Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 130. tbl. 75.árg. FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 Prentsmiðja Morgrmblaðsins Kosningarnar á Bretlandi: Qrugmir signr Thatcher Lundúnum, Reuter. LJÓST var að Margaret Thatcher, leiðtogi breska íhaldsflokks- ins, hafði unnið afdráttarlausan kosningasignr þegar Morgnn- blaðið fór í prentun i nótt. Þetta er i fyrsta sinn á þessari öld, sem sami stjórnmálaleiðtogi á Bretlandi situr þijú kjörtíma- bil í röð sem forsætisráðherra. Þegar úrslit í 522 kjördæmum voru ljós hafði íhaldsflokkurinn fengið 326 þingmenn kjörna, Verkamannaflokkurinn 191, Bandalagið aðeins 12, en aðrir þijá. Samkvæmt því hafa íhaldsmenn tapað >/2% frá í kosning- unum 1983, Verkamannaflokkurinn unnið á 3'/2%, en Bandalag- ið tapað 3%. í spám bresku sjónvarpsstöðvanna klukkan hálf tvö í nótt kom fram að Ihaldsflokkurinn myndi vinna meira en 100 sæta meirihluta, en í síðustu kosningum hafði hann 144 sæta meirihluta. „Ég er mjög ánægð með þær tölur sem ég hef heyrt, en ég fagna ekki sigri fyrr en meirihlutinn er ljós,“ sagði Thatcher þegar þar var komið sögu. í kosningaspám Margaret Thatcher. var Thatcher spáð mismiklum meiri- hluta allt frá því hún boðaði til kosninga, en á kjördag jókst bilið á ný og þegar fyrstu úrslit frá Torbay í Devon bárust var ljóst að sigur Thatcher var umtalsverður. „Hún á eftir að halda um stjómartaumana í dágóðan tíma í viðbót," var haft eftir Douglas Hurd, innanríkisráðherra, en sjálf sagði Thatcher í upphafi kosninga- baráttunnar að hún gæti vel hugsað sér að siija í embætti „langalengi enn“. Kjörstaðir vom opnaðir klukkan sjö í gærmorgun og kusu um 76% kjósenda að þessu sinni og var það töluvert meira en búist var við. Alls vom um 43,6 milljónir Breta á kjörskrá, en kosið var um 650 þingsæti í neðri deild þingsins í jafn- mörgum kjördæmum. Þegar Neil Kinnock, hinn 45 ára gamli leiðtogi Verkamannaflokks- ins, kom á lqörstað í gærmorgun stóð hann á því fastar en fótunum að þegar úrslitin væm orðin ljós yrði Thatcher „að flytja út í fyrra- málið", og bætti því við að 11. júní yrði síðasti dagur „thatcherism- ans“. Sigur Thatcher var því mikið áfall fyrir Kinnock, en flokkurinn lagði mest upp úr persónu hans í kosningabaráttunni. „Ég held að tapið megi relq'a til þess að staðan var frá upphafí mjög erfíð,“ sagði Bryan Gould, kosningastjóri Verka- mannaflokksins, en breskir frétta- skýrendur töldu að helst hefði riðið baggamuninn vantraust bresks al- mennings á flokkinn hvað varðar vamarmál. Tillögur flokksins í þeim efnum vom að gera landið kjam- orkuvopnalaust. Kosningabandalag jafnaðar- manna og ftjálslyndra á einnig um sárt að binda eftir kosningamar og fór Bandalag jafnaðarmanna sér- lega illa út úr kosningunum, því þrír stofnenda þess, þau Shirley Williams, Bill Rodgers og Roy Jenk- ins, náðu ekki kjöri. Upplýsingaþjónusta NATO Það fór sýnílega vel á með þeim Matthíasi Á. Mathiesen, utanríkisráðherra íslands, og Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Bretlands, þegar þeir biðu þess fyrir framan Höfða í bliðviðrinu i Reykjavík í gær að tekin yrði hefðbundin mynd af ráðhemun NATO-ríkjanna. Fyrir aftan þá standa (t.v.) Vahit Halefoglu, utanrikisráðherra Tyrklands, og (t.h.) Giulio Andreotti, utanrikisráðherra ítaliu. Utanríkisráðherrar ríkja Atlantshafsbandaiagsins: Uppræting Evrópuflaug- anna staðfest í Reykjavík Ágreiningnr um sérstakar viðræður um hefðbundinn herafla Utanríkisráðherrar aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins náðu í gær munnlegu samkomu- lagi um að veita Ronald Reagan Bandaríkjaforseta vilyrði fyrir þvi að halda áfram samningavið- ræðum við Sovétmenn um að uppræta meðaldrægar og skamm- Noregnr: Atlagan gegn stjóm- inni rann út í sandinn Ósló. Frá fréttarítara Morgunblaðsins, Jan Erík Laure. Framfaraflokkurinn neitaði í gærkvöldi að styðja væntanlega vantrauststillögu á rikisstjórn Verkamannaflokksins vegna til- lagna stjómarinnar um lækkun niðurgreiðslna