Morgunblaðið - 26.06.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.06.1987, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 141. tbl. 75. árg. FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Stefnuræða Margaret Thatcher: Umbylting í mennta- o g húsnæðismálum London, Reuter. RÍKISSTJÓRN Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, hyggst koma á rót- tækum breytingum á húsnæðis- og menntakerfinu auk þess sem lög um útsvar tíl sveitarfélaga verða tekin til endurskoðunar. Kom þetta fram í stefnuræðu forsætisráðherrans í gær sem Elísabet Bretadrottning flutti samkvæmt venju við upphaf þinghalds. Neil Kinnock, leiðtogi Verkamannaflokksins, gagn- rýndi harðlega stefnu stjórnar- innar. Thatcher hyggst afnema eignar- skatt sveitarfélaga og taka þess í stað upp nefskatt á alla þá sem orðnir eru fullra 18 ára. Að auki Suður-Afríka: Níu náma- menn farast Jóhannesarborg, Reuter. NÍU verkamenn létust og 25 slösuðust í námuslysi skammt frá Jóhannesarborg í gær. Mennimir voru við störf í Western Deep Levels-nám- unni, sem er dýpsta gullnáma heims, er jarðskjálfti reið yfir. Atta hörundsdökkir verka- menn og einn hvítur létust er loft námunnar hrundi yfir þá. Slysið varð nærri botni námunn- ar, sem er rúmir þrír kílómetrar að dýpt, og tókst giftusamlega að ná öllum verkamönnunum upp á yfirborðið. Enginn þeirra 25 sem slösuðust er talinn í iífshættu. Slys eru tíð í gullnámum í Suður-Afríku og hafa talsmenn verkalýðsfélags námamanna fullyrt að öryggiskröfum sé ekki fylgt. munu ríkisreknir skólar geta komist beint undir breska menntmálaráðu- neytið í stað þess að heyra undir sveitarfélögin. Þá vill stjómin gefa því fólki sem nú býr í leiguhúsnæði kost á að eignast það. Neil Kinnock fordæmdi þá stefnu að taka upp nefskatt og gagnrýndi stjómina harðlega fyrir að ætla að neyða almenning til að greiða fyrir læknisþjónustu og menntun. Þá gagnrýndi hann stefnu stjómarinn- ar í húsnæðismálum og sagði að með henni væru réttindi leigjenda fyrir borð borin. Denis Healey, fyrrum ráðherra Verkamannaflokksins og einn helsti talsmaður hans í utanríkis- og ör- yggismálum, tilkynnti í gær að hann hygðist hætta beinum afskipt- um af stjómmálum. Sjá ennfremur „Róttækustu breytingar____“ á bls. 20 og 21. Reuter Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, kemur til setningar þingsins í gær. Til vinstri við hana er Neil Kinnock, formaður Verka- mannaflokksins, og fyrir aftan þau er Sir Geoffrey Howe utanríkis- ráðherra. Norrænir bankar: Samvinna við Rússa Helsinki, Reuter. ÁKVEÐIÐ hefur verið að fjórir norrænir bankar veiti ráðgjöf varðandi fyrirhuguð samstarfs- verkefni norrænna og sovéskra fyrirtækja. Talsmaður fínnska Alþýðubank- ans skýrði frá því í gær að sérstakur samningur þar að lútandi hefði þeg- ar verið undirritaður. Auk fínnska bankans eru Bergens Bank, Privat- banken í Danmörku, og Skandinav- iska Enskilda Banken í Svíþjóð aðilar að samningnum. Norrænu bankamir munu veita ráðgjöf um val á samstarfsverkefn- um norrænna og sovéskra fyrir- tækja. Að auki munu þeir kanna hvemig fyrirtækin geta best nýtt sér þá fjárfestingarmöguleika sem fyrir hendi em. Mikhail Gorbachev á miðstj órnarfundi: Skríffinnska og aftur- hald hindra umbætur Krefst róttækra hagkerfisbreytinga Moskvu, Reuter. MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, krafðist þess í gær að þegar f stað yrði hrundið í framkvæmd grundvallarbreytingum á hag- kerfi Sovétríkjanna. Gorbachev ávarpaði miðstjórn kommúnista- flokksins og sagði skriffinnsku og afturhald standa í vegi um- bóta. Tass-fréttastofan