Morgunblaðið - 31.03.1987, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 31.03.1987, Blaðsíða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1987 Könnun DV á fylgi stjórnmálaflokkanna: Borgaraflokkurjafn 'stór Alþýðuflokki ALBERT Guðmundsson og flokkur hans, Borgaraflokkurinn, fengu mikið fylgi í skoðanakönnunum sem DV og Stöð 2 hafa látíð gera. Könnun DV nær til landsins alls og samkvæmt henni mun Borgara- flokkurinn fá 11 þingmenn í næstu kosningum, eða jafn marga og Alþýðuflokkurinn. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 19 þingmenn. Þess ber að geta að nú verða 63 þingmenn kjörnir, í stað 60 áður. Könnun Stöðvar 2, sem unnin er af SKÁÍS, nær til Reykjavíkur og Reykjaness og samkvæmt henni ~^iengi Borgaraflokkurinn 28% at- kvæða í Reykjavík, eða §órum prósentustigum meira en Sjálfstæð- isflokkurinn. Alþýðuflokkurinn fengi um 13% og bætti lítillega við sig frá síðustu kosningum, Fram- sóknarflokkur fengi rúm 4%, en hann hafði tæplega 10% í Reykjavík í síðustu kosningum. Þá tapar Al- þýðubandalag einnig fylgi og fengi um 15% í stað 19% í síðustu kosn- ingum. Sá flokkur sem bætir mestu við sig er Kvennalistinn, sem fengi nú um 14%, en hafði áður rúmlega 8%. Miðað við niðurstöður könnunar Stöðvar 2 fengi Borgaraflokkurinn 4 þingmenn kjöma í Reykjavík, án þess að tillit sé tekið til uppbótar- þingsæta, Sjálfstæðisflokkurinn fengi einnig 4 þingmenn, Alþýðu- bandalagið 2, Kvennalistinn 2 og Alþýðuflokkurinn einnig 2. Ef svo færi yrði formaður Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, ekki lqördæmakjörinn og næði líklega ekki inn sem uppbótaþingmaður og sama gildir um efsta mann Fram- sóknarflokksins í Reykjavík, Guðmund G. Þórarinsson. Flokkur mannsins og Bandalag jafnaðar- manna hafa lítið fylgi samkvæmt könnun þessari. Í Reykjaneskjördæmi hefur Borgaraflokkurinn svipað fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn, um 24%. Þá fengi Alþýðuflokkurinn um 17% og bætti nokkru við sig, Framsóknar- flokkurinn fengi rúm 5% og tapaði helming fylgis síns, sem hefði það í för með sér að Steingrímur Her- mannsson, formaður flokksins, næði tæpast kjöri. Þá bætir Al- þýðubandalagið nokkru við sig og fengi rúmlega 16% atkvæða, Kvennalistinn fengi einnig viðbót og hlyti 9% atkvæða, en Bandalag jafnaðarmanna og Flokkur manns- ins fengju óverulegt fylgi. Sam- kvæmt þessu fengju Sjálfstæðis- flokkur og Borgaraflokkur tvo kjördæmakjöma þingmenn á Reykjanesi, Alþýðuflokkur og Al- þýðubandalag sömuleiðis, en Kvennalisti fengi einn þingmann. DV gerði um helgina könnun á fylgi flokkanna og nær hún til landsins alls. Samkvæmt henni bætir Alþýðuflokkurinn við sig 5 þingmönnum, hafði 6 en fær 11 og hlýtur 11,2% atkvæða. Framsókn- arflokkur tapar 5 mönnum, hafði 14 en fær 9 og hlýtur því 9% at- kvæða og Bandalagjafnaðarmanna fær engan þingmann með 0,2% at- kvæða en hafði 4 menn áður. Sjálfstæðisflokkur fær 19,7% at- kvæða og tapar 4 mönnum, fær 19 í stað 23. Alþýðubandalag fær 8,2% atkvæða og 8 þingmenn kjöma í stað 10, Samtök um kvennalista bæta við sig 2 mönnum og fá 5 með 5,3% atkvæða og loks fær Borgaraflokkurinn 11 þingmenn. Hlutur Borgaraflokksins af at- kvæðamagni er 11,3%. Þá fær Þjóðarflokkurinn 0,2%, Stefán Val- geirsson 0,7% og Flokkur mannsins 0,5%. Stór hluti aðspurðra kvaðst ekki vera búinn að ákveða hvaða flokkur fengi atkvæði, eða 28,8% og 5% neituðu að svara. Ef aðeins em teknir þeir sem tóku afstöðu í könnun DV hefur Alþýðuflokkur 16,9% fylgi, Fram- sóknarflokkur 13,6%, Bandalag jafnaðarmanna 0,3%, Sjálfstæðis- flokkur 29,8%, Alþýðubandalag 12,3%, Samtök um kvennalista 8,1%, Flokkur mannsins 0,8 %, Stefán Valgeirsson 1,0%, Þjóðar- flokkurinn 0,3% og Borgaraflokkur- inn 17,1%. Niðurstöður em svipaðar í Reykjavík og í könnuninni sem Stöð 2 íét vinna hvað varðar D og S- lista. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 27,3% og Borgaraflokkurinn 26,6%, sem þýðir að hvor flokkur fengi 4 þingmenn. Þá er aðeins litið til kjör- dæmakjörinna þingmanna, en ekki jöfnunarþingsæta og er það sama reikningsaðferð og hjá Stöð 2. DV segir hins vegar Alþýðuflokkinn fá 3 þingmenn í Reykjavík, en Stöð 2 spáir flokknum 2 mönnum. Þá seg- ir DV Alþýðubandalagið fá 2 þingmenn og Kvennalista einn, en Stöð 2 spáði konunum 2 mönnum í Reykjavík. í báðum könnunum er niðurstaðan sú að Framsóknar- flokkurinn nái ekki inn manni í Reykjavík, þó jöfnunarsæti komi þar til greina. Veldur okkur von brigðum og áhyggjum - seg’ir Þor- steinn Pálsson „ÞESSI vísbending veldur okkur að sjálfsögðu vonbrigðum og kannski öllu fremur áhyggjum. Eg hafði að visu gert mér grein fyrir því, að þessi nýi flokkur fengi nokkurt fylgi í fyrstu skoð- anakönnunum að minnsta kosti ff.og ræddi það á flokkráðsfundi Sjálfstæðisflokksins á sunnudag. Megin niðurstaðan í þessu nú er sú, að fari þetta eftir, sýnist mér að það þurfi að minnsta kosti þijá flokka til að mynda starf- hæfa ríkisstjórn. Verði Sjálf- stæðisflokkurinn ekki með í myndun ríkisstjórnar vegna fylgistaps, þarf að minnsta kosti fjóra flokka til að mynda stjóm,“ sagði Þorsteinn Pálsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, er Morgunblaðið innti hann álits á fylgi Borgaraflokksins í skoð- anakönnunum. „Eg óttast að með þessu sé veru- legulega dregið úr líkum á því, að jiér skapist nægileg festa í stjóm- málum og það auki líkumar á því að sá góði árangur, sem við höfum náð, varðveitist ekki. Umfram allt held ég, hvað sem líður ölduróti síðustu daga, að mestu máli skipti, þegar kosningaslagurinn er afstað- inn og alvara lífsins tekur við, að hér verði möguleiki á að mynda ríkisstjóm, sem er líkleg til þess að veita áframhaldandi festu og öryggi í stjómarháttum og varð- veita það jafnvægi í efnahagsmál- um, sem við höfum náð.“ Hveijar telur þú líkur á stjómar- samstarfl Sjálfstæðisflokksins og Borgarflokksins að loknum kosn- ingum? - „Ég hef oft sinnis svarað spurn- ingum af þessu tagi. Sjálfstæðis- flokkurinn útilokar auðvitað engan möguleika á myndun ríkisstjómar. Það, sem hins vegar ræður úrslitum eftir kosningar, er styrkleiki flokka og málefnaleg samstaða. Því veik- ari, sem Sjálfstæðisflokkurinn er, þeim mun minni líkur eru á því að hann verði burðarás í nýrri ríkis- stjórn. Andstæðingar okkar gera sér grein fyrir því, en þessir tveir þættir, styrkleiki flokka og mál- efnaleg samstaða ráða auðvitað jhvernig ríkisstjóm verður mynduð. Við höfum ekki fram að þessu úti- lokað neinn möguleika og breytum ekki þeirri afstöðu, þó þetta hafi komið upp.“ Samkvæmt skoðanakönnum DV fá Sjálfstæðisflokkurinn og Borgar- flokkurinn samtals 30 þingmenn. Telur þú það benda til hægri sveiflu í íslenzkum stjómmálum? „Ýmsir úr Sjálfstæðisflokknum hafa gengið til liðs við Borgarflokk- inn, en þar er líka fólk, sem kemur úr öðmm áttum. Því áttar maður sig ekki alveg á því, hvar hann stendur. Þar er líka fólk og fram- bjóðendur, sem hafa rætt nauðsyn þess að mynda flokk hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn. Eg held því að mjög erfitt sé að átta sig á því hvar í hinu pólitíska litrófí Borgara- flokkurinn á heima. Ég held því að þetta sé einhvers konar sveifla af örðu tagi en til hægri," sagði Þor- steinn