Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 Ítalía: Lítilli kosninga- þátttöku spáð Róm. Reuter. ÍTALSKIR kjósendur virðast lítinn áhuga hafa á þingkosningunum sem fram eiga að fara í landinu 14.-15. júni nk. og samkvæmt skoðanakönn- un sem birt var í gær telur meirihluti þeirra kosningamar þjóna litlum tilgangi. Samkvæmt könnuninni er blaðið Europeo, birti í gær sögðust 68% aðspurðra lítinn eða engan áhuga hafa á kosningabaráttunni. 63% töldu að fleiri myndu sitja heima eða skila auðu en 1983, en þá voru það 16% eða sjö milljónir sem slíkt gerðu. Frambjóðendur flokkanna hafa kvartað undan áhugaleysi kjósenda Skjöl Trotskys fundin Palo Alto, Reuter. FRÆÐIMENN við Hoover- stofnunina sögðust í gær hafa fundið fjölda óbirtra skjala, minnisblaða og ljósmynda rússneska byltingarforingj- ans Leons Trotsky. Skjölin fundust í safni sagn- fræðiheimilda sem stofnunin erfði eftir Boris Nicolaevsky, rússneskan sagnfræðing sem lést 1966. Skjalavörður við stofnunina upplýsti að meðal annars væri um að ræða áður óbirtan kafla úr hinni þekktu Sögu bolsévika- byltingarinnar sem Trotsky skrifaði. Safn Nicolaevskys var í vörslu ekkju hans þar til hún iést 1982 og voru ekki könnuð af fræði- mönnum fyrr en eftir andlát hennar. Talið er að sonur Trot- skys, Sedov, hafi beðið Nicolaev- sky að varðveita skjölin. Sedov dó árið 1938 og faðir hans var myrtur af flugumanni Stalíns tveim árum síðar í Mexíkó. og segjast margir hverjir aldrei fyrr hafa orðið varir við þvílíka deyfð. Erfítt er að átta sig á hvað við muni taka eftir kosningar. Blaðið II Giomale líkir kosningunum við bingo og blaðið La Repubblica heldur því fram að allir stjómmálaflokkamir segi við kjósendur „Kjósið okkur, síðan sjáum við til hvað við gerum". Flokkamir reyna allir að höfða til þeirra fjögurra milljóna ungra kjós- enda sem ganga nú að kjörborðinu í fyrsta sinn. Kosningabaráttunni lýkur formlega í kvöld og er ætlast til að kjósendur fái frið fyrir áróðri á morgun, síðasta daginn fyrir kosn- ingar. Reuter Yasuhiro Nakasone, forsætisráðherra Japans, bregður á leik með dúfunum á Markúsartorginu i Feneyj- um að loknum fundi leiðtoga sjö heæztu iðnríkja heims. Reagan Bandaríkjaforseti sagði í gær að á fundinum hefði verið stigið skref í átt til aukinnar hagsældar í heiminum. Reagan segir auknar líkur á leiðtogafundi Fenevium. Reuter. Feneyjum, Reuter. RONALD Reagan, Bandaríkja- forseti, sagði á fundi með blaðamönnum I gær að líkur á leiðtogafundi stórveldanna og upprætingu kjarnavopna hefðu aukist. Reagan sagðist almennt efast um skynsemi þess að gefa út bjartsýnis- yfírlýsingar. „En á þessari stundu get ég ekki leynt því að mér sýnist líkur á leiðtogafundi og raunveru- legri fækkun kjamavopna hafa aukist," sagði forsetinn. Hann sagði það vera undir stjóm Sovétríkjanna komið hvenær af næsta fundi þeir Mikhails Gorbachev, aðalritara Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, yrði. Almennt er talið að af leiðtoga- fundi verði í Washington í haust ef utanríkisráðherrar NATO-ríkj- anna ná samkomulagi um afstöðu til afvopnunarsamkomulags stór- veldanna á Reykjavíkurfundi sínum. Reagan sagði að Feneyjafundur leiðtoga sjö helztu iðnríkja heims, sem lauk í fyrradag, hefði fyrst og Moskva: Njósnagámur kyrrsettur Moskva, Hamborg, Reuter. MÁLGAGN sovésku stjórnarinn- ar, Izvestia, segir frá því á miðvikudag að flutningagámur á leið frá Japan til Vestur-Þýska- lands hafi verið kyrrsettur í Moskvu, er það kom upp úr dúrn- um að hann innihélt njósnabún- að. Izvestia segir að gámurinn hafi verið fluttur sjóleiðis frá Yokohama til sovésku hafnarborgarinnar Nak- hoda og hafí komið til Moskvu sem hluti af stærri farmi á leið til Lenin- grad og Hamborgar. Farmskjölin sögðu hann innihalda japanskar leirvörur, en grunsemdir tollvarða í Moskvu vöknuðu þegar þeir sáu blá ljósleiftur í gegnum loftræstiop og heyrðu torkennileg hljóð frá gámnum. Að sögn Izvestia var fullkominn njósnabúnaður falinn á bak við stór- an kassa af leirpottum. Þar var að fínna tværtölvur, geislavirknimæla, njósnamyndavélar við loftræstiopin og ýmis njósnatæki önnur. Gámurinn var opnaður í viðurvist japanskra embættismanna. Blaðið segir sovésk stjómvöld hafa mót- mælt við Japani og Vestur-Þjóð- veija, og sagt að rannsókn málsins myndi fljótlega hefjast. Blaðið nafn- greinir ýmis bandarísk og japönsk rafeindafyrirtæki, sem það segir tengjast málinu, t.d. Texas Instru- ments, RCI, Kodak og Nikon. Ekki