Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 283. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986

81

|

|

- Fá leikrit komast óbijá-

luðyfirá bíóijaldið, en

Mike Nochols tókst að

gera „Hver er hræddur

við Virginíu Woolf?"eft-

ir Edward Albee að

eftirminnilegri kvik-

mynd. Elizabeth Taylor

og Richard Burton voru

í aðalhlutverkum.

William Mastrosimone, höfundur

leikritsins „Extremities", telur að

áhrifamenn innan Hollywood séu

að snúa sér aftur að leikritum þar

sem þeir heyri loks tómahljóðið í

myndunum sem þeir hafa gert; enn-

fremur að þeir viðurkenni loks að

leikrit er byggt á persónum en ekki

hraðri atburðarás eins og filman.

„Extremities" var kvikmyndað ný-

lega af Robert Young með Farrah

Fawcett í aðalhlutverki, en hún vex

sem leikkona með hverri mynd.

Mastrosimone heldur afram: „Þeir

sem skrifa handrit fyrir kvikmyndir

hugsa meira um atburði heldur en

persónur, þeir halda að persónur séu

vélmenni sem megi skjóta inn í

hvaða absúrd-sögu sem er. Þessir

menn fara aftan að hlutunum. Leik-

ritahöfundar hugsa ekki þannig.

Hollywood er loks að átta sig.

*

irj'-

Verðug" verkefni fyrir

mikla leikara

Ein veigamesta ástæðan fyrir

óvæntum áhuga áhrifamanna í

Hollywood fyrir leikritum er sú að

stjörnurnar svokölluðu, frægu leik-

ararnir, sjá mikla möguleika fyrir

sjálfa sig í þessum sviðsverkum.

Þeir eru metnaðarfullir sumir hverj-

ir og vilja takast á við bitastæð

verkefni. Það var ekki fyrr en Sissy

Spacek sá „nótt, móðir" á Broadway

að það kom til greina fyrir kvik-

mynd. Spacek sagði umboðsmanni

sínurn að hún hefði áhuga á að leika

dótturina; stuttu síðar var kvik-

myndarétturinn keyptur.

„Leikrit fjallar um fólk, flóknar

persónur, manneskjur sem iða af

lífi og því sækjast stjörnurnar eftir

leikritum," segir Marsha Norman,

sú sem samdi „nótt, móðir". Hún

telur að venjulegar kvikmyndir veiti

stjörnunum ekki þessi nauðsynlegu

hlutverk.

Leikritahöfundurinn Lanford Wil-

son bendir á að flestir kvikmynda-

leikarar séu um það bil sautján ára

og því sé ekki úr miklu að moða

fyrir gamlingjana, sem komast á

elliheimili um þrítugt. Það verði að

veita reyndu leikurunum efni við

þeirra hæfí.

Dustin Hoffman fylltist skelfingu

þegar hann sá hvað kvikmynda-

handritin voru farin að þynnast.

Hann hvíldi sig á bíómyndum eftir

„Tootsie" en sneri sér að leikhúsinu,

dustaði rykið af „Sölumaður deyr",

fjörutíu ára gömlu snilldarverki eft-

ir Arthur Miller og filmaði það síðan

fyrir sjónvarp undir handleiðslu

þýska leikstjórans Volker Schlönd-

orff. Það var 1984 og þykir

kvikmyndaútgáfan stórmerkileg

enda nutu Hoffman og Schlöndorff

ómetanlegrar aðstoðar höfundarins

sjálfs.

Dustin Hoffman segir: „Ég gerð-

ist leikari ungur maður til að komast

á Broadway. Ég gekk í leiklistar-

skóla og við bekkjafélagarnir

stúderuðum mörg góð leikrit, völd-

um sérstakar senur við okkar hæfi,

en við fengum aldrei að leika þau

opinberlega. Ég gafst upp og sneri

mér að kvikmyndaleik. En þar með

lagði ég til hliðar gnótt snilldarverka

sem kvikmyndaleikarar hunsa ger-

samlega. Ég kom því á fornar slóðir

þegar ég byrjaði að leika Wolly

Loman á sviði."

