Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 16

Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1987 Vasi og skál Myndlist Valtýr Pétursson Vasi og skál og kúla og skál eru titlar á flestum þeim verk- um, sem sýnd eru á leirkerasýn- ingu ungrar listakonu á Vesturgangi á Kjarvalsstöðum. Það er Ragna Ingimundardóttir, sem hér sýnir leirmuni sína í annað sinn, en hún hefur stund- að nám hér heima og í Hollandi í listgrein sinni á undanfömum árum. Ragna stillir leirmunum sínum upp á svolítið sérstæðan hátt, það er að segja öllu er parað niður og hlutimir settir í samhengi, þannig að tvennur myndast, og eins og listakonan segir sjálf í viðtali hér í blaðinu: Hver skál, vasi eða kúla og ann- að, sem ég geri, er eitthvað ákveðið fyrir mér, hefur ákveðna þýðingu og er oft tengt ákveð- inni manneskju. Það er því ekki sama fyrir höfundinn, hvert hlutimir fara eða hveijum þeir tengjast, að hennar sögn. Þetta er í sjálfu sér mjög skemmtilegt viðhorf og mannlegt, um leið og það gefur hugmynd um virðingu listakonunnar fyrir því, sem hún skapar. Þeir munir, sem til sýn- is em að Kjarvalsstöðum um þessar mundir, eru formhreinir. Skreytingar eru ekki marg- brotnar, en falla vel að forminu. Aferð efnisins fær einnig að njóta sín og er í samræmi við hrjúft yfirborðið og skilar hug- mynd um massífa muni, kúlur, skálar og vasa. Þama má fínna vel unnið keramík, sem hefur persónulegan svip og þann ferskleika, sem æskan ein getur tjáð með lífsfjöri sínu. A undanfömum ánim hefur Ragna Ingimundardóttir orðið til stór hópur af leirlistar- fólki í þessu landi. Fyrir örfáum árum voru ekki margir, sem stunduðu þessa listgrein hér á landi, en nú eru aðrir og ef til vill merkilegri tímar. Leirker- asmíð er fom íþrótt, sem mikið hefur verið stunduð í nágrenni okkar á Norðurlöndum og eru þar finnanlegir frægir menn í faginu. Vonandi hefur sá fjör- kippur, sem að undanfömu hefíir verið merkjanlegur í þess- ari listgrein hérlendis, þau áhrif, að um verulegan árangur verði að ræða, sem skipi okkur á bekk með frændþjóðunum í þessum efnum. Þetta er persónuleg og skemmtileg lítil sýning hjá Rögnu Ingimundardóttur, sem gefur hinar ágætustu vonir. Teikningar frá U ngverj alandi Myndlist Valtýr Pétursson Þeir sem fylgzt hafa með því, sem hefur verið að gerast í mynd- list okkar á síðustu árum, kannast við teiknarann Sigurð Öm Brynj- ólfsson, en hann hefur haldið nokkrar sýningar á teikningum sínum á undanförnum árum, og einnig gerði hann fyrstu íslenzku teiknimyndina, „Þrymskviðu", sem sýnd var í sjónvarpinu á sínum tíma. Nú hefur Sigurður lagt land und- ir fót og heimsótt Ungveijaland og dvalizt í þeirri merkilegu borg, Búdapest. Þar hefur hann mundað blýant og krítarstifti og er nú end- urheimtur í Gallerí Borg með mikið af skyndirissi í farteskinu. Er þama um að ræða krítarteikningar og svart/hvítar rissmyndir, gerðar af mikilli íþrótt og á skemmtilegum hraða. Þama er það fyrst og fremst augnablikið, sem er fangað, blýant- urinn bókstaflega flýgur eftir myndfletinum og skilar snöggum og ákveðnum áhrifum. Maður von- ast ósjálfrátt eftir því, að þessar myndir leiði að einhveiju meiru en rissinu einu. Það er eins og ekki sé fyllilega unnið úr sumu því, er fyrir augun ber, en þeir sem gist hafa þann ágæta stað Búdapest, munu finna eitthvað úr andrúms- lofti Ungverjalands í þessum teikningum. Búdapest er ein af for- vitnilegustu borgum Mið-Evrópu, og þar er sannarlega margt að finna, enda hefur borgin og orðið Sigurði Erni vaki að margvíslegu