Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAI 1987 ¥ Morgunblaðið/Sverrir Eigendur verslana við Laugaveg, frá Frakkastig að Klapparstíg, óttast að innbrotum fjölgi þar sem engin umferð er um götuna. Lögreglan kveður svæðið vera undir ströngu eftirliti. Verslunareigendur við Laugaveg óttast innbrot: Erum með svæð- ið undir smásjá - segir Páll Eiríksson, aðstoðar- yf irlögregluþj ónn EIGENDUR verslana við Laugaveginn í Reykjavík hafa af því nokkrar áhyggjur að innbrot i verslanir muni aukast á þeim hluta vegarins sem nú er lokaður fyrir umferð, þar sem innbrotsþjófar eigi auðvelt með að athafna sig Eins og sagt var frá í Morgun- blaðinu var brotist inn í gullsmíða- verslun við Laugaveginn fyrir skömmu og öllu fémætu stolið. Þá var einnig brotinn gluggi í úraverslun við Laugaveginn um síðustu helgi, en lögreglan náði þeim sem það gerði áður en hann gat haft nokkuð á brott með sér. Vegna þessa eru verslunareigend- ur við Laugaveginn uggandi, þar sem þeir telja að innbrot muni aukast á meðan verið er að vinna að endurskipulagningu vegarins frá Frakkastíg að Klapparstíg. Páll Eiríksson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn, sagði að innbrot hefðu aukist í Reykjavík að undanfömu þar óséðir. en sér virtist sem þessi hluti Laugavegar væri_ ekki í meiri hættu en aðrir. „Ég held að það hafi ekki orðið nein aukning á innbrotum þama, en það er þó erfítt að dæma um það vegna þess hve stuttur tími er liðinn frá því að veginum var lokað fyrir umferð," sagði Páll. „Lögreglan gerir sér þó grein fyrir því að þetta er viðkvæmt svæði vegna þess að umferð er engin og því eru gangandi lögregluþjónar þama á ferli frá því að verslanir loka og fram eftir nóttu. Við höf- um þetta svæði því undir sérstakri smásjá." Steingrímur skilaði umboðinu í gær: Forsætisraðherra og borgarsl^ori: Vel tekið í hugmyndina um vinnuveitendasamband ríkis og sveitarfélaga STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra og Davíð Oddsson, borgarstjóri, taka vel í þá hugmynd Gunnars J. Friðrikssonar, form- anns Vinnuveitendasambands íslands, að tímabært sé að ríki og sveitarfélög myndi samtök sem vinnuveitendur og komi sameiginlega fram gagnvart félögum opinberra starfsmanna með sama hætti og gerist á almennum vinnumarkaði. Hins vegar eru talin öll tormerld á því að fjárveitinganefnd Alþingis verði í forsvari samninga við opin- bera starfsmanna. „Mér finnst út af fyrir sig sam- starf milli ríkis og sveitarfélaga mjög æskilegt í þessum málum, hvort sem það er í formi vinnuveitendasam- bands eða náins samstarfs," sagði Steingrímur Hermannsson, forsæt- isráðherra. „Hins vegar tel ég að þetta sé á misskilningi byggt hvað varðar íjárveitinganefnd Alþingis. Alþingi er ekki framkvæmdaaðili, heldur fer með löggjafarvald og við verðum að gæta þess, jafnvel betur en við höfum stundum gert, að Al- þingi hafi ekki afskipti af málefnum framkvæmdavaldsins“. Steingrímur sagði að hann hefði lengi talið tímabært að endurskoða vinnulöggjöfína, hún væri komin til ára sinna, þó hún hefði verið merk, þegar hún var samin á millistríðsár- unum. „Það hefur svo margt breytst í þjóðfélaginu að ég tel endurskoðun ákaflega æskilega. Það hafa að vísu verið gerðar margar tilraunir til end- urskoðunar. Þær hafa oft strandað á verkalýðshreyfíngunni, en ég held að mjög nauðsynlegt sé að gera þessar breytingar að höfðu samráði við verkalýðshreyfinguna," sagði Steingrímur. Hann sagði að hann teldi varla komna næga reynslu á samningsréttarlög opinberra starfs- manna til þess að taka ákvörðun um endurskoðun. Davíð Oddsson, borgarstjóri, sagði að hann teldi vert að skoða hugmyndina um vinnuveitendasam- band ríkis og sveitarfélaga. „Við verðum varir við það, þegar við