Morgunblaðið - 19.07.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.07.1987, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B 161. tbl. 75. árg. SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 19897 Prentsmiðja Morgunblaðsins Noregur: Rúmensk íþrótta- stjarna biðst hælis Ósló. Frá Jan Erik Laurc, fréttaritara Morgunblaðsins. RÚMENSKA blakstjarnan Crina Rauta hefur beðist hælis i Nor- egi. í Rúmeníu á hún eiginmann og 18 mánaða gamlan son og vonast hún til þess, að þeim verði leyft að fara úr landi, svo að Qöl- skyldan geti sameinast á ný. Crina bað um landvist í Noregi í maímánuði þegar hún var þar í keppnisferð með rúmenska landslið- inu vegna Evrópumeistaramótsins í blaki. Ekki hefiir þó verið greint opinberiega frá máli hennar fyrr en nú. Skömmu áður en liðið átti að fara heim fóru flestar félagskvenn- anna í innkaupaferð og notaði Crina þá tækifærið og tók saman föggur sínar. Hún fór síðan huldu höfði um götur Óslóborgar, þangað til hún var þess fullviss, að liðið væri farið. Þá gaf hún sig fram við lög- regluna. Crina segir, að hún hafi ekki getað hugsað sér að búa lengur í Rúmeníu. Flóttann skipulagði hún í samráði við eiginmann sinn og töldu þau það vænlega leið til þess að feðgamir fengju einnig að yfir- gefa landið, þar sem Rúmenía hefur skrifað undir ASSE-samninginn, sem kveður á um sameiningu fjöl- skyldna. Sennilega eiga þó eftir að líða nokkur ár áður en eiginmaður og sonur fá brottflutningsleyfi — ef þeir þá fá það nokkum tíma. Crina byijar að öllum lfkindum að leika með norsku blakliði þegar á hausti komanda. Bandaríkin: Hærra olíu- verð vegna spennu á Persaflóa New York. Reuter. BÚIST er við, að hráolíuverð í Bandaríkjunum hækki á nýj- an leik í næstu viku vegna óvissu- og spennuástandsins á Persaflóasvæðinu, að sögn sérfræðinga. Verðið hækkaði aðeins lítils háttar í gær eftir umtalsverðar hækkanir fyrri hluta vikunnar. Hækkunin nam meira en einum dollara á bandarískum mörkuð- um, og var verðið þá komið í 22,40 dollara tunnan. Sérfræðingar segja, að verðið á tunnu kunni að fara upp í 23 dollara í næstu viku, þegar til þess kemur, að bandarísk stjóm- völd framfylgja þeirri stefnu sinni að verja kúvæsk olíuskip á Persaflóa. Er nýtt gíslamál í uppsiglingu í Iran? London, Washington, Reuter. ÍRANIR skýrðu frá því i gær, að frönsku sendiráðsmennirnir í Teheran yrðu handteknir fyrir njósnir og mál þeirra afhent íslömskum dómstólum. Er óttast, að það sama bíði annarra franskra borgara í íran. Iranska fréttastofan IRNA hafði það í gær eftir Ali Akbar Mohtas- hemi, innanríkisráðherra írans, að frönsku sendiráðsmennimir yrðu handteknir fyrir njósnir og undir- róðursstarfsemi og afhentir íslömskum dómstólum. Sagði hann, að Iranir hefðu undir höndum skjöl, sem sönnuðu, að starfsmenn sendi- ráðsins og ræðismannsskrifstof- unnar í Teheran hefðu hjálpað gagnbyltingarmönnum við að kom- ast úr landi. Sagði IRNA í gær, að lögreglan væri þá að umkringja franska sendiráðið. 15 manns starfa við sendiráð Frakka í Teheran en í íran öllu eru 200 franskir borgarar. Óttast Frakkar, að allt þetta fólk verði tekið í gíslingu eins og var með Bandaríkjamennina í Teheran árið 1979 og einnig, að stjómmálaslit- anna við íran verði hefnt á frönsku gíslunum í Líbanon. í gær hringdi maður til fréttastofu í Beirut og sagði, að tveir franskir gíslar yrðu líflátnir. Bofors-málið: Embættís- manni í Singapore mútað Stokkhólmi, Reuter. LÍKLEGT er talið að kæra, sem lögð hefur veríð fram á hendur embættismanni í Singapore fyrir að hafa þegið mútur af sænska Bofors-fyrír- tækinu, muni leiða af sér nýja rannsókn á málum fyrirtækis- ins. Þetta kom fram í viðtali við einn af sækjendum máls- ins, sem höfðað hefur verið á hendur Bofors í Svíþjóð. „Það lítur allt út fyrir að við munum he§a fmmrannsókn á málum Bofors 5 Singapore," sagði sækjandinn, Lars Ringberg, í við- tali við Svenska Dagbladet. Nú stendur yfir rannsókn sænskra yfirvalda á athöfnum fyrirtækisins eftir að Bofors viðurkenndi að hafa smyglað eldflaugum til ríkja í mið- austurlöndum, sem samkvæmt sænskum vopnaútflutningslögum má ekki selja vopn. í aprílmánuði stöðvuðu yfirvöld útflutning fyrirtækisins á vopnum til Singapore þar sem gmnur lék á að þau væm endurútflutt til annarra ríkja á ólöglegan hátt. Embættismaðurinn í Singapore, Tan Kok Cheng, var í gær ákærð- ur fyrir skjalafals.að hafa gefið rangar upplýsingar og að hafa þegið mútur að upphæð um 900.000 Bandaríkjadalir (36 millj- ónir króna) fyrir að hafa heitið Bofors hjálp við að fá reista eld- flaugaverksmiðju í landinu. Tan var framkvæmdastjóri fyrirtækis, sem sér her Singapore fýrir vopn- um. V estur-Þýskaland: Rannsaka staðhæfingar um blóðsmygl Brussel, Reuter. TALSMAÐUR belgískra yfir- valda sagði í gær að verið væri að rannsaka fullyrðingar vest- ur-þýska dagblaðsins Bild þess efiiis að órannsakað mannablóð frá Afríkuríkinu Zaire hefði ver- ið flutt með ólöglegum hætti til V estur-Þýskalands. Alnæmi (AIDS) er mjög útbreitt í Zaire og nálægum ríkjum en emb- ættismaðurinn sagði að strangar reglur giltu varðandi innflutning á blóði til Belgíu. Hann sagði að inn- flutningsleyfi fyrir blóði hefðu ekki verið veitt í allmörg ár. Vestur-þýska blaðið hélt því fram í gær að blóðið hefði uppmnalega verið flutt til Belgíu og þá verið merkt sem dýrablóð en síðan hefði blóðið verið selt sem mannablóð til vestur-þýskra sjúkrahúsa án þess að rannsakað hefði verið hvort það væri sýkt af alnæmi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.