Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987
17
1800 manns í
Hinu íslenska
náttúru-
fræðifélagi
AÐALFUNDUR Hins íslenska
náttúrufræðifélags var haldinn
21. febrúar. Stjórn félagsins er
nú svo skipuð: formaður er Þóra
Ellen Þórhallsdóttir, varafor-
maður Hreggviður Norðdahl,
gjaldkeri Ingólfur Einarsson, rit-
ari er Eva Þorvaldsdóttir og
meðstjórnandi Ingibjörg Kaldal.
I varastjórn sitja Einar Egilsson
og Gyða Helgadóttir.
Hið íslenska náttúrufræðifélag
er félag áhugamanna um íslenska
náttúru og allar greinar náttúru-
fræða. Félagar eru nú rúmlega
1800 talsins. Tímarit félagsins,
Náttúrufræðingurinn, kemur út
ársfjórðungslega. Ritstjóri Náttúru-
fræðingsins er Árni Einarsson. Á
vetrum eru haldnir fyrirlestrar
mánaðarlega. Á sumrum eru skipu-
lagðar dagsferðir sem og þriggja
daga ferðir undir leiðsögn kunnugra
náttúrufræðinga. Þá hefur félagið
gengist fyrir námskeiðum, svo sem
í sveppatínslu.
Hið íslenska náttúrufræðifélag
er öllum opið og ættu allir sem
áhuga hafa á íslenskri náttúru eða
náttúrufræðum almennt að finna
þar eitthvað við sitt hæfi.
oventroD
vcrtnssíur fyrir kqtt vatn.
Eigum OVENTRAP vcitnssíur fyrir
kaldavatnskerti.
Stœrðir 1", IW', VA" og 2".
Þrír grófleikar af síum.
Sfumar mó hreinsa og nota
aftur og aftur.
VATNSVIRKINN/it
ARMÚU 21 - PÓSTHÖU 6620 - 128 REYKiAVtK
SlMAR. VERSIUN 686455. SKRf STOf A 685066
Hægt að leggja arma nið-
ur og breyta í rúm.
CLEOPATRA
KLIKK KLAKK
Bakið fellt niður og þá er
komið 120 cm. breitt rúm.
Rúmfatageymsla í sökkli.
SUDURLANDSBRAUT 22
S:36011
Bolfiskafla 1986 skipt eftir kjördæmum:
Mestum afla landað
í Reykjaneskjördæmi
MESTUR bolfiskur barst á land
í Reykjaneskjördæmi á síðasta
ári, þegar lönduðum bolfiskafla
er skipt eftir kjördæmum. Alls
var landað í kjördæminu 106.000
lestum eða 18% bolfiskaflans.
Mestur þorskur barst hins vegar
á land í Norðurlandskjördæmi
eystra. Minnstur afli barst á land
i Norðurlandskjördæmi vestra,
32.000 lestir eða 5% aflans. Af
10 hæstu löndunarhöfnunum á
síðasta ári vom fjórar í Reykja-
neskjördæmi.
Þessar upplýsingar koma fram í
grein eftir dr. Ágúst Einarsson,
framkvæmdastjóra Hraðfrysti-
stöðvarinnar í Reykjavík, en greinin
birtist í öðru tölublaði Ægis á þessu
ári. Ágúst kallar greinina leik að
tölum, þar sem hann skipar afla-
tölum og verðmætum eftir kjör-
dæmum, en slíkt er ekki gert að
jafnaði. Hann styðst í þessu við
skýrslur Fisjdfélags íslands og LÍÚ.
I grein Ágústs kemur fram, að
Reykjavík er önnur aflahæsta lönd-
unarhöfnin hvað bolfisk varðar,
næst á eftir Vestmannaeyjum, sem
eru einu hafnirnar, sem tóku á
móti meiru en 40.000 lestum á
síðasta ári. Þá vekur hann athygli
á því, að 10 hafnir tóku á móti
meiru en 20.000 lestum af bolfiski
á árinu. Þar af eru fjórar í Reykja-
neskjördæmi og 7 þeirra eru á
suðvesturhorni landsins. Engin
Austfjarðahöfn kemst í þennan hóp,
engin á Snæfellsnesi og aðeins
Akureyri á Norðurlandi.
Síðan skiptir Ágúst aflanum nið-
ur eftir kjördæmum. Þá kemur í
ljós, að mestur bolfiskafli barst á
land í Reykjaneskjördæmi, alls
106.000 lestir eða 18% aflans.
Næst kemur Norðurlandskjördæmi
eystra með 86.000 lestir eða 14%,
Vestjarðakjördæmi er með 83.000
lestir, 14%, Suðurlandskjördæmi
með 79.000, 13%, Austurlandskjör-
dæmi með 79.000, 13%, Vestur-
landskjördæmi með 63.000, 10%,
Reykjavík 44.000, 7% og Norður-
land vestra er með 32.000 lestir eða
5%. 6% var landað erlendis. Um
þessa skiptingu segir Ágúst, að hún
stingi heldur í stúf. við þá umræðu,
sem nú sé í gangi; að allur sjávarút-
vegur í Reykjaneskjördæmi sé á
vonarvöl og öll skip farin burt.
Loks skipar Ágúst kjördæmun-
um í röð eftir aflaverðmætum
togara innan þeirra: Vestfirðir 15
togarar, aflaverðmæti 1,8 milljarð-
ar, Norðurland eystra 18 togarar,
1,6 milljarðar, Reykjavík 14 togar-
ar, 1,4 milljarðar, Austurland 17
togarar, 1,3 milljarðar, Norðurland
vestra 11 togarar, 843 milljónir,
Reykjanes 11 togarar, 759 milljón-
ir, Vesturland 7 togarar, 591 milljón
og Suðurland 7 togarar, aflaverð-
mæti 536 milljónir. Mest gjaldeyris-
öflun togara var á Vestfjörðum,
2,541 milljarðar, Norðurlandi
eystra 2,510 milljarðar, Austurlandi
2,270 milljarðar, Reykjavík 1,700,
Norðurlandi vestra 1,228, Reykja-
nesi 1,163, Vesturlandi 980 milljón-
ir og Suðurlandi 921 milljón króna.
Rennur fram með einu handtaki og verður 140 cm. breitt rúm