jón Páll Sig- urjónsson og Sigfús Örn Árnason. Bridssamband Reykjavíkur Skráning í Reykjavíkurmótið í sveitakeppni, sem jafnframt er úr- tökumót fyrir íslandsmótið í sveita- keppni 1987, er hafin. Hægt er að skrá sveitir hjá öllum félögunum í Reykjavík (sem aðild eiga að BSÍ) fram til jóla, en yfir nýárið og fram til mánudagsins 5. janúar er hægt að skrá sveitir beint til Ólafs Lárus- sonar (á skrifstofu BSÍ eða heima). Reykjavíkurmótið í sveitakeppni hefst svo miðvikudaginn 7. janúar, væntanlega í Sigtúni 9 (nýja hús- næðinu). Spiladagar mótsins verða þessir: Miðvikudagur 7. janúar, fimmtudagur 8. janúar, miðviku- dagur 14. janúar, laugardagur 17. janúar, sunnudagur 18. janúar, þriðjudagur 20. janúar, laugardag- ur 24. janúar, sunnudagur 25. janúar, laugardagur 31. janúar og sunnudagur 1. febrúar. Þetta eru alls 10 spiladagar, en óvíst er hvort þörf er fyrir þá alla (miðast við þátttöku hverju sinni). Fyrirkomulag verður með sama sniði og sl. ár, þ.e. allir v/alla 16 spila leikir í undanrásum og 6 efstu í úrslit. Þær sveitir sem komast í úrslit, taka með sér stigin í inn- byrðis viðureignum og gilda þau sem fyrri hálfleikur í úrslitum, þannig að í úrslitum spila sveitirnar 16 spil til viðbótar, allir v/alla. 13 efstu sveitirnar komast síðan á íslandsmót, sem er óvenju stór kvóti" fyrir Reykjavík. Það þýðir að möguleikar spilara á að komast í íslandsmótið að þessu sinni, eru mjög góðir. Keppnisgjaldi verður stillt mjög í hóf. Spilað er um silfur- stig. Itrekað er, að þátttaka er öllu spilaáhugafólki opin. Bikarkeppni Bridssambands Reykjavíkur hefst einnig i janúar. Þar verður ca. mánuður milli leikja í hverri umferð. Þetta er ný keppni sem er að fara af stað. Keppnis- gjald aðeins kr. 3.200 pr. sveit og spilað um afar góð verðlaun, auk silfurstiga.