Morgunblaðið - 28.06.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.06.1987, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 143. tbl. 75. árg. SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1987 Prentsmiðja Morgnnblaðsins ^ Morgunblaðið/Helena I sól og sumaryl Góða veðrið hefur leikið við íslendinga það sem af er sumri, á meðan I í veðurblfðunni er freistandi að fá sér ís og það hafa bömin gert er regnhlífin hefur verið fastur förunautur margra annarra Evrópubúa. | ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á í Laugardalnum fyrir skömmu. Júgóslavía: Fjöldi Serba handtekinn Belgrad, Reuter. LÖGREGLA fjarlægði hundruðir serbneskra mótmælenda með valdi frá þinghúsinu f Belgrad, höfuðborg Júgóslavíu, sfðdegis á föstudag. Serbamir voru meðal þeirra tveggja þúsunda, sem söfnuðust saman til að mótmæla ofríki albanska meirihlutans f Kosovo-héraði gagnvart minni- hlutahópum. Að sögn sjónarvótta höfðu um tvö þúsund manns hópast saman fyrir framan þinghúsið, þar sem miðstjóm kommúnistaflokks Júgó- slavíu fundaði um ófriðinn milli þjóðarbrota í héraðinu. Þeir sögðu að lögregla hefði mðst inn á svæð- ið og handtekið fjölda manns. Fólkinu hefði sfðan verið hrúgað inn í langferðabíla og ekið til síns heima í Kosovo. Fundi miðstjómarinnar var slitið í skyndi er mótmælin færðust í aukana og hundmðir Belgradbúa bættust í hóp Serbanna. Suður-Kórea: Hillir undir sljórn- arskrárbreytingar? EFTIR tveggja vikna harðar mótmælaaðgerðir stjórnarand- stæðinga virðist stjórnarflokkur Suður-Kóreu, Lýðræðislegi réttlætisflokkurinn, (DJP), ætla að gefa eftir og sagði einn af forystumönnum hans í gær að ólíklegt væri að næsti forseti landsins yrði kosinn eftir núgildandi stjórnarskrá. Það var aðalritari flokksins, Lee Choon Koo, er gaf þessa yfir- lýsingu en vitað er að undanfama daga hefur þeirri skoðun vaxið fylgi innan stjómarflokksins að komast þyrfti að samkomulagi við stjómarandstöðuna um breyt- ingar á stjórnarskrá landsins, þar sem m.a. yrði tryggt að forsetinn verði kosinn í almennum lýðræð- islegum kosningum. Samkvæmt núgildandi stjómarskrá hefur forsetinn rétt til að útnefna eftir- mann sinn og síðan er sú útnefn- ing staðfest af sérstakri nefnd, sem eingöngu er skipuð stuðn- ingsmönnum núverandi forseta. Hefur þetta fyrirkomulag lengi verið umdeilt. 13. apríl sl. bannaði Chun Doo Hwan, forseti, allar umræður um breytingar á kosningafyrirkomu- lagi fram yfír Olympíuleikana er halda á í Suður-Kóreu næsta sumar. Er hann svo tilkynnti 10. júní sl. hver yrði forsetaframbjóð- andi DJP, þegar hann sjálfur léti af störfum í febrúar 1988, brat- ust út óeirðir. Hafa þær magnast dag frá degi og náðu hámarki sl. föstudagskvöld er a.m.k. 3.500 manns vora handtekin vítt og breitt um landið. Eftir fund með Kim Young Sam, einum helsta forystumanni stjómarandstæðinga, sl. mið- vikudag aflétti forsetinn um- ræðubanninu. Stjórnarandstæð- ingar sögðu það ekki nóg og kröfðust breytinga á kosninga- fyrirkomulaginu, annars myndu þeir halda áfram mótmælaað- gerðum. Forsetinn hefur haldið áfram viðræðum við stjómarand- stæðinga