Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987 76 Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks: „Meginágreining- ur hvort beita eigi einhliða aðgerðum“ i „ÞESSUM viðræðum er lokið. Það náðist ekki sam- komulag. Meginviðfangsefnið var mótun launastefnu og annarra félagslegra aðgerða í þágu hinna lakast settu. Við vorum nokkuð sammála um markmið í þeim efnum, en leiðir skildu um leiðirnar,“ sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið kl. 22.15 í gærkveldi, rétt eftir að hann sleit formlegum stjórnarmyndunarviðræðum Sjálf- stæðisflokks, Alþýðuflokks og Kvennalista. Þorsteinn sagði að þessir þrír aðilar hefðu ekki náð saman og meginágreiningurinn hefði verið hvort ætti með einhliða aðgerðum ríkisvalds að ákveða lágmarks- -j laun eða ekki. „Við lögðum á það áherslu að það yrði mörkuð launastefna í þágu hinna lakast settu og hún kæmi fram í kjara- samningum og ríkið hefði ákveðið frumkvæði í því efni. En kjara- samningar yrðu vettvangur og farvegur fyrir þá stefnu," sagði Þorsteinn. hafí að því leyti borið árangur, þótt hann hafi ekki verið nægjan- lega mikill,“ sagði Þorsteinn aðspurður hvort þessi niðurstaða væri honurn vonbrigði. Hann bætti við: „Ég tel að það hafi allir aðilar lagt sig verulega fram við að reyna að ná samkomulagi og ég get ekki varpað skuldinni á einn aðila fremur öðrum. Þama var einfaldlega um að ræða ágreining sem ekki var, að minnsta kosti á þessu stigi, unnt að leysa. Aðilar voru auðvitað bundnir af sínum grundvallarvið- horfum og yfirlýsingum í því efni.“ Þorsteinn var spurður hvert yrði hans næsta skref í þessum efnum: „Ég mun ræða það á fundi í þingflokki Sjálfstæðis- flokksins síðdegis á morgun," svaraði Þorsteinn. - Má þá búast við því að þú skilir af þér stjómarmynduna- rumboðinu í kjölfar þess þing- flokksfundar? „Það verður tekin ákvörðun um það á þeim fundi,“ sagði Þorsteinn. Morgunblaðið/Júlíus Það var létt yfir þeim kvennalistanöfnum Kristínu Einarsdóttur og Kristínu Halldórsdóttur á miðjum degi i gær í Borgartúni 6, þegar fulltrúar i stjórnarmyndunarviðræðunum gerðu stutt hlé á fundi sinum til þess að flytja sig á milli herbergja, frá suðri til norðurs. í suðurherberginu gerði maisólin það að verkum að hitastigið varð viðræðufulltrúum með öllu óbærilegt og höfðu menn á orði, að nú fyrst væri farið að hitna verulega i kolunum. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins: „Tókst ekkí að ná samkoinu- lagi um fyrstu aðgerðir“ Þá sagði Þorsteinn að sjálf- stæðismenn hefðu lagt til að tryggingabætur yrðu hækkaðar Sum næstkomandi áramót, sem skref til samræmingar við lág- markslaun og í tengslum við greiðslur úr lífeyrissjóðum. „Kvennalistinn taldi á hinn bóg- inn nauðsynlegt að ákveða launastefnuna í þágu hinna lak- ast settu með einhliða aðgerðum og um það gat ekki orðið sam- komulag. Við höfðum fallist á að ræða hugmynd frá Alþýðuflokkn- um um að flýta hækkun trygg- ingabótanna um einhverja mánuði, og þá að afla tekna á þessu ári til þess,“ sagði Þor- steinn. Hann sagði að auðvitað hefðu ’ ýmis önnur atriði verið rædd, „en þau hlutu, einkanlega að ósk Kvennalistans, að bíða ýmis hver þar til ljóst væri hvort gengi sam- an í þessu efni," sagði Þorsteinn. „Ég tel að viðræðumar hafi verið mjög gagnlegar og þær Kristín sagði jafnframt: „Það var okkar markmið að tryggja það að allt fólk í landinu hefði tekjur sem dygðu til framfærslu. Það var markmið sem við vildum að ríkis- stjóm sem við tækjum þátt í setti sér, að öllum væru tryggðar tekjur - '^em dygðu til framfærslu. Við sögð- „ÞAÐ slitnaði upp úr þessum við- ræðum, vegna þess að það tókst ekki samkomulag um fyrstu að- gerðir,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins í samtali við Morgun- blaðið í gærkveldi, aðspurður um það hvers vegna hann teldi að slitnað hefði upp úr stjómar- myndunarviðræðum Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og Kvennalista. „Þrátt fyrir einlægan vilja og ítrekaðar tilraunir okkar að minnsta kosti tókst ekki að ná samkomulagi um fyrstu aðgerðir og það harma ég, því að eins og ég sagði á sama degi og þessu lauk, að minnsta um í upphafi ekki aðra leið færa, úr því sem komið er, en að lögbinda slíkar lágmarkstekjur og við teljum einfaldlega siðleysi að gera ekki allt sem í okkar valdi stendur til þess að ná því marki.“ - Fannst ykkur ekkert það koma fram frá fulltrúum Sjálfstæð- kosti að sinni, þá gætti orðið hóf- legrar bjartsýni og við gengum heilshugar að verki. Um það segi ég bara eins og skáldið sagði: „Við hefðum getað vakað lengur!