Morgunblaðið - 01.07.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.07.1987, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 145. tbl. 75. árg. MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1987 Prentsmiðja Morgamblaðsins Evrópubandalagið: Leiðtogafundur- inn árangurslítíll Brusael. Reuter. MINNI árangur náðist á fundi leiðtoga ríbja Evrópubandalags- ins (EB) sem haldinn var í Brussel i gær og fyrradag, en Reuter Weinberger, varnarmálaráðherra og Shultz, á blaðamannafundi í gær. Akvörðun forsetans stendur: Bandarískur fáni á skip frá Kuwait Washington, Bahrain, Reuter. TILKYNNT var í Hvíta húsinu í Washington í gær að Bandaríkja- stjórn myndi um miðjan júlimánuð leyfa skipum frá Kuwait að sigla undir bandarískum fána, þrátt fyrir vaxandi andstöðu bandariskra þingmanna við þá ákvörðun. Fram til þess tíma verður tíminn notaður til þess að fá þjóðir heims til að sameinast um aðgerðir til að knýja Irani og íraka til þess að semja frið. Undanfama sex mánuði hefur Bandaríkjastjóm reynt að fá meðlimi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna til að samþykkja tilmæli til stríðsaðila um að binda enda á ófriðinn. Að öðmm kosti myndu aðildarnki SÞ hætta að selja Irön- um og írökum vopn. Sagði Marlin Fitzwater, talsmaður Ronalds Reagan, í gær að stjóm sín vildi að Öryggisráðið hittist í byrjun júlí- mánaðar og hefði forsetinn beðið George Shultz, utanríkisráðherra, að vera sérlegan fulltrúa sinn á þeim fundi. Einnig yrði rætt við fulltrúa annarra ríkja er aðild eiga að SÞ og mun Vemon Walters, hershöfðingi, ferðast til ýmissa landa á næstunni til þess að kynna sjónarmið Bandaríkjamanna. Kom hann þessara erinda til Moskvu í gærkveldi. íranir réðust í gær á skip frá Kuwait, enginn um borð slasaðist og skemmdir á skipinu voru sagðar óvemlegar. Var þetta 44. árásin á skip á Persaflóa á þessu ári. Aðstoð- amtanríkisráðherra íran, Javad Larijani, ítrekaði í gær í Vínarborg þá skoðun Teheranstjórnarinnar, að aukin umsvif Bandaríkjamanna á flóanum myndi leiða til aukinna hemaðarátaka. Vaxandi andstöðu hefur gætt á Bandaríkjaþingi við þá ákvörðun stjómarinnar að leyfa skipunum frá Kuwait að sigla undir bandarískum fána óg áttu fulltrúar frá báðum deildum þingsins fund með Banda- ríkjaforseta og helstu ráðgjöfum hans í gærmorgun. Að þeim fundi loknum sagði Fitzwater að aðilar hefðu orðið sammála um að hags- munir Bandaríkjamanna á Persa- flóa væm það mikilvægir að ekki væri hægt að sætta sig við það að óvinveitt ríki segðu stjómvöldum í Washington fyrir verkum. vonir stóðu tíl. Ekki náðist sam- staða um langtímaaðgerðir í fjármálum bandalagsins og var ákveðinni andstöðu Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, kennt um. . Thatcher neitaði að leggja meira fé til EB fyrr en fjármálum banda- lagsins, sem verið hafa í ólestri um langt skeið, yrði komið í betra horf. Var haft eftir henni að ekki væri rétt að skrifa ávísun fyrir þann sem orðið hefði gjaldþrota fyrr en hann hefði komið sínum íjármálum i lag. Sagðist Thatcher ekki kunna að meta þau vinnubrögð sem Wilfred Martens, forsætisráðherra Belga, er var í forsæti á fundinum, hefði viðhaft. Hann hefði lagt fram skjal þar sem m.a. var gert ráð fyrir auknum greiðslum EB til þeirra aðildarríkja sem verr eru stæð, án þess að málið hefði verið útrætt. Verða langtímaaðgerðimar því ræddar aftur á fundi leiðtoga EB er haldinn verður í Kaupmannahöfn í desember á þessu ári. Samkomulag tókst um aðgerðir vegna fjárlagahalla bandalagsins, sem á þessu ári nemur 6 milljörðum dollara. Um 70% þeirra fjármuna fara til niðurgreiðslna á landbúnað- arvörum. Um tíma leit út fyrir að ekki næðist samkomulag um þetta atriði, en eftir næturfund