Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987 . . . úrali- stíunni Sífellt flölgar útvarpsstöðvunum í kjölfar nýju útvarpslaganna og er það vel þótt sumir hafí nú fundið að poppgarginu. En gætum að því að í rauninni efla hinar mörgu og smáu útvarpsstöðvar lýðræðið. Útrás Ég hef fylgst nokkuð með Útrás- inni, útvarpsstöð framhaldsskóla- nema, og verð að segja alveg eins og er að þar hljómar svipuð tónlist og til dæmis á Rás 2 og Bylgjunni, en þannig er nú einu sinni menning- arástandið. Þar með er ekki sagt að á Útrásinni hljómi eingöngu eldfjör- ug popptónlist, síðastliðinn þriðjudag var til dæmis á dagskránni uppúr hádegi þáttur í umsjón Áma Sigurðs- sonar og Hlyns Halldórssonar, nemenda við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, en framhaldsskólamir sjá annars til skiptis um dagskrárgerð- ina. í þætti Hlyns og Áma voru tvö mál á dagskrá, annarsvegar hin ný- stofnaða Fjölmiðlabraut við FB og var í því sambandi rætt við Sjöfn Sigurbjömsdóttur kennara og tvo nemendur af brautinni, þau Bryndísi Loftsdóttur og Magnús Ama Magn- ússon. í öðm lagi var rætt við Kristján Thorlacius formann Hins íslenska kennarafélags um kjaradeil- umar og gafst nemendum færi á að hringja í Útrás og spyija Kristján spjörunum úr. Fór þátturinn hið besta fram. Annars mættu þeir Útrásarmenn auglýsa betur dagskrána. Það skiptir ekki svo litlu að æska landsins fái mál á ljósvakanum. Hugsið ykkur bara að til skamms tíma áttu ungl- ingar hvergi málsvara í ljósvakamiðl- unum nema i fávitakveðjum Laga unga fólksins. Nú geta krakkamir í krafti Útrásar viðrað nýstárlegar hugmyndir og jafnvel gagnrýnt skól- ann. Og hví skyldu krakkamir ekki hafa umtalsverð áhrif eða er tími hinna stöðnuðu flokkshesta ekki senn liðinn og tími kominn til að æskan, er oft logar af framkvæmda- þrá og ferskum hugmyndum — fái ÚTRAS! Alfa Ég hef áður minnst á aðra fijálsa útvarpsstöð er nýlega reis hér á Stór- -Reykjavíkursvseðinu, hana Ölfu blessaða er flytur okkur kristilegan boðskap í tali og tónum. Stundum þegar hretið byrgir ljóra sálarinnar stilli ég viðtækið á FM 102,9 þar sem menn virðast lifa í heimi hreinleikans eða hins poppaða englasöngs. En er ekki slíkur máttur trúarinnar að hún sofnar í volgum faðmi ríkisins en eflist og dafnar á grýttum klettum þar sem krossinn birtist í allri sinni nekt? Ég sakna þess að sjá ekki fá- tæka munka ganga hér um götur líkt og á miðöldum með betlibauk. Þurfum við góðborgaramir ekki ann- að slagið að hitta slíka menn er lifa °g deyja fyrir Guð sinn en ekki nota- legt embætti? { Svarta tuminum, sem sýndur er á þriðjudögum í ríkissjónvarpinu, kynntumst við slíkum guðsmanni er brennur í trúareldinum. Hver veit nema bölvun Guðs hvfli yfír heimtu- frekum lýðnum er lifir aðeins fyrir veraldlegar nautnir? Og hvar eru þá spámennimir, ekki í útvarpsmess- unni, máski standa þeir mitt í gjafahrúgu fermingarhátíðarinnar? Sagði ekki Amos: Vei hinum and- varalausu . . . Þeir hvfla á legu- bekkjum af fílsbeini og liggja flatir á hvflbeðjum sínum. Þeir eta lömb af sauðahjörðinni og ungneyti úr ali- stíunni. Þeir raula undir með hörp- unni, setja saman ljóð eins og Davíð. Þeir drekka vínið úr skálum og smyija sig með úrvals olíu en eyðing Jósefs rennur þeim ekki til rifja. Fyrir því skulu þeir nú herleiddir verða í fararbroddi hinna herleiddu, og þá skal fagnaðaróp flatmagandi sælkeranna þagna. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNVARP Stöð tvö: Alcatraz Fyrri hluti í kvöld verður 25 sýndur fyrri hluti banda- rískrar sjónvarpsmyndar um Alcatraz, sem var rammgerðasta fangelsi Norður-Ameríku til skamms tíma. Það var hannað með það fyrir aug- um að flótti væri fræðileg- ur ómöguleiki og til þess að vera alveg viss var fang- elsið byggt á eyju á San Fransisco-flóa miðjum, en þar eru kaldir straumar og sterkir svo ógjömingur er talinn að synda í land. Ofangreint varð þó ekki til þess að menn reyndu ekki að flýja. 1946 gerðist Telly Savalas. „Orrustan um Alcatraz", en þá gerðu fangar upp- reisn, sem að lokum var bæld niður af landgöngu- liðum og féllu menn úr liði beggja. Árið 1962 var skot- vopnum ekki beitt, en flóttamennirnir hafa enn ekki fundist og er almennt talið að þeir hafi drukknað í flóanum. Indíaninn Clarence Car- nes, er sá maður sem lengst dvaldist í Alcatraz í einni lotu, eða 18 ár. Hann var jafnframt yngsti tughús- limurinn þar, en hann var aðeins átján ára þegar hann var settur inn. Þessi mynd segir frá ævi hans, hvemig hann breytt- ist úr því að vera óstýrilát- ur unglingur í að vera Nestor Alcatraz-fangelsis- ins. Á lífsleiðinni kynntist hann alls konar mönnum, allt frá harðsvíruðum glæpamönnum til rólyndis öðlinga, sem á einhvem hátt höfðu gerst brotlegir við lögin. Clarence Carnes sjálfur aðstoðaði við gerð myndar- innar, en í henni segir m.a. frá hinum frægu flóttatil- raunum, sem og frá því hvemig lífið í þessu al- ræmda fangelsi var í raun og vem. Aðaðhlutverk leika Michael Beck, Telly Saval- as, Robert Stroud og Walt Stomer. ÚTVARP FIMMTUDAGUR 19. mars 6.45 Veöurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin. — Jón Baldvin Halldórsson og Jón Guðni Kristjánsson. Fréttir eru sagöar kl. 7.30 og 8.00 og veöurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guömundur Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.05 Morgunstund barn- anna 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.35 Lesiö úrforustugreinum dagblaöanna. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veöurfregnir. 10.30 Ég man þá tiö. Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liönum árum. 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Morguntónleikar. Tónlist eftir Milhaud, Widor, Respighi, Dvorák, Caplet, Berlioz og Chabrier. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn — Hvaö vilja flokkarnir i fjölskyldu- málum? 4. þáttur: Fram- sóknarflokkur Anna G. Magnúsdóttir og Guöjón S. Brjánsson. 14.00 Miödegissagan: „Áfram veginn", sagan um Stefán íslandi. Indriöi G. Þorsteins- son skráöi. Sigriður Schiöth les (19). 14.30 Textasmiðjan. Lög við texta Siguröar Þórarinsson- ar. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Frá svæöisútvarpi Reykjavíkur og nágrennis. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.05 Dagbókin. Jóhanna Haf- liðadóttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. Tilkynningar. 17.05 Siödegistónleikar. Fiðlukonsert í d-moll eftir Aram Katsjatúrían. Itzhak Perlman leikur meö Fílharm- oníusveitinni i (srael; Zubin Mehta stjórnar. 17.40 Torgiö — Menningar- straumar. Umsjón: Þorgeir Ólafsson. Tilkynningar. 18.00 Fréttir. Tilkynningar. 18.05 Torgið, framhald. Til- kynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guð- mundur Sæmundsson flytur. 19.45 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. 20.00 íslendingur í Eystri- byggö. Vernharöur Línnet ræöir viö Sigurö Oddgeirs- son kennara í Narsaq. 