sagði leiðtogann hafa boðað aukna sjálfsstjórn ríkisfyrirtækja og ýmsar aðgerðir til að tryggja aukið Iýðræði. „Breytinga' hefur þegar orðið vart í þessa veru en þær hafa enn ekki verið djúpstæðar," sagði Gorb- achev. Hvatti hann til endurskipu- lagningar efnahagslífsins og fráhvarfs frá miðstýringu. Þá kvaðst hann ennfremur telja nauð- synlegt að breyta framleiðsluskipu- lagningu ríkisfyrirtækja á þann veg að tekin yrði upp aukin sjálfsstjóm. Nafngreindi hann þá menn sem hann taldi að hefðu gerst sekir um mistök í starfi og lét að því liggja Waldheim í Páfagarði: „Þetta er svívirða“ - segir Yitzhak Shamir London, Páfagarði, Reuter. FYRRUM fangar i útrýmingar- búðum nazista höfðu uppi mótmæli í Róm og gyðingaleið- togar víða um heim mótmæltu í gær harðlega opinberri heim- sókn Kurts Waldheim, forseta Austurríkis, til Páfagarðs. Töldu þeir heimsóknina verða til að skaða samskipti gyðinga og kaþ- ólsku kirkjunnar en þau hafa batnað verulega síðastliðna tvo áratugi. Forsætisráðherra ísra- els, Yitzhak Shamir, var mjög harðorður. „Þetta er svívirða. Það er hægt að túlka þetta sem réttlætingu á þeim glæpum sem Waldheim hefur verið ásakaður um“, sagði forsætis- ráðherrann við fréttamenn í gær. Israel Singer, aðalritari Alheims- sambands gyðinga, sagði það ótrúlegt að páfi skyldi ekki minnast á þær skelfílegu þjáningar sem gyðingar hafa þurft að þola. Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, er staddur í opinberri heim- sókn í Frakklandi. „Þegar tekið er tillit til vissra efasemda varðandi hlutverk Páfagarðs í helför gyðinga í stríðinu og þess að ríkið hefur ekki stjómmálasamband við ísrael þá fínnst okkur að páfí ætti að íhuga stefnu sína vandlega," sagði Peres. Kaþólskir biskupar í Frakklandi hafa gagnrýnt heimsóknina og hol- lenski sendiherrann í Páfagarði var ekki viðstaddur móttöku til heiðurs Waldheim. Talsmenn Páfagarðs segjast undrandi og hryggir yfír þessum viðbrögðum; heimsóknin sé aðeins liður í eðlilegum samskiptum við Austurríki. Sjá einnig „Heimsókn Wald- heims ...“ á bls. 22. m Reuter Hópur gyðinga heldur á loft spjöldum til að mótmæla opinberri heimsókn Kurts Waldheim til Páfagarðs í gær. að andstaða við umbótaherferðina yrði ekki liðin. Fjölmargir sovéskir hagfræðing- ar hafa að undanfömu haidið því fram að gera þurfi róttækar breyt- ingar á miðstýrðu efnahagslífínu ef bæta eigi iðnframleiðslu og neysluvaming. Ræða Gorbachevs í gær gefur til kynna að sjónarmið þeirra hafi orðið ofan á en vitað er að embættismenn innan stjóm- kerfísins em margir hverjir andvígir því að horfíð verði frá miðstýringu þar eð völd þeirra munu óhjákvæmi- lega skerðast. „Byltingarkenndar umbætur hafa leitt í ljós þær and- stæður sem em milli krafna um endumýjun og uppbyggingu annars vegar og íhaldssemi, sjálfsdekmnar og stöðnunar hins vegar," sagði Gorbachev. Miðstjómin hefur fjallað um lagafmmvarp um breytt rekstrar- fyrirkomulag ríkisfyrirtækja. Þegar frumvarp þetta var fyrst kynnt vísuðu fylgismenn Gorbachevs því á bug þar eð þeim þótti það ekki ganga nógu langt. Hagfræðingar sem fylgja umbótaherferð Gorbach- evs telja að enn hafí stefna leið- togans ekki haft tilætluð áhrif og hafa þeir bent á að sjálft valdakerf- ið standi í vegi fyrir framfömm. Harðlínumenn og umbótasinnar takast því á og bíða menn spenntir eftir því hvort miðstjómin samþykki að takmarka völd embættismanna í Moskvuborg og taki upp verðlags- og framleiðslukerfi sem byggist á framboði og eftirspum. Sjá ennfremur „Uppgjörið við arfinn“ á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.