Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987 47 Jftl. I Guðmundur VE að kasta. Morgunblaðið/Kr.Ben. Matthias 1. stýrimaður stjórnar kraftblökk- Þórður 2. stýrimaður rimpar í smárifu. inni. Hákon ÞH að dæla gfóðu kasti. Nálarnar þræddar. Pokavængurinn settur fastur. á botninn svo ekkert réðst við kastið. Nótin gaf sig á nuddinu við botninn. Bjami Ólafsson frá Akranesi var að fylla sig og svo var reyndar um fleiri. Allt í einu var kallað: „Rauðsey — Guðmundur." „Komdu og hirtu þetta hjá mér. Ég er að fiska í frystingu, ert þú ekki að fiska í grút?“ „Jú, ég er að fiska í grút," var svarað. „Blessaður komdu og hirtu þetta. Ég var búinn að dæla hundrað tonn- um,“ sagði skipstjórinn á Rauðseynni. „Skiptingin var fín framan af en nú hefur hún gjörbreyst,“ bætti hann við. Skipstjórinn á Pétri Jónssyni kall- aði: „Hvemig er skiptingin?“ „Karlinn er orðinn tveir þriðju á móti kerlingunni og því mun þyngra í,“ var svarað á móti. „Þú átt að vera aftar í torfunni ef þú ætlar að fá kerlingu," sagði skipstjórinn á Pétri Jónssyni, kvaddi og setti á fulla ferð til Sandgerðis. „Helvítis tímastress á þessu," heyrðist frá Rauðseynni. „Eg má ekkert vera að þessu lengur. Þetta bras kostar mig tvo tíma og heima bíða allir eftir mér, þtjú frystihús, fimm togarar og allur mannskapur- inn_ í kringum þetta." Ég fór út á brúarvænginn og mun- daði myndavélina því við vomm að renna okkur meðfram Hilmi SU þar sem hann dólaði og hélt vind. Fljót- andi frystihús. Stuttu seinna annað. Togarinn Siglfirðingur var á stjóm- borða. Þar var verið að búa sig' undir að fara að versla meiri loðnu til að frystingin gæti haldið áfram. Nú kom hvert skipið í ljós. Hákon ÞH var að dæla, Júpiter að snurpa og Guðmundur að kasta en hann hafði verið snöggur að innbyrða slatt- an sem honum bauðst hjá Rauðsey. Bergmálsdýptarmælirinn fór að tifa í brúnni. Olýsanleg spenna mynd- ast sem bergmálið magnar upp. Skipstjórinn fylgist með tækjunum og kannar hvort allar aðstæður séu í lagi. Áhöfnin drífur sig í gallana til að standa klár þegar kallið kemur. Það vakti athygli mína að flestir voru í flotgöllum og sagði einn hásetinn, Magnús Sigurðsson, að þetta væri allt annað líf að vinna í svona fatn- aði fyrir utan öryggið ef einhver fer fyrir borð. „Þessir gallar eru ekki viðurkennd- ir af Siglingamálastofnun en það breytið því ekki að þeir eru liprir og handhægir ög gott að vinna í þeim þannig að þeir koma sér vel ef eitt- hvað fer úrskeiðis. Menn hafa verið í slíkum göllum allt að þremur tímum í köldum sjó án þess að verða meint af og með þeim fylgir blys sem er mikið öryggisatriði," sagði Magnús. Áður en lengra er haldið væri ekki úr vegi að kynnast áhöfninni á Þórs- hamri GK 75, en í henni eru eftirtald- ir: Pétur Sæmundsson skipstjóri, Matthías Sigurpálsson 1. stýrimaður, Þórður Sigurðsson 2. stýrimaður, Jóhann Einarsson 1. vélstjóri, Ami Jens Einarsson 2. vélstjóri, Jóhann Sigvaldason matsveinn og hásetamir Magnús Sigurðsson, Jón Pétursson, Hilmar Hákonarson, Óskar Eðvarðs- son, Ólafur Georgsson, Hlynur Guðmundsson, Ásgrímur Friðriksson og Heiðar Sveinsson. Nú var allt klárt til að kasta. Pét- ur skipstjóri beygði i stjór og kallaði „Lago“. Háfur er bundinn í pokann svo nú er ekkert skott lengur á nót- inni. Band er notað til að kippa í háfinn svo ekki þarf lengur á hlaupa á nótinni þegar á að kasta og er það mikið öryggisatriði. Snurpuhringimir skutust hver af öðrum út af hringabyssunni. Bátnum er siglt í hring og baujan tekin inn fram á. Pokahomið híft upp á stefnið, og byijað að snurpa. Á Þórshamri og öðrum bátum með hliðarskrúfu er kastað tvöföldu. Gengur allt miklu hraðar og liprar að draga nótina inn en var á gömlu * bátunum þegar þurfti að húkka öllum snurpuhringjunum upp á síðuvírinn og renna þeim aftur eftir. Kastið reyndist lítið, 70—100 tonn. Skiptingin og stærðin á loðnunni var mjög góð svo öllu var dælt í mið- tankinn í snatri til að komast af stað. Slagurinn er mikill að koma loðnunni í frystinguna og þvi haldið heim á leið til að missa ekki annan bát fram fyrir sig. Á heimleiðinni rabbaði ég við Pétur Sæmundsson skipstjóra. Hann kvaðst hafa tekið við þessum bát síðastliðið vor en búinn að stjóma bátum síðan 1961 fyrir utan þijú ár, sem hann var verslunarstjóri í Hagkaupum í Njarðvíkum. „Veðráttan á þessari vertíð hefur skipst í tvö hom. Hún var leiðinleg í haust og fram að jólum, en góð eftir áramótin. Við væmm búnir með okkar kvóta, 19.400 tonn, ef ekki hefði komið til verkfall og viðbótarkvóti sem útgerð- in keypti, samtals 2.600 tonn. Margir em búnir, flestir langt komnir og nú er frystingin á loðnu- hrognunum fram undan svo það styttist í þessu. Við fömm á troll eftir loðnuvertíð, nokkrir fara á net, og aðrir fara á rækju. Loðnan er og verður aðalveiði- skapurinn hjá þessum bátum eins og sést best á því að þessi bátur hefur ekki nema 200 tonna þorskígildi. Ég hef ekki trú á því að rækjan komi í staðinn fyrir loðnu sem aðalveiði- skapur því staðan síðasta sumar hjá Norðmönnum var mjög sérstök. Vandræðin em hins vegar þau að mörg þessi skip em orðin dmllupung- ar. Það sér hver heilvita maður að sú þróun gengur ekki lengur að ekki fást leyfi og skilyrði til að endumýja þau skip sem em eldri en tuttugu ára. Ein háðungin er sú og helvítis vit- leysa að einhver maður út í bæ getur átt tuttugu þúsund tonn af loðnu í sjónum sem hann getur selt Pétri og Páli án þess að koma hvergi nálægt. Þetta er komið í öfgar," sagði Pétur og bætti við þegar ég spurði hann hvemig honum líkaði kaupmennskan: „Mér finnst það lifandi starf. Laun- in em viss kapítuli og alveg með eindæmum hvað ætlast er til af starfsfólki í verslunum fyrir þau laun sem það hefur,“ lauk Pétur máli sínu. Kr.Ben.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.