20.30 Frá tónleikum Sinfóniu- hljómsveitar (slands í Háskólabiói. Fyrri hluti. Stjórnandi: Barry Words- worth. Einleikari á píanó: Andreas Bach. a. „Rómeó og Júlía", forleik- ur eftir Pjotr Tsjaíkovskí. b. Píanókonsert nr. 1 eftir Ludwig van Beethoven. 21.20 Leiklist í New York. Þriðji og síöasti þáttur. Um- sjón: Árni Blandon. Lesarar: Gís|i Rúnar Jónsson og Júlí- us Brjánsson. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. 22.15 Veöurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. Andrés Björnsson les 27. sálm. 22.30 Tréhesturinn í Trjóu. Þáttur i umsjá llluga Jökuls- sonar. SJÓNVARP FÖSTUDAGUR 20. mars 18.00 Nilli Hólmgeirsson. Átt- undi þáttur í þýskum teikni- myndaflokki. Sögumaöur Örn Árnason. Þýöandi Jó- hanna Þráinsdóttir. 18.25 Stundin okkar — Endur- sýning. Endursýndur þáttur frá 15. mars. 19.00 Á döfinni. Umsjón: Anna Hinriksdóttir. 19.10 Þingsjá. Umsjón: Ólafur Sigurösson. 19.25 Fréttaágrip á táknmáli. 19.30 Poppkorn. Umsjónar- menn Guðmundur Bjarni Haröarson og Ragnar Hall- dórsson. 20.00 Fréttir og veöur. 20.35 Auglýsingar og dag- skrá. 20.40 Rokkararnir geta ekki þagnað. Vísnavinir flytja íslensk lög. Stjórn upptöku: Gunnlaugur Jónasson. 21.10 Mike Hammer. Áttundi þáttur i bandarískum saka- málamyndaflokki. Þýöandi Stefán Jökulsson. 22.00 Kastljós. Þáttur um inn- lend málefni. Umsjónar- maöur Hallur Hallsson. 22.30 Seinni fréttir. 22.40 Óöafár. (Frenzy). Bresk bíómynd frá árinu 1972. Leikstjóri Alfred Hitchcock. Aöalhlutverk Jon Finch, Alec McCowen og Barry Foster. Geöveill kvenna- moröingi leikur lausum hala í Lundúnaborg. Böndin ber- ast aö fyrrum eiginmanni síöasta fórnarlambs hans en ekki eru þó öll kurl kom- in til grafar. Atriöi í myndinni eru ekki viö hæfi barna. Þýöandi Kristmann Eiösson. 00.40 Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 19. mars §17.00 Myndrokk. §18.00 Knattspyrna. Umsjónarmaöur er Heimir Karlsson. 19.00 Hardy gengið. Teiknimynd. 19.30 Fréttir. 20.00 Opin lína. Áhorfendum Stöðvar 2 gefst kostur á að hringja í síma 673888 á milli 20.00 og 20.15. ( sjón- varpssal sitja stjórnandi og einn gestur fyrir svörum. 20.20 Ljósbrot. Valgeröur Matthíasdóttir kynnir helstu dagskrárliöi Stöðvar 2 næstu vikuna og stiklar á helstu viöburðum menning- arlífsins. 20.45 Morögáta (Murder She Wrote). Jessica er lögö inn á spítala, en þar verður hún vitni aö dularfullum atburöum. §21.35 Barist um börnin (Not in Front of The Chil- dren) Nýleg sjónvarpsmynd meö Lindu Gray (Sue Ellen), John Getz og John Lithgow í aðal- hlutverkum. Linda Gray leikur fráskilda konu sem sér ein um upp- eldi tveggja dætra sinna. Þegar hún fer í sambúö aft- ur kemur fyrrverandi eigin- maöurinn fram á sjónarsvið- ið og krefst forræöis yfir börnunum. §23.00 Af bæ í borg (Perfect Strangers) Balki og Larry eru barnapíur eina helgi, en ekki er allt meö felldu þegar þeir skila barninu. §23.25 Alcatraz. Fyrri hluti sjónvarpsmyndar um flótta úr einu rammgeröasta fang- elsi í Bandaríkjunum á eyjunni Alcatraz. Fylgst er meö tveimur frægustu flóttatilraunum úr fangels- inu, en einn maður kom viö sögu i þeim báðum og er myndin byggö á framburöi hans. Aöalhlutverk: Telly Savalas, Michael Beck, Art Carney og James Macarthur. Seinni hluti er á dagskrá föstudag 20. mars. 00.55 Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 19. mars 00.10 Næturútvarp í umsjá Gunnlaugs Sigfússonar. 6.00 (bítið. Erla B. Skúladótt- ir léttir mönnum morgun- verkin, segir m.a. frá veöri, færð og samgöngum og kynnir notalega tónlist í morgunsárið. 9.00 Morgunþáttur í umsjá Kristjáns Sigurjónssonar og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Þeir rifja upp tvenna tima á vinsældalistum, fjalla um tónleika um helgina og leggja verölaunagetraun fyr- ir hlustendur auk þess sem Ferðastundin meö Sigmari B. Haukssyni er á sínum stað. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Á milli mála. Leifur Hauk'sson leikur létt lög við vinnuna og spjallar viö hlustendur. 16.00 í raun og veru. Broddi Broddason og Margrét Blöndal grípa á málum líöandi stundar meö aöstoö fréttamanna og fréttaritara útvarpsins heima og erlend- FiMMTUDAGUR 19. mars 07.00—09.00 Á fætur meö Siguröi G. Tómassyni. Létt tónlist meö morgunkaffinu. Siguröur lítur yfir blööin og spjallar viö hlustendur og gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Paili leikur uppáhaldslögin ykkar, gömul og ný. Tapaö fundiö, opin lína, mataruppskrift og sitthvaö fleira. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aöi meö Jóhönnu Haröar- dóttur. Fréttapakkinn, Jóhanna og fréttamenn Bylgjunnar fylgjast meö þvi sem helst er í fréttum, segja frá og spjalla viö fólk. Flóa- markaðurinn er á dagskrá eftir kl. 13.00. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Pétur spil- ar síödegispoppiö og spjall- ar viö hlustendur og tónlistarmenn. Tónlistar- gagnrýendur segja álit sitt á nýútkomnum plötum. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00—19.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykjavík síödegis. Þægileg tónlist hjá Hallgrími, hann lítur yfir is og leika tónlist sem veröur fyrirferðarmest fyrsta klukkutímann. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Vinsældalisti rásar 2. Gunnar Svanbergsson og Georg Magnússon kynna og leika tíu vinsælustu lög- . in. 20.30 I gestastofu. Erna Ind- riðadóttir tekur á móti gestum. (Frá Akureyri.) 22.00 Fréttir. 22.05 Nótur að norðan frá Ingimar Eydal. 23.00 Við rúmstokkinn. Guð- rún Gunnarsdóttir býr hlustendur undir svefninn meö tali og tónum. 24.00 Fréttir. 00.10 Næturútvarp. Fréttir sagöar kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00, 15.00, 16.00, 17.00 og 18.00. SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR REYKJAVÍK 18.00-19.00 Svæöisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni - FM 96,5 Má ég spyrja? Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugs- son. M.a. er leitað svara viö spurningum hlustenda og efnt til markaðar á Markaðs- torgi svæöisútvarpsins. fréttirnar og spjallar viö fólk- ið sem kemur viö sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00—20.00 Tónlist með léttum takti. 20.00—21.30 Jónfna Leós- dóttir á fimmtudegi. Jónína tekur á móti kaffigestum og spilar tónlist að þeirra smekk. 21.30—23.00 Spurningaleikur Bylgjunnar. Jón Gústafsson stýrir verölaunagetraun um popptónlist. 23.00-24.00 Vökulok. Frétta- tengt efni og þægileg tónlist í umsjá Bjarna Vestman fréttamanns. 24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upp- lýsingar um veður. ALFA Krlstlleg itv&rpastté. FM 102,9 FIMMTUDAGUR 19. mars 8.00 Morgunstund: Guös orö og bæn. 08.15 Tónlist. 13.00 Tónlistarþáttur meö 16.00 Barnagaman.Endur- fluttur þáttur frá fyrra laugardegi. 17.00 Hlé. 21.00 Kvöldstund með Tomma. 22.00 Fagnaöarerindiö flutt I tali og tónum. Þáttur sér- staklega ætlaöur ensku- mælandi fólki. 24.00 Dagskrárlok.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.