Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986 Árið 1986 annað mesta aflaár sögunnar: Verðmæti sjávarfengs meira en nokkru sinni VERÐMÆTI sjávarfengs lands- manna hefur aldrei verið meira en á árinu sem nú er að ljúka. Talið er að verðmæti útfluttra sjávarafurða verði um 36 millj- arðar króna, sem er 34% meira en árið 1985, þegar verðmætið var tæplega 26 milljarðar kr. I dollurum reiknað jókst verð- mæti útflutnings um tæp 40% en um 22% ef miðað er við SDR (sérstök dráttarréttindi). Ljóst er að verðmæti sjávarfengs landsmanna er meira en árið 1981, sem áður skilaði hvað mestu raunvirði. Fiskifélag Is- lands telur að árið verði eitt hagstæðasta ár sögunnar fyrir sjávarútveginn. Fiskifélag íslands áætlar að heildarafli landsmanna verði 1.662 þúsund tonn á árinu. Samkvæmt því yrði árið næstbesta aflaár sög- unnar, næst á eftir árinu 1985 þegar heildaraflinn var 10 þúsund tonnum meiri, eða 1.672 þúsund Sj ómannaverk- fall annað kvöld VERKFALL sjómanna á fiskiskipum skellur á á miðnætti annað kvöld. Árangurslaus samningafundur var í gær og þá ákveðið að boða til nýs fundar föstudaginn 2. janúar og reyna til þrautar að ná saman samningum. Fundi yfirnefndar Verðlagsráðs sjávarútvegs- ins, sem vera átti seinnipartinn í gær, var frestað til klukkan 11 í dag, en deiluaðilar bíða eftir ákvörðun fiskverðs. ur en þau sem fiskuðu fyrir sölu erlendis, ættu að vera í höfn frá því klukkan fjögur á gamlársdag til miðnættis á nýársdag. Skipin myndu því ekki leggja úr höfn eftir áramótin, fyrr en deilan væri leyst. Kostnaðarhlutdeildin er það sem deilum veldur í þessum samningum. Sjómenn vilja að það hlutfall sem gengur beint til útgerðarinnar af brúttóaflaverðmæti verði lækkað, en útgerðarmenn vilja að það verði óbreytt. „Við munum reyna til þrautar um helgina. Ef ekki næst saman þá, munum við ekki mæta á samn- ingafund aftur fyrr en þau skip eru komin í land, sem við teljum að séu að btjóta gegn verkfallinu. Þá mun því færast full harka í málið,“ sagði Hólmgeir Jónsson hjá Sjómanna- sambandi íslands. Hólmgeir sagði að það væru um það ákvæði í samningum sjómanna við útgerðarmenn, að öll skip, önn- tonn. Árið 1984 var heildaraflinn 1.527 þúsund tonn. Afli helstu fisktegunda fór vax- andi ef loðnan er undanskilin. Heildarbotnfískaflinn verður um 634 þúsund tonn og er það 53 þúsund tonnum eða rúmlega 9% meiri afli en í fyrra. Þar af var þorskaflinn 358 þúsund tonn og hefur aukist um 35 þúsund tonn eða nærri 11% frá fyrra ári. Um 52 þúsund tonn veiddust af humri, rækju og hörpudiski og er það 8 þúsund tonnum, eða 18% meira en í fyrra. 67 þúsund tonn af sfld feng- ust, 18 þúsund tonnum eða 36% meira en árið 1985. Þá fengust 898 þúsund tonn af loðnu, 95 þús- und tonnum minna en árið 1985 og er samdrátturinn 9,5% frá fyrra ári. Er þessi samdráttur í loðnu- afla rakinn til eindæma stirðrar tíðar á haustvertíð. Sé litið á verðmæti aflans upp úr sjó koma enn hagstæðari tölur í ljós. Talið er að verðmæti aflans verði rúmlega 18 milljarðar króna, sem er 41% meira en árið 1985. Reiknað í dollurum fæst hlutfalls- lega sama aukning en ef reikað er í SDR er aukningin rúm 23% á milli ára. Fiskifélag íslands segir að til þessarar verðmætaaukningar liggi margar ástæður. Aflasam- setningin sé hagstæðari þar sem meira hafí verið veitt af