og styrlqa til bænda. Carl Hagen, formaður Framf araflokksins, tilkynnti þetta á fréttamannafundi i gær og sagði bændastyrkina ganga þvert á stefnu flokks síns. „Verkamannaflokkurinn hefur sýnt mikið pólitískt hugrekki með tillögum sínum í landbúnaðarmálun- um,“ sagði Hagen. Hann sagði jafnframt að ríkisstjóm borgara- flokkanna þriggja myndi fylgja svipaðri stefnu og stjóm Brundt- lands og væri því ekki raunverulegur kostur gegn sitjandi stjóm. Formaður Miðflokksins, Johan J. Jakobsen, sló þvi föstu í gærkvöldi að flokkur hans myndi gera land- búnaðarmálin að úrslitaatriði en ekki taka þátt í að fella stjómina. Það er því ljóst að stjómin heldur velli. drægar kjaraorkuflaugar í Evrópu eða hina svokölluðu „tvö- földu núlllausn". Háttsettur ítalskur embættismaður sagði blaðamönnum í fréttamiðstöðinni í Hagaskóla að Reagan fengi eft- ir Reykjavíkurfund ráðherranna ákveðin skilaboð um að halda áfram samningaviðræðum við Sovétmenn. Búist er við að formleg yfírlýsing þess efnis verði gefin út að loknum fundi ráðherranna í Reykjavík á hádegi í dag. Helstu ágreiningsefnin á fundinum varða yfirburði Sovét- manna á sviði hefðbundins herafla og hvort binda beri stuðning Atlants- hafsbandalagsins við samkomulag um eldflaugamar því skilyrði að þegar í stað verði hafnar viðræður um efnavopn, jafnvægi í hefðbundn- um herafla, kjamorkuvopn á vígvöll- um og helmingsfækkun langdrægra flauga. Fundur utanríkisráðherranna var settur í Háskólabíói klukkan ellefu í gærmorgun og fluttu Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, Matthías Á. Mathiesen utanríkisráð- herra, Guilio Andreotti, heiðursfor- seti Atlantshafsráðsins og utanríkis- ráðherra Ítalíu, og Carrington lávarður, framkvæmdastjóri Atl- antshafsbandalagsins, ávörp. Klukkan hálfþijú hófst lokaður fundur utanríkisráðherranna og stóð hann til klukkan sex. Skömmu áður en fundinum lauk hélt Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Bretlands, af landi brott. Sagði hann við brott- förina að samkomulag um uppræt- ingu Evrópuflauganna væri innan seilingar. Hins vegar lét hann að því liggja að mistekist hefði að leysa ágreining um það hvort Atlantshafs- bandalagið ætti að eiga frumkvæði að viðræðum austurs og vesturs um niðurskurð hefðbundins herafla á nýjum vettvangi. Frakkar og Bandaríkjamenn hafa deilt um hvemig taka beri á hefð- bundna heraflanum. Frakkar óttast að slíkar viðræður, sem flest aðild- arríki NATO eru hlynnt, skerði sjálfstæði þeirra á sviði vígbúnaðar- mála. Vilja þeir að viðræður um þessi mál verði einskorðaðar við Ráðstefnuna um öryggi og samvinnu í Evrópu (CSCE), sem haldin er inn- an ramma Helsinki-sáttmálans. Háttsettur aðstoðarmaður Hans- Dietrich Genscher, utanríkisráð- herra Vestur-Þýskalands, sagði aftur á móti á lokuðum blaðamanna- fundi í Hagaskóla eftir fund ráð- herranna á Hótel Sögu, að í dag yrði gengið frá formlegu slq'ali um þessar nýju viðræður og myndu ráð- herramir allir geta sætt sig við orðalag þess. Aðstoðarmaður Genschers sagði að jafnframt samningaviðræðum um Evrópuflaugamar yrðu þegar hafnar viðraeður um helmingsfækkun lang- drægra kjamorkuflauga, bann við framleiðslu efnavopna, jafnvægi á sviði hefðbundins herafla og fækkun kjamorkuvopna á vígvöllum. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum að Thorvald Stoltenberg, utanríkisráð- herra Noregs, hafí tekið í sama streng á fundi með norskum blaða- mönnum. Matthías Á. Mathiesen utanríkis- ráðherra boðaði til fundar með fslenskum blaðamönnum í Haga- skóla til að greina frá fundi ráð- herranna og einkaviðræðum sínum við Genscher utanríkisráðherra. Kvaðst Matthías einkum hafa rætt við Genscher um hvalkjötsgámana, sem kyrrsettir voru í Hamborg. Fundi ráðherranna lýkur á hádegi í dag og heldur Carrington lávarður þá fund með blaðamönnum og grein- ir frá niðurstöðum ráðherranna. Sjá bls. 2, 3 og 22 og forystu- grein og ræður frá setningarat- höfn í gær á bls. 28 til 30.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.