myndefni, sem nú má sjá í Gallerí Borg, þar sem hann hefur hengt upp tæpar íjörutíu myndir frá dvöl sinni í Ungveijalandi. Það er heldur sjaldgæft að sjá sýningar á teikningum einvörðungu hér á landi, og er Sigurður Örn einn örfárra listamanna, sem rær á slík mið. Hann er hressilegur teikn- ari að eðlisfari og nær oft á tíðum skemmtilegri kímni í myndefni sitt. Hér eru það litlu húsin og trén, sem segja mér einna mest, og ekki má láta hjá líða að minnast á glæsihall- ir Búdapestborgar og þær mektugu brýr, sem gefa henni sinn einstæða svip. Það er auðséð af þessu rissi Sigurðar, að hann hefur komizt í náin tengsl við umhverfið í Ung- veijalandi og kunnað að umgangast það blóðheita fólk, sem staðinn byggir. Það er bæði frískandi og fróðlegt að sjá þessi riss, sem kveikja löngun áhorfandans til að sjá frekari vinnslu á sumum þess- ara verka. Þjóðminjar handa út lendingxim Heimurinn 1986 Bókmenntir Sigurjón Björnsson Thor Magnússon: A Showcase of Icelandic National Treasures. Iceland Review 1978. Reykjavík 96 bls. Enda þótt titill sé hér skráður á énskri tungu kemur þessi bók samtímis út á ensku og þýsku. Þýski titillinn er: Islandische Kult- urschátze aus archáologischer Sicht. Ekki mun þessi bók vera gefin út með íslenskum texta og er hún því bersýnilega ætluð útlend- ingum, sjálfsagt einkum ferða- mönnum sem til landsins koma. Bókin skiptist í tvo kafla, mjög misstóra. í fyrri kaflanum er saga íslands (Historical Survey) rakin í allra stærstum dráttum á 22 bls. Er sá kafli að því er virðist gerður til þess að það sem á eftir fer verði bláókunnugum skiljanlegra, þ.e. reynt er að smíða sögulega umgerð um þær fomminjar og menningar- verðmæti liðinna tíma, sem sagt er frá og sýnd eru í myndum í aðal- hluta bókarinnar (Relics and Treasures of Ages Past, bls. 24—9Ij. - Inngangskaflinn er Iaglega skrif- aður, ljós og skilmerkilegur. Honum fylgja tíu myndir af ýmsu tagi: kort af Iandfræðilegri legu íslands, myndir af málverkum, ljósmynd af sveitabæ og munum margs konar og teikning af kaupskipi úr fornöld. Myndir þessar eru einungis mjög lauslega tengdar hinu sögulega yfírliti. I seinni bókarkaflanum er svo breytt um frásagnarmáta. Þá er samfelldum texta sleppt, en höfund- ur hefur í stað þess valið margvís- legt myndefni, sem útskýrt er í skýringargreinum sem fylgja myndunum. Er myndefnið hið Qöl- breytilegasta og gefur einkar fróðlega og skemmtilega sýn inn í íslenska menningarsögu. Myndir telst mér að séu alls eitt hundrað (að meðtöldum þeim tíu sem fylgja inngangskafla), en skýringargrein- ar eru lítið eitt færri, þar eð tvær myndir fylgja fáeinum greinum. Naumast er ég dómbær á fræði- legt gildi textans í þessari bók. En þau mál hljóta að vera í góðum höndum, þar sem þjóðminjavörður hefur um vélt. Víst er um það að öll áferð textans er hin notalegasta og ætti varla að ofbjóða skilningi eða þolinmæði ferðamanns þó að hann sé á hraðri ferð og ekki meira efi frlátuiega hnýsinn. Um val á myndefni má að sjálfsögu endalaust deila, því að úr miklu er að moða. Mér fannst einkar skemmtilega og smekklega valið. Þór Magnússon þjóðminjavörður Það sem sérstaklega einkennir þessa bók er hversu fögur og aðlað- andi hún er að öllu útliti. Hönnun hennar er afar vel gerð af Fann- eyju Valgarðsdóttur. Brot er þægilegt, pappír góður, texta vel fyrir komið, prófarkir vel lesnar. Sérstaklega staldrar maður þó við myndgæðin. Allar myndir eru mæta vel gerðar, margar hveijar augna- yndi. Hefur Páll Stefánsson, ljós- myndari, unnið þar verk sem ber að