Betri ímynd

Það skiptir miklu máli að frægir

leikarar sýni leikritum áhuga, því

þá er auðveldara að fjármagna kvik-

myndina. Sumar „stórstjörnurnar"

sætta sig jafnvel við lægra kaup en

venjulega svo kvikmyndun leikrits

geti orðið að veruleika. Venjuleg

bíómynd í Bandaríkjunum kostar

nú orðið 15 milljónir dala. Margar

myndir kosta miklu meira, en þá

eru það myndir sem höfða til stórs

hóps. „A Soldier's Story" kostaði

ekki nema 6 milljónir dala, „Ama-

deus" kostaði 18 og „A Passage

To India" 16, og þykir það afrek

út af fyrir sig.

Leikritahöfundar fá misjafnlega

mikið borgað fyrir kvikmyndarétt-

inn að verkum sínum. Beth Henley

fékk 1 milljón dala fyrir „Crimes

of the Heart", en sú mynd þykir

líkleg til vinsælda þar sem fjórir

frægir leikarar taka þátt í gerð

hennan Diane Keaton, Sissy Spac-

ek, Jessica Lange og Sam Shepard.

Mark Medoff fékk 1,4 milljónir dala

fyrir „Children of a Lesser God",

enda naut það gífurlegra vinsælda

á Broadway. Aðrir verða að sætta

sig við miklu lægri upphæðir, mega

jafnvel þakka fyrir að einhver sýni

verkum þeirra áhuga án þess að

borga krónu.

En hvað fær fégíruga kvik-

myndaframleiðendur til að taka þá

áhættu sem alltaf fylgir því að gera

kvikmynd eftir leikriti, sérstaklega

þegar ekki eru mjög miklar líkur á

að myndin nái til fjöldans? Svarið

er einfalt; þessir menn eru að reisa

sjálfum sér bautasteina. Menaham

Golan og Yoram Globus hjá Cann-

on, sem gerir aðallega harðsoðnar

hasarmyndir, létu filma þrjú leikrit,

„That Championship Season", „Fool

For Love", og „Duet for One", til

að bæta ímynd sína. Dino De Laur-

entiis lét filma „Crimes of the

Heart" til að geta selt eitthvað ann-

að og meira en „King Kong". Aaron

Spelling lét filma „nótt, móðir" með

Sissy Spacek og Anne Bancroft svo

að nafn hans tengdist ekki aðeins

sjónvarpsfroðu á borð við Miami

Vice og Dynasty, framhaldsþáttun-

um sem hafa gert hann ríkan.

Sitthvað leikrit

og kvikmynd

En það er ekki nóg að selja kvik-

myndaréttinnn og brosa framan í

heiminn. Það er ekki víst að leikrit,

hversu gott og merkilegt það er á

sviði, komist óbrjálað yfir á filmuna,

frekar en að sum stórbrotin skáld-

verk heimsbókmenntanna komast

heilu og höldnu yfir í annað tungu-

mál. (Er hægt að snúa Ulysses eftir

Joyce yfir á íslensku án þess að

nokkuð breytist?) Við höfum mörg

dæmi um leikrit sem hafa greinilega

verið sundurtætt til að falla að kröf-

um kvikmyndarinnar, ekki aðeins

kröfum myndavélarinnar heldur

einnig smekk þeirra sem myndina

gera. Mörg mikilvæg atriði í „Purp-

uralitnum" eftir Alice Walker voru

strikuð út þegar Spielberg gerði

myndina. Og ég leyfi mér að efast

um að hægt sé að kvikmynda hug-

lægni í skáldverkum eins og í

„TöfrafjaUinu" eftir Mann eða

„Gatsby mikla" eftir Fitzgerald.

