Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 64
rramtíð £R VIÐ SKEIFUNA aoaa ♦ SUZUKl LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Japanskt stór- fyrirtæki býður fé til skipasmíða Grindavík. „VONANDI þarf ég aldrei að snúa mér tíl útíendinga tíl að fjár- magna fyrirtækið, það er okkar feðganna og þannig verður það, annart þýðir ekki að ræða,“ sagði Ármann Armannsson framkvæmda- stjóri Ingimundar hf. í Reykjavík, en honum hefur boðist fé frá japönsku stórfyrirtæki til fjármögnunar á smíði nýrrar Helgu H RE 373 í Ulstanvik I Noregi. Skipið, sem verður fullkomið ftysti- og nótaskip með mikla ftysti- getu, verður sams konar og Pétur Jónsson, sem kom nýverið til lands- ins. „Það verður útbúið til frysting- ar á rækju, þorski, grálúðu og karfa. Þorskinn ætlum við bæði að heilfiysta og flaka. í skipinu, sem verður með 3.300 hestafla Bergen diesel-vél, verða öll fullkomnustu fiskileitartæki. Ekkert liggur fyrir um verð skipsins en gamla Helga II fer upp í kostnað þess nýja,“ hélt Ármann áfram. Armann sagði ennfremur að því væri ekki að neita að japanskt stór- fyrirtæki hefði leitað eftir samstarfi og boðið Qármagnsaðstoð við smíði skipsins í þeim tilgangi að tryggja sér rækju. „Við feðgamir ætlum okkur ekki að taka útlendinga inn í fyrirtækið, enda er það okkar og annað þarf ekki að ræða. Vonandi kemur aldrei að því að ég þurfi að snúa mér til útlendinga til að íjár- magna fyrirtækið,“ sagði Armann. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að erlend stórfyrirtæki hafi leitað til fleiri aðila innan sjáv- arútvegsins og boðið flármagn til uppbyggingar eða endumýjunar innan fyrirtækjanna, en því hafi verið hafnað. — Kr.Ben. Verðhækkun á freðfiski á Banda- ríkjamarkaði: 400 millj. kr. aukn- ing útflutningstekna Framleiðsla á frystum þorsk- afurðum 18% minni en í fyrra „MIÐAÐ við framleiðslu 1986 má ætla, að síðustu verðhækkan- ir á freðfiski á Bandarikjamark- aði auki útflutningstekjurnar á bilinu 400 til 450 miljjónir króna á ársgrundvelli“1 sagði Benedikt Valsson, hagfræðingur hjá Þjóð- hagsstofnun, er hann var spurð- ur um áhrif hækkana á fiskflökum á Bandaríkjamark- aði, sem greint var frá í frétt Morgunblaðsins nýverið. Bene- dikt sagði, að mestu munaði um hækkanir á frystum þorskafurð- um, sem einar sér gæfu liðlega 300 milljónir króna í tekjuauka. hækkunar rynni í Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins. Morgunblaðið/Sverrir Bú ’87 byijaði ígær Ostakarlinn vaktí mikla kátínu hjá bömunum sem hittu hann á landbúnaðarsýningunni Bú ’87. Fjöldi manns var viðstaddur er forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir opnaði sýninguna við há- tíðlega athöfn i gær. Sjá nánar á bls. 33 Lækkandi verð á Bret- landsmarkaði VERÐ á ferskfiskmörkuðum í Bretlandi fór heldur lækkandi í gær miðað við dagana á undan. Hjörleifur RE seldi í Hull i gær um 134 tonn af þorski fyrir 5,8 milljónir króna og var meðalverð 43,11 fyrir kflóið. Mikið framboð var á þorski á fiskmörkuðum í Bretlandi. á fimmtudag og munaði þar mestu um 500 tonn af gámafiski, sem fór á 22 milljónir króna eða um 44,51 að meðalverði. Húnaröst ÁR seldi einnig í Hull á fimmtudag um 112 tonn fyrir 5,2 milljónir króna og fékk 46,60 kiónur í meðalverð fyrir kílóið. Þá seldi Smáey VE í Grims- by um 69 tonn af ýsu og þorski fyrir 4,2 milljónir króna eða 61,28 að meðalverði. Loðnuskíp búast til veiða HEIMILD til loðnuveiða hefur legið fyrir frá þvi um miðjan júli síðastliðinn, en engin skip hafa hafið veiðar enn sem komið er. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins munu nokkur loðnuskip vera að búast til veiða um eða eftir helgina, en þessi skip eru sam- kvæmt óstaðfestum fréttum Skarðsvík SH, Hrafn GK, Öm GK og Huginn VE. Ákvörðun um loðnuverð hefur enn ekki verið tekin, en málið verð- ur tekið fyrir á næsta fundi Verð- lagsráðs sjávarútvegsins hinn 18. ágúst næstkomandi. Sambandíð vill kaupa 67% hlutafjár Útvegsbankans Tilboð sem ekki er hægt að hafna, segir Jón Baldvin Hannibalsson, fjár- málaráðherra - Myndi hafna tilboðinu segir Matthías Bjarnason „Það verð sem um er að ræða hækkar að meðaltali um 5,5%,“ sagði Benedikt ennfremur. „Það ber að taka fram að framleiðsla á land- frystum botnfiski á föstu verðlagi er tæplega 7% minni fyrstu sjö mánuði þessa árs samanborið við sama tíma í fyrra og það sem snert- ir ftystar þorskafurðir í þessum samanburði er samdrátturinn um það bil 18%.“ Benedikt sagði að eins og nú væri háttað mætti reikna með að um helmingur umræddrar verð- „MÉR þykir það ekki gott ef Sambandið á að fá þetta vald yfir bankakerfinu. Ég held að það hafi það nóg fyrir,“ sagði Olafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins SAMBAND íslenskra samvinnu- félaga og þijú fyrirtækja þess hafa lagt fram tilboð um kaup á 67% hlutafjár Útvegsbanka ís- lands hf. eða 670 milljónir króna á nafnverði. Tilboðið var afhent Jóni Sigurðssyni, viðskiptaráð- herra, i gærmorgun og jafnframt voru lagðar fram 33,5 milljónir króna eða 5% nafnverðsins. Ráð- herra hefur tekið sér frest fram i næstu viku til þess að íhuga tilboðið. Ætlunin er að Sam- um tilboð SÍS í Útvegsbankann. „Þess vegna sýnist mér að það þurfí að snúast gegn þessu. Hins vegar hlýt ég að lýsa yfir vonbrigðum mínum um að aðilar í einkarekstri skuli ekki hafa náð vinnubankinn og Útvegsbankinn sameinist ef af kaupunum verð- ur. Einnig vilja Sambandsmenn að Alþýðubankinn taki þátt í hin- um nýja banka. Stjóm Sambandsins samþykkti á fundi síðastliðinn fímmtudag að kaupa ásamt þremur sambands- fyrirtækjum, Samvinnusjóði íslands hf., Jötni hf. og Dráttarvélum hf., 67% hlutaflár Útvegsbankans. Sambandið, Samvinnusjóður og saman á síðastliðnu vori um að kaupa hlutafé i Útvegsbankanum. Hvort þetta verður til þess að opna augu þeirra fyrir því að nauðsyn sé að þeir standi saman veit ég ekki, en ég vona það.“ Jötunn munu eiga 20% hvert en Dráttarvélar 7% hlutaflár, ef tilboð- ið verður samþykkt. Heildarhlutafé bankans er 1.000 miiljónir króna og þar af hefur Fiskveiðasjóður ís- lands þegar keypt 200 milljónir og ýmsir aðilar um 40 milljónir króna. Á blaðamannafundi sem haldinn var í gær í aðalstöðvum Sambands- ins sagði Valur Amþórsson, stjóm- arformaður þess, að stefnt væri að því að selja innlendum eða erlendum aðilum hlutabréf þegar endurskipu- lagningu og sameiningu bankanna er lokið. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins vill Sambandið greiða hluta hlutafjárins á fimm árum og hitt á lengri tíma. Þess má geta að Fisk- veiðasjóður greiðir hlutafé sitt á sjö ámm. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagðist ætla að kynna tilboð- ið á ríkisstjómarfundi næstkomandi þriðjudag. Ákvörðun um hvort til- boðinu verði tekið eða ekki, sagðist Jón taka í næstu viku. Fréttin um tilboð Sambandsins kom á óvart og kallaði, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, á snörp viðbrögð útgerðarmanna og við- skiptavina Utvegsbankans um allt land, sem hafa unnið að því að undanfömu að sameinast um kaup á hlutafé í bankanum. Mun mikill skriður hafa komist á viðræðumar í kjölfar frétta um tilboð Sambands- ins. Sigurður Einarsson, forstjóri Hraðftystistöðvar Vestmannaeyja sagði að þetta væru stórfréttir og ákveðið áfall. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna tók í sama streng. Jón Baldvin Hannibalsson, íjár- málaráðherra hafði þetta um málið að segja: „Þetta er tilboð sem ekki er hægt að hafna hver sem í hlut á.“ En Matthías Bjamason, þing- maður Vestfírðinga og fyrrverandi viðskiptaráðherra sagði: „Væri ég viðskiptaráðherra núna hafnaði ég tilboði Sambandsins I Útvegsbank- ann þar eð ég tel það andstætt lögunum um Útvegsbankann að einn aðili eigi meirihluta." Sjá nánar frétt og viðtöl á bls. 2Ö-27. Vald Sambandsins er nóg fyrir - segir Ólafur G. Einarsson, þingflokksformaður sjálfstæðismanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.