ger- um samninga við borgarstarfsmenn, að það er ætlast til þess að við rugl- um ekki allt launakerfið í landinu með samningum okkar og þá er ef til vill best að hafa samræmi í þessu, að minnsta kosti hvað varðar allar meginlínur, þó sveitarfélögin semji síðan um ýmis sératriði," sagði Davíð. Hann var einnig spurður hvort hann teldi ástæðu til þess að endur- skoða samningsréttarlögin frá því í vetur: „Ég held að það sé of snemmt að dæma um samningsréttarlögin. Maður gerði svo sem ráð fýrir í fyrs- tunni að allir myndu þurfa að prófa þennan nýfengna verkfallsrétt. Ég held hins vegar að í vaxandi mæli muni menn átta sig á því að verk- fallsrétturinn er ekki vopn sem BÆJARSTJÓRN Ólafsvíkur lýs- ir yfir miklum áhyggjum með ástand vega á leiðinni um Fróð- árheiði til Reykjavíkur. Vegir á þessari leið eru nú stórkemmdir vegna of mikils öxulþunga og sívaxandi fiskflutninga frá höfn- dugar í nútímanum. Mér finnst ekk- ert athugavert við það að félögin hafi þennan rétt í öryggisskyni, en það verður að nota hann af var- fæmi. Ef hann verður notaður eins og undanfarið, gerir hann ekkert gagn, heldur þrýstir ákveðnum hóp- um upp og eykur á verðbólguna," sagði Davíð. „Mér sýnist í fljótu bragði að þetta stríði á móti þeirri grundvallarreglu að framkvæmdavaldið sé ekki í höndum Alþingis, en samningar við opinbera starfsmenn heyra unuir framkvæmdavaldið," sagði Þorvald- ur Garðar Kristjánsson, forseti Sameinaðs þings, er hann var spurð- ur hvort fjárveitinganefnd gæti farið með samninga við opinbera starfs- menn. „Alþingi fer með löggjafar- vald og hefur eftirlitshlutverk gagnvart framkvæmdavaldinu," sagði hann ennfremur og benti á að það hefði verið undirstrikað í byijun þessa árs er Ríkisendurskoð- un var færð frá fjármálaráðuneytinu og undir vald Alþingis. um á utanverðu Snæfellsnesi, segir í ályktun bæjarstjórnarinn- ar. Ennfremur segir: „Bæjarstjóm vill benda á að Fróðárheiði tengir saman heilsugæslusvæði Ólafsvík- urlæknishéraðs. Með sama ástandi vega á þessu svæði er stórhætta á byggðaröskun á utanverðu Snæ- fellsnesi. Bæjarstjórn Ólafsvíkur: Miklar áhyggjur vegna vegaástands Útilokar ekki þátttöku í fjögurra flokka stjóm STEINGRÍMUR Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins gekk á fund forseta íslands { gærmorgun og skilaði af sér um- boði þvi sem hann fékk sl. sunnudag til stjórnarmyndunar. Á fundi með fréttamönnum að þvi loknu sagðist Steingrimur ekki útiloka þátttöku Framsóknar- flokks í fjögurra flokka stjórn, þó að hann væri mjög hikandi i því efni. „Mér hefur virst liggja mjög ljóst fyrir, að mér muni ekki takast, í þessari tilraun a.m.k. að mynda ríkis- stjóm og vil ekki teíja fyrir tilraunum annarra," sagði Steingrímur. Steingrímur sagðist hafa rætt einslega við forystumenn stjóm- málaflokkanna og stjómmálasam- taka og fengið svör á þessa leið, þegar hann spurði hvort viðkomandi eða hans flokkur væri reiðubúinn til þess að taka þátt í tilraun til þess að mynda þriggja flokka ríkisstjóm með Framsóknarflokki og Sjálfstæð- isflokki: „Þorsteinn Pálsson kvað Sjálfstæðisflokkinn ekki vilja hafna slíkri tilraun, þótt flokkurinn væri einnig með hugann við aðra mögu- leika. Fulltrúar Kvennalistans tóku jákvætt undir þessa spumingu og kváðu Kvennalistann reiðubúinn til þess að gera slíka tilraun. Jón Bald- vin Hannibalsson vísaði þessu á bug, eins og hann hefur jafnframt gert opinberlega, og kvað Alþýðuflokkinn telja nauðsynlegt að tilraun yrði gerð til myndunar svokallaðrar nýsköpun- arstjómar. Svör Svavars Gestssonar voru þau að hann kvað Alþýðubanda- lagið ekki vera í stöðu til þess að taka þátt í stjómarmyndunartilraun á þessu stigi og ég held ég megi segja síst með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. Albert