Morgunblaðið - 28.07.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.07.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 8. umferð millisvæðamótsins í Ung- veijalandi: Jóhanntapaði fyrir Adorjan JÓHANN Hjartarsson tapaði með svörtu mönnunum fyrir stórmeistaranum Adorjan frá Ungverjalandi í 46 leikjum í 8. umferð millisvæðamótsins í Ungveijalandi, sem tefld var í gær, og er í 5.-6. sæti á mótinu ásamt Englendingnum Nunn með 5 vinninga. Sovétmaðurinn Beljavskí er efstur á mótinu með 5,5 vinninga og frestaða skák við Svíann Anderson. Önnur helstu úrslit í 8. umferð voru þau, að Beljavskí gerði jafn- tefli við Ljubojevic frá Júgóslavíu, Englendingurinn Flear vann Nunn, Milos frá Brasilíu vann Alan frá Kanada og Portisch frá Ungveijalandi vann Todorscevic, sem teflir fyrir Mónakó. Portisch, Ljubojevic og Milos eru í 2.-4. sæti með 5,5 vinninga. I 7. umferð, sem tefld var á sunnudaginn, gerði Jóhann jafn- tefli við Anderson, Ljubojevic vann Alan, Salov og Milos gerðu jafntefli, Beljavskí vann Tod- orscevic, Portisch gerði jafntefli við Flear og Nunn vann Marin. Níunda umferð verður tefld í dag og hefur Jóhann hvítt gegn alþjóðlega skákmeistaranum Mar- in frá Rúmeníu. Alls verða tefldar sautján umferðir á mótinu, sem lýkur 10. ágúst. Afreiðslustúlkur Vöruhússins komu að uppsprengdum afgreiðslukössum í gærmorgun. Á myndinni er Ásdís Þórisdóttir. Selfoss: Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Brotist inn í Vöruhús Kaupfélags Arnesinga Selfossi. BROTIST var inn í Vöruhús Kaupfélags Árnesinga aðfarar- VEÐUR í DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kf. 16.15 i gær| VEÐURHORFUR I DAG, 28.07.87 YFIRLIT á hádagi í gær: Fyrir austan land er hæðarhryggur á hægri hreyfingu austur. Á sunnanveröu Grænlandshafi er 1007 millibara djúp lægð sem þokast norðaustur. SPÁ: Austan gola og súld með suðaustur- og austurströndinni. Annars staðar norðan gola með smáskúrum norðanlands en lóttir smám saman til sunnan lands og vestan. Hiti á bilinu 7 til 11 stig nyrðra en 10 til 15 stig syðra. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA MIÐVIKUDAGUR: Hæg norðvestlæg átt. Bjart veður sunnan lands og austan og hiti á bilinu 12 til 17 stig. Skýjað í öðrum landshlutum og hiti 8 til 12 stig. FIMMTUDAGUR: Suðvestlæg átt. Rigning um sunnan- og vestan- vert landið og hiti á bilinu 9 til 12 stig. Þurrt veður og hlýnandi norðaustanlands. TAKN: Heiðskírt x Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus V Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld CO Mistur —|- Skafrenningur jT Þrumuveður V-t t 1 VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hltl veður Akureyri 11 skýjað Reykjavík 11 rigning Bergen 16 Iðttskýjaö Helslnkl 16 skýjað Jan Mayen 6 skýjað Kaupmannah. 