Morgunblaðið - 03.06.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.06.1987, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 123. tbl. 75. árg._________________________________ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1987________________________________Prentsmiðja Morgunbiaðsins Evrópubandalagið og Norðmenn: Aðild forsenda fyrir fríðindum Verdens Gang Norska lögreglan gagnrýnd fyrir ofbeldi Norska lögreglan var í gær gagnrýnd fyrir að beita ofbeldi í aðgerðum sínum. Á mánudag kom í þriðja skipti á skömmum tíma til átaka er lögregla rýmdi hús, sem hústökumenn höfðu lagt undir sig í mið- borg Osló, og voru 68 menn handteknir. Á myndinni sjást lögregluþjónar halda einum hústökumanna. Skurðgrafan var notuð til að brjóta gatið, sem sést á vegg hússins. Fyrir þremur vikum lá við uppþoti þegar menn mótmæltu fyrir utan bandaríska sendi- ráðið. Hörðust var gagnrýnin á lögregluna eftir áflog á kaffihúsi þegar lögregluþjónar réðust, inn til að handtaka forsprakka mótmælenda. Þá slasaðist fjöldi saklausra gesta, sem þar voru staddir. Níu þingmenn og yfír 30 samtök hafa undirritað kröfu um að rannsókn verði gerð á aðgerðum lögreglunn- ar. Vilja þeir að óháðir aðiljar rannsaki málið og lögreglan komi þar hvergi nærri. Sjá „Átök milli lögreglu og hústökumanna á síðu 28. Osló, Reuter. EMBÆTTISMENN Evrópu- bandalagsins fögnuðu í gær ákvörðun Norðmanna um að hefja á ný almenna umræðu um það hvort Noregur ætti að ganga í bandalagið. Aftur á móti var skýrt tekið fram að Norðmenn fengju ekki að njóta sérstakra fríðinda í viðskiptum ef þeir yrðu áfram fyrir utan EB. Willi de Clercq, sem fer með ut- anríkismál fyrir Evrópubandalagið, hélt blaðamannafund í Osló í gær- morgun. Sagði hann að viðræður Spenna milli Indlands ogSriLanka Colombo, NJju Delhí, Reuter. STJÓRNVOLD á Sri Lanka fyr- irskipuðu heijum sinum að vera viðbúnir að verja landhelgi eyjar- innar. Indveijar segjast vera reiðubúnir til að senda af stað skipalest með vistir til að dreifa á Jaffna-skaga á Sri Lanka, þar sem skæruliðar tamíla beijast við stjórnarherinn. Talsmaður Rauða krossins á Indlandi segir að skipalestin muni ekki sigla inn í landhelgi Sri Lanka nema að stjómvöld samþykki. Tals- maður indversku stjómarinnar sagði að skipin myndu láta úr höfn í dag hvað sem stjómvöld á Sri Lanka segðu. Indveijar segja að íbúar á Jaffna-skaga, sem flestir eru tamíl- ar, líði skort og mörg hundruð menn séu dauðvona vegna sóknar hersins á skaganum. I gær gerðu skæruliðar strætis- vagni fyrirsát á öðmm hluta eyjarinnar og vom 29 Búdda- munkar og fjórir borgarar úr röðum sinhalesa, sem em í meirihluta á Sri Lanka, myrtir. Sjá „Gagnkvæmar ásakanir um fjöldamorð" á síðu 29. sínar við ráðamenn í minnihluta- stjóm norska Verkamannaflokksins hefðu greitt úr misskilningi, sem varð til þess að Norðmenn höfnuðu aðild að Evrópubandalaginu í þjóð- aratkvæðagreiðslu árið 1972. „Norðmenn hefðu hag af því að gerast aðiljar að stómm markaði. Slíkt myndi að hluta til leysa þann vanda, sem norskur iðnaður á við að glíma á sviði samkeppni," sagði de Clercq í viðtali við Reuter-frétta- stofuna. „Ríki getur ekki bæði verið í bandalagi og utan þess.