var tekið fram hvenær gámurinn hefði verið kyrrsettur, en blaðið birti mynd af ytra byrði hans og aðra, sem á að vera af tölvum og geislamælum inni fyrir. Einnig hélt Izvestia því fram að sendingin hefði verið stíluð á þýsk- an kaupmann í Hamborg, Ramon Preuss. Hann vill hins vegar ekkert við málið kannast og segir að reynd- ar hafí hann pantað gám með leirpottum frá Japan, en hann hafí, sér til ómældrar undrunar, skotið upp kollinum í Baltimore í Banda- ríkjunum Þýska flutningafyrirtækið Ziist und Bachmeier, sem sovéska blaðið sakar um að bera ábyrgð á flutn- ingi gámsins lokaspölinn, segist ekkert þekkja til málsins, hafí aldr- ei skipt við fyrirtæki Preuss og hafí engan samning gert um flutn- ing leirvöru frá Japan. fremst snúist um efnahagsmál þótt fjölmiðlar hefðu sýnt pólitísku við- fangsefni leiðtoganna meiri áhuga. „Fundurinn og niðurstöður hans voru tvímælalaust skref í rétta átt,“ sagði Reagan. Hann sagði sam- komulag hafa náðst um að draga úr vemdarstefnu og minnka niður- greiðslur á landbúnaðarvörum. Auk þess hefðu leiðtogamir ákveðið að stuðla að því að lögmáí markaðarins ráði ferðinni í framleiðslumálum landbúnaðarins. Reagan neitaði því að hafa beðið bandamenn sína um hernaðarað- stoð til þess að veija skipaleiðir á Persaflóa. Lýsti hann sig ánægðan með þann siðferðilega stuðning, sem leiðtogamir hefðu veitt sér og stefnu Bandaríkjastjómar á flóan- um. „Samstaðan með okkur var algjör. Leiðtogamir tóku undir nauðsyn þess að halda olíuflutn- ingaleiðunum opnum og að íranir og írakar semji um frið.“ Reagan var spurður um skoðana- kannanir í Evrópu sem leitt hefðu í ljós að almenningur þar hefði meiri trú en hann á friðarviðleitni Gorbachevs. Forsetinn sagði það líklega skýringu á þessu að stefna Gorbachevs væri gjörólík stefnu forvera hans. Reagan nefndi sem dæmi að Gorbachev væri eini sovézki leiðtoginn, sem lagt hefði til að kjamavopnum, sem komin væm á skotpaila, yrði útiýmt. Loks sagði Bandaríkjaforseti að það þyrfti ekki að koma á óvart þótt dollarinn lækkaði lítilsháttar. Flestir væm þó sammála um að frekari breytingar á gengi dollarans væm óæskilegar og leiðtogamir hefðu orðið sammála um að frekari lækkun væri skaðleg. Fyrrum njósn- ari snýr aftur Reuter, New York. PHILIP Agee sem skrifaði bók um störf sín fyrir Leyniþjónustu Bandaríkjanna kom þangað í gær f fyrsta skipti i 16 ár. í bók sinni greindi hann frá leyniþjónustustörfum sínum í Ecu- ador, Umguay og Mexíkó. Hann rauf þar með trúnað þann sem hann hafði lofað að sýna. Hann er enn bandarískur ríkisborgari en var sviptur vegabréfí sínu árið 1979 þar sem hann var talinn hættulegur þjóðaröryggi. Agee starfar nú sem ráðgjafí hjá sandín- istastjóminni í Nicaragua og nýtur þar góðs af reynslu sinni hjá CLA. Vegabréf sitt fékk hann hjá þeim. Honum er fijálst að koma til Bandaríkjanna þegar hann vill en hann hefur aldrei verið opinberlega ákærður. Sjálfur segir hann að það sé ekki hægt án þess að ýmis leyndarmál CLA yrðu gerð opinber. Agee sagðist hafa farið í þessa Bandaríkjaferð til þess að hitta fjölskyldu sína og til þess að kynna nýja bók sem hann skrifaði um líf sitt eftir að hann hætti hjá leyni- þjónustunni. Hann segist hafa hrakist land úr landi vegna þess að leyniþjónustan hafi reynt að Philip Agee. láta hann líta út allt frá drykkju- sjúklingi til geðsjúks manns. Hann býr nú á Spáni þar sem konan hans kennir ballett. Neyðar- ástand í Panama í kjölfar óeirðanna Panamaborg. Reuter. STJÓRNVÖLD í Panama iýstu yfir neyðarástandi í gær eftir tveggja daga heiftúðug átök óeirðalögreglu og stjórnarand- stæðinga í Panamaborg. Það var Roberto Diaz, fyrrum yfírmaður í her Panama, sem hvatti til mótmælaaðgerðanna á þriðjudag, þegar hann sakaði Manuel Antonio Noriega, yfír- mann herráðsins og æðstráðanda í landinu, um margvíslega glæpi, þar á meðal morð og kosninga- svik. Noriega, sem stjómað hefur bæði her og lögreglu í Panama frá því í ágúst 1983, svaraði með því að saka Diaz um föðurlandssvik og samsæri gegn stjóminni. Hann varaði við mótmælaað- gerðum og sagði, að her og lögregla mundu gera allt sem unnt væri „til að halda uppi lögum og reglu". Ekki bámst fregnir af meiðslum eða mannfalli, en átökin urðu hörðust í nágenni háskólans. Raf- magn var tekið af einkaútvarps- stöð, sem studdi stjómarandstæð- inga, og skólum og mörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu var lokað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.