og trúarleiðtoga og sagði talsmaður hans í gær að Chun legði áherslu á að ná sam- komulagi um breytingar á stjórn- arskránni. Ef slíkt tækist ekki kæmi til greina að ijúfa þing og efna til kosninga. Nýkjömir þing- menn myndu síðan hefja enn eina samningalotuna um stjórnar- skrárbreytingar. Reuter. Forystumenn hinna ýmsu trú- flokka þafa látið í (jósi andstöðu við stjórnvöld og á þessari mynd sjást nunnur í borginni Pusan taka þátt í einni mótmæla- göngunni. Flugslys á Filippseyjum: 50manns fórust Manila, Reuter. AÐ SÖGN bandarískra björgun- arsveita komst enginn lífs af er filippeysk flugvél hrapaði að- faranótt föstudags. 50 manns voru með vélinni. Flugvélin rakst á fjall á norðan- verðri Luzon-eyju. Hún átti um fimmtán mínútna flug eftir á áfangastað, er flugstjórinn sendi út neyðarkall. Að sögn sjónarvotta lækkaði vélin skyndilega flugið og síðan heyrðu þeir háværa spreng- ingu. Þoka, myrkur og frumskógur fcöfðu fyrir björguníUBveifcuin á (eifl á slysstað. Að sögn yfirmanns björgunarsveita Bandaríkjahers fundust 50 lík í vélinni- Að sögn talsmanns filippeyska ríkisflugfélagsins PAL, en vélin var í eigu þess, er líklegt að slæmt veður hafi valdið slysinu. Persaflói: * Iranir ráðast á norskt skip Rnhrnin Rpntpr. ™ Bahrain, Reuter ÍRANSKIR fallbyssubátar réðust á norskt risaolíuskip á Persaflóa í fyrrakvöld. Einn af áhöfninni týndi lífi. Einnig var gerð árás á oliuskip frá Líberíu. Þetta eru fyrstu árásir írana á skip á flóan- um í fimm vikur. Að sögn ZJoyd’s-tryggingafé- lagsins urðu allmiklar skemmdir á norska skipinu Mia Margarethe. Vélarrúmið varð fyrir skemmdum og skömmu eftir árásina sendi skip- ið frá sér neyðarkall, þar sem beðið var um dráttarbát og læknishjálp. Arásin var gerð um 30 sjómílur norð-austur af strönd Arabíuskaga. Að sögn talsmanns norska skipafé- lagsins féll yfirvélstjóri skipsins í árásinni og tveir aðrir af áhöfninni særðust. Um klukkustundu eftir árásina á Mia Margarethe réðust íranskir fall- byssubátar á líberíska skipið Stena Concordia í hér um bil tíu sjómflna fjarlægð frá norska skipinu. Einnig urðu skemmdir á vélarrúmi líberíska risaolíuskipsins og tveir áhafnarmeðlimir særðust. Árásir Irana voru greinilega gerðar til að endurgjalda tvær árás- ir íraka á olíuskip á leið til íran í síðustu viku. írakar hófu árásir á olíuskip á siglingaleiðum til íran árið 1984, og íranir hafa einkum ráðist á olíuskip Kuwait-búa í hefndarskyni vegna stuðnings Kuwait við íraka. Meira en 300 skip hafa orðið fyrir árás á Persa- flóa síðan 1984. Bandaríska vamarmálaráðu- neytið vildi ekkert segja um árásim- ar, en Bandaríkjamenn hafa nú ákveðið að senda risaorrustuskipið Missouri til gæslu á Persaflóa. Með því vilja þeir tryggja að siglingaleið- inni inn á flóann um Hormúz-sund verði haldið opinni. Að sögn banda- rískra embættismanna hafa Iranir fest kaup á að minnsta kosti tutt- ugu kínverskum eldflaugum, sem þeir ætla að setja upp við sundið og ógna þannig siglingum. í fylgd með Missouri verða fjögur skip, þar af eitt eða tvö nýtískuleg beitiskip.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.