Pálsson. Stefnubreyt- ing frá ný frjálshyg'gju- til mýkri sam- skipta manna -segir Albert Guðmundsson „ÉG ER afskaplega ánægður með þessar niðurstöður og þakk- látur fólkinu fyrir að sýna okkur þetta traust og samstöðu," sagði Albert Guðmundsson, efsti mað- ur á lista Borgaraflokksins í Reykjavík, er leitað var álits hans á niðurstöðum þeirra skoðana- kannana sem birtar hafa verið undanfarna daga. Albert sagði að sér sýndist þetta benda til að fólkið hafí beðið eftir einhveijum breytingum, en benti á að þetta væm skoðanakannanir en ekki kosningar. „Við verðum að vona að þessi meðbyr endist fram jrfír kosningar og lengur," sagði Albert. Hann sagði að niðurstöðum- ar hefðu komið sér á óvart. „Ég vissi að ólgan var fyrir hendi, en mér kom þó á óvart hvað fólkið tók strax vel við okkur.“ Albert sagði að niðurstöðumar sýndu að fólkið væri orðið þreytt á því flokksræði sem grafíð hefði um sig í gömlu flokkunum. Það vildi hafa meiri áhrif á starf stjóm- málaflokkanna og þjóðfélagið allt. „Stjómmálaflokkamir em ekki eign neinna manna og ég held að þetta sé ákveðin viðurkenning á því þjón- ustustarfí sem ég hef rekið frá því ég fór út í pólitík," sagði Albert. Aðspurður um hvort þessar skoð- anakannanir sýndu að varanlegar breytingar væm að eiga sér stað á flokkakerfínu sagði Albert: „Þetta getur þýtt ákveðna stefnubreyt- ingu, frá nýfíjálshyggju til mýkri samskipta manna, sem er meira í átt við stefnu Sjálfstæðisflokksins, eins og hún var.“ * Aminning fyrir alla vinstri menn - segirSvavar Gestsson „MÉR líst auðvitað illa á þessar niðurstöður, sérstaklega það að Sjálfstæðisflokkurinn gæti sam- kvæmt þessu fengið 30 þing- menn, það er Sjálfstæðisflokkur Þorsteins Pálssonar og Alberts Guðmundssonar samanlagt," sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins. Svavar sagði að könnun DV yrði vonandi áminning fyrir alla vinstri menn um að efla sterkara mótvægi við íhaldið en áður hafí verið til hér á landi og að sameinast um eitt sterkt afl. „Ég á ekki von á að niður- stöður kosninganna verði í þessum dúr. Þessar kannanir em gerðar á þeim tíma þegar fólk hefur þörf fyrir að gera upp huga sinn gagn- vart Þorsteini eða Albert, án tillits til annars. En Þorsteinn og Albert em sem kunnugt er ekki höfuðand- stæður íslenskra stjórnmála, heldur sérhyggjan annars vegar og félags- hyggjan hins vegar, Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðubandalagið. Kosningarnar nú munu verða þjóð- aratkvæðagreiðsla um lífskjörin á Islandi." Fylgi Alþýðuflokks- ins stöðugt - segir Jón Baldvin Hannibalsson „ÞESSAR niðurstöður eru stór- merkar,“ sagði Jón Baldvin Hannibaisson, formaður Alþýðu- flokksins. Jón Baldvin sagði að samkvæmt könnun SKÁIS hafí allt verið í kaldakoli hjá Alþýðuflokknum í Reykjavík. „Könnun DV sýnir hins vegar að Alþýðuflokkurinn bætir við sig fylgi í Reykjavík, fer úr 16,1% í 18% og fylgi hans er stöð- ugt um land allt,“ sagði formaður- inn. „Stofnun Borgaraflokksins er staðfesting á því að Sjálfstæðis- flokkurinn hefur klofnað, enda tapar hann mestu fylgi til hins nýja flokks. Forystumenn Sjálfstæðis- flokksins útskýra fylgistapið með því að fólk sé á valdi tilfinninga og muni leita aftur til heimahúsa síðar þegar rennur af því. Þetta er mis- skilningur, því stjómmál fjalla um fólk og fólk hefur tilfínningar. Það vekur líka athygli að konurnar em ósnortnar jafnvel þótt grátið sé til þeirra í beinni útsendingu. Er það svo að karlmenn sveiflist á valdi tilfinninga á meðan konurnar eru fulltrúar tilfinningalausrar rök- hugsunar? Ég spái því að þessi klofningur leiði til þess að munurinn á fylgi Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks í næstu kosningum verði minni en menn órar fyrir nú.