verðmæt- ari tegundum en árið áður. Þá hafi almennt verið hátt verð á mörkuðum sem komi fram í hærra verði hráefnis. Einnig hafí auknar sölur á erlenda ferskfískmarkaði áhrif til hækkunar á hráefnisverði. Póstur og sími; Dregið verður úr muninum á langlínu- og staðarsamtölum SAMGÖNGURÁÐHERRA, Matt- hías Bjarnason, hefur ákveðið að gerðar verði breytingar á uppbyggingu gjaldskrár fyrir símaþjónustu og falið Pósti og síma að gera tillögur þar um. Meðal annars verður dregið úr þeim mun sem er á verði langlínusamtala og staðarsam- tala. Meðal annars verður lagður niður gjaldflokkur 1 fyrir sjálfvirk símtöl og verður hann sameinaður gjald- flokki 0. Hefur þetta í för með sér að símtöl sem verið hafa í gjald- flokki 1 lækka í verði, vegna þess að 6 mínútur verða í hveiju skrefi samkvæmt dagtaxta í stað 1 mínútu. Sem dæmi um þetta má nefna að samtöl innan Árnessýslu verða öll í gjaldflokki 0, en áður var gjaldflokkur 1 í gildi þegar hringt var á milli símstöðvasvæð- anna 11, sem eru Selfoss, Ara- tunga, Brautahr., Eyrarbakki, Flúðir, Hamar, Hveragerði, Laug- arvatn, Minniborg, Stokkseyri og Þorlákshöfn. Sem annað dæmi má nefna samtöl á milli símnotenda við stöðvamar á Akureyri, Grenivík og Hrafnagili. Á að framkvæma þessa breytingu eins fljótt og kostur er, eftir því sem tæknibreytingar leyfa. Reyndar hafa slíkar breytingar ver- ið gerðar á einstaka stöðum á landinu. Þann 1. janúar hækkar gjaldskrá fyrir símaþjónustu almennt um 10%. Þannig hækkar til dæmis af- notagjald fyrir síma úr 530 krónum í 585 kr. og verð fyrir umframskref úr 1,20 kr. í 1,32 kr. Stofngjald síma hækkar nokkuð meira eða úr 3.500 krónum í 5.000 kr. Gjald fyrir 10 orða símskeyti hækkar úr 43,90 í 48,60 kr. og gjald fyrir hverja mínútu í farsímaþjónustu hækkar úr 6 kr. í 6,60 kr. Gjöld þessi eru öll án söluskatts. Þá er gerð sú breyting á nætur- og helgidagagataxta sjálfvirkra símatala að afsláttur er lækkaður úr 50 í 33%. Afsláttur þessi hefur gilt frá klukkan 19 til 8 frá mánu- degi til föstudags og frá klukkan 19 á föstudögum til næsta mánu- dag. Er þetta gert vegna þess mikla álags sem orðið er á símkerfínu á þessum tíma. Jafnframt er stefnt að því að veita viðbótarafslátt á Ianglínusamtölum frá klukkan 23 til 8 frá mánudegi til föstudags og um helgar, en sú breyting kemur til framkvæmda þegar breyting á uppbyggingu gjaldskrár símans samkvæmt ákvörðun ráðherra kem- ur til framkvæmda. Stj órnarskrárnef nd: Brandugian vid húsið á Logafold 141. Morgunblaðið/Ester Sigurðardóttir Átti von á öllu öðru en að fá uglu á gluggann - sagði Ester Sigurðardóttir sem fékk óvenjulega heimsókn á sunnudaginn „ÉG átti von á öllu öðru en að fá uglu á gluggann hjá mér,“ sagði Ester Sigurðardóttir, sem býr á Logafold 141 í Grafarvogi í Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið en brandugla flaug á stofugluggann á heimili Esterar um miðjan dag á sunnudaginn. Ester býr ásamt fjölskyldu sinni á jarðhæð í tveggja hæða húsi við Logafold. Hún sagðist hafa setið í stofunni við lestur en dóttir henn- ar horfði á sjónvarp. „Allt í einu kvað við heilmikill dynkur á glugganum og okkur dauðbrá báð- um,“ sagði Ester. „Ég leit upp og sá fuglinum bregða fyrir við gluggann. Þegar ég fór að svipast eftir honum úti sá ég hann sitja á stillansi við húsið og þar sat uglan