Guðmunds- son kvað Borgaraflokkinn helst hafa I huga að vera utan stjómar til að byija með, en hafnaði þó ekki stjóm- arsamstarfí á síðari stigi, þótt hann teldi flögurra flokka stjóm hentugri en þriggja. Stefán Valgeirsson kvað geta komið til greina að hann styddi ríkisstjóm þessara flokka, ef semdist um málefni," sagði Steingrímur. Steingrímur sagði að af þessu hefði verið ljóst að eini möguleikinn í stöðunni hefði verið tilraun til þess að mynda ríkisstjóm Sjálfstæðis- flokks, Framsóknarflokks og Kvennalista, en að samtölum hans við Þorstein Pálsson í fyrradag hefði það orðið ljóst að Sjálfstæðisflokkur- inn var ekki tilbúinn á þessu stigi til þess að taka þátt í slíkri t'lraun. Þar með hefði verið Ijóst að tilraun til þess að mynda slíka ríkisstjóm væri til einskis. Steingrímur sagði jafnframt: „í raun útiloka þessi svör einnig fjög- urra flokka ríkisstjóm, þar sem Svavar Gestsson hefur tjáð mér að Morgunblaðið/Þorkell Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra svaraði spurning- um fréttamanna á fundi, að loknum fundi hans með forseta íslands í gærmorgun, þar sem hann skilaði af sér umboði til stjórnarmyndunar. Alþýðubandalagið sé á þessu stigi ekki reiðubúið til þess að taka þátt í stjómarmyndunartilraun." Steingrímur sagði að sér hefði um margt þótt fróðlegt að ræða við full- trúa Kvennalistans og sér áyndist sem þær og Framsóknarflokkurinn ættu um margt sameiginlegt. Hann kvaðst hafa nefnt nöfn í því sambandi hveijum bæri að fela um- boðið til stjómarmyndunar nú, en hann vildi ekki tjá sig frekar um það. Steingrímur var spurður hvort við- ræður hans við fulltrúa Kvennalista hefði orðið þess valdandi að um stefnubreytingu væri að ræða af hans hálfu, hvað það varðar að hann segist nú tilbúinn til þess að hugleiða þátttöku Framsóknarflokksins í fjög- urra flokka ríkisstjóm: „Ég get alls ekki neitað því að á klukkutíma fundi með Kvennalistanum fannst mér koma fram að þær eru reiðubúnar til þess að taka þátt í ríkisstjóm og mér fannst þar koma fram margt sem ég get hugsað mér að skoða. Ég er eftir sem áður hikandi við fjög- urra flokka ríkisstjóm, en maður getur spurt sjálfan sig, ef slík stjóm er eini kosturinn hvort slík stjóm er ekki nauðsynleg. Því vil ég ekki á þessari stundu hafna því alfarið að við tökum þátt í slíkri stjóm. Ég tel á hinn bóginn að slík ríkisstjóm þyrfti að ganga mjög vel frá málefna- samningi.“ Steingrímur vildi ekki útiloka að það tækist að mynda þriggja flokka ríkisstjóm, þó að hann hefði skilað af sér umboðinu. Bæjarstjórn Ólafsvíkur skorar á samgönguráðherra og ríkisstjóm íslands að útvega nægjanlegt fjár- magn svo lagfæring og uppbygging þjóðvegarins um Fróðárheiði geti hafíst nú þegar og eðlilegt vega- samband komist á á milli byggða á utanverðu Snæfellsnesi og til Reykjavíkur." Kjarvalsstaðir: Fimm lista- menn opna sýningar á laugardag FIMM islenskir listamenn opna sjálfstæðar sýningar á verkum sínum á Kjarvalsstöðum næstkom- andi laugardag og opna þær allar á sama tíma, klukkan 14.00. Sýn- ingamar em af sitt hverjum meiði myndlistarinnar, þ.e. málverk, textilvefnaður, múrristur og skúlptúrar. ívar Valgarðsson og Níels Haf; stein sýna skúlptúra i Kjarvalssal. í Austurforsal sýnir Ingibjörg Styr- gerður Haraldsdóttir 10 veggteppi, sem öll eru ofín á árunum 1985 til 1987, en Ingibjörg hefur sjálf litað ullina í teppunum. Þá verður Gunn- steinn Gíslasson myndhöggvari með sýningu á múrristum (sgraffíto), sem er þekkt veggmyndatækni er notuð hefíir verið líkt og alfresco-myndgerð allt frá miðöldum. Í Vestursal verður svo Einar Hákonarson með sýningu á 77 olíumálverkum, sem máluð eru á árunum 1985 til 1987.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.