14 skýjað Narssarsauaq 10 skýjað Nuuk S þokumóða Osló 20 úrkomafgr. Stokkhólmur 16 skýjað Þórshöfn 10 skýjað Algarve 30 heiðskfrt Amsterdam 16 alskýjað Aþena 36 helðskfrt Barcelona 24 léttskýjað Berlfn 17 rlgnlng Chicago 21 alskýjað Feneyjar 23 léttskýjað Frankfurt 13 rignlng Glasgow 17 skýjað Hamborg 12 súld Las Palmas 25 mistur London 21 skýjað Los Angeles 17 heiðskfrt Lúxemborg 14 rigning Madríd 24 helðskfrt Malaga 26 léttskýjað Mallorca Miami 26 alskýjað vantar Montraal 18 skúr NewYork 23 heiöskfrt París 17 rignlng Róm 28 léttskýjað Vfn 19 skýjað Washlngton 27 léttskýjað Winnipeg 17 hálfskýjað nótt mánudagsins. Afgreiðslu- kassar voru brotnir upp og þaðan teknir peningar. Einnig var brot- ist inn í skrifstofii vöruhússtjóra og leitað peninga. Innbrotsþjófamir fóru inn um þakglugga og virtust hafa gengið hreint til verks að leita peninga. Allir afgreiðslukassar voru spenntir upp og þaðan tekin skiptimynt, um tvö hundruð þúsund. Að öðru leyti var aðkoman góð og ekki að sjá að neinum vörum væri stolið. Allt var á rúi og stúi á skrifstofu vöru- hússtjóra. Þar var rammgerður peningaskápur sem þjófamir kom- ust ekki í. Innbrotsþjófamir óku á brott í hvítri sendibifreið X 1075 af Dats- un- gerð sem stóð inni í vöruaf- greiðslu hússins. Bifreiðin fannst við Austurberg í Breiðholti eftir hádegi í gær. • Sig. Jóns. Pétur Georgsson netagerðarmeist- ari látinn Akranesi PÉTUR Georgsson netagerðar- meistari á Akranesi lést síðastlið- inn fostudag, 56 ára að aldri. Pétur fæddist á Akranesi 5. júní 1931, sonur hjónanna Georgs Sig- urðssonar sjómanns frá Melstað á Akranesi og Vilborgar Ólafsdóttur. Pétur starfaði sem netagerðar- maður og rak um langt árabil Nótastöðina hf á Akranesi í félagi við aðra, en var aðaleigandi hennar nú hin síðari ár. Pétur var á yngri árum landskunnur knattspymu- maður og var lykilleikmaður í hinu kunna „gullaldarliði" Skagamanna. Hann lék meðal annars nokkra landsleiki fyrir ísland á þeim árum. Eftirlifandi eiginkona Péturs er Emilía Jónsdóttir, dóttir Ragnheið- ar Þórðardóttur og Jóns Ámasonar, fyrrum alþingismanns. Þau eignuð- ust fjórar dætur. J.G. Ásgeir Blöndal Magnússon látinn ÁSGEIR Blöndal Magnússon fyrrverandi forstöðumaður Orðabókar Háskólans lést síðast- liðinn laugardag, 78 ára að aldri. Ásgeir var fæddur 2. nóvember 1909 að Tungu í Kúluþorpi í Auð- kúluhreppi í Amarfirði. Hann var sonur hjónanna Magnúsar Sigurðs- sonar verkamanns og Lovísu Halldóm Friðriksdóttur ljósmóður. Ásgeir Blöndal Magnússon lauk cand. mag. prófi í íslenskum fræð- um frá Háskóla íslands árið 1945 og var fyrsti fastráðni starfsmaður Orðabókar Háskólans. Þar starfaði hann sem sérfræðingur frá 1947 til ársloka 1979 og var forstöðu- maður hennar síðustu tvö árin. Þá lét hann af störfum fyrir aldurs sakir. Ásgeir var um hríð í yfirkjör- stjóm í Kópavogi, í stjóm Bóka- safns Kópavogs og í miðstjóm Sósíalistaflokksins og Alþýðu- bandalagsins.- Hann sá lengi um þættina Daglegt mál og á síðari árum vann hann að orðsifjabók sem út kemur á næsta ári í útgáfu Orða- bókar Háskólans. Af ritum sem eftir Ásgeir Iiggja em Marxisminn, nokkur fmmdrög, Reykjavík 1937, og ýmsar ritgerðir um málfræðileg efni í tímaritum, innlendum og er- lendum og í afmælisritum. Ásgeir var tvígiftur. Fyrri kona hans var Sigríður Sigurhjartardótt- ir, en hún lést árið 1951. Þau eignuðust þijá syni. Síðari kona hans var Njóla Jonsdóttir og lifír hún mann sinn. ilctUliltÍIIÍÍilllltÍlMttillKllKli IIIII
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.