hátt í tvo klukkutíma. Hún hefur sennilega verið dösuð eftir brot- lendinguna." Brandugla er eina uglan sem vitað er með vissu að verpir nú á íslandi. í bók Hjálmars R. Bárðar- sonar, Fuglar íslands, segir að íslenskar branduglur séu sennilega að mestu leyti farfuglar og er því líklegt að uglan sem flaug á gluggann á Logafoldinni hafi lent í einhveijum erfiðleikum í haust og orðið eftir hér á landi. Magnús Torfi Olafsson kem- ur í staðinn fyrir Jón Baldvin JÓN Baldvin Hannibalsson hefur sagt sig úr stjórnarskrárnefnd og þingflokkur Alþýðuflokksins hefur tilnefnt Magnús Torfa Ólafsson, blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar sem sinn fulltrúa í nefndina í Jóns Baldvins stað. Jón Baldvin ritaði forsætisráð- herra bréf í nóvembermánuði og baðst lausnar frá störfum í stjórnar- skrámefnd frá og með 1. desember sl. og tilkynnti um leið að þingflokk- ur Alþýðuflokksins hefði tilnefnt Magnús Torfa Ólafsson blaðafull- trúa, sem fulltrúa sinn í nefndina, í hans stað. Magnús Torfí var í gær spurður hvort hann væri genginn í Alþýðu- flokkinn: „Nei, ég hef tekið að mér fyrir þingflokk Alþýðuflokksins að vera fulltrúi í stjómarskrámefnd." Aðspurður hvort hann hygðist ganga í Alþýðuflokkinn svaraði Magnús Torfí: „Ég er ekki genginn í flokk- inn. Við Jón Baldvin Hannibalsson erum fomkunningjar og höfum stundum áður verið samheijar. Ég tók fúslega boði að taka við starfí í stjómarskrámefnd, þar sem Jón Baldvin hverfur frá.“ Jón Baldvin Hannibalsson for- maður Alþýðuflokksins var spurður hvers vegna Magnús Torfí hefði ver- ið tilnefndur sem fulltrúi þingflokks Alþýðuflokksins í stjómarskrár- nefnd: „í fyrsta lagi vegna þess að hann er að mati okkar þingflokks prýðilega til þess hæfur. Af viðræð- um við hann, var ljóst að hann hafði mikinn áhuga á þessu málefni, að Ijúka þessu mikla verki; endurskoð- un stjómarskrárinnar. I annan stað veldur því annríki formanns Al- þýðuflokksins, ég tala nú ekki um í þeirri kosningabaráttu sem fyrir höndum er, þannig að sá maður sem vill reka á eftir störfum þessarar nefndar þarf að hafa góðan tíma sjálfur, en nefndin hefur að mínu mati verið allt of starfslítil hingað til, seinustu tvö árin, fundir stijálir og stopulir og verkstjóm bág,“ sagði Jón Baldvin. Jón Baldvin var spurður hvort það fælist ekki í þessari tilnefningu að þingflokkur Alþýðuflokksins liti á Magnús Torfa sem sinn liðsmann: „Em ekki allir kratar nú til dags?“ spurði flokksformaðurinn á móti. Meinatæknadeilan: Boðnir tveir launaflokkar STARFSMANNAFÉLAG Reykjavíkurborgar, sem fer með samnings- urnboð fyrir meinatækna á Borgarspítalanum, gerði f gser bráðabirgða- samkomulag við borgaryfirvöld um lausn i kjaramálum meinatækna. Samkomulagið felur í sér tveggja launaflokka hækkun gegn því að meinatæknar á Borgarspítalanum dragi uppsagnir sfnar til baka. Sam- komulagið er háð samþykki meinatækna, en fundi þeirra um málið var ólokið er Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi. Meinatæknar á Borgarspítalanum höfðu áður boðist til að fresta upp- sögnum sfnum um tvo mánuði gegn því að fá áðumefnda hækkun, en því höfðu borgaryfirvöld hafnað. Hins vegar höfðu meinatæknar áður hafnað því að falla alfarið frá upp- sögnum sínum gegn tveggja launa- flokka hækkun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.