“ Þegar olíuverð snarlækkaði á síðasta ári hrikti í stoðum efna- hagslífs Norðmanna, sem em næst stærstu olíuframleiðendur í Vest- ur-Evrópu. Einnig hefur hnignunar gætt í öðmm helstu útflutnings- greinum Norðmanna. Stjóm Gro Harlem Bmndtland hefur áhyggjur af viðskiptum við ríki Evrópubandalagsins, sem kaup- ir um tvo þriðju af útflutningsvömm Norðmanna. í maí bað hún stjóm- málaflokka og almenning um að taka samskipti við Evrópubanda- lagið til rækilegrar endurskoðunar. Vika sorgarí Líbanon Líbanar syrgja nú Rashid Kar- ami, forsætisráðherra Líbanons, sem lét lífið er sprengja sprakk undir sæti hans í þyrlu á mánu- dag. Opinber sorgarvika hófst í gær með verkfalli um landið allt. Fánar vom dregnir í hálfa stöng og verslanir, skólar og skrifstofur í Líbanon vom lokaðar. Þessi mynd af sýrlenskum hermanni var tekin í Trípolí, fæðingarborg Kar- amis, sem borinn verður til grafar í dag. Þar var allt í lamasessi vegna morðsins á Karami. Selim Hoss, sem settur hefur verið for- sætisráðherra, sagði í gær að hann ætlaði að fylgja stefnu for- vera síns og reyna að sætta hin stríðandi öfl í landinu. - sagði háttsettur samningamaður Sovétmanna Genf, Moskvu, Bonn, Reuter. Samninganefndir Bandarikja- manna og Sovétmanna í Genf hafa lagt lokahönd á fyrstu drög- in að sáttmála um að fjarlægja meðaldrægar kjarnorkuflaugar í Evrópu, að því er Alexi Obuk- hov, einn helsti samningamaður Sovétmanna, sagði í gær. Obukhov sagði við blaðamenn að enn væri margt ógert og hvorir tveggju þyrftu nú að einbeita sér að fjarlægja ýmsa „sviga“ úr hinu sameiginlega skjali. Þessir „svigar" eiga við um þá þætti, sem ágrein- ingur er um. Obukhov sagði að samninga- nefndirnar ættu eftir að gera annað uppkast að sáttmálanum og yrði þar reynt að brúa bilið milli risaveld- anna og leysa þann ágreining, sem enn ríkir. Terry Shroder, talsmaður banda- rísku samninganefndarinnar, stað- festi síðar í gær að gengið hefði verið frá fyrstu drögum að sameig- inlegum sáttmála á mánudag. Obukhov sagði að Bandaríkja- menn tefðu fyrir samningum. Þeir vildu breyta Evrópuflaugum sínum í önnur vopn, en Sovétmenn vildu eyðileggja flaugamar. Hann kvað Bandaríkjamenn krefjast þess að 100 kjamaoddar, sem risaveldin ættu samkvæmt sáttmálanum að fá að hafa utan Evrópu, yrðu í Alaska. Þá væm flaugamar í skotfæri við Sovétríkin og því em Sovétmenn andvígir. Sovétmenn kveðast ætla að hafa sína 100 kjamaodda í Asíu, þar sem flaugamar drægju hvorki til Evrópu né Bandaríkjanna. „Stjómvöld í Moskvu vilja að þeir kjarnaoddar, Reuter Fyrstu drög að sáttmála um Evrópuflaugarnar í Genf: Mikilvægt skref og brautin árangur sem Bandaríkjamenn fá að halda, verði fjarlægðir frá Alaska," sagði Obukhov. Að hans sögn verður sáttmáli, sem hvorir tveggju hafa að fullu samþykkt, „tilbúinn í haust og und- irritaður á næsta leiðtogafundi" ef Bandaríkjamenn falla frá fyrr- greindum kröfum. Obukhov sagði að á mánudag hefði verið „stigið mikilvægt skref, sem ryður brautina fyrir frekari árangur". Áttunda lota viðræðna stórveldanna í Genf hófst 23. apríl og sagði Obukhov að samninga- menn myndu halda áfram störfum út sumarið. Vestur-þýska stjórnin samþykkti á mánudag afvopnunartillögur risa- veldanna og lýstu ríki Atlantshafs- bandalagsins í gær yfir ánægju sinni með það. Þriggja flokka stjórn Helmuts Kohls kanslara hefur í sex vikur deilt um tillögumar, en nú hefur verið ákveðið að fylgja for- dæmi annarra aðildarríkja banda- lagsins. Stjórnin í Bonn sagði þó að 72 Pershing Al-flaugar, sem em í eigu vestur-þýska flughersins, yrðu ekki taldar með og gagnrýndi sovéska fréttastofan TASS þetta í gær. Samningamenn Sovétmanna sögðu í Genf 28. apríl að Pershing Al-flaugamar yrðu að vera hluti af samkomulagi vegna þess að í þeim væm bandarískir kjamaoddar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.