Jofa. Ég hygg að þessi litla og fallega bók hljóti að þjóna hlutverki sínu vel. Hún ætti að vera ferðamönnum kærkominn gestur, ef þá fysir að skyggnast lítillega inn í íslenska fortíð um leið og þeir skoða landið og innbyggjara þess. Einnig er þetta afar skemmtileg bók til að senda vinum og kunningjum erlend- is. T?r» V*_; ...IJ... 1- ' 11,»* ucaai ivtoihcrmíI VtttJUr "JJVl' að mann fer að langa til að sjá talsvert matarmeira ritverk um ís- lenskar þjóðminjar með íslenskum texta. Hver treystir sér í slíkt fyrir- tæki? Erlertdar bækur Siglaugur Brynleifsson State of the World 1986. A Worldwatch Institute Report on Progress Towards a Substain- able Society. Lester R. Brown, Edward C. Wolf, Linda Starke ... W.W. Norton & Company 1986. Knaurs Weltspiegel ’86. Fakten — Daten — Tabellen — Bilder. Knaur 1985. „State of the World 1986“ er þriðji árgangur þessa ársrits, sem ætlað er að vera einhverskonar spegilmynd þeirra þátta í efna- hagslífi og framleiðsluháttum, sem móta efnislegar breytingar í mann- heimum og umhverfi. Höfundar rekja í nokkrum ritgerðum það sem þeir telja skipta mestu máli. Lester R. Brown ritar um skuldasöfnun hinna ýmsu ríkja og þær afleiðingar sem höfundurinn telur sig sjá fyrir, að óbreyttri fjármagnsstefnu. Um- hverfíshrömun og vatnsskortur virðast ógna mannlífi og náttúru á stórum svæðum og með stöðugri fólksfjölgun virðist allt stefna í blindgötu að dómi Browns og Wolfs. í ritgerð Edwards G. Wolfs er fjall- að um beitarbúskap og hirðingjabú- skap. Samkvæmt skoðun höfundar eru hin víðlendu beitarsvæði, grasi vaxnar víðáttur í Asíu, Ameríku, Afríku og víðar, lykillinn að aukinni matvælaöflun mannkynsins í formi bestu tegunda hvítu (próteina) sem fáanlegar eru. Á þessum víðáttu- TTaixvtu ’ ttlTCtluuí "cf uITi preiuui milljörðum búpenings haldið til beit- ar, nautgripum, sauðfé, geitum og úlföldum. Á síðustu áratugum hefur eftirspumin eftir afurðum þessara svæða dregist saman vegna offram- leiðslu korns í Evrópu og Banda- ríkjunum, sem nýtt hefur verið að hluta til fóðurs í verksmiðjubúum þar sem búsmalinn er alinn innan- dyra og ódýrum afurðum er hrúgað á markaðinn. Wolf fjallar ítarlega um beitarþol og framleiðsluhætti á þessum svæðum og þótt ritgerðin sé ekki nema 14 blaðsíður þá er þar að finna upplýsingar og útlist- anir sem eiga fullt erindi til allra þeirra bænda hér á landi, sem stunda hinar hefðbundnu búgreinar og hafa ekki látið glepjast af ruglu- kollum Stéttarsambands bænda og fölsunarherferðum söluaðila bú- fjárafurða. Lester R. Brown fjallar einnig um landbúnað í fyrstu ritgerðinni og þar með um algjöra misheppnan alls samyrkjubúskapar að sósíölsk- um hætti. 011 þau ríki sem búa við stjóm marxista verða að flytja inn mikið magn landbúnaðarafurða, jafnvel ríki sem voru komforðabúr heilla álfa fyrir tíma valdatöku marxista, svo sem Sovétríkin. Önn- ur afbrigði samvinnurekstrar hafa gefist jafn illa. Meðal annarra greina em rit- gerðir um kjamorku og raforku og aðra orkugjafa, ritgerð er um tób- aksneyslu og nauðsyn þess að hamla gegn henni. Dregnar eru upp afleiðingar tóbakssígarettureyk- inga í hrollkenndum myndum og loks er grein um endurhönnun ör- yggismála. Knaurs Weltspiegel ’86, spannar einnig árið ’85 að nokkru. Þetta er uppflettirit um lönd og ríki, fram- ieiosiu og neistu atburði, sem vakið hafa verðskuldaða athygli eða sem snerta mannheima á einn eða annan hátt. Þörf bók fyrir þá, sem þarfn- ast knapps uppflettirits um þessi efni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.