Nashyrningarnir eftir Ionesco var

filmað fyrir nokkrum árum með

miður góðum árangri, einfaldlega

vegna þess að verkið var samið fyr-

ir svið en ekki filmuua. Þeim, sem

skrifa kvikmyndahandrit, eru kennd

ákveðin vinnubrögð sem samrýmast

ekki vinnubrögðum leikritahöfund-

arins. Regla númer eitt hjá þeim sem

skrifa kvikmyndahandrit er að hafa

allt nógu einfalt svo jafnvel pela-

börn skilji söguna, myndin má helst

ekki vera lengri en 100 mínútur svo

myndin geti verið sýnd fimm sinnum

á dag, og fleira í þeim dúr. Þannig

hugsa ekki sönn skáld. Leikrit

byggja á persónum og samtölum,

kvikmyndin á hinu myndræna.

Þetta kom berlega í ljós þegar

„nótt, móðir" var endurskrifuð fyrir

kvikmynd. Maðurinn sem fenginn

var til að skrifa kvikmyndahandritið

skildi ekki byggingu verksins og

honum fannst endriinn alltof dapur

fyrir bíómynd. Svo að hann vildi

láta dótturina lifa. Það skipti hann

engu þótt verkið hefði fengið Pulitz-

er-verðlaunin. Annað dæmi er þegar

„Crimes of the Heart" var endur-

skrifað fyrir kvikmyndina. Textinn

var svo rafmagnaðar að bíófólkið

áttaði sig ekki á að verkið var drep-

fyndið. Þeim fannst það óskiljan-

legt.

HJÓ

JBHPaF       ¦•^!g,W*'.[:¦¦;: ¦.hHBIW^     :™P

„Frelsi til sölu" hefur verið

lofad af gagnrýnendum og

hvarvetna fengið stórkostleg-

ar viðtökur.

LYSTISNEKKJAN GLORIA

(KASSETTA + BÓK)

Ljóðasnælda no. 2 er komin út.

Á þessari snældu lesa skáldin Anton Helgi Jónsson, Björk

Guðmundsdóttir, Sjón, Einar Már Guðmundsson, Geir-

laugur Magnússon, Steinþór Stefánsson og Þór Eldon úr

verkum sínum.

Útgáfa, sem gefur vísbendingu um þá grósku og fjöl-

breytni, sem ræður rikjum í íslenskri Ijóðagerð.

Ath: Takmarkað upplag. Aðeins 200 útgefnar.

D BUBBI   —   FRELSI TIL SÖLU

„Ég held ég taki ekki of stórt upp í mig þegar ég

segi að „Frelsi til sölu" sé músíklega besta plata

Bubbatil þessa.

ÁT—HP

„Christian Falk (Imperiet) fer nostursamlegum

höndum um Bubba og smekkvísum og er með

smeKklegar útsetningar og blæbrigðaríkar.

AJ—Þjóðv.

„Tónlistin fellur vel að efninu, og hljómurinn er

með því besta sem ég hef heyrt á islenskri plötu.

Aldrei betri Bubbi".

ÁM—Mbl.

„Frelsi til sölu er tvímælalaust besta íslenska plat-

an sem komið hefur út á þessu ári og að minu

mati ein sú besta sem út hefur komið hér á landi

ígegnum árin".

SÞS—DV-

I

! IMPERIET

- SYND

.nonrJi nl^to    Tr\nlict_

1    armennirnir, sem Bubbi

> &        vinnur „Frelsi til sölu"

t, > í      með. Ein fremsta rokk-

I   sveit Evrópumeðsplúnk-

t   i             í            unýja plötu. Imperiet

J j(               I   krafmiklirog ígóðuformi.

#v       ö        S   Hiklaustþeirrabestaverk

tilþessa

G SMITHEREENS -

ESPECIALLYFORYOU

Ferskt og tilfinningarikt Bitlarokk,

þar sem laglegar laglinur og rífandi

gitarleikur bítur hlustandann i eyr-

D STRYPERS  -  TO

HELLWITHTHEDEVIL

Rokkarar krossins. Þungarokkssveit

í sérflokki. Strypers flytja þungt og

kraftmikið rokk sem um leið er

melódísktoggrípandi.

