Morgunblaðið - 23.07.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.07.1987, Blaðsíða 4
4________________________ Jón Baldvin Hannibalsson: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987 Ekki þörf á leið- réttíngu misvægis JÓN BALDVIN Hannibalsson Qármálaráðherra segir að full- yrðingar talsmanna atvinnurek- Skrúðgarðurinn í Laugardal: Bætt aðstaða fyrir fatlaða BORGARRÁÐ hefur samþykkt að bæta úr aðstöðu fyrir fatlaða í skrúðgarðinum í Laugardal. Samþykkt var að koma upp sal- emisaðstöðu fyrir fatlaða og að bæta aðkomu að garðinum þannig að fólk í hjólastól komist leiðar sinnar. enda og launþega þess efiiis, að um verulegt misvægi sé að ræða milli kauphækkana sem orðið hafi á fyrri hluta árs hjá opin- berum starfsmönnum og á almenna markaðinum fái tæpast staðist. „Það er ástæða til þess að ætla að þessi uppstilling á málum sé í höfuðatriðum röng,“ sagði Qármálaráðherra i samtali við Morgunblaðið. Jón Baldvin sagði: „Allt bendir til, að það sem gerst hafi í kjölfar desembersamninganna hafí gengið í þveröfuga átt við markmið þeirra samninga, bæði á almenna vinnu- markaðnum og hjá opinberum starfsmönnum. Desembersamning- amir áttu að lyfta lægstu laununum og draga úr því að hækkanimar færðust upp allan launastigann, en fyrstu sex mánuði þessa árs hækk- uðu laun opinberra starfsmanna að meðaltali um 18,69%, en á almenna launamarkaðinum á sama tíma á bilinu 13 til 17%.“ Jón Baldvin sagði að þessar tölur sýndu að launasprenging hefði átt sér stað bæði á almenna markaðin- um og í opinbera geiranum samtím- is. „Spumingin er hins vegar sú hvort það er einhver sérstakur hóp- ur, sem hefur setið eftir, og þar á ég fyrst og fremst við fískvinnslu- fólkið," sagði ^ármálaráðherra. Fjármálaráðherra kvaðst því telja, að tölur um einhverra tuga prósenta leiðréttingarþörf á milli opinbera geirans og almenna mark- aðarins væru úr lausu lofti gripnar og hann hefði engar staðreyndir séð, sem styddu slíkar fullyrðingar. VEÐUR l DAG k/. 12.00: Heimild: Veðurstofa islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) I/EÐURHORFUR I DAG, 23.07.87 YFIRLIT á hádegi í gær: Um 400 km vestur af Reykjanesi er 1008 millibara djúp lægð sem þokast aust-noröaustur. Vest-suðvestur af Irlandi er víðáttumikil 1030 millibara hæð. SPÁ: Vestan og norðvestan gola um mest allt land. Smáskúrir á annesjum norðan- og vestanlands, annars þurrt og bjart veður. Hiti á bilinu 10 til 18 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Fremur hæg breytileg átt. Lítilsháttar súld á annesjum vestanlands en víðast þurrt og bjart veöur annars staðar. Hiti á bilinu 10 til 18 stig. y, Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■j o Hitastig: 10 gráður á Celsíus SJ Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur [~T Þrumuveður VEÐUR VIÐA UMHEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyrl Reykjavík hiti 17 13 veAur skýjað rigning Bergen 18 léttskýjað Helsinkl 27 léttskýjað Jan Mayen 5 alskýjað Kaupmannah. 17 skúr Narssarssuaq 9 skýjað Nuuk 4 alskýjað Osló 27 léttslcýjað Stokkhólmur 25 léttskýjað Pórshöfn 13 súld Algarve 21 þokumóða Amsterdam 20 mistur Aþena 35 heiðskfrt Barcelona 22 lágþokublettir Berlín 24 hélfskýjað Chicago 23 mistur Feneyjar vantar Frankfurt 22 skýjað Glaskow 20 mistur Hamborg 22 skýjað Las Palmas vantar London 18 alskýjað Los Angeles 16 léttskýjað Lúxemborg 16 skýjað Madríd 20 léttskýjað Malaga 28 hálfskýjað Mallorca 29 skýjað Miami vantar Montreal 21 léttskýjað NewYork 23 léttskýjað París 17 skýjað Róm vantar Vín 25 léttskýjað Washington 29 léttskýjað Winnlpeg 15 þrumuveður Morgunblaðið/Kr. Ben. Hafbeitarlax háfaður upp úr lóninu hjá Vogalaxi hf. írjLj. ~ssr^. uír §§pl;; 2800 laxar komnir á land hjá Vogalaxi Grindavik. Nú er mesti annatími laxeldis- stöðvanna sem stunda hafbeit en heimtur eru misjafnar eins og geng- ur. Hjá Vogalax hf. á Vatnsleysu- strönd stefnir í metsumar að sögn Sveinbjöms Oddssonar stöðvar- stjóra. „Við höfum fengið 2800 laxa það sem af er sumri sem er um 8% heimtur, en við slepptum í fyrra 36 þúsund seiðum. Besta sumarið hingað til var 12,4% svo ég er mjög bjartsýnn á að nú verði metsumar því laxinn er að ganga inn í stöðina út ágúst,“ sagði Sveinbjöm. Sveinbjöm var spurður hvort lax- inn gengi á milli þeirra og Pólarlax og kvað hann svo vera, en í óvem- legum mæli, svo slíkt skipti ekki sköpum fyrir stöðvarnar. „Eg hef hins vegar áhyggjur af því þegar stöðvamar Lindarlax og Silfurlax, sem eiga land á milli okk- ar, verða komnar í gang. Vatns- rennslið undan hrauninu er svo keimlíkt á öllu svæðinu að það á eftir að rugla laxinn þannig að erf- iðleikar eiga eftir að skapast milli stöðvanna. Það vantar í löggjöfina að kveðið sé á um hámarksfjarlægð á milli stöðva," sagði Sveinbjöm að lokum. — Kr.Ben. Leystur úr haldi MAÐURINN, sem settur var í gæsluvarðhald í byrjun mánaðar- ins vegna gruns um kynferðis- lega misnotkun á börnum, var leystur úr gæsluvarðhaldi í gær. Að sögn talsmanns rannsóknar- lögreglunnar var ekki talin ástæða til þess að hafa hinn grunaða leng- ur í haldi vegna rannsóknarinnar. Rannsókn málsins er á lokastigi. Sveinn HelgiÞórðar- son skattstjóri látinn SVEINN Helgi Þórðarson fyrr- um skattstjóri Reykjanesum- dæmis lést að Landakotsspítala í gærmorgun. Sveinn var fæddur 21. febrúar 1916 á Hvammstanga í Vestur- Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru Þórður Sæmundsson símstöðv- arstjóri á Hvammstanga og kona hans Guðrún Karólfna Sveinsdóttir. Sveinn varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1939 og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla íslands 1943. Sveinn var verðlagsstjóri á Vest- fjörðum frá mars 1943 til 1. apríl 1944. Frá 1. apríl 1944 til 1. jan- úar 1966 starfaði hann sem fulltrúi tollstjórans í Reykjavík. Hann var aðalendurskoðandi Pósts og síma frá 1961 til 1. júlí 1967, er hann var skipaður skattstjóri Reykjanes- umdæmis. Því embætti gegndi hann til 1. júlí 1986, er hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir. Sveinn Helgi Þórðarson Eftirlifandi eiginkona Sveins er Þórunn Kristfn Helgadóttir deildar- stjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.