þýskra og franskra embættismanna og morgunverðarfund Francois Mitter- rand, Frakklandsforseta, og Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands, í gærmorgun, fannst málamiðlun er allir leiðtogamir gátu sætt sig við. Landbúnaðarráðherrum EB- ríkjanna var síðan falið að ganga frá lokasamkomulagi og sátu þeir enn á fundi er Morgunblaðið fór í prentun í gærkveldi. A fundinum var samþykkt að leggja 5,9 milljarða dollara til há- tæknirannsókna til að freista þess að gera útflutningsvörur EB-ríkj- Reuter Thatcher á blaðamannafundi eft- ir leiðtogafundinn. anna samkeppnisfærari við vörur frá Bandaríkjunum og Japan. í Brussel átti Margaret Thatcher fund með nýkjömum forsætisráð- .terra {rlands, Charles Haughey og var þetta fyrsti fundur þeirra í fímm ár. I yfirlýsingu sem þau sendu frá sér sagði að áfram yrði unnið að þvi að ná markmiðum Ensk-írska samningsins, sem undirritaður var árið 1985 og fól m.a. í sér sameigin- legar aðgerðir gegn hryðjuverka- mönnum á Norður-írlandi. Þykir þetta merkileg yfirlýsing, því Haug- hey gagnrýndi mjög forvera sinn í embætti, Garret FitzGerald, í kosn- ingabaráttunni fyrir þingkosning- amar á írlandi fyrr á þessu ári, fyrir að undirrita þetta samkomu- lag. Æðsta ráðið: Samþykkti efnahags- frumvarp Gorbachevs Moskvu, Reuter. í GÆR samþykktí Æðsta ráð Sovétríkjanna, sem í.orði kveðnu er löggjafarþing þeirra, frum- varp um róttækar breytingar í efnahagsmálum. Er því ætlað að örva efnahag landsins með því að auka sjálfstjórn fyrirtækja og minnka miðstýringarvald ráðu- neyta í Moskvu. Samþykkt Æðsta ráðsins kom reyndar ekki mikið á óvart, þar sem Miðstjóm Kommúnistaflokksins hafði lagt blessun sína yfir frum- varpið í síðustu viku. Það var forsætisráðherra Sov- étríkjanna, Nikolai Ryzhkov, sem kynnti frumvarpið og sagði hann að öll fyrirtæki skyldu hafa sjálf- stæðan fjárhag. Gengi reksturinn ekki sem skyldi yrðu þau lýst gjald- þrota. Þá verður hlutverki „Gosplan", Áætlunamefndar ríkisins, breytt á þann veg að nú verður stofnuninni ætlað að fást við almenna efna- hagsáætlanagerð, en ekki beina stjómun fyrirtækja. Það hefur hún gert með „Fimm-ára áætlunum" sínum til þessa. Sjá grein á bls. 28. Suður-Kórea: Forsetinn sam- þykktí úrbætur Seoul, New York, Reuter. CHU Doo Hwan, forseti Suður- Kóreu, lýstí því yfir í sjónvarps- ræðu í nótt að hann samþykkti allar tillögur Roh Tae Woo, for- manns stjórnarflokksins (DJP), Reuter Loks sól í Englandi Eftir langvarandi rigningar hefur nú stytt upp i Englandi. Á myndinni sjást makindaleg- ir áhorfendur sóla sig og fylgjast með tennisleik á Wimbledon-vellinum i gær. um umbætur í lýðræðisátt í landinu. Hann sagði að kosningar yrðu haldnar í landinu snemma á næsta ári samkvæmt nýrri stjórnarskrá, sem stjórn og stj ómarandstaða myndu skipa nefnd til að semja. Kim Dae Jung, helsti forsvars- maður stjómarandstöðunnar, sagði á fundi með stuðningsmönnum sínum í gær að hann vonaðist til þess að hlutlaus ríkisstjóm skipuð ráðhermm úr núverandi stjómar- og stjómarandstöðuflokkum tæki bráðlega við völdum. Sú stjóm ætti síðan að undirbúa kosningar og sjá til þess að þær færu vel fram. Kim kvaðst ekki búast við því að verða í framboði til forseta þótt tillögur Rohs geri ráð fyrir að hann fái framvegis að taka þátt í stjóm- málum. Roh lýsti því yfir að hann myndi segja af sér sem formaður DJP og ekki vera í framboði til forseta ef tillögur hans yrðu ekki samþykkt- ar. Búist er við að gerðar verði miklar breytingar á starfsemi stjómarflokksins síðar í þessari viku og lét fjöldi forystumanna af störf- um í fyrradag til þess að auðvelda formanninum að endurskipuleggja flokksstarfið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.