? WOODEIMTOPS - GIANT

Sumir segja Woodentops arftaka

Smiths. Breskirgagnrýnendursegja

plotuna emhverja bestu plotu arsins

Sendum í

póstkröfu samdægurs

DArtists For Animals — Madness,

Style Council, R. Wyatt o.fl.

D Bangles — Diffrent Light

D BAD - No. 10 Upping Street

O Blue Aeroplane — Tolerance

D James Brown — Gravity

D Kate Bush - The Whole Story

D Eric Clapton — August

D Cocteau Twins — Victorialand

D Leonard Cohen — Various Position

D E. Costello — Blood And Chocolate

(Allar.

D Cure — Seventeen Seconds

D Cure - Faith

D Cure — Three Imaginary Boys

D Dead Kennedys — Frankenchrist

D Depeche Mode — BlackCelebration

D Dire Straits — Allar

D Doors — Waiting For The Sun

D Easterhouse — Contenders

D The Edge — Captive

D Einstúrzende Neubauten — Halber

Mensch

D The Enemy Within — A Touch Of

Sunburn

D Frankie — Liverpool

D Imperiet — Synd

D Linton Kwesi Johnson — Forces Of

Victory

D Grace Jones — Inside Story

D Killing Joke — BrighterThan AThou-

sand Suns

D New Order — State (ný)

O New Order — Perfect Kiss

D New Order — Blue Monday

D New Order — Ceremony

D Smiths — This Charming Man

D Smiths - Still III

D Smiths — Heaven Knows l'm Mis-

erable

D Smiths — How Soon Is Now

D Smiths  — That Joke  Isn't  Funny

D Smiths — The Boy With The Thorn

In His Side

D Smiths     —     Bigmouth     Strikes

D Smiths — Panic

D Smiths - Ask (7")

D Woodentops — Good Thing

D Woodentops — Everyday Living

— og margt margt fleira

D Richard H. Kirk — Black JesusVoice

D Kraftwerk — Electric Café

D New Order - 1981-1982

D Nico — Camera Obscure

D Klaus Nomi — Simple Man

D Klaus Nomi — Best of

D Klaus Nomi — Klaus Nomi

D Anne  Pigalle  —   Everything  Coula

Be So Perfect

D Iggy Pop - Blah Blah Blah

D Pet Shop Boys — Disco

D Pretenders — Get So Close

D Propaganda — Secret Wish

D REM — Murmur

D REM — Fables Of The Reconstruct-

ions

D Paul Simon — Graceland

D Smiths — The Queen Is Dead

D Smiths — Meat ls Murder

D Smiths - Hatful Of Hollow

D Springsteen — Live 1975—1985 *

flestar stúdióplötur

D Stranglers — Dreamtime

D Stranglers   —    Over   The    Beaten

Track

D Sting — Bring On The Night

D D. Sylvian — Gone To Earth

D Talking Heads — True Stories

D Tina Turner — Break Every Rule

D U2 - Allar

D Suzanne Vega — Suzanne Vega

D Yello — The New Mix In One Go

D Bubbi — Frelsi til sölu

D Megas — i góðri trú

D Megas — Allur

D Stormsker — Lifsleiðin(n) + Hitt er

annað mál

D Strax — Strax

D Sinfóníuhljómsveit (slands — í takt

við tímann

D Að visu — Visnavinir

D Sykurmolar — Einn mol'á mann

D Jól alla daga — Ýmsir

Eigum fyrirliggjandi fjölbreytt

úrval af alls konar endurút-

gáfum, Blues, Jazz, Soul,

Rock'n Roll o.fl. o.fl.

GÆÐA TONLIST

ÁGÓÐUMSTAÐ

gramm

V-^UUGAVEGI 17 - SÍMI 91-12040

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
44-45
44-45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88