“,“ sagði Jón Baldvin. Jón Baldvin lagði áherslu á að með fyrstu aðgerðum ætti hann ekki einungis við lögbindingu launa. „Á borðum okkar voru lögð fram gögn, sem staðfestu að það er að- gerða þörf, hvaða ríkisstjórn sem tekur við. Það er vaxandi halli í ríkisbúskapnum, það er vaxandi viðskiptahalli, það er vaxandi verð- bólga, það herðir að stöðu fyrir- tækja í ýmsum útflutnings- og samkeppnisgreinum sem að lokum isflokks og Alþýðuflokks í þessum viðræðum, sem sýndi að þeir væru reiðubúnir til þess að koma verulega til móts við þessa frumkröfu ykkar? „Ég held að allar þessar viðræð- ur, sem eru orðnar nokkuð langar, hafi einkennst af miklum vilja til þess að ná samkomulagi. Það var hægt að ná samkomulagi um mark- miðin í sjálfu sér, en það var ágreiningur um leiðir og á því strandaði." - Þessi jákvæði tónn í garð þess- ara viðræðna, er hann kannski vísbending um að þið gætuð hugsað ykkur frekari viðræður við þessa sömu aðila, á síðari stigum stjórnar- myndunarviðræðna? getur orðið stórhættulegt, af því að það setur spumingarmerki aftan við gengisþróun, og fyrr en varir gæti það endað með ósköpum," sagði Jón Baldvin. Formaður Alþýðuflokksins sagði: „í okkar huga þurfti þessi ríkis- stjóm að gera tvennt: Ná samkomu- lagi um að endurheimta jafnvægi í ríkisbúskapnum og efnahagsmálum og að stíga núna strax fyrstu skref- in í átt til jafnari tekjuskiptingar. Þetta getur ekki gerst í núinu. Þetta hlýtur að gerast á einhveijum tíma.“ Hann sagði að fulltrúar Alþýðu- flokksins hefðu undir lok viðræðn- anna lagt fram tillögur um „Ég skal nú ekkert segja um það, en ég sé ekki þann möguleika á þessari stundu. En viljinn var fyrir hendi, og við reyndum virki- lega til þrautar, eins og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í kvöld, að ná þessu markmiði á einhvern máta, en það strandaði á því að trúin á það hvaða leiðir skiluðu okkur að þessu markmiði var mis- munandi hjá viðræðuaðilum." Kristín sagði að kvennalistakon- ur stæðu einhuga að baki þessari afstöðu og um hana hefði enginn ágreiningur verið. upphafsaðgerðir, sem þeir hefðu vonað í lengstu lög að aðilar gætu fallist á að væm innan marka þess mögulega og réttur aðdragandi að langtímaáætlun um breytta stefnu. „Þessar tillögur okkar voru um aðgerðir í ríkisfjármálum, um leið- réttingu á kjörum elli-, örorku- og lífeyrisþega, um leiðréttingu á kjör- um þeirra sem lægst eru launaðir í gegnum skattakerfi, um nýja tek- justefnu fram í tímann sem hefði hafist með endurmati á störfum kvenna," sagði Jón Baldvin og bætti við að þessu hefðu þeir verið reiðu- búnir að fylgja eftir í framkvæmd. „Spumingin var, ef þessar byij- unaraðgerðir hefðu verið sam- þykktar, þá hefðum við snúið okkur að mótun heildarstefnu. Á það reyndi ekki því miður, en það vildum við endilega láta reyna á,“ sagði Jón Baldvin. Hann vakti athygli á að þau mál sem Alþýðuflokkurinn hefði lagt mesta áherslu á: heildar- endurskoðun skattakerfis, endur- skipulagningu á ríkisútgjöldum, sem forsendu fyrir öllu öðm, hefðu ekki fengist rædd til hlítar, en þó hefði þokast þar mjög verulega í rétta átt. „Það er sá sem stýrir umræðunni og hefur verkstjórnina á hendi, sem hlýtur að lokum að meta það hve- nær er fullreynt. Það var hans mat að lengra yrði ekki komist og því verður að hlíta. Ég harma það að þessi tilraun mistókst," sagði Jón Baldvin. - Telur þú, Jón Baldvin, að ekki hafi verið fullreynt? „Það kann að vera matsatriði," sagði Jón Baldvin. Aðspurður um hvert hann teldi að yrði næsta skrefið í þessu máli, sagðist hann ekkert um það vita á þessari stundu. „Það er ekki mitt að meta,“ sagði Jón Baldvin er hann var spurður hvort hann teldi líklegt að Þorsteinn skilaði af sér umboðinu og honum yrði falið umboð til stjórnarmynd- unar. Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Kvennalista: „Sjáum ekki aðra leið færa en að lögbinda lágmarkslaun“ „OKKUR er einfaldlega nóg boðið og ég held að mjög mörgu fólki í landinu sé nóg boðið, að í landinu sé ákveðinn hópur fólks sem geti ekki með nokkru móti fengið tekjur sem duga til framfærslu," svaraði Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Kvennalista spurningu blaðamanns Morgunblaðsins, þess efnis hvers vegna Kvennalistinn , hefði alls ekki vilja gefa neitt eftir, hvað varðaði kröfuna um lög- bindingu lágmarkslauna. Kristín sagði þetta þegar hún kom af fundinum þar sem stjórnarmyndunarviðræðunum var formlega slit- -^ið í gærkveldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.