“ Metnar eftir málefnum - segir Kristín Halldórsdóttir „VIÐ Kvennalistakonur erum að sjálfsögðu mjög ánægðar með okkar útkomu í þessum könnun- um og teljum hana sýna að við erum metnar eftir málefnum,“ sagði Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Samtaka um Kvenna- lista. „Borgaraflokkurinn er stofnaður á allt öðmm forsendum en Kvenna- listinn og við reiknuðum aldrei með að hann breytti nokkm um fylgi okkar," sagði Kristín. „Við byggjum á málefnum, en Borgaraflokkurinn á ágreiningi um persónur. Ég held að konur bregðist ekki við valdatog- streitu með samúð og aukið fylgi okkar byggist á því að fólk hefur kynnt sér stefnu okkar. Við höfum orðið varar við það á fundum með kjósendum að við eigum enn fullt erindi í íslenskum stjómmálum." Mörgum þyk- ir illa farið með Albert - segir Steingrímur Hermannsson „MÉR líst ekki vel á stöðuna, en þessar kannanir eru gerðar á meðan tilfinningar rísa sem hæst og sýna því ekki lokaniðurstöð- una,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsókn- arflokksins. Steingrímur sagði að það gæti vel farið svo áð Borgaraflokkurinn fengi meira fylgi en menn grunaði í upphafí. „Þá eru komnir tveir ftjálshyggjuflokkar og ég held að Sjálfstæðisflokkurinn tapi mestu fylgi til hins nýja flokks. Að vísu gæti Framsóknarflokkurinn einnig misst fylgi af tilfínningaástæðum, því mér heyrist á mörgum sem þeim þyki illa farið með Albert. Borgara- flokkurinn virðist einnig seilast inn í raðir annarra flokka. Ég tel hins vegar að þegar farið verður að fjalla meira um málefni í kosninga- baráttunni þá breytist fylgi flok- kanna aftur.“ Steingrímur sagðist lítið mark taka á skoðanakönnun SKÁIS, en þar eru niðurstöður á þá leið á hann nái tæpast kjöri í Reykjaneskjör- dæmi. „Ég hef ekki mestar áhyggjur af því, heldur þeirri sundrungu sem nú er í íslenskum stjórnmálum. Það verður erfítt að stjórna landinu með þessu áfram- haldi." Framboð Borg- araf lokksins á Vestfjörðum; Dæmt óiög- legt af yfir- kjörstjórn YFIRKJÖRSTJÓRN Vest- fjarðakjördæmis úrskurðaði framboðslista Borgaraflokks- ins á Vestfjörðum ógildan síðastliðinn laugardag á þeim forsendum að ekki fylgdi næg- ur fjöldi meðmælenda fyrir lok framboðsfrests, sem rann út á miðnætti á föstudagskvöld. Borgaraflokkurinn kærði þann úrskurð til landskjörstjórnar, sem kom saman vegna þessa máls í gær. Formaður lands- kjörstjórnar, Benedikt Blönd- al, sagði að úrskurður kjörstjórnarinnar á Vestfjörð- um hefði verið ræddur á fundinum auk þess sem farið hefði verið yfir aðra framboðs- lista. Niðurstaða lægi hins vegar ekki fyrir. Pétur Kr. Hafstein, formaður yfirkjörstjórnar Vestfjarðaum- dæmis, sagði að alls hefðu nöfn sex meðmælenda fylgt framboðs- lista Borgaraflokksins á Vest- fjörðum, en lágmarksfjöldi meðmælenda utan Reykjavíkur- umdæmis væru 50 meðmælend- ur. „Eftir miðnættið bárust fjöldi skeyta og meðmælendabréfa, en það skipti ekki máli þar sem framboðsfrestur rann út á mið- nætti," sagði Pétur. Helena Albertsdóttir sagði að kæra væri eðlilegur gangur mála þegar ekki væri rétt að staðið í slíkum málum. „Við fengum öll tilskilin gögn og þar með 51 meðmælanda. Af þeim voru níu taldir á kjörskrá annars staðar. Inn á Patreksfirði lágu nöfn 22 meðmælenda sem ekki var hægt að ná í vegna veðurs og reyndar sitja þar ennþá. Hinsvegar var sent skeyti til að staðfesta þau nöfn og það ber að gefa frest við slíkar aðstæður," sagði Helena.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.