Morgunblaðið - 28.07.1987, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.07.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 33 ísafj ar ðarkirkj a stórskemmd af eldi Innviðir kirkjunnar voru illa farnir af völdum eldsins. tiafirðL ísaQarðarkirkja stórskemmd- ist af eldi aðfaranótt mánudags. Talið er að ekki borgi sig að gera við kirkjuna og er nú þegar hafinn undirbúningur að bygg- ingu nýrrar kirkju. Lögreglumaður á eftirlitsferð varð var við að reyk lagði frá kirkj- unni um klukkan hálf fimm. Lét hann vita um talstöð á lögreglu- varðstofu sem þegar kallaði út slökkvilið. Að sögn lögreglunnar kom slökkviliðið mjög fljótt á vettvang en þá var eldur farinn að teygja sig út úr húsinu. Þorbjöm Sveinsson slökkviliðs- stjóri sagði að slökkvistarfið hefði verið ansi erfitt. Það hefði þó hjálp- að mikið til að nýlega hefði liðið fengið reykblásara ásamt rafstöð og hefði notkun hans flýtt mjög öllu slökkvistarfí. Það tók liðið um eina og hálfa klukkustund að ráða niðurlögum eldsins. Þorbjöm sagði að aðaleldurinn hefði verið í við- byggingu sem hýsti pípuorgel kirkjunnar og í kómum. Orgelið gjöreyðilagðist og bráðnuðu pípum- ar niður. Kristsiikneski, afsteypa af verki Berthels Thorvaldsens, stóð á altari kirkjunnar. Það splundrað- ist af hitanum um það leyti sem fyrstu reykkafaramir voru að bijót- ast inn í hliðarbygginguna. Tuttugu og fjögurra manna slökkvilið barð- ist við eldinn og sagði slökkviliðs- stjóri að reynsla og samhæfing slökkviliðsmanna hefði komið í veg fyrir að kirkjan brynni til kaldra kola. Óskar Sigurðsson rannsóknar- lögreglumaður stjómar rannsókn á orsökum eldsvoðans. Um miðjan dag í gær taldi hann sig vita um upphaf eldsins en varðist að öðru Ieyti allra frétta af rannsókninni. Hann sagði að von væri á rannsókn- amefnd frá Brunamálastofnun til ísafjarðar í dag og þar til niður- staða af rannsókn nefndarinnar lægi fyrir yrði ekkert greint nánar frá rannsókn málsins. Einhveijar vangaveltur hafa verið manna á meðal um íkveikju og var meðal annars bent á spellvirki sem unnin vom á auglýsingskilti knattspymu- ráðs þama á næstu grösum um nóttina. Halldór Sveinbjamason slökkviliðsmaður sem fyrstur kom á vettvang fullyrti við fréttamann að allar dyr kirkjunnar hefðu verið læstar þegar hann kom að og allar rúður heilar. Rannsóknarlögreglan staðfesti að allar dyr hefðu verið læstar en neitaði að gefa upplýsing- ar um gluggana. Eyrarkirkja í Skutulsfírði var vígð af séra Hálfdáni Einarssyni sóknapresti 16. ágúst 1863 og var þá Benefíctium eða sjálfseignar- kirkja. ísafjarðarkaupstaður tók við rekstri kirkjunnar 14. júní 1872 og hefur hún siðan heitið ísafjarðar- kirkja. Rak bæjarsjóður kirkjuna til 8. júní 1915 að hún var afhent ísa- fjarðarsöfnuði og hefur sóknar- nefnd ísafjarðarkirkju séð um rekstur hennar síðan. Kirkjan er bárujámsklætt timburhús en við upphaflegu bygginguna hefur verið bætt kór, 1882, og orgel- og kór- húsi, 1934. Gunnlaugur Jónasson bóksali er formaður sóknamefndar. Hann sagði að afloknum fundi með sókn- amefnd og varamönnum í sóknar- nefnd síðdegis í gær að það væri álit sóknamefndarinnar að kirkjan væri of mikið skemmd til þess að heppilegt væri að endurbyggja hana. Undanfarin ár hefur verið starfandi byggingamefnd á vegum safnaðarins sem vann að framtíð- arskipulagningu kirkju- og safnað- arhúss. Til þessa hefur verið unnið að því að nýta húsin á lóðunum númer 1 og 3 við Sólgötu sem kirkj- an keypti fyrir fáum ámm með það í huga að byggja þar safnaðar- heimili í tengslum við gömlu kirkj- una sem ætlað var að dygði um næstu framtíð. Nú hafa allar for- sendur breyst og hefur nefndinni verið falið að gera tillögu að bygg- ingu nýrrar