Morgunblaðið - 04.03.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.03.1987, Blaðsíða 1
64 SIÐUR STOFNAÐ 1913 52. tbl. 75. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 4, MARZ 1987________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins * Atti að ræna Willy Brandt í Frakklandi? ur-þýsku hryðjuverkasamtökunum Rauðu herdeildinni til Action Direct, þar sem Brandts hefði verið getið. Ítalía: Craxi biðst lausnar Róm, AP, Reuter. BETTINO Craxi, forsætisráð- herra Italíu, afhenti Francesco Cossiga forseta launsnarbeiðni sína og ríkistjórnarinnar í gær. Forsetinn hefur enn ekki tekið afstöðu til lausnarbeiðninnar og hefur beðið Craxi að sitja áfram þar til annað verður ákveðið. Craxi sagði í ræðu á þingi að deilur innan fimm flokka sam- steypustjórnar hans hefðu magnast mjög að undanförnu og að hún væri óstarfhæf af þeim sökum. Stjórnin hefur verið við völd í þtjú og hálft ár, að undanskildum 35 dögum á síðasta ári, og hefur engin stjórn ríkt svo lengi á Italíu frá lok- um síðari heimsstyijaldar. Almennt er talið að Cossiga for- seti muni skipa hinn reynda stjórn- málamann Giulio Andreotti forsætisráðherra. Hann myndaði síðast stjórn árið 1979 og hélt hún velli í 11 daga. ítalska tölfræðistofnunin birti í gær skýrslu þar sem fram kemur að verðbólga í febrúar var 4,2 pró- sent á ársgrundvelli. Hefur verð- bólga á Ítalíu ekki verið minni I undanfarin 18 ár. Afvopiiunarviðræðurnar í Genf: Bandaríkj amenn leggja fram drög að samningi _ íifYi fínlrlnin moAqIrlr'níri’Q flonrro I Atlantshafsbandalagið er nú að I og stýriflaugum, sem hver hefur UIIl lcEKKUIl meudiuiægld, HdUgd | koma fyrir 572 Pershing-flaugum I einn kjarnaodd. Miinchen, AP. GREINT var frá því í þýska viku- ritinu Quick í gær að frönsku hryðjuverkasamtökin Action Direct hefðu ætlað að ræna Willy Brandt, formanni þýska jafnað- armannaflokksins (SPD), í suðurhluta Frakklands um pásk- ana. í blaðinu sagði að franska lög- reglan hefði komið á snoðir um þessar ráðagerðir þegar ijórir grunaðir foringjar hryðjuverka- samtakanna voru handteknir á bóndabýli í Norður-Frakklandi 21. febrúar. Lögreglan sagði þá að eitt her- bergjana í býlinu hefði virst til þess ætlað að halda gíslum. í Quick sagði að áætlun um að ræna Brandt hefði verið skrifuð niður og geymd í rauðri möppu sem fannst við handtökuna. Þar hefði einnig verið nákvæmt kort af þorpinu Gagniers. í blaðinu stóð að Brandt hefði ætl- að að dveljast þar um páskana ásamt konu sinni, Brigitte. Hefðu allar undankomuleiðir úr þorpinu verið merktar með rauðum lit. Heimildarmenn í þýsku lögregl- unni sögðu að vestur-þýskir lög- regluforingjar hefðu farið til Frakklands eftir að hryðjuverka- mennirnir voru handteknir. í Quick sagði að nafn Brandt hefði verið skammstafað W.B. og einnig hefðu fundist bréf frá vest- Moskvu, frá Birni Bjamasyni. SAMKVÆMT frásögn Prövdu í gær, sem er að verulegn leyti höfð eftir Mikhail Gorbachev, aðalritara sovéska kommún- istaflokksins, var hann mjög ánægður með viðræður sínar við Steingrím Hermannsson, forsætisráðherra, í fyrradag. Er birt mynd af ráðamönnun- um á forsíðu blaðsins með ítarlegri frétt af viðræðum þeirra. Steingn'mur Hermannsson og fylgdarlið hans hélt frá Moskvu síðdegis í gær. Hófst dagurinn með heimsókn í geimvísindastofn- un Sovétríkjanna. Þá efndi ráðherrann til blaðamannafundar og síðan snæddu hann og fylgdar- lið hans hádegisverð í bústað íslenska sendiherrans. Var snjó- fjúk og 13 stiga frost þegar Nikolai Ryzhkov, forsætisráð- herra, kvaddi íslensku gestina á Moskvuflugvelli með heiðurs- göngu hermanna og lúðraþyt. Hélt ráðherrann áleiðis til Kaup- mannahafnar þar sem opinber heimsókn hans í Danmörku hefst í dag. Sjá bls. 28. Reuter Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra á blaðamannafundi í Kreml. Til vinstri er Tómas Á. Tómasson sendiherra í Belgiu. Gorbachev ánægður með viðræðurnar við Steingrím Washington, Genf, Moskvu, AP, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti sagði í gær að Bandaríkjamenn myndu leggja fram uppkast að samningi um fækkun meðaldrægra eldflauga í viðræðunum við Sovétmenn í Genf á morgun. Reagan kom stuttlega fram í Hvíta húsinu í gær og kvaðst hann ætla að kveðja Max Kampelman sendiherra og aðra samningamenn Bandaríkjanna í afvopnunarmálum heim síðar í þessari viku til skrafs og ráðagerða. Myndu þeir síðan snúa aftur til Genfar til að semja um afvopnun í smáatriðum. Reagan fagnaði boði Mikhails Gorbachev, aðalritara sovéska kommúnistaflokksins, um að semja um meðaldrægar eldflaugar án til- lits til geimvarnaráætlunar Banda- ríkjamanna (SDI). „Eg hef falið samningamönnum okkar að leggja fram uppkast að samningi um meðaldrægar kjarn- orkuflaugar í Genf á morgun," sagði Reagan í sjónvarpsútsend- ingu. Hann kvaðst vilja leggja áherslu á að mikilvægasti þátturinn í að semja um meðaldrægar flaugar væri eftirlit með því að ákvæðum samningsins verði fylgt. Forsetinn sagði að Bandaríkja- menn hefðu haft náið samstarf við bæði Evrópu- og Asíumenn um til- lögu að samkomulagi um að fækka þessum vopnum með það fyrir aug- um að útrýma þeim algerlega. Hann kvað uppkastið vera reist á þeim hugmyndum sem fram komu í við- ræðum hans við Gorbachev á Reykjavíkurfundinum. Þá var málið lagt til hliðar vegna þess að sovéski leiðtoginn krafðist að samið yrði um meðaldrægar flaugar ásamt geimvarnaráætluninni og gagneld- flaugum (ABM). Gorbachev lagði til á laugardag að ný tilraun yrði gerð til að útrýma meðaldrægum flaugum í Evrópu. Hann mæltist til þess að viðræðurn- ar í Genf yrðu framlengdar. Bæði Kampelman og Yuly Vor- ontsov, helsti samningamaður Sovétmanna, sögðu að viðræðunum í Genf um meðaldrægar kjarnorku- flaugar í Evrópu, sem ljúka átti í dag, yrði haldið áfram, þrátt fyrir að ekki hefði samist um frekari viðræður um langdrægar eldflaugar og geimvarnir. Að sögn vestrænna embættis- manna hafa Sovétmenn 441 færanlega SS-20 flaug, sem hver hefur þtjá kjarnaodda, í Evrópu. Bandaríkin: Reagan tilnefnir Wflliam Webster yfirmann CIA Washington, AP, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti útnefndi i gær WiIIiam Webster, yfirmann bandarísku alríkislögreglunnar (FBI), yfir- mann bandarísku leyniþjónustunnar (CIA), að því er tilkynnt var í Hvita húsinu. Forsetinn var staðráðinn i að fá mann, sem nýtur virðingar og hefur hvorki flækst í vopnasölumáiið, né verið viðrið- inn greiðslur til skæruliða í Nicaragua, í starfið. Marlin Fitzwater, talsmaður forsetans, sagði í gærkvöldi að Reagan hefði hringt í Webster í gær og boðið honum starfið. „Webster kvaðst vilja umhugsun- arfrest, en hann myndi hringja aftur eins fljótt og mögulegt væri,“ bætti Fitzwater við. Webst- er hringdi átta klukkustundum síðar og kvaðst þiggja starfið. I yfirlýsingu frá Reagan sagði að FBI hefði tekið miklum fram- förum bæði á sviði gagnnjósna og baráttu gegn hryðjuverkum undir stjórn Websters: „Eg vona að hann nái sama árangri sem yfirmaður CIA.“ Reagan er nú að undirbúa ræðu, sem hann ætlar að flytja í kvöld. Búist er við að forsetinn reyni að sýna fram á að hann haldi um stjórnvölinn í Hvíta hús- inu. Skýrsla Tower-nefndarinnar um vopnasölumálið ber því vitni að Reagan hafi ekki vitað hvað starfsmenn í þjóðaröryggisráðinu höfðust að. John Poindexter, sem sagði af sér embætti öryggisráðgjafa vegna vopnasölumálsins, hefur verið lækkaður í tign 5 sjóhernum til að komast hjá átökum á Banda- ríkjaþingi. Poindexter neitaði að bera vitni í málinu. Hann var skip- aður aðstoðaraðmiráll árið 1985 og hefði Reagan þurft að leggja fyrir þingið hvort hann ætti að halda stöðunni til frambúðar. Missti Poindexter eina stjörnu úr barmi sínum og mun hann fást við langtímaáætlanir framvegis. Sjá bls. 29 og 32 og 33.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.