Morgunblaðið - 28.03.1987, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
73. tbl. 75. árg.
LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Reuter
Grískir prestar mótmæla
Prestar grísku rétttrúnaðarkirkjunnar halda á loft stórum tré-
kross. Mynd þessi var tekin í miðborg Aþenu, er kirkjunnar
menn í Grikklandi efndu til mikilla mótmælaaðgerða gegn þeim
áformum stjórnvalda að svipta kirkjuna landareignum sínum.
Sovétríkin:
Vilja fjarlægja eld-
flaugar af Eystrasalti
Kaupmannahöfn, AP.
SOVÉTRÍKIN eru reiðubúin til
þess að flytja burt frá Eystra-
salti þá kafbáta sína, sem búnir
eru kjarnorkueldflaugum, ef
Norðurlönd koma upp hjá sér
kjarnorkuvopnalausu svæði.
Anatoli I. Lykyanov, ritari mið-
stjórnar sovézka kommúnista-
flokksins, skýrði frá þessu í gær.
Lykyanov sagði þetta á fundi
með fréttamönnum í Kaupmanna-
höfn, en þar var hann staddur í
boði danska Jafnaðarmannaflokks-
ins ásamt þremur öðrum frá
miðstjórninni. Komst Lykyanov svo
að orði, að Sovétríkin væru fús til
þess til að sýna „góðan vilja að
taka burt úr Eystrasaltsflota sínum
þá sex kafbáta, sem búnir eru
kjarnorkueldflaugum", ef Norður-
lönd ná samkomulagi sín í milli um
kjamorkuvopnalaust svæði.
„Sovétríkin hafa lagt áherzlu á
það við mörg tækifæri, að þau eru
fús til að taka þátt í viðræðum við
Norðurlönd um fjölþjóðlegt sam-
komulag eða gera samkomulag við
þau hvert í sínu lagi, þar sem Sov-
étríkin skuldbinda sig til að beita
ekki kjarnorkuvopnum gegn þeim,“
sagði í yfirlýsingu frá Lykyanov.
Þar voru jafnframt ítrekaðar tillög-
ur Sovétmanna um algera útrým-
ingu meðaldrægra kjarnorkueld-
flauga þeirra og Bandaríkjamanna
í Evrópu fyrir árslok 1991. „Með
öðrum orðum, við höfum í reynd
fallizt á „núlllausn" Bandaríkja-
manna, sem öll aðildarríki NATO
styðja," sagði Lykyanov.
Yfirlýsingin er gefin daginn eftir
að utanríkisráðherrar Norðurland-
anna komust að sameiginlegri
niðurstöðu um það hér í Reykjavík
að setja á fót vinnuhóp til að kanna
forsendur fyrir kjarnorkuvopna-
lausu svæði, sem næði yfir norður-
slóðir, þar með bæði Eystrasalt og
Kóla-skaga í Sovétríkjunum.
Reuter
Sprenging í Barcelona
Brunaliðsmenn kanna tjón af völdum öflugrar bílsprengju, sem sprakk í Barcelona á Spáni siðdegis
í gær. Einn maður beið bana og 14 særðust. í gærkvöldi hafði enginn lýsl yfir ábyrgð á sprenging-
unni, en grunur lék á, að aðskilnaðarhreyfing Baska hefði staðið að henni. Sjá: Hermaður lézt í
bílsprengingu á bls. 33.
Dollarinn ekki
lægri í áratugi
London, Reuter, AP.
BANDARÍKJADOLLAR lækkaði
skyndilega í gær og komst neðar
gagnvart japanska jeninu en
nokkru sinni áður eftir stríð
þrátt fyrir tilraunir seðlabanka
í mörgum löndum til þess að
koma doílarnum til hjálpar og
styrkja hann.
Talið er, að hagtölur frá Japan
Bretland:
Sex farast
1 ofsaveðri
London, AP.
SEX manns fórust í ofsaveðri
sem gekk yfir suðurhluta Bret-
lands í gær. Tré rifnuðu upp með
rótum og rafmagnslínur slitnuðu
en vindhraðinn mældist 145 kíló-
metrar á klukkustund í mestu
hviðunum.
Feijusamgöngur fóru víða úr
skorðum og í London fuku þak-
plötur af húsum. Samgöngur um
Heathrow-flugvöll töfðust einnig
sökum veðurofsans. Þrír menn lét-
ust og þrír slösuðust nærri Ban-
stead suður af höfuðborginni þegar
þeir urðu undir tré sem rifnað hafði
upp. Byggingaverkamaður lét lífið
í Edington þegar hann varð undir
aurskriðu sem myndaðist vegna
gífurlegrar rigningar. Þá létu tveir
ökumenn lífið þegar vindhviður
hrifu ökutæki þeirra með sér og
franskan sjómann tók út af togara
undan Falmouth í suðurhluta lands-
ins.
yfir febrúarmánuð hafi einkum
valdið lækkun dollarans. í þeim kom
fram, að viðskipajöfnuður Japans
var hagstæður um 8,14 milljarða
dollara í febrúar og því enn hag-
stæðari en í janúar, er hann var
hagstæður um 5,7 milljarða dollara.
Það var til lítils, þó að seðlabank-
ar Japans, Vestur-Þýzkalands,
Frakklands og Sviss keyptu gífur-
lega fjárhæðir af dollurum til þess
að draga úr framboði hans. Að vísu
dró úr lækkun dollarans, er á dag-
inn leið, þannig að hann varð
stöðugri. Haft var eftir fjármálasér-
fræðingum, að gengi dollarans væri
einfaldlega of hátt enn þá og það
yrði að lækka enn frekar eða niður
í 145 jen á móti dollar.
Hætta á hemaðarátökum
milli Grikkj a og Tyrkja
Aþenu og Ankara, Reuter, AP.
MIKIÐ hættuástand kom upp
milli Grikkja og Tyrkja síðdegis
i gær, en þá stefndu herskip frá
báðum þessum þjóðum til Eyja-
hafs. Var sú hætta yfirvofandi,
að til átaka kynni að koma á
milli þeirra. Báðar eru þessar
þjóðir aðilar að Atlantshafs-
bandalaginu.
Tilefnið var, að Tyrkir sendu
rannsóknarskip til Eyjahafs til olíu-
leitar þar á svæði, sem þeir hafa
lengi deilt um við Grikki. Er þetta
vitnaðist, skipaði gríska stjórnin
flota sínum, landher og flugher í
viðbragðsstöðu. Lýsti hún því yfir,
að herskip yrðu send til Eyjahafs
og að rannsóknarskipið fengi aldrei
að framkvæma þær tilraunir á hinu
umdeilda hafsvæði, sem því væri
ætlað að gera.
Tyrkneska skipið, sem ber heit-
ið „Sismik 1“, var statt á Dardann-
ellasundi í gær og átti að koma inn
á Eyjahaf árdegis í dag. Talsmaður
tyrknesku stjórnarinnar vildi ekki
skýra frá því í gærkvöldi, hve mörg
herskip fylgdu því, en sagði aðeins:
„Þau eru nógu öflugur floti.“ Verk-
efni þeirra væri að tryggja rann-
sóknarskipinu „vernd, ef það yrði
fyrir einhveijum hindrunum við
skyldustörf sín“.
Talsmaðurinn bætti því við, að
fjölmennar sveitir tyrkneska herins
væru í viðbragðsstöðu og þeim yrði
beitt gegn sérhverri árás á „þjóðar-
hagsmuni Tyrkja". Hann kvaðst
samt vona, að „almenn skynsemi"
fengi að ráða og að ekki myndi
koma til neinna átaka.
Andreas Papandreou, forsætis-
ráðherra Grikklands, hótaði í
gærkvöldi að láta loka herstöðvum
Bandaríkjamanna í landinu, ef til
hernaðarátaka kæmi við Tyrki.
Atvik svipuð þessu hafa áður
komið upp milli þessara þjóða. í
júlí 1976 sendu Tyrkir sama skip
og nú inn á Eyjahaf til þess að sýna
í verki, að þeir væru ákveðnir í að
láta ekki af kröfum sínum um jafna
hlutdeild á við Grikki í landgrunni
Eyjahafs.
Á skyndifundi sendiherra allra
NATO-ríkjanna 16 í aðalstöðvum
samtakanna í Brussel í gær, var
þeirri áskorun beint til Grikkja og
Tyrkja, að sýna fyllstu varkámi og
þeir hvattir til að „hefja þegar í
stað viðræður til þess að binda enda
á hættuástandið“.