kirkju og koma helst þrír staðir til greina. Sami staður, lóðin milli núverandi kirkju og gamla sjúkrahússins og lóð handan Hafnarstrætis fyrir framan nýja sjúkrahúsið. Kirkjubyggingin mun að sjálf- sögðu taka nokkum tíma og vinnur sóknamefndin því jafnframt að því að fínna bráðabirgðahúsnæði til safnaðarstarfsins. Sóknamefnd Hnífsdalssóknar hefur þegar boðið afnot af kapellunni í Hnífsdal og dugar hún undir allar minni athafn- ir. Auk þess er nú leitað samninga við aðila sem hafa yfír að ráða sam- komusölum í bænum. Gunnlaugur sagði að flestar eig- ur kirkjunnar hefðu eyðilagst eða skemmst mikið í brunanum. Það eina sem slapp óskemmt vom messuskrúði og altarisklæði sem komin vora í geymslu í safnaðar- heimilinu í Sólgötu. Auk þess er skímarskál lítið skemmd og ef til vill má bjarga handskomum eikar- predikunarstól og einhveiju af stjökum og vösum. Heildarvátrygg- ingarfé kirkjunnar og kirkjugripa er um 18 milljónir króna. Mikill fjöldi sóknarbama lagði leið sína að kirkjunni í gær og var auðséð að braninn hafði snortið mjög tilfínningar ísfírðinga í garð kirkju sinnar. Þá hafa þegar borist peningagjafír til kirkjubyggingar og þakkaði Gunnlaugur þann mikla hlýhug sem hann sagðist svo víða hafa orðið var við. Séra Jakob Hjálmarsson sóknar- prestur var í_ sumarfríi í sumarbú- stað sínum í Álftafírði þegar honum barst fregnin af brunanum. Séra Jakob hefur verið prestur ísfírðinga f tæp 10 ár og þekkir því orðið vel til hjarðar sinnar og kirkjunnar. Morgunblaðið náði tali af honum að loknum sóknamefndarfundinum. „Það er eins og sé farinn frá mér mjög kær vinur sem ég fæ aldrei að hitta aftur. Ég hef átt í kirkjunni margar góðar stundir og skil vel þá sviptingu sem orðin er í lffí fólks sem hér hefur komið frá bamæsku. Það hefur streymt að kirkjunni í dag líkt og fólk sem kemur að líkböram til að votta virð- ingu í hinsta sinn. Það er dapurlegt jrfir þessum degi. En það dugir ekki að grúfa sig yfír sortann. Nú verða menn að skilja sinn vitjunartíma. Ég heiti á söfnuðinn og Isfírðinga alla að duga nú kirkjunni sinni vel og standa fast við bakið á sóknamefndinni í þeim verkefnum sem framundan era. Við verðum að tryggja að safn- aðarstarfíð fái ekki óveglegri umgjörð en það áður hafði, þannig að menn geti verið stoltir af kirkju sinni eins og þeir hafa ávallt verið. Við skulum ekki láta bugast. Við höfum kapelluna í Hnífsdal og horf- um til vígslu kapellunnar í nýja sjúkrahúsinu og við fáum bráða- birgðahúsnæði til safnaðarstarfsins á meðan við byggjum nýja kirkju með þeirri aðstöðu sem í nútíma- guðshúsi þarf að vera, ef við bara tökum á og eram bjartsýn. Ég hef ekki ástæðu til annars, eftir þá hvatningu sem ég og sóknamefndin höfum fengið f dag,“ sagði séra Jakob. Síðasta athöfnin í ísafjarðar- kirkju var guðsþjónusta á sunnu- daginn. Jón Ragnarsson sóknar- prestur í Bolungarvík messaði þá í fjarveru séra Jakobs. Hann sagðist einmitt hafa farið að kvöldi sunnu- dagsins í heimsókn til séra Jakobs að Dæli í Álftafírði. Hann ók fram- hjá kirkjunni á heimleið um einni klukkustundu áður en eldsins varð vart og virtist þá allt með felldu. Úlfár lyfti- vagnar ;("V', Eigum ávallt fyrirliggjandi ]r hinavelþekktuBV-hand- lyftivagna með 2500 og 1500 kílóa lyftigetu. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN BiLDSHÖFDA W SÍML6724 44 Hversvegna nota tvo þegarEINN nægir? SHPPFEIAGIÐ JfúiátátýaweráíUttiSfeui Dugguvogi4 104 Reykjavik 91*842 55 Hentuqur hund- fyftari HPV800 UMBOÐS- OG HEILDVERSL UN BÍLDSHÖFÐA 16 SIMI 6724 44 Lyftigeta: 800 kg. Lyftihæö: 80 cm. Hentugt hjálpartæki við allskonar störf